Fréttablaðið - 17.08.2003, Síða 22
22 27. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
PETER ENZIMBI
Kenýamaðurinn Peter Enzimbi sigraði í
hálfmaraþoni Reykjavíkurmaraþons sem
fram fór í gær. Vegalengdin sem kepp-
endur í hálfu maraþoni lögðu að baki er
21 kílómetri.
MARAÞON „Þetta var hressandi og
tíminn þannig að maður skamm-
ast sín ekki fyrir að segja frá hon-
um, þrír kílómetrar á kortéri,“
sagði Þórólfur Árnason, borgar-
stjóri en hann tók þátt í Reykja-
víkurmaraþoni í gær. Það voru
raunar tveir borgarstjórar sem
tóku þátt. Auk Þórólfs fór Glen
Murray, borgarstjóri Winnipeg, í
þriggja kílómetra skemmtiskokk.
„Við vorum í samfloti og hann
sagði að þetta væri besta leiðin til
að kynnast nýjum stöðum,“ sagði
Þórólfur, en þeir stjórarnir leidd-
ust í mark og voru því hnífjafnir.
Þórólfur segist reyna að
skokka að minnsta kosti þrisvar
til fjórum sinnum í viku.
„Það er nauðsynlegt til að
halda andlegri og líkamlegri
heilsu,“ sagði Þórólfur og bætti
við að hann væri ekki bara sáttur
við eiginn árangur, heldur daginn
í heild.
„Engar líkur á því,“ sagði
Þórólfur aðspurður um hvort hálf-
maraþon væri á dagskránni næsta
sumar. „Ég hugsa að ég fari sjö
kílómetra og svo tíu áður en að
því kemur. En annars er best að
segja sem minnst, láta frekar
verkin tala,“ sagði Þórólfur Árna-
son borgarstjóri. ■
Borgarstjóri Reykjavíkur:
Ekki hálf-
maraþon í bráð
ÞREYTTIR BORGARSTJÓRAR
Þeir leiddust í í mark og urðu því hgnífjafnir , borgarstjórarnir Þórólfur Árnason,
Reykjavík og Glen Murray, Winnipeg. Báðir fóru þriggja kílómetra skemmtiskokk og
kláruðu á viðunandi tíma.
ÚRSLIT Í
REYKJAVÍKURMARAÞONI
MARAÞON
Karlar
1. Peter Wales Kanada 2:41:07
2. Sveinn Ernstson 2:42:45
3. Valur Þórsson 2:45:11
4. Andrew Lynch Bretland 2:47:25
5. Vicente B. Jimenez Spánn 2:49:18
Konur
1. Sonja Andersen Bandaríkin 3:14:11
2. Elísabet Jóna Sólbergsdóttir 3:27:49
3. Lillemor Classen Svíþjóð 3:30:27
4. Guðrún Geirsdóttir 3:32:57
5. Elsebet Nonbo 3:36:16
HÁLFMARAÞON
Karlar
1. Peter Enzimbi Kenýa 1:10:06
2. Peter Altmann Bretland 1:11:36
3. Andrew Wier Bretland 1:11:45
4. Falco Gualtiero Ítalía 1:14:53
5. Alex Gaskall Bretland 1:15:10
Konur
1. Martha Erntsdóttir 1:20:28
2. Steph Cook Bretland 1:22:49
3. Rannveig Oddsdóttir 1:27:06
4. Bára Agnes Ketilsdóttir 1:32:33
5. Margrét Elíasdóttir 1:34:28
10 KM
Karlar
1. Gauti Jóhannsson 33:12
2. Burkni Helgason 33:59
3. Jóhann Ingibergsson 35:09
4. Daníel Smári Guðmundsson 35:16
5. Gísli Einar Árnason 37:15
Konur
1. Carmen Ballesteros Spánn 38:42
2. Jóhanna Skúladóttir 40:14
3. Malín Guðjónsdóttir Danmörk 41:33
4. Rakel Ingólfsdóttir 42:18
5. Sandra Birgisdóttir 44:16
10 KM LÍNUSKAUTAHLAUP
Karlar
1. Símon Barri Haralds 29:31
2. Gunnar Vilhelmsson 29:59.
Konur
1. Hjálmdís Zoega 30:51
2. Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir 32:19
MARAÞON Metþátttaka var í Reykja-
víkurmaraþoninu í gær. Tæplega
3.500 manns skráðu sig til leiks og
hlupu 3.339. Í fyrra voru þáttta-
lendur 2.800. Þegar Reykjavíkur-
maraþon fór fyrst fram fyrir tut-
tugu árum voru þátttakendur 280 í
öllum flokkum.
Í ár skráðu 379 sig í heilt mara-
þon og 558 í hálft maraþon. Fleiri
útlendingar tóku þátt í maraþoni en
Íslendingar.
„Mesta aukningin var í heilu og
hálfu maraþoni. Þar var mikil aukn-
ing. Fjöldi þátttakenda í skemmti-
skokki stjórnast meira af veðrinu,
menn ákveða þáttöku með skemmri
fyrirvara. En ánægjulegast þykir
okkur að sjá aukningu erlendra
þátttakenda. Í ár voru yfir 700 þátt-
takendur frá 34 löndum og það er
umtalsvert meira en var í fyrra,“
sagði Gunnar Páll Jóakimsson, upp-
lýsingafulltrúi Reykjavíkurmara-
þons.
Kanadamaðurinn Peter Wales
kom fyrstur í mark í heilu mara-
þoni á rúmum tveimur og hálfum
klukkutíma. Annar varð Sveinn
Ernstsson úr ÍR á tæplega tíu mín-
útna lakari tíma.
Kenýamaðurinn Peter Enzimbi
varð fyrstur í hálfu maraþoni og
hljóp vegalengdina á 1:10:06.
Martha Erntsdóttir varð fyrst
kvenna í mark og hljóp hún á
1:20:28.
Páll Gunnar segir að heppilegra
hefði verið að hafa lygnara veður
en nokkur strekkingur var og rign-
ing á köflum á meðan hlaupið fór
fram. „Reykjavíkurmaraþon tókst
ágætlega en sökum vinds hlupu
menn hægar og voru því ekki að ná
þeim tímum sem þeir stefndu að.
Það voru engin brautarmet slegin í
ár, veðrið bauð ekki upp á það,“
sagði Gunnar Páll Jóakimsson og
bætti við að engin óhöpp hefðu orð-
ið í ár.
Gunnar Páll sagði að flestir sem
lögðu af stað hefðu skilað sér í
mark, þó einhverjir hafi átt erfitt
síðustu metrana og þurft að ganga í
mark.
Allir þátttakendur sem luku við-
komandi vegalengd fengu verð-
launapening og þrír efstu karlar og
þrjár efstu konur í maraþoni og
hálfmaraþoni fengu utanlandsflug-
miða frá Flugleiðum í verðlaun.
Verðlaunaafhending fór fram í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
the@frettabladid.is
Reykjavíkurmara-
þon í rigningu
Tæplega 3.500 manns skráðu sig til leiks í Reykjavíkurmaraþoni i gær. Yfir 700 útlendingar
frá 34 löndum mættu til leiks. Metþátttaka var í hluapinu. Fjöldi fylgdist með.
ALLIR AF STAÐ
Tæplega 3.500 manns tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í ár, jafnt ungir sem aldnir. Kanadamaðurinn Peter Wales kom fyrstur í mark í heilu maraþoni en annar varð Sveinn Ernstsson úr ÍR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M