Fréttablaðið - 27.08.2003, Síða 14
14 27. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR
Fyrir 120 árum, árið 1883,sprakk eyjan Krakatau en
þetta er lítil eyja vestur af
Súmötru í Indónesíu. Á eyjunni,
sem er og hefur verið mannlaus,
byrjaði allt og nötra og skjálfa 20.
maí þessa árs 1883, og sú virkni
magnaðist og varð að gosi 26.
ágúst. Það var svo strax daginn
eftir að eyjan hreinlega sprakk.
Tveir þriðju hlutar eyjunnar
hurfu hreinlega og sköpuðu 120
feta flóðbylgju sem drap yfir
36.000 manns á nærliggjandi eyj-
um eins og Jövu og Súmötru.
Sprengingin var svo öflug að hún
heyrðist alla leið til Ástralíu, sem
liggur í um 3.000 kílómetra fjar-
lægð. Askan er sögð hafa náð að
dreifa sér um alla jörðina og með
því sköpuðust mögnuð sólsetur.
Þetta breytti andrúmslofti jarðar
svo um munaði því hitinn lækkaði
fljótlega um heila gráðu. Auk
Krakatau eru í Indónesíu um 130
mjög virkar eldstöðvar. ■
Krakatau sprakk
!"##$%
& ''(# ) ''
$ **'
+,
-. $$/%# 1 $(2(#
3
/#'''$ -+-4+,
555 %( #
Lárus G. Lúðvígsson, Skólavörðustíg
16a, lést föstudaginn 22. ágúst.
Guðjón T. Magnússon, Hrafnistu, áður
Sörlaskjóli 94, lést aðfaranótt sunnu-
dagsins 24. ágúst.
Margrét Guðjónsdóttir, Kársnesbraut
31, lést föstudaginn 22. ágúst.
María Þorgrímsdóttir, leikskólakennari,
Næfurholti 2, lést laugardaginn 23.
ágúst.
Gunnar Maggi Árnason lést á Landspít-
alanum laugardaginn 23. ágúst.
Haukur Hjartarson, fyrrum brunavörð-
ur, lést 11. ágúst. Útförin fór fram í kyrr-
þey.
Anton Sigurjónsson Goðabraut 20, Dal-
vík, lést föstudaginn 22. ágúst.
Skúli Júlíusson rafvirkjameistari, Skóla-
braut 3, lést aðfaranótt laugardagsins
23. ágúst.
■ Andlát
■ Jarðarfarir
10.30 Haraldur Kr. Jensson, skipstjóri,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju.
10.30 María Pétursdóttir, áður til heim-
ilis í Hólmgarði 49, verður jarð-
sungin frá Bústaðakirkju.
13.30 Lilja Kristjánsdóttir, hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ, verður jarð-
sungin frá Háteigskirkju.
15.00 Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi
apótekari, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
15.00 Sigurþór Sigurðsson, Grettisgötu
46, verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni.
Ég ætla að fara með fjölskyld-una og nánustu vini upp á
Hótel Geysi í Haukadal,“ segir
Kristinn Ágúst Friðfinnsson,
sóknarprestur í Hraungerðis-
prestakalli, sem heldur upp á
fimmtugsafmælið sitt í dag.
„Þetta er einn magnaðasti staður
á Suðurlandi og hann er í miklu
uppáhaldi hjá fölskyldunni.“
Kristinn segist yfirleitt ekki
halda upp á afmælin sín: „Þegar
maður er prestur er erfitt að
halda opið afmæli. Þegar maður
er orðinn þetta gamall er maður
búinn að kynnast svo mörgum í
gegnum starfið að það gætu kom-
ið miklu fleiri í veisluna heldur
en maður áttar sig á. Þá er freist-
ingin sú að vera frekar með lok-
aðan hóp og halda upp á afmælið
þannig,“ segir Kristinn.
Auk þess að vera prestur í
Hraungerðisprestakalli sér
Kristinn einnig um Þingvalla-
prestakall í aukaþjónustu. Þar
verður hann til 1. október nema
annað komi á daginn. Kristinn
býr á Selfossi ásamt eiginkonu
sinni Önnu Margréti Guðmunds-
dóttur og eiga þau fjögur börn.
Að sögn Kristins eru helstu
áhugamál hans lestur góðra bóka
og tónlist. „En það má reyndar
segja að starfið hafi tekið mig
traustataki. Ég hef mjög mikið að
gera við sálgæslu og þá ekki bara
minna sóknarbarna. Starfið tekur
nánast allan frítímann og maður
er í raun á vakt allan sólarhring-
inn.“
Kristinn segir prestsstarfið
vera mjög dýrmætt starf. „Þetta
er mjög skrýtið starf og er í raun
á mörkunum að kallast starf.
Þetta er lífsmáti sem er mjög
skemmtilegur,“ segir Kristinn og
útskýrir nánar: „Maður gengur
aldrei að neinu öruggu. Það er
alltaf eitthvað óvænt að koma
upp og maður veit aldrei hvort
maður er í vinnunni eða ekki.
Maður rambar bara mitt á milli.“
Kristinn hefur lítið getað far-
ið í sumar vegna anna en náði þó
að skjótast norður í Húnavatns-
sýslu í veiðar eins og hann gerir
stundum. Í október ætlar hann
síðan til Riga í Lettlandi í lang-
þráð frí frá sólarhringsvaktinni
heima fyrir.
freyr@frettabladid.is
KRISTINN ÁGÚST FRIÐFINNSSON
Heldur upp á afmælið á Hótel Geysi í
Haukadal.
Afmæli
KRISTINN ÁGÚST
FRIÐFINNSSON
■ sóknarprestur heldur upp á fimmtugs-
afmælið sitt í dag. Hann segir að prests-
starfið sé skemmtilegur lífsmáti.
Opin afmæli
ekki í myndinni
Ég ákvað bara að breyta til ogstyðja Hrafn Jökulsson í hans
uppbyggingarstarfi í þágu skák-
listarinnar,“ segir Jóhann Hjart-
arson stórmeistari, aðspurður
um ástæðuna fyrir vistaskiptum
sínum.
Áður en Jóhann gekk til liðs
við Hrókinn tefldi hann fyrir
Skákfélag Akureyrar í þrjú ár.
Jóhann segir að skákin sé í
mikilli uppsveiflu um þessar
mundir og þá helst fyrir tilverkn-
að Hróksins. „Nú er bara að
spýta í lófana fyrir þessa yngri
og efnilegu að reyna að ná titl-
um.“ Aðspurður segir Jóhann að
Jón Viktor Gunnarsson og Stefán
Kristjánsson séu helstu stór-
meistaraefnin í dag.
Jóhann, sem starfar sem lög-
fræðingur hjá Íslenskri erfða-
greiningu, vill ekki meina að all-
ur hans frítími fari í taflmennsk-
una: „Ég er bara amatör í skák-
inni núna og tefli bara fyrir
ánægjuna. Ég hef nú fleiri áhuga-
mál eins og veiðiskap og aðra úti-
veru,“ segir Jóhann. Þegar hann
fer að veiða segist hann helst
fara austur fyrir fjall í Hvítá.
Jóhann hætti sem atvinnumað-
ur í skák í árslok 1997. Hann seg-
ist ekki sakna atvinnumennsk-
unnar að ráði. „Þetta var orðið
mátulegt á þeim tíma. Það var
orðið mjög erfitt að draga fram
lífið á þessu einu saman. Síðan
fylgdu þessu mikil ferðalög.
Þetta var orðið ansi mikið hark.“
Jóhann, sem er stigahæsti
skákmaður Norðurlanda og í 53.
sæti á heimslistanum, hefur
staðið sig prýðilega með nýja
taflfélaginu. Á Norðurlandamót-
inu sem var haldið á Netinu fékk
Jóhann fjóran og hálfan vinning
af fimm mögulegum og í Hrað-
skákkeppni íslenskra taflfélaga,
sem var haldin í síðustu viku,
hlaut Jóhann 10 vinninga af 12
mögulegum. Það er því greini-
legt að koma Jóhanns í Hrókinn
er mikill hvalreki fyrir taflfé-
lagið. ■
JÓHANN HJARTARSON
Genginn til liðs við Hrókinn eftir þriggja ára veru í Skákfélagi Akureyrar.
Tímamót
JÓHANN HJARTARSON
■ stórmeistari í skák er genginn til liðs
við taflfélagið Hrókinn. Hann segir að
skákin sé í mikilli uppsveiflu um þessar
mundir.
Teflir ánægjunnar vegna
■ Tilkynningar
Fréttablaðið býður lesendum að
senda inn tilkynningar um dánar-
fregnir, jarðarfarir, afmæli eða
aðra stórviðburði. Tekið er á móti
tilkynningum á tölvupóstfangið:
tilkynningar@frettabladid.is.
Athugið að upplýsingar þurfa að
vera ítarlegar og helst tæmandi. ■
KRAKATAU
Eldfjallið ógurlega sem sprakk fyrir 120
árum.
27. ágúst 1883
KRAKATAU
■ springur og bara í flóðbylgjunni sem
fylgdi sprengingunni drápust 36 þúsund
manns á nærliggjandi eyjum. Askan
dreifði sér um jörðina og lækkaði hita-
stigið um heila gráðu.
■ Þetta gerðist
Kristinn Ágúst Friðfinnsson sóknar-
prestur er fimmtugur.
Gunnlaugur Briem trommuleikari er 43
ára.
Sigurjón B. Sigurðsson (Sjón) rithöf-
undur er 41 árs.
Brynhildur Þórarinsdóttir, fyrrverandi
ritstjóri, er 33 ára.
Sigurbjörg Þrastardóttir, rithöfundur
og blaðamaður, er þrítug.
BARBARA BACH
Heldur upp á 56 ára afmælið sitt í dag.
Auk þess að vera eiginkona Bítilsins
Ringo Starr er hún m.a. þekkt fyrir hlut-
verk sitt í Bond-myndinni The Spy who
Loved Me. Leikarinn Paul „Pee-Wee
Herman“ Reubens fæddist einnig á
þessum degi árið 1952.
27.ágúst
■ Afmæli
1828 Úrugvæ verður sjálfstætt ríki eftir
viðræður á milli Brasilíu og
Argentínu.
1912 Rithöfundurinn Edgar Rice
Burroughs gefur út bók sína um
Tarzan, konung apanna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T