Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 17.08.2003, Blaðsíða 33
33SUNNUDAGUR 17. ágúst 2003 ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Bandaríkin og Kanada. Sif Gunnarsdóttir. Borussia Dortmund. Ólafur Páll Torfason, sem geng-ur undir nafninu Opee, var ný- kominn af sólarströndinni á Krít þegar blaðamaður hafði samband. Hann var því nær óupplýstur um velgengni lagsins Mess it Up. Það er það eina í sumar sem hefur far- ið á topp 10, bæði á X-inu 977 og FM957, sem hlýtur að teljast af- rek í ljósi þess að stöðvarnar gefa sig út fyrir að vera andstæður. „Ég fékk einmitt SMS frá einni fæddri ‘88,“ segir Opee aðspurður um þessa nýtilfengnu athygli. „Hún er sem sagt að byrja í tíunda bekk en ég var að klára mennta- skólann, skrýtið.“ Opee öðlaðist fyrst viðurnefnið Óli P þar sem hann átti nafna í bekknum sínum. Fljótlega upp- færði hann það upp á enskuna. „E- in í endann er svo bara til þess að fólk lesi þetta ekki sem íslenska orðið „Op“,“ útskýrir hann. „Þetta er bara skreyting, tengd graffi og svoleiðis, meira fyrir augað.“ Opee mannar rappdúettinn O.N.E. ásamt félaga sínum Et- ernal, sem heitir réttu nafni Eilíf- ur. Saman byrjuðu þeir að gera lög í áttunda bekk og létu nokkur þeirra fyrst leka á netið fyrir tveimur árum. Áhugasamir geta nálgast prufuupptökur í gegnum hiphop.is eða DC++. Opee segir O.N.E. nánast vera tilbúna með breiðskífuna One Day og það eina sem vanti til að koma henni í plötuhillurnar sé áhugasamur út- gefandi. Sölvi Blöndal, höfuðpaur Qu- arashi, og Opee kynntust úti á líf- inu og upp úr varð platónskt ást- arsamband. Sölvi hefur þó tekið skýrt fram í viðtölum að aðeins sé um samstarfsverkefni að ræða og að Opee sé ekki liðsmaður sveitar- innar. „Ég er í O.N.E. og í rappi er fólk alltaf að vinna líka með öðr- um. Ég lít bara á þetta sem annað verkefni. Ég hef alveg rosalega gaman af því að vinna með Sölva og ég tel alveg líklegt að við ger- um meira saman. En ég held að það sé ekkert á döfinni um að ég verði meðlimur.“ Opee segist yfirleitt leggja mikla vinnu í texta sína og segir að auðvelt sé að kynnast sér í gegnum þá. „Mess it Up fjallar reyndar bara um það að fara út á djammið og hössla,“ segir hann töffaralegur. „Þetta týpíska föstu- dagskjaftæði á Íslandi. Þetta er ekki djúp kviða, enda átti þetta bara að vera um skemmtun en ekki texti um tilvistarkreppu.“ biggi@frettabladid.is Ég held nú að þetta verðieitthvað flott í kvöld,“ segir Ellert A. Ingimundar- son leikari spurður um hvað eigi að hafa fyrir stafni á af- mælisdaginn, en hann er staddur í París um þessar mundir. „Ég er staddur hérna í Frakklandi með góð- um hópi samlanda, sauma- klúbb konunnar minnar. Þetta er fjörugur hópur, erum að lifa hátt í París svo ég held þetta verði nokkuð íburðarmikið afmæli. Mið- að við það hitti ekki á heil- ann eða hálfan tug í það minnsta,“ segir Ellert sem verður 46 ára í dag. Hann er fyrir löngu hættur að gera veður út af öðru en stórafmælum, en ætlar þó rétt að vona konan sín gefi sér eitthvað fallegt. „Það er nú eins gott! Afmæli voru heldur ekki mikilfengleg þegar maður var strákur. Var alltaf í sveit austur í Skaftártungum í æsku um þetta leyti og þar var fólk ekki að tapa sér yfir þessu, gleymdi því jafnvel. Og þó, rjóminn var fleyttur af mjólkinni og eitthvað bakað, svo ég kvarta ekki. Það var kannski mest þegar maður var táningur, og nýta þurfti hverja afsökun fyrir partíi, sem af- mælin skiptu máli. Þetta er náttúr- lega frábær tími til að eiga afmæli á Íslandi, gott veður og fallegt að sjá sumrið fjara út,“ segir Ellert, en viðurkennir að París sé kannski full heit um þessar mundir. „Svo er skemmtilegt að Björn Ingi Hilmarsson leikari og vinur okkar á afmæli sama dag og það eru einmitt fimm ár á milli, svo það hittir alltaf á þetta heila og hálfa. Einnig á góðvinur minn, Robert De Niro, afmæli í dag, en ég veit ekki hvort ég næ að hitta hann eitthvað.“ segir Ellert að lokum. ■ Lifir hátt í París ELLERT A. INGI- MUNDARSON Nýtti sér helst af- mælisréttindi til partíhalds, en pældi annars ekki mikið í þeim Afmæli ELLERT A. INGIMUNDARSON ■ er staddur í París, Frakklandi á 46. afmælisdeginum.. Því er nú mjög fljótsvarað. Þaðer að skrifa grein í Fréttablað- ið,“ segir Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur, um hefð- bundinn sunnudagsmorgunn í sínu lífi. „Annars er ég frekar árrisull. Ég fæ mér alltaf örlítinn labbitúr og kíki á veðrið. Síðan sest ég bara við tölvuna.“ Hver er Opee? Helsti slagari sumarsins er án efa nýjasta lag Quarashi, „Mess it Up“. Rapparinn Opee spreytir sig með sveitinni . OPEE Vitnar í 50 Cent í Quarashi laginu „Mess it Up“. „Það hafa mjög margir talað um að þetta sé stolið. Ég hef samt aldrei séð rökin í því að stela frá vinsælasta rappara heims í dag. Maður kæmist ekkert upp með það. Ég tók þetta bara til þess að krydda textan og gefa honum léttara yfirbragð. Ég hélt að allir myndu fatta það.“ ■ Morgunstund Margrét Lilja Eggertsdóttir, Seljahlíð, áður Drápuhlíð 13, andaðist á fimmtu- daginn 14. ágúst. Helga Sigríður Eiríksdóttir, Starhaga 14, lést á hjúkrunaheimilinu Sóltúni föstu- daginn 15. ágúst. Kristín Bögeskov, djákni, lést á gjörgæslu Landspítala Fossvogi föstudaginn 15. ágúst. Friðrik J. Eyfjörð, Lönguhlíð 3, andaðist á Landspítala við Hringbraut fimmtudag- inn 14. ágúst. Ólafur Jónsson, andaðist á líknadeild Landspítala Kópavogi laugardaginn 2. ágúst.. ■ Andlát FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.