Fréttablaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 4
4 27. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR
Ætlarðu að fara í skóla eða á
námskeið í vetur?
Spurning dagsins í dag:
Ferðaðist þú innanlands eða utan-
lands í sumar?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
35%
44%
Nei
21%Er að hugsa málið
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Akureyri
Væntingavísitala Gallups:
Vonir glæðast á ný
EFNAHAGUR Væntingavísitala
Gallups hækkaði um tæp 3 stig í
ágúst og mælist nú 115,3 stig.
Aukin tiltrú á núverandi ástand og
jákvæðara mat á atvinnuástand-
inu eiga stærsta þáttinn í hækkun
vísitölunnar. Gildi vísitölunnar nú
er tæpum 7 stigum hærra en á
sama tíma í fyrra og 12 stigum
hærra en meðaltal ársins 2002.
Vísitalan er mæld úr nokkrum
þáttum þar sem metið er mat á
núverandi stöðu svarenda og
framtíðarvæntingum þeirra í
efnahagslegu tilliti. Reynsla af
sambærilegri vísitölu í Banda-
ríkjunum bendir til þess að hún
hafi forspárgildi um þróun
neyslu. Gildið 100 bendir til þess
að almenningur vænti lítilla sem
engra breytinga á högum sínum.
Ágúst er áttundi mánuðurinn í
röð þar sem vísitalan er yfir 100
stigum. Bjartsýnust á hag sinn
var þjóðin í maí á þessu ári, en þá
mældist vísitalan 136,8 stig. ■
VIÐSKIPTI Feðgarnir Björgólfur
Thor Björgólfsson og Björgólfur
Guðmundsson hafa keypt hvorn
annan út úr stærstu fjárfesting-
um sínum hér á landi. Eftir
skiptin fer Björgólfur Thor með
eignarhlut þeirra í Pharmaco, en
Björgólfur Guðmundsson á nú
allan hlut feðganna í Landsbank-
anum. Viðskiptin milli eignar-
haldsfélaga þeirra feðga nema
nokkrum milljörðum króna.
Sameiginlegt eignarhaldsfélag
þeirra á yfir 20 milljarða virði í
Pharmaco og eignarhlutur Sam-
sonar, sem þeir stofnuðu með
Magnúsi Þorsteinssyni, í Lands-
bankanum losar um 15 milljarða.
Þessi viðskipti feðganna gefa
skýrt til kynna ólíka sýn á við-
skiptalífið. Björgólfur Guð-
mundsson segir meiri áhættu
fylgja starfsemi lyfjafyrirtækis
og segist heldur vilja setja fé
sitt í starfsemi þar sem ávöxtun-
arkrafa er lægri og áhættan
minni. „Það er meira að skapi
yngri manna að standa í áhættu-
sömum fjárfestingum og gera
háa arðsemiskröfu. Ég hef siglt
þann krappa sjó en kýs nú lægri
öldur og tryggari heimkomu,“
segir Björgólfur Guðmundsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson
tekur undir föður sínum með
áhættuna sem fylgir rekstri
Pharmaco. „Ég vildi auka eign-
arhlut minn í félaginu þar sem
ég er reiðubúinn að taka áhættu
og geri að sama skapi háa ávöxt-
unarkröfu á fjármuni mína.“
Björgólfur Guðmundsson er
formaður bankaráðs Landsbank-
ans og Björgólfur Thor er stjórn-
arformaður Pharmaco. Þeir telja
báðir að eðlilegast sé að þeir setji
fjármuni sína þar sem þeir
hyggjast beina kröftum sínum.
Bæði Landsbankinn og
Pharmaco skiluðu góðum upp-
gjörum fyrir fyrri helming árs-
ins og hafa bréf beggja hækkað
að undanförnu. Landsbankinn
hefur látið meira til sín taka upp
á síðkastið og ber merki eignar-
haldsins í rekstrinum. Talið er
að Björgólfur Guðmundsson
muni beita sér í meiri mæli í at-
vinnulífinu. Meðal þeirra verk-
efna sem bíða Landsbankans er
að sameina sölufyrirtækin SH
og SÍF í samvinnu við Íslands-
banka.
haflidi@frettabladid.is
Straumur eignast Framtak:
Jón Helgi
stækkar í
Straumi
VIÐSKIPTI Fjárfestingarfélagið
Straumur hefur tryggt sér yfir
90% hlut í Framtaki fjárfestingar-
banka og þar með öll yfirráð yfir
félaginu. Straumur keypti hlut
Norvikur í Framtaki. Eigandi
Norvikur er Jón Helgi Guðmunds-
son í Byko. Jón Helgi eignast sjö
prósenta hlut í Straumi í viðskipt-
unum. Félög í eigu Jóns Helga
keyptu hlut Kaupþings í Straumi
og ræður Jón Helgi því yfir 15%
hlut í Straumi. Meðal eigna
Straums er 15,40% hlutur í Eim-
skipafélaginu. ■
HORNREKA BRETTADRENGIR Sjö
brettastrákar á Akureyri munu
hafa gert bæjarstjóranum ljóst
að hjólabrettaiðkendur í bænum
væru alls staðar hornreka og
hraktir burt hvar sem þeir
kæmu. Kanna á hvort ekki finnist
autt húsnæði sem brettafólk geti
fengið í tilraunaskyni í vetur.
AKUREYRARSINFÓNÍA Á GRÆN-
LANDI Akureyrarbær hefur
ákveðið að nota 900 þúsund krón-
ur af styrk sem fékkst frá Nor-
ræna menningarsjóðnum vegna
verkefnisins „Vestnorden år
2002“ til að styrkja Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands vegna
tónleikaferðar til Grænlands í
fyrra.
KYNNA BETUR „EINA MEÐ ÖLLU“
Menningarmálanefnd Akureyrar
leggur til að betur verði staðið að
kynningu á fjölskylduhátíðinni
„Ein með öllu“ þannig að henni sé
beint til markhópsins, það er fjöl-
skyldunnar. Lögregla er hvött til
að gera allt sem hægt er til að
gera áfengi upptækt hjá börnum
og unglingum.
EINHVERFUR DRENGUR
Torrance Cottrell kafnaði vafinn inn í
ábreiður í kirkju sértrúarsafnaðar í
Milwaukee.
Einhverfur drengur:
Kafnaði
í kirkju
MILWAUKEE, AP Lögreglan í
Milwaukee í Bandaríkjunum
rannsakar dauða átta ára ein-
hverfs drengs sem lést í kirkju
sértrúarsafnaðar á meðan safnað-
armeðlimir báðu bænir í þeim til-
gangi að reka út úr honum illa
anda.
Torrance Cottrell var vafinn
inn í ábreiður á meðan á bæna-
stundinni stóð og hefur réttar-
læknir úrskurðað að hann hafi
kafnað þar sem hann hafi ekki
haft svigrúm til að anda. Einn
maður hefur verið handtekinn en
lögreglan hefur ekkert viljað láta
uppi um það hvernig hann tengist
málinu.
Móðir Torrance hafði farið
með hann í kirkjuna reglulega í
nokkrar vikur í von um að hægt
væri að lækna hann af einhverf-
unni. ■
UMHVERFISMÁL Magnús Jóhannes-
son, ráðuneytisstjóri í umhverfis-
málaráðuneytinu, segir allt benda
til þess að frétt breska dagblaðsins
The Guardian í gær um að kjarn-
orkuendurvinnslunni í Sellafield
yrði lokað árið 2010 sé röng.
Í frétt The Guardian var vitnað
til samtals við einn framkvæmda-
stjóra Sellafield.
„Allar upplýsingar sem við
höfum fengið benda því miður til
þess að ekkert sé á bak við þessa
ánægjulegu frétt,“ segir ráðu-
neytisstjórinn. Þá hafði stjórn
Sellafield borið fréttina til baka
og iðnaðarráðuneytið í Bretlandi
sagði fréttina einnig ranga þegar
sendiráð Íslands í London leitaði
staðfestingar þaðan fyrir um-
hverfisráðuneytið. „Þar könnuð-
ust menn ekki við þetta á neinn
máta og sögðu að engin ákvörðun
hefði verið tekin um þetta,“ segir
Magnús.
Magnús segir íslensk stjórn-
völd hafa þrýst á það frá árinu
1986 að Sellafield yrði lokað. Já-
kvæðar breytingar hefðu orðið
allt fram til ársins 1998 að Bret-
arnir hófu að vinna gamlar birgð-
ir og spúa nýrri eiturtegund í haf-
ið. Baráttan fyrir lokun kjarn-
orkuversins stæði því enn – fyrst
og fremst í samvinnu við Noreg
og Írland, sem hvað mest yrðu
fyrir barðinu á menguninni. ■
Feðgar skipta fyrirtækjum
Feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson halda nú hvor í sína átt. Sá eldri
gætir heimahaganna meðan sá yngri fer í víking. Viðskiptin milli þeirra nema milljörðum króna.
ÓLÍKAR ÁTTIR
Áhuginn á áhættu fer minnkandi með árunum. Björgólfur Guðmundsson kýs minni áhættu, en Björgólfur Thor Björgólfsson sækist eftir
áhættu og ævintýrum.
MAGNÚS JÓHANNESSON
Ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytis segir
Íslendinga munu halda áfram að berjast
gegn losun geislamengaðs úrgangs frá
endurvinnslustöðinni í Sellafield.
Ótímabær frétt um lokun Sellafield-stöðvarinnar:
Ánægjuleg en
röng frétt
NEYTENDUR
Bjartsýni almennings fer vaxandi á ný. Það
þykir benda til þess að neyslan geti vaxið
á næstu mánuðum.
VÆNTINGAVÍSITALAN
Janúar 103,1
Febrúar 106,6
Mars 115,8
Apríl 125,8
Maí 136,8
Júní 117,9
Júlí 112,6
Ágúst 115,3