Fréttablaðið - 17.08.2003, Side 34
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 5532075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
■ ■ ÚTIVIST
10.00 Ferðafélag Íslands efnir til
dagsferðar upp í Svínaskarð og að
Hrafnhólum. Gangan hefst við Gyldar-
holt í Kjós. Leiðin er um 11-12 km og er
göngutími um 4 tímar. Fararstjóri er Vig-
fús Pálsson. Verð kr. 1800/ 2100. Brott-
för frá BSÍ með viðkomu í Mörkinni 6.
■ ■ MESSUR
11.00 Í guðsþjónustu í Árbæjar-
kirkju verða fluttar útsetningar Björns
Thoroddsen á sálmum Martins Lúthers
fyrir djasskvartett. Kvartettinn skipa Björn
Thoroddsen gítar Stefán S Stefánsson
saxafónn, Jón Rafnsson kontrabassi og
Eric Qvick slagverk. Prestur er Dr. Sigur-
jón Árni Eyjólfsson héraðsprestur.
14.00 Hólahátíð 2003 hefst með
messu í Hólakirkju. Sr. Jón Aðalsteinn
Baldvinsson, vígslubiskup, prédikar.
Kammerkór Akureyrarkirkju syngur. Org-
anisti Eyþór Ingi Jónsson. Að messu lok-
inni verða kaffiveitingar í boði Hóla-
nefndar.
■ ■ TÓNLIST
14.00 Ólafur Kjartan Sigurðsson
verður með tónleika í Hólmavíkurkirkju
ásamt Jónasi Ingimundarsyni.
14.00 Kristinn H. Árnason leikur
perlur gítarbókmenntanna í Kvíabekk á
Ólafsfirði.
14.00 Tónleikar með Álftagerðis-
bræðrum verða í Stykkishólmskirkju á
Dönskum dögum.
20.00 Sumaróperan sýnir Krýningu
Poppeu á nýja sviði Borgarleikhússins.
Í aðalhlutverkum eru Valgerður Guðna-
dóttir og Hrólfur Sæmundsson, Nanna
Hovmand frá Danmörku og breski
kontratenórinn Owen Willetts.
20.00 Á tónleikunum í Hallgríms-
kirkju leikur Steingrímur Þórhallsson
organisti tvö ítölsk verk eftor Clementoni
og Moretti. Á milli þeirra leikur hann 5.
orgelsinfóníu Charles-Marie Widors.
■ ■ LEIKLIST
21.00 Einleikurinn Ellý, alltaf góð
eftir Þorvald Þorsteinsson í flutningi Æv-
ars Þórs Benediktssonar verður sýndur
í Félagsheimilinu Óðali, Borgarnesi.
Einnig verða einnig tónleikar með sigur-
vegara Söngkeppni FF 2002, söngkon-
unni Evu Karlottu.
Leiksýningin Light Nights verður
sýnd á ensku í Iðnó. Sýningin er byggð
á þjóðlegu íslensku efni.
Valdís Arnardóttir leikkona flytur á
ensku einleikinn The Saga of Gudridur
eftir Brynju Benediktsdóttur í Skemmti-
húsinu, Laufásvegi 22.
■ ■ SAMKOMUR
16.30 Hátíðarsamkoma í Hóla-
kirkju. Hátíðarræðu flytur Halldór Ás-
grímsson, utanríkisráðherra. Þorsteinn
frá Hamri fer með ljóð og dr. Skúli
Skúlason, skólameistari, flytur ávarp. Á
milli þessara atriða verður flutt tónlist í
umsjá Eyþórs Inga Jónssonar. Kam-
merkór Akureyrarkirkju syngur. Ein-
söngvarar Þórhildur Örvarsdóttir og Sig-
rún Arngrímsdóttir.
20.30 Berjablátt lokakvöld Tónlist-
arhátíðarinnar í Ólafsfirði verður í
Tjarnarborg. Þátttakendur hátíðarinnar
á björtu nótunum.
13.00 Barna og fjölskyldudagskrá í
Árbæjarsafni. Ratleikur verður fyrir alla
fjölskylduna, húllakeppni og kassabílar. Í
Árbænum verða bakaðar lummur, þar
er folald, kálfur, kindur og hænur. Teymt
verður undir börnum.
16.00 Fjölskylduskemmtun verður
haldin á Bjargi í Miðfirði með hinni ár-
legu aflraunakeppni á Grettishátíð í
Húnaþingi.
■ ■ SÝNINGAR
Guðrún Benónýsdóttir sýnir ljós-
mynd og skúlptúra í Gallerí Hlemmi.
Sýningin stendur til 31. ágúst.
Baldvin Ringsted og Jóna Hlíf Hall-
dórsdóttir eru með myndlistarsýningu í
Bögglageymslunni, Listagilinu á Akur-
eyri. Opið virka daga 17-22 og um helg-
ar 14-18. Sýningin stendur til 1. sept-
ember.
Kristján Guðmundsson er með
sýningu í Kompunni, Kaupvangsstræti
23. Akureyri. Á sýningunni er eitt verk
gert úr plasti og gulli. Einnig verður til
sýnis og sölu bókverkið (DOKTORSRIT-
GERÐ) eftir Sigrúnu Þorsteinsdóttur og
Kristján, sem kom út fyrr á þessu ári.
Sýning Kristjáns er opin daglega 14-17
til 4. september.
Cesco Soggiu og Karl Kristján Dav-
íðsson sýna í Galleríi Sævars Karls í
Bankastræti. Sýningin stendur til 28.
ágúst.
Sýning á verkum Ragnars Kjartans-
sonar stendur yfir í Listasafni ASÍ.
Myndlistarmaðurinn Sólveig Alda
Halldórsdóttir sýnir verk sitt Upp-
skurður á Vesturveggnum í Skaftfelli
Bistro á Seyðisfirði. Verk Sólveigar sam-
anstendur af texta sem unnin er upp úr
dagbókarfærslum William Burroughs og
hennar eigin. Sýningin stendur til 5.
september og er opin alla daga frá kl.
11 til 24.
Danski ljósmyndarinn Peter Funch
er með sýninguna „Las Vegas - Made
by man“ í Kling og Bang gallerí, Lauga-
vegi 23.
Myndlistarsýningu Geirþrúðar Finn-
bogadóttur Hjörvar í Gallerí Dvergi
lýkur á sunnudaginn. Sýningarhúsnæð-
ið er í kjallara við Grundarstíg 21,
Reykjavík.
Guðbjörg Lind hefur opnað mál-
verkasýningu í aðalsal Hafnarborgar,
menningar- og listastofnunar Hafnar-
fjarðar. Viðfangsefni Guðbjargar Lindar
hafa frá upphafi verið tengd vatni, fyrst
fossum og síðar óræðum og ímynduð-
um eyjum á haffleti.
Anna Jóelsdóttir hefur opnað sýn-
inguna Flökt í Hafnarborg, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar.
Sigurlín Grímsdóttir sýnir vatnslita-
myndir sínar á Gömlu Borg, Grímsnesi.
Síðasta sýningarhelgi. Opið 14-02 laug-
ardag, 14-22 sunnudag.
Á Café Milanó stendur nú yfir sýn-
ing á málverkum Péturs Péturssonar.
Sýningunni lýkur 7. september.“
Valgarður Gunnarsson sýnir mál-
verk í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39.
Hann lýsir verkum sínum sem kvark-
hugmyndum um innri og ytri veruleika.
Sýningin er opin fimmtudaga til sunnu-
daga til 23. ágúst.
Samsýning 20 akureyrskra lista-
manna stendur yfir í Ketilhúsinu á Ak-
ureyri.
Sýningin Þrettán + þrjár stendur yfir
í Lystigarðinum á Akureyri. Þetta er
samsýning þrettán norðlenskra lista-
kvenna og þriggja frá Færeyjum.
Sýningar Gjörningakúbbsins, Heim-
is Björgúlfssonar og Péturs Arnar
Friðrikssonar standa yfir í Nýlistasafn-
inu við Vatnsstíg. Gjörningaklúbburinn
opnar á 2. hæð safnsins sýninguna Á
bak við augun. Í norðursal 3ju hæðar-
innar er sýning Heimis Björgúlfssonar
Gott er allt sem vel endar (Sheep in
disguise) og í suðursalnum sýning Pét-
urs Arnar Friðrikssonar Endurgerð.
Sýningarnar standa til 7. september.
Sýning á nýjum verkum Rögnu Sig-
rúnardóttur var opnuð í gær í Listhúsi
Ófeigs að Skólavörðustíg 5, Reykjavík.
Viðfangsefni Rögnu er blómaskeið lif-
andi hluta og spurningin hvort hræðsl-
an við að eldast sé það sem takmarkar
fegurðarmat okkar. Þetta er 13. einka-
sýning Rögnu hér á landi.
„Meistarar formsins“ nefnist stór
höggmyndasýning í Listasafni Akureyr-
ar, sem gerð er í samvinnu við Ríkis-
listasafnið í Berlín. Á sýningunni eru
verk eftir 43 listamenn, þar af 11 Ís-
lendinga.
Íslensk og alþjóðleg samtímalista-
verk eru til sýnis í Safni, Laugavegi 37.
Þrjár sýningar eru í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Þetta eru
sýningarnar Humar eða frægð -
Smekkleysa í 16 ár, Innsýn í alþjóð-
lega samtímalist á Íslandi og Erró
Stríð.
Sumarsýning í Listasafni Íslands á
úrvali verka í eigu safnsins.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur
yfir sýning á málverkum Jóhannesar
Kjarvals úr einkasafni Þorvaldar Guð-
mundssonar og Ingibjargar Guðmunds-
dóttur.
Sumarsýning Handverks og Hönn-
unar stendur yfir í Aðalstræti 12. Til
sýnis er bæði hefðbundinn listiðnaður
og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hrá-
efni. Meðal þess sem sýnt er, eru munir
úr tréi, roði, ull, hör, leir, selskinni,
hreindýraskinni, pappír, silfri og gleri frá
26 aðilum. Sýningin er opin alla daga
nema mánudaga og lýkur 31. ágúst.
Í Þjóðarbókhlöðunni standa yfir
þrjár sýningar. Eins og í sögu nefnist
sýning á samspili texta og myndskreyt-
inga í barnabókum 1910-2002. Þar er
einnig sýning til minningar um Lárus
Sigurbjörnsson, safnaföður Reykvík-
inga. Loks er lítil sýning í forsal Þjóð-
deildar á Heimskringlu og Snorra-
Eddu.
Sýning í anddyri Norræna hússins
sem nefnist Vestan við sól og norðan
við mána. Á sýningunni eru ljósmyndir
eftir Ragnar Th. Sigurðsson með texta
eftir Ara Trausta Guðmundsson. Sýning-
unni lýkur 31. ágúst.
Sýningin Reykjavík í hers höndum í
Íslenska stríðsárasafninu á Reyðar-
firði er sett upp af Borgarskjalasafni
Reykjavíkur og Þór Whitehead sagn-
fræðingi í samvinnu við Íslenska stríðs-
árasafnið. Á sýningunni getur nú að líta
mun meira af stríðsminjum en áður
sem koma frá Íslenska stríðsárasafninu.
Sumarsýningu í bókasal Þjóðmenn-
ingarhússins, Íslendingasögur á er-
lendum málum, er ætlað að gefa inn-
sýn í bókmenntaarfinn um leið og at-
hygli er vakin á því að fjölmargar útgáf-
ur Íslendingasagna eru til á erlendum
málum.
Sýningin Handritin stendur yfir í
Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er á
vegum Stofnunar Árna Magnússonar.
Einnig er þar sýning sem nefnist Ís-
landsmynd í mótun - áfangar í korta-
gerð.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
34 17. ágúst 2003 SUNNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
14 15 16 17 18 19 20
ÁGÚST
Sunnudagur
Björn Thoroddsen, gítarleikari,heldur tónleika í Árbæjar-
kirkju á sunnudag ásamt þriggja
manna hljómsveit. Þar verða
fluttir sjö sálmar eftir Lúther.
„Þetta er sambrölt á milli mín
og prestsins sem heitir Sigurjón
Árni Eyjólfsson og er doktor í
Lúther. Hann hefur sýnt þessu
mikinn áhuga auk þess að vera
mikill djassáhugamaður,“ segir
Björn. „Hann hefur hvatt mig í
gegnum tíðina að flytja þessa
músík, sem er mikið til frá byrjun
16. aldar. Þetta er eitthvað sem
jazzleikarar hafa aldrei gert
áður.“
Björn hefur verið að vinna að
verkefninu leynt og ljóst síðustu
mánuði: „Þetta er rosalega gam-
an. Við færum þetta í nútímabún-
ing en samt getur maður heyrt að
þetta eru sálmar. Það verður ekk-
ert orgel notað heldur verður
þetta gítar, kontrabassi, saxófónn
og trommur.“
Að sögn Björns verður efnið
hljóðritað með útgáfu í huga:„Við
spilum líka á Jazzhátíð Reykjavík-
ur í haust. Þetta er mjög spenn-
andi verkefni. Við höfum verið að
prófa okkur svolítið áfram og við
vitum í raun ekkert hvernig þetta
kemur út. En við erum sáttir.“
Með Birni í hljómsveitinni eru
þeir Stefán Stefánsson, saxófón-
leikari, Jón Rafnsson, kontra-
bassaleikari og Erik Quick,
trommuleikari frá Svíþjóð.
Björn segist hafa fengið nótur
við sálmana frá Sigurjóni presti
sem hann fann er hann var við
nám í Þýskalandi. „Ég hef verið
að notast við þær. Það er ekkert
svona efni til sem ég veit af hér á
landi. Ég hef eingöngu heyrt tvö
lög af þessum sjö sem við tök-
um,“
Björn fingurbrotnaði í lok maí
og gat ekki spilað á gítarinn í þrjá
mánuði. „Þá gafst smá tími til að
grúska í þessu. Sigurjón kallar
puttabrotið Guðsgjöf,“ segir
Björn og hlær. „Þetta var annars
skelfilegur tími. Þó svo að þetta
hafi ekki verið stórslys er þetta
óheppilegt fyrir þá sem vinna við
að spila á gítar. En núna er ég orð-
inn betri en ég var.“
freyr@frettabladid.is
■ TÓNLIST
Puttabrotið
var Guðsgjöf
BJÖRN THORODDSEN
Ætlar að flytja sálma Lúthers með hljómsveit sinni í Árbæjarkirkju.
Hann segir að jazzleikarar hafi aldrei gert þetta áður.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Frábær
söngleikur!
Ekki missa
af þessu!
Síðasta
sýning
í kvöld!
Harrison Ford er töffari semeldist hræðilega illa og í dag
er hann svo fýldur og sjarmalaus
að það er með ólíkindum að hann
hafi á árum áður heillað heilu kyn-
slóðirnar í hlutverkum Han Solo og
Indiana Jones. Þegar hann var upp
á sitt besta fór hann létt með að
bera heilu myndirnar uppi en í dag
getur hann engu bjargað eins og
sannast best í Hollywood
Homicide.
Hér leikur hann reynda rann-
sóknarlögreglu sem er með allt
niður um sig í fjármálunum og
reynir að hafa aukatekjur af fast-
eignasölu. Þetta gæti verið sniðugt
en er það ekki hér. Josh Hartnett
leikur óreyndan félaga hans og
stendur sig með eindæmum illa í
hlutverkinu. Tvíeykið er sem sagt
ekki til stórræðanna líklegt en fær
þó það verkefni að hafa uppi á
morðingjum heillar rapphljóm-
sveitar.
Handrit myndarinnar ein alls-
herjar hrærigrautur úr helstu
fléttum og klisjum úr löggufélaga-
myndum síðustu áratuga. Hún
kemur því aldrei á óvart og þeir
sem þekka vel til þessara kvik-
myndagreinar ættu að geta raðað
öllum brotunum saman og reiknað
endinn út vel fyrir hlé.
Hollywood Homicide er því
bæði langdregin og óspennandi en
tekur blessunarlega smá fjörkipp í
lokin. Þar fer þó meira fyrir gríni
en spennu og svo einkennilega vill
til að það er Harrison Ford sem
nær nokkrum sinnum að laða fram
bros. En það er líklega fyrst og
fremst vegna þess hversu hann er
ömurlegur og brjóstumkennanleg-
ur við þessar aðstæður.
Þórarinn Þórarinsson
UmfjöllunKvikmyndir
HOLLYWOOD HOMICIDE:
Leikstjóri: Ron Shelton
Aðalhlutverk: Harrison Ford,
Josh Hartnett, Lena Olin
Uppgjafa-
töffari í
vondum málum