Fréttablaðið - 17.08.2003, Page 17
17SUNNUDAGUR 17. ágúst 2003
Þessi mynd hefur verið fjar-lægð vegna skemmdarverka“,
getur að líta á um tug krossviðar-
spjalda niðri á Austurvelli þar
sem um þessar mundir stendur
yfir víðfræg ljósmyndasýning á
heiminum séðum af himni.
Skemmst er frá því að segja að
sýningin hefur orðið svo illa úti að
aðstandendur hennar munu nú
hugleiða að taka hana niður fyrr
en áformað var og hafa jafnframt
látið þess getið að þeir hafi víða
komið en hvergi orðið vitni að öðr-
um eins vandalisma (skemmdar-
fýsn) og hér.
Ljótt er ef satt reynist. Og það
er dagsatt: samband okkar við
umhverfið er eitthvað einkenni-
legt. Það þarf ekki útstillingu á
Austurvelli til að komast að raun
um það. Hér hefur t.a.m. gengið
illa að halda úti símaklefum,
menn sem hyggjast nota þá stan-
da kannski með trosnaða snúru í
annarri hendi og símaskrá sem
hefur verið rifin í strimla í hinni.
Og einn daginn er búið að róta öll-
um bekkjum á strandlengjunni
við Öskjuhlíð niður í fjöru. Einnig
virðist vera sérstök ögrun ef leik-
og líkamsræktartækjum er stillt
út á almannafæri. Fyrir utan öll
þau ókjör af drasli sem fólk kemst
yfir að henda út um bílglugga. Ef
ekki kæmi til árvisst sjálfboða-
starf klúbbanna væri hringvegur-
inn ein samhangandi Sorpa. Á
dögunum birtist viðtal við hóp
sem á einni saman Hellisheiði
hafði rakað saman ósamstæðasta
dóti: fyrir utan bílfarm af dósum
og flöskum, matarafgöngum og
matarumbúðum var Rafha-elda-
vél, bleyja með öllu og efrigómur
úr manni (sem óneitanlega bendir
til að hér sé ekki einvörðungu
bráðungt fólk á ferð).
Vanlíðan og árásarhneigð
Hvernig stendur á þessu? Upp-
eldi eða öllu heldur uppeldisskort-
ur segja menn. Hið víðtæka tóm-
læti foreldra þegar afkvæmin eru
annars vegar. Áreiðanlega. En
heiftin, brotaviljinn er of einbeitt-
ur til að afskiptaleysi einvörðungu
geti verið um að kenna. Það yrði
næstum að koma til kerfisbundin
innræting um fjandskap við um-
hverfið og jafnvel þótt menn gæfu
sér að íslenskir foreldrar hefðu
slík áform uppi er óhugsandi að
þeir hefðu úthald og tíma til að
koma þeim í framkvæmd.
Ég held að við verðum að
skyggnast lengra og leggjast
dýpra. Hvað til dæmis um sjón-
varpið? Getur hugsast að dag-
skrárstefna íslenska sjónvarpsins
sé einn af gerendum þessa
ástands? Sú markvissa stefna að
hafa helst aldrei íslenskt efni á
boðstólum. Með þeim afleiðingum
að upp er vaxin í landinu kynslóð
sem hefur naumast náð sambandi
við umhverfi sitt í áhrifamesta
miðlinum. Með öðrum orðum, heil
kynslóð hefur í huganum verið
stödd í allt öðru umhverfi en lík-
aminn. Þessi klofningur framkall-
ar vanlíðan og árásarhneigð sem
getur beinst gegn einstaklingnum
sjálfum, en langoftast umhverf-
inu, sem birtist honum þá sem
framandi og fjandsamlegt.
Forsenda fyrir rækt til um-
hverfisins er að við höfum taug-
ar til þess. Það mun fáheyrt að
heil þjóð lifi í svo gagngerri
firrð frá veruleika sínum sem
nútíma Íslendingar. Til eru að
vísu dæmi um þjóðabrot sem
hafa verið beitt ofríki og kerfis-
bundið meinaður aðgangur að
menningu sinni, Baskar til að
mynda sem spænsk stjórnvöld
hafa með hléum reynt að brjóta
niður og menningu þeirra úthýst
af opinberum vettvangi. Og vek-
ur upp þarlenda hryðjuverka-
menn sem meðal annars
sprengja mannskæðar bíla-
sprengjur.
Íslendingar aftur á móti
bregðast við hinu andlega svelti
með því að henda rusli út um bíl-
glugga. Og býðst að skoða kross-
viðarplötur á Austurvelli. ■
rétta gagnrýni er þessi skoðun
jafn útbreidd fyrir því. Hvernig
er hægt að saka Tony Blair um að
láta stjórnast af skoðanakönnun-
um og ímyndarfræðingum þegar
hann hikaði ekki við að ganga
gegn ríkjandi skoðun í flokknum
og almenningsálitinu með stað-
föstum stuðningi við George Bush
og þátttöku í innrásinni í Írak? En
næst á eftir vingulshættinum er
sú staðfesta hans oftast nefnd
sem helsta ástæða þess hversu
margir hafa snúið við honum baki.
Ef menn vilja hins vegar kalla
Tony Blair vingul er helst að vísa
til breytilegrar afstöðu hans til
Evrópusambandsins. Í upphafi
var hann mikill Evrópusinni, en
nú slær hann úr og í þegar að því
kemur að Bretar taki afstöðu til
þess að taka upp hið evrópska
myntkerfi og leggja niður pund í
stað evru. Mörgum kemur það
spánskt fyrir sjónir að þessi mikli
Evrópusinni skyldi gera það að
sínu helsta baráttumáli að leggja
út í styrjöld með George Bush,
íhaldssömum Bandaríkjaforseta,
og fjarlægjast og jafnvel móðga
helstu leiðtoga Evrópulandanna á
borð við Chirac í Frakklandi og
Schröder í Þýskalandi. Mikil gjá
hefur nú myndast milli „gömlu“
Evrópu og „haukanna“ í Wash-
ington, og mörgum þykir Tony
Blair hafa farið sér að voða í
þeirri gjá.
Mörg spjót
Varðandi auglýsingamennsku
hans og ímyndarsmiði varð frægt
hneykslið sem varð þegar einn
ímyndarsmiður hans álpaðist til
að senda frá sér tölvupóst hinn
sorglega dag 11. september og
benda á að upplagt væri fyrir
stjórnina að nota þennan dag til að
koma vondum fréttum á framfæri
- eða „jarða“ þær eins og ímyndar-
smiðurinn komst svo óheppilega
að orði.
Helsti ímyndarsmiður Tony
Blair er Alastair Campbell, en í
síðustu viku vitnaði Andrew Gilli-
gan, fréttamaður á BBC, um það
fyrir rannsóknarnefnd Huttons
lávarðar að dr. David Kelly hefði
sagt að leyniskýrslu um vopna-
eign Íraka hefði verið breytt sam-
kvæmt fyrirmælum Campbells.
Rannsóknarnefndin hefur það
verkefni að grafast fyrir um þá
atburði sem knúðu dr. David
Kelly til að binda enda á líf sitt,
eftir að nafn hans var nefnt opin-
berlega sem heimildarmanns fyr-
ir því að Downing Street (skrif-
stofa forsætisráðherra) hefði lát-
ið „bæta púðri“ í skýrslu um hern-
aðarmátt Íraka.
Margir vinstrimenn í Bretlandi
sem til þessa hafa stutt Tony Blair
með ráðum og dáð eiga nú úr
vöndu að ráða. Eiga þeir að stuðla
að áframhaldandi valdaferli
manns sem sagður er ropa þegar
Bandaríkjaforseti sýpur á kók?
Eða eiga þeir að horfa upp á
Verkamannaflokkinn afhenda
Íhaldsflokknum stjórnartaumana
á nýjan leik? Eða eiga þeir að gera
hallarbyltingu og gera fjármála-
ráðherrann, Gordon Brown, að
foringja flokksins?
Ögurstundin nálgast
Það standa mörg spjót á Tony
Blair. Ef það kemur í ljós þegar
rannsóknarnefnd Huttons lávarð-
ar skilar áliti sínu að forsætisráð-
herrann hafi borið ábyrgð á því að
falsa innihald leyniskýrslunnar
sem var höfuðröksemdin fyrir
innrás Breta í Írak – og ástæða
þess að dr. Kelly batt enda á líf sitt
– má gera ráð fyrir því að veru-
lega hrikti í valdastóli Tonys
Blairs. Ef hann sleppur með
skrekkinn eins og góðkunningi
hans, Clinton fyrrum Bandaríkja-
forseti, frá Lewinsky-málinu virð-
ist fullkomlega raunhæft að ætla
að Blair takist að verða forsætis-
ráðherra í þriðja skiptið þótt
mörgum þyki valdaferill hans orð-
inn nógu langur. Kannski ekki síst
manninum sem Blair segir að sé
„besti vinur sinn í stjórnmálum“,
Gordon Brown, en sagt er að þá
muni Tony láta sér nægja að sitja í
tvö ár sem forsætisráðherra, síð-
an muni hann standa upp fyrir
„besta vini sínum“ – samkvæmt
samkomulaginu frá ‘94.
thrainn@frettabladid.is
LJÓSMYNDASÝNINGIN Á AUSTURVELLI
„Þessi mynd hefur verið fjarlægð vegna skemmdarverka“, getur að líta á um tug krossvið-
arspjalda niðri á Austurvelli þar sem um þessar mundir stendur yfir víðfræg ljósmynda-
sýning á heiminum séðum af himni.
PÉTURS
GUNNARSSONAR
■ Sunnudags-þankar
Útstilling
á innræti
Forsenda fyrir rækt
til umhverfisins er
að við höfum taugar til þess.
Það mun fáheyrt að heil
þjóð lifi í svo gagngerri firrð
frá veruleika sínum sem nú-
tíma Íslendingar.
,,
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M