Fréttablaðið - 17.08.2003, Page 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Með draug á
bringunni
Fjarnám allt árið!
Þitt nám þegar þér hentar
Upplýsingar á www.fa.is
Bakhliðin
Á GUÐJONI PETERSEN
Hvernig ertu núna? Bara ljómandi.
Hæð: 1.86.
Augnlitur: Blár, held ég. Gráblár
Starf: Leikhússtjóri og leikstjóri
Hjúskaparstaða: Í sambúð með tvö
börn.
Hvaðan ertu? Úr miðbæ Reykjavíkur.
Ég á ættir að rekja til Seyðisfjarðar
og Arnarfjarðar.
Helsta afrek: Að taka þátt í
skemmtiskokkinu fyrir nokkrum
árum.
Helstu veikleikar: Allar nautnir.
Helstu kostir: Þolinmæði.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Fréttirn-
ar.
Mestu vonbrigði lífsins: Að hafa
aldrei unnið í Lottó.
Hobbý: Ekkert sérstakt sem stendur.
Vildi að ég væri í hestum. Ég var einu
sinni í þeim.
Jeppi eða sportbíll: Ég á bilaðan
jeppa, þannig að ég segi sportbíll.
Handbolti eða fótbolti: Fótbolti. Ég
verð að halda með Víkingi út af ættar-
tengslum.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Ætli ég hafi ekki ætlað að
verða bóndi. Ég var mikið í sveit.
Skelfilegasta lífsreynslan: Þegar ég
var næstum búinn að keyra rútu af
bjargbrún þegar við vorum á ferða-
lagi með Svart og sykurlaust á Ítalíu.
Rútan var bremsulaus. Ég hélt við
myndum deyja.
Hver er fyndnastur? Ætli Kjartan
Bjargmundsson sé ekki fyndnastur.
Trúir þú á drauga? Já, ég veit þeir eru
til. Það þurfti að reka draug úr húsinu
mínu einu sinni. Hann lá alltaf ofan á
bringunni á mér. Svo vaknaði maður
ofsalega hræddur. Þetta var kona sem
var ósátt við að hafa ekki verið til
staðar þegar barnið hennar dó.
Hvort vildirðu heldur vera Harold Ll-
oyd eða Harold Pinter? Harold Lloyd.
Ég held að hann lifað skrautlegu lífi.
Áttu gæludýr? Nei. En mig langar í
ákveðna tegund af hundi. Afganskan
munda.
Hvar líður þér best? Í góðra vina
hópi.
Þú ert að leikstýra sýningu. Verkið er
frumsýnt. Þú situr út í sal. Einn aðal-
leikarinn frýs og kemur ekki upp orði,
en brestur síðan allt í einu í þrumandi
ræðuflutning um óréttlæti heimsins
og bág kjör. Hvað gerir þú? Ætli ég
myndi ekki segja: „helvítis dýrið:
hann þorði þessu!“
Besta bók í heimi: Félagi Napóleon
eftir George Orwell.
Á döfinni: Setja leikhúsið í gír og
starta leikári.