Fréttablaðið - 27.08.2003, Blaðsíða 26
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 553 2075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
Sambíóin Keflavík, s. 421 1170
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Hádegistónleikar í Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun Hafn-
arfjarðar. Hlöðver Sigurðsson tenór
syngur íslensk einsöngslög við undirleik
Antoníu Hevasi píanóleikara. Á efnis-
skrá verða meðal annars verk eftir Sig-
valda Kaldalóns, Donizetti og Mozart.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Hafn-
arborgar, menningar- og listastofnunar
Hafnarfjarðar og Antoníu Hevasi píanó-
leikara.
21.00 Moody Company,Tender-
foot og Rúnar halda tónleika á Opus 7,
Hafnarstræti 7.
21.00 Salunhljómsveitin L’amour
fou heldur tónleika í Iðnó í kvöld. Tón-
leikarnir eru endurteknir í kvöld vegna
mikillar aðsóknar.
20.00 Leikritið Kvetch sýnt í
Borgarleikhúsinu. Verkið var valið
leiksýning ársins á Grímunni og hefur
notið gífurlegra vinsælda.
27. ágúst 2003 MIÐVIKUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
24 25 26 27 28 29 30
ÁGÚST
Miðvikudagur
Tónleikarnir verða endurteknir íkvöld vegna alveg frábærrar
aðsóknar,“ segir Gunnlaugur Torfi
Stefánsson, sem leikur á kontra-
bassa í Salunhljómsveitinni L’amo-
ur fou, en hljómsveitin heldur tón-
leika í Iðnó í kvöld.
Gunnlaugur segir tónleikana
vera svokallaða sitjandi tónleika,
dúkar hafa verið lagðir á borð og
fólki gefst kostur á að sötra bjór
eða rauðvín meðan það hlustar á
gullaldartóna íslenskrar tónlistar
ásamt gömlum tónum úr kvik-
myndum. „Við fengum styrk úr
Menningarborgarsjóði til að út-
setja gömul íslensk lög og gefst
fólki kostur á að hlýða á afrakstur-
inn í kvöld.“ Meðal dægurlaga sem
Hrafnkell Orri, sellóleikari hljóm-
sveitarinnar, hefur útsett eru Aust-
urstræti eftir Ladda, Litli tónlist-
armaðurinn eftir Freymóð Jó-
hannsson og Dagný eftir Sigfús
Halldórsson.
Aðspurður um uppruna Salun-
hljómsveitanna segir Gunnlaugur
upphaf þeirra mega rekja til dæg-
urtónlistar 19. aldar. Hún var upp-
haflega hugsuð sem dægrastytt-
ing, stofutónlist, en fluttist í kjöl-
farið yfir á kaffihúsin og dansstað-
ina. „Þetta var svokölluð Vínartón-
list en fljótlega blandaðist argent-
ínski tangóinn inn í og það má
greinilega sjá þennan keim í út-
setningum Hrafnkels.“
L’amour fou hefur verið starf-
andi í þrjú ár en þar sem þrír af
hljómsveitarmeðlimunum búa og
starfa erlendis má segja að þetta
sé hálfgerð sparihljómsveit sem
kemur saman tvisvar á ári, í ágúst
og desember.
Salonhljómsveitina L’amour fou
skipa Hrafnhildur Atladóttir, fiðla,
Guðrún Hrund Harðardóttir, víóla,
Hrafnkell Orri Egilsson, selló,
Gunnlaugur T. Stefánsson, kontra-
bassi og Tinna Þorsteinsdóttir, pí-
anó. ■
■ TÓNLEIKAR
Keimur af Vínarvölsum
og tangótónlist
VÍKINGUR KRISTJÁNSSON
Uppáhaldsísinn minn er meðpistasíuhnetum,“ segir Vík-
ingur Kristjánsson leikari. „Ég
fæ mér reyndar ekkert mjög oft
ís þar sem ég er að passa mig að
verða ekki feit-
ur.“ Aðspurður
hvers vegna
pistasíuísinn
verði fyrir
valinu segir
Víkingur
ástæð-
una
vera
aug-
ljósa, hnetur
og ís passi
einfaldlega
mjög vel sam-
an. „Pístasíur
eru líka þannig
hnetur að þegar
maður hefur
opnað pokann
getur maður ein-
faldlega ekki
hætt.“
Uppáhaldsísinn minn
JOLIE
Leikkonan íðilfagra Angelina Jolie var glæsileg að vanda þegar hún mætti til frumsýningar
á myndinni Tomb Raider: The Cradle of Life í Bretlandi á dögunum.
L’AMOUR FOU
Hljómsveitin leikur íslenska
gullaldartónlist og gamla tóna
úr kvikmyndum í Iðnó í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI