Fréttablaðið - 27.08.2003, Qupperneq 8
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
Aukaálegg að eigin vali kr. 150
1500 kr. tilboð
sótt kr. 1.500
Stór pizza með 2 áleggsteg.,
brauðstangir, sósa og 2l gos
1000 kr. tilboð
Aukaálegg að eigin vali kr. 150
kr. 1.000
Stór pizza með
2 áleggstegundum
sótt
8 27. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Fréttatilkynning
Hraunsholt tekið eignarnámi:
Stjórnarskrárbrot
DEILUR „Mér finnst að mér vegið,“
sagði Einar Bjarnason. „Ég taldi
mig búa í lýðræðisríki en sam-
kvæmt þessu er hægt að hafa af
manni jarðir og eignir án minnsta
tilefnis. Þetta er klárt stjórnar-
skrárbrot, sérstaklega þar sem
ekki var farið að einu og öllu lög-
um samkvæmt.“
Bræðurnir Guðmundur og Ein-
ar Bjarnasynir eru ósáttir við
lyktir mála eftir að hafa misst
eignarjörð sína að Hraunholtshæð
í Garðabæ í sumar að kröfu bæj-
arins. Matsnefnd eignarnámsbóta
úrskurðaði að rúmar 3,7 milljónir
króna væru sanngjörn upphæð í
bætur.
Fjölskyldur Einars og Guð-
mundar hafa notað jörðina undir
ræktun í hartnær 50 ár en jörðin
var tekin eignarnámi þar sem um-
ráð landsins voru nauðsynleg til
að þróa það skipulag sem lýst er í
deiliskipulagi sem samþykkt hef-
ur verið fyrir Garðabæ.
Í umsögn matsnefndar segir að
landsspildan sé tilvalin til bygg-
inga og deiliskipulögð í því skyni.
Ekki fáist heldur séð að ræktun
hafi verið á jörðinni en um það
var ákvæði í leigusamningi
bræðranna. ■
UNDANÞÁGUR „Þessi lög eru vitlaus
og við erum í stöðugri baráttu um
að fá undanþágu allt frá því árið
1996,“ segir Pétur Ágústsson, út-
gerðarmaður skemmtibátanna
Brimrúnar og Særúnar í Stykkis-
hólmi.
Miklar deilur eru uppi vegna
þess að yfirvélstjóri sem ekki er
með full réttindi fékk endurnýjaða
undanþágu í sumar eftir að Sigl-
ingastofnun hafði áður hafnað því.
Útgerðin leitaði þá ásjár sam-
gönguráðuneytisins með stjórn-
sýslukæru sem að sögn Hermanns
Guðjónssonar, for-
stjóra Siglinga-
stofnunar, kom
þeim skilningi á
framfæri við stofn-
unina að réttmætt
væri að veita und-
anþáguna. Sigl-
ingastofnun skipti
þá um skoðun og
gaf undanþáguna. Í
framhaldi þess
hefur Helgi Lax-
dal, formaður Vél-
stjórafélagsins,
krafist afsagnar
hans og heimtað
afrit þeirra bréfa
sem fóru á milli ráðuneytis og
stofnunar. Hermann segir nú í yfir-
lýsingu að samskiptin við ráðuneyt-
ið hafi verið munnleg en ekki skrif-
leg og því engin gögn til.
Pétur útgerðarmaður, sem allur
styrinn stendur um, segir að hann
sé í pattstöðu vegna málsins því
enga vélstjóra sé að fá með full
réttindi. Hann segist hafa marg-
rætt málið við formann Vélstjóra-
félagsins sem hafi sýnt skilning en
ekkert hafi gerst.
„Við fáum aldrei þá menn sem
verið er að heimta að séu um borð
hjá okkur. Ég sé ekki hvernig við
getum keppt við launahæstu skip
landsins um vélstjóra í nokkra
mánuði á ári. Við erum með hæfa
vélstjóra um borð þótt eitthvað
vanti upp á réttindi þeirra. Þetta
er ekki eins og við höfum sótt ein-
hverja sveitamenn í afdali,“ segir
Pétur.
Vélstjórinn hefur verið á skip-
inu frá því það kom fyrir fjórum
árum. Pétur segir að umræddur
vélstjóri hafi verið í skóla undan-
farin ár til að ljúka námi í vél-
stjórnarfræðum. Hann segir að
vélstjórinn sem um ræðir hafi
fengið undanþágu á þeim forsend-
um að hann sé í námi.
„Þessi skip eru skráð með svo
stórar vélar að það er alveg út úr
kortinu en enginn hefur viljað
taka á því. Þetta er mjög óeðlilegt
því við þurfum að vera með vél-
stjóra eins og þarf á stærstu
frystitogara landsins. Svoleiðis
menn eru ekki til hér í Stykkis-
hólmi. Þeir vélstjórar sem eru
með full réttindi, sem þeir hafa
náð sér í með níu árum í skóla og
smiðju, eru ekki með metnað til
þess að ráða sig á báta sem eru
með einhverjar hraðbátavélar,“
segir hann.
Pétur hafnar því að Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra og
vinur hans hafi með afskiptum
sínum fengið Siglingastofnun til
að samþykkja undanþáguna.
„Það er oft ekkert betra að
maður þekki menn of vel því þá
verða menn of varkárir. Ég hef
forðast að blanda samgönguráð-
herranum í þetta mál vegna þess
að ég þekki hann ágætlega,“ segir
Pétur.
rt@frettabladid.is
Ný verslun á
Stúdentagörðum:
Sérsniðin
10-11
VERSLUN Ný verslun matvörukeðj-
unnar 10-11 verður opnuð með
haustinu á Stúdentagörðunum við
Eggertsgötu. Er um að ræða versl-
un sem er frábrugðin öðrum versl-
unum 10-11 að því leyti að vöruval
er sérsniðið að þörfum íbúa Stúd-
entagarða.
Verslunin mun sinna rúmlega
eitt þúsund íbúum garðanna sem
og öðrum íbúum á svæðinu í kring.
Verslunin verður á jarðhæð stærs-
ta garðsins sem rís í Ásgarða-
svæðinu og standa vonir til þess
að hún verði opnuð fljótlega með
haustinu. ■
INNKALLAÐUR
Notkun eldri tegundar fimm punda seðils-
ins verður hætt eftir 21. nóvember.
Eldri fimm punda
seðill Breta:
Innkallaður
í nóvember
LONDON, AP Englandsbanki hefur
ákveðið að hætta notkun eldri teg-
undar fimm sterlingspunda seð-
ilsins frá og með 21. nóvember.
Á seðlinum er mynd af George
Stephenson, frumkvöðli í járn-
brautarsamgöngum Breta. Seðill-
inn kom fyrst út árið 1990 og eru
rúmar 50 milljónir slíkra seðla í
notkun. Eftir sem áður verður
hægt að nota nýrri fimm punda
seðilinn en á honum er mynd af
Elizabeth Fry, sem þekktust er
fyrir framlag sitt til endurbóta á
fangelsum Bretlands. ■
!
" #$
%&'
!!"#$%
&
"%#'!
%
&
!"
#$%&'$()*
$#+,-$
./.0". 1"
2
$
#%&- 3
4
!56)#$%&'$()*
$#+,-$
./.0". 1"
2
$
,%&- $7565
3 8 #$# 3
!
()
"##
*
+##,
!!"#$%
&
"%#'!
%
&
))
+)& )
,
-
(
9.9
#+%%:$
(+*
$#+,-$
./.0". 1"
2
$
)%&- $756
3
! -
.
!!"#$%
&
"%#'!
/
0* )
) ' )
.
/01
1
!"
($;&'$
(+*
$%1
./.0". 1"
2
;%&-
$<
$23
3 !
/
!!"#$%
&
.
1
"%#'!
+)& )
,
.)
( 1#
% 04
!
&
#2##$
1
!"
($;&'$
(+*
$+(#-$
''
5
;%&-
$
<
7565
3
/
.
1
"%#'!
+)& )
,
.)
( 1#
% 01
& !
Lokun vegna
vörutalningar
NEYTENDUR Verslanir Bónuss verða
lokaðar næstkomandi sunnudag
vegna vörutalningar. Ástæða þyk-
ir til að telja allar vörur í verslun-
um tvisvar á ári og er það gert í
Bónus í lok febrúar og lok ágúst.
Talningin er í tengslum við sex
mánaða uppgjör og gangast því
sem næst allar verslanir undir
hálfs árs talningu. Margar komast
hjá því að loka, en að sögn Guð-
mundar Marteinssonar, fram-
kvæmdastjóra Bónuss, er mann-
fæð ástæða þess að verslanirnar
loka. Aftur opnar í Bónus á hádegi
á mánudag. ■
HRAUNSHOLT
Lóð bræðranna Einars og Guðmundar
Bjarnasona var tekin eignanámi.
Vélstjórarnir eru
ekki afdalamenn
Útgerðarmaður skemmtiskipa á Breiðafirði á í stöðugri baráttu við að
fá undanþágu fyrir vélstjóra. Segir að enginn hámenntaður vélstjóri
fáist til að sinna hraðbátavélum. Segir lögin vera vitlaus.
HELGI LAXDAL
Formaður Vélstjórafélags Íslands hefur krafist afsagnar forstjóra Siglingastofnunar vegna
undanþágumálsins.
STURLA
BÖÐVARSSON
Vinskapur er með
ráðherranum og
útgerðarmanni
skemmtiskipa
sem fékk um-
deilda undan-
þágu fyrir yfirvél-
stjóra.