Fréttablaðið - 17.08.2003, Side 37
SUNNUDAGUR 17. ágúst 2003 Tölvuskólinn Sóltúni
www.tolvuskol i .net
Sóltúni 3 105 Reykjavík sími 562-6212
Viltu ná langt ?
“Vefsíðugerð, vefhönnun og myndvinnsla”.
Spennandi og krefjandi 340 stunda nám.
Hefst 1. sept.
Undarlegt æði er byrjað aðgera vart við sig í Sao Paulo í
Brasilíu. Um er að ræða skipulögð
hóphrekkibrögð þar sem hópur af
fólki safnast saman til þess að
hrella aðra borgarbúa.
Um 100 manns komu sér sam-
an á fjölförnu götuhorni í Sao
Paulo á annatíma. Skyndilega
klukkan fjörutíu mínútur yfir tólf
að hádegi tóku allir af sér annan
skóinn, fóru niður á hnén og hófu
að berja á gangstéttina af öllu afli
með skónum. Fólkið hætti allt á
svipuðum tíma setti svo skóninn á
sig aftur og tvístraðist út í mann-
fjöldann.
Áður höfðu borgarbúar orðið
varir við alls kyns brögð þar sem
fólk safnast saman og framkvæm-
ir undarlegan hrekk. Talið er að
hóparnir komi sér saman um
hrekk í gegnum tölvupóst og láti
hann renna manna á milli. Ekki er
vitað hver stendur á bak við
skipulagninguna.
Hér gæti hugsanlegt æði verið
á ferð því borgarbúar í London og
Manchester í Bretlandi hafa orðið
varir við svipaðar uppákomur. ■
TÓNLIST Söngkona Garbage greindi
frá því á heimasíðu sveitarinnar
að hún hefði nánast misst rödd
sína endanlega. Eftir að röddin
byrjaði að gefa sig á síðasta tón-
leikaferðalagi sveitarinnar gekkst
hún undir skurðaðgerð á hægra
raddbandi sínu í von um bata.
„Ég mátti ekki tala né gefa frá
mér hljóð í heila viku,“ skrifaði
hún m.a. á síðuna. „Eftir það varð
ég að fara í undarlega endurhæf-
ingu og raddæfingar. Nú er búið
að gefa mér grænt á að ég megi
syngja aftur.“
Hún segist hafa orðið mjög
skelkuð, þar sem söngurinn sé það
eina sem hún hefur alla tíð getað
gert almennilega.
„Að missa stjórn á rödd sinni
er fyrir atvinnusöngvara eins og
það væri fyrir íþróttamann að
handleggs- eða fótbrjóta sig. Þetta
ruglaði alveg til í höfðinu á mér,“
skrifar hún á síðunni og þakkar
fyrir hversu yndislegt lífið geti
stundum orðið.
Garbage eru nú að undirbúa
upptökur fyrir fjórðu breiðskífu
sína. Sveitin vonast til að geta gef-
ið hana út snemma á næsta ári. ■
Vinir Whitney Houston ogBobby Brown
segja að hjónin
eigi von á sínu
öðru barni í
mars á
næsta ári.
Fyrir eiga þau tíu
ára gamla dóttur,
Bobbi Kristina, og
á Whitney að vera
í skýjunum yfir
þróun mála. Whit-
ney segist svo
vera laus við
fíkniefnadjöful-
inn sem er víst
hvergi jafn sætur
og teikningarnar í bíóskjáauglýs-
ingunum gefa til kynna.
Leikkonan Renée Zellweger færborgaðar allt að 256 milljónir
aukalega ofan á
leikaralaun sín
fyrir að éta á sig
gat fyrir fram-
haldsmynd
Bridget Jones.
Stúlkan þarf að
bæta á sig um
fjórtán kílóum
áður en tökur
hefjast og verður
henni borgað samkvæmt kílóinu.
Takist henni að bæta á sig öllum
þessum fjórtán fær hún allar 256
millurnar. Leikaralaun hennar
eru svo 1200 milljónir króna.
KvikmyndagerðamaðurinnKevin Smith, sem flestir
þekkja í hlutverki Silent Bob,
hefur tekið að sér að gera þriðju
kvikmyndina um blaðamanninn
Fletch. Það var gamanleikarinn
Chevy Chase sem lék hann upp-
haflega, en nú leitar Smith að
nýjum í hlutverkið. Hann segist
vera búinn að gera lista yfir
leikara sem hann langi til að
ráða í hlutverkið og á honum séu
Adam Sandler, Brad Pitt, Ben
Affleck, Will Smith og Jimmy
Fallon.
Fréttiraf fólki
Skrýtnafréttin
Hóphrekkjaæði
í Sao Paulo
SKIPULAGÐIR HÓPHREKKIR
Eigum við að prófa? Klukkan þrjú í dag
eiga þeir sem vilja að safnast saman fyrir
framan Skífuna, við enda rúllustigans á 2.
hæð, í Kringlunni. Hoppa á einum fæti og
gala eins og hanar í eina mínútu.
Shirley Manson:
Missti
röddina næst-
um endanlega
SHIRLEY MANSON
Þurfti að gangast undir skurðað-
gerð á hægra raddbandi. Lengi
vel var óvíst um að hún gæti
nokkurn tímann sungið aftur.