Fréttablaðið - 17.09.2003, Side 2

Fréttablaðið - 17.09.2003, Side 2
2 17. september 2003 MIÐVIKUDAGUR „Jú, því miður. Ég væri að segja ósatt segði ég annað.“ Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður vill að stjórnmálamenn standi við orð sín og loforð varð- andi línuívilnun til smábáta. Menn eigi að standa við orð sín – og segja satt. Spurningdagsins Einar Oddur, hefurðu aldrei sagt ósatt? ■ Dómsmál Undirbúinn verði lög- skilnaður ríkis og kirkju STJÓRNARSKRÁ Össur Skarphéðins- son telur að í ljósi þeirra breyt- inga sem orðið hafa á íslensku samfélagi á undanförnum árum og áratugum sé tímabært að e n d u r s k o ð a ákvæði stjórn- arskrárinnar sem fjalla um þjóðkirkjuna. Í 62. grein stjórnarskrár- innar segir að „[h]in evangel- íska lúterska kirkja [skuli] vera þjóðkirkja á Íslandi, og [ríkisvaldið skuli] að því leyti styðja hana og vernda.“ Þessu ákvæði telur Össur að eigi að breyta þótt ekki dragi hann dul á mikilvægi kristinna gilda í ís- lenskri samfélagsgerð. „Hins vegar er það þannig að það eru að verða miklar breyting- ar á samfélaginu. Þessar breyt- ingar fela í sér að okkar samfélag er stöðugt að auðgast, bæði menn- ing þess og atvinnulíf, af fólki af erlendu bergi brotnu,“ segir Öss- ur. Hann segir að í ljósi þessa líti hann svo á að íslenskt samfélag sé fjölmenningarsamfélag. „Þetta fólk [sem flutt hefur til landsins] hefur fært með sér nýja siði í trú- arlegum skilningi og stjórnar- skráin verndar rétt þeirra til full- komins jafnræðis á við aðra,“ seg- ir hann. Hann telur þó að sem fyrr komi til greina að undirstrika mikilvægi kristinna lífsgilda í samfélaginu með einhverjum hætti í stjórnarskrá. „Ég segi því sem kristinn mað- ur að ég tel að það sé kominn tími til að skoða hvort ekki eigi að breyta því ákvæði stjórnarskrár- innar sem segir að tiltekið form kristinnar kirkju skuli vera þjóð- kirkja á Íslandi; og jafnframt hvort ekki eigi að fella þá sérstöðu úr stjórnarskránni að ríkisvaldinu beri að styðja hana og vernda. Þetta geri ég ekki til að grafa und- an kristinni trú. En ég tel að það sem standi upp úr sé trúfrelsis- ákvæðið og að allir, sama hvaða trúarbrögð þeir aðhyllast, verði að finna sama skjól í stjórnarskránni, sem er ramminn utan um okkar samfélag,“ segir hann. Össur vill að breytingar á stjórnarskránni verði gerðar í samstöðu við kirkjuna. Hann bendir á að nú þegar sé aðskilnað- ur ríkis og kirkju orðin mikill. „Biskupinn hefur sagt að það sé orðinn skilnaður að borði og sæng. Við þurfum að taka afstöðu til þess hvort ekki sé rétt að ganga þá í gegnum fullan lög- skilnað. Við þurfum svo að velta því fyrir okkur sem þjóð á hvaða forsendum við eigum að gera þetta,“ segir Össur. thkjart@frettabladid.is Fjármunir leita tækifæra: Tími kominn á Símann MARKAÐUR Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbankans, segir tækifæri til einkavæðingar núna. Þetta kom fram í erindi hans á morgunverðar- fundi Landsbankans um horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar. Yngvi segir að mikið fé sé í um- ferð sem leiti farvegs. Takmörkuð fjárfestingartækifæri við þessar aðstæður skapi hættu á eignabólu á verðbréfamarkaði. Hann telur því að nú sé réttur tími til að selja fyr- irtæki eins og Landssímann og hugsanlega skoða sölu eignarhluta opinberra aðila í orkufyrirtækjum. Sala Símans mistókst á sínum tíma þegar íslensk stjórnvöld gerðu tilraun til þess að selja fyrir- tækið. Verðið þótti hátt og almenn- ingur hunsaði útboðið. Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra segir málið í höndum einkavæðingar- nefndar. Hann segir ekki skynsam- legt að rjúka upp til handa og fóta nú. „Þetta eru sumpart sömu menn og töldu að við værum að krefjast of mikilla fjármuna fyrir fyrirtæk- ið á sínum tíma.“ Hann segir nauð- synlegt að meta breyttar aðstæður og það verði gert á næstu mánuð- um meðal annars í ljósi þessara að- stæðna. „Það er mjög ánægjulegt að heyra að það sé mat fjármála- sérfræðinga að nú sé að nálgast réttur tími til að selja.“ ■ Héraðsdómur: Tóbaksrisa vísað frá DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík- ur vísaði í gær frá máli tóbaksfyrir- tækisins British American Tobacco á hendur íslenska ríkinu. Tóbaksfyrirtækið telur tak- markanir á sölu og auglýsingum á tóbaksvörum vera of víðtækar og ganga gegn tjáningarfrelsinu. Hér- aðsdómur segir fyrirtækið ekki eiga lögvarða hagsmuni í málinu þar sem það selji einungis íslenska ríkinu tóbak en sé sjálft hvorki í dreifingu né sölu hérlendis. Á mánudaginn var þingfest í hér- aðsdómi álíka mál tóbaksfyrirtæk- isins JT International og verslunar- innar Bjarkar gegn ríkinu. ■ Nítján ára piltur úr Keflavík: Játaði tvö bankarán DÓMSMÁL Nítján ára piltur úr Keflavík játaði í Héraðsdómi Reykjaness í gær að hafa framið tvo bankarán fyrr á árinu; það fyrra í Hafnarfirði 1. apríl og það síðara í Grindavík 5. júní. Eftir ránið í Sparisjóði Hafnar- fjarðar tók það lögreglu nokkurn tíma að finna ræningjann. Eftir að hann var tekinn vildi hann ekki gangast við glæpnum fyrr en vika var liðin frá ráninu. Þá mun hann hafa verið búinn að koma hluta ránsfengsins í lóg. Þegar pilturinn rændi Lands- bankann í Grindavík náðist hann á leið út úr bænum. Hann hafði þá losað sig við fenginn en játaði þegar lögregla gekk á hann. Pen- ingarnir úr bankanum fundust síðar við vegarkantinn. Mun mesti hluti þýfisins úr ránunum tveimur þannig hafa fundist. Hinn meinti bankaræningi, sem hélt á hnífi í báðum ránunum, hefur verið frjáls ferða sinna frá því 10. júní. Búast má við dómi í málinu innan fjögurra vikna. ■ Útgerðarmenn ákærðir: Meintur 638 tonna afla- stuldur DÓMSMÁL Ríkislögreglustjóri hef- ur ákært sex menn og fjögur einkafyrirtæki fyrir stórfelld brot á lögum um nytjastofna sjáv- ar, lögum um stjórn fiskveiða og fyrir landhelgisbrot. Ákært er fyrir heimildarlausar veiðar á samtals 638 tonnum af fiski af ýmsum tegundum. Að auki eru tveir mannanna ákærðir fyrir að hafa með því að veiða 125 tonn af áðurgreindum afla gert eigendur skipsins sem leigt var skuldbundna til að kaupa viðbót- araflaheimildir til að rétta af afla- stöðu skipsins. Þá er ákært fyrir svik á virðisaukaskatti og á stað- greiðslu starfsmanna upp á sam- tals 17,1 milljón króna. Veiðarnar voru stundaðar á bátum frá Ólafs- vík og Bíldudal. Ljóst þykir að verðmætið nemi vel yfir 100 milljónum króna. Mennirnir hafa allir neitað sök og neita að tjá sig um málið fyrr en við aðalmeðferð þess, sem hefst 8. október. ■ Kaupréttur stjórnenda: 60 milljónir í bónus VIÐSKIPTI Lykilstarfsmenn Eim- skipafélags Íslands keyptu í gær hlutabréf í félaginu á grundvelli kaupréttarsamninga. Kaupgengið var ýmist 5,0 eða 6,11. Eimskipafé- lagið sjálft keypti megnið af hlutun- um aftur á genginu 7,5. Söluupphæð samninganna var rúmir 162 milljón- ir króna, en félagið keypti til baka hluti fyrir 222 milljónir króna. Sölu- hagnaður nítján starfsmanna var því 60 milljónir króna. Kaupréttur starfsmanna var mismunandi. Forstjórinn Ingimund- ur Sigurpálsson keypti hlut fyrir 7,5 milljónir og seldi fyrir 10,5 milljón- ir. Innleystur kaupauki hans nemur því þremur milljónum króna. ■ Dagsektum beitt vegna ágalla á brunavörnum að Laugavegi 162: Brunavarnir Þjóðskjalasafns í ólagi BRUNAVARNIR Borgaryfirvöld hafa veitt slökkviliðsstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins heimild til að beita Fjársýslu ríkisins dag- sektum vegna ágalla á brunavörn- um húsnæðisins að Laugavegi 162. Þjóðskjalasafn Íslands og Við- lagatrygging Íslands eru m.a. til húsa á Laugavegi 162. Þjóðskjala- safnið varðveitir skjöl opinberrar stjórnsýslu í fortíð og nútíð. Það geymir því mikið magn upplýs- inga er varða stjórn landsins, sögu stofnana þess og réttindi þegnanna. Í Þjóðskjalasafninu eru nú varðveittir meira en 30 km af skjölum ef mælt er í hillulengd. Hlutverk Viðlagatryggingar Íslands er að vátryggja gegn tjóni af völdum náttúruhamfara: eld- gosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða. Dagsektirnar nema 6.400 krón- um fyrir hvern virkan dag þar til kröfur um brunavarnir hafa verið uppfylltar. ■ Hrísey: Hrepps- nefnd vill ívilnun SJÁVARÚTVEGSMÁL Hreppsnefnd Hríseyjarhrepps hefur ályktað um að staðið verði við loforð um línu- ívilnun og byggðakvóta. Hrísey- ingar skora á ríkisstjórn og sjávar- útvegsráðherra að standa nú þegar við gefin fyrirheit um línuívilnun og aukningu byggðakvóta sem landsfundir ríkisstjórnarflokk- anna hafi samþykkt fyrir kosning- ar og skýrt sé kveðið á um í stjórn- arsáttmála núverandi ríkisstjórn- ar. „Það er einnig krafa okkar að Alþingi Íslendinga taki á þessum málum um leið og það kemur sam- an í haust og tryggi mörgum byggðarlögum víða um land áframhaldandi tilveru,“ segir í ályktun Hríseyinga. Mörg félög útgerðarmanna um land allt hafa mótmælt línuívilnun- inni, sem þau telja fela í sér mis- munun. ■ 8,4 MILLJÓNIR UNDAN SKATTI Mál ríkislögreglustjóra gegn tveimur mönnum sem voru í veit- ingarekstri var þingfest í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Mennirnir, sem neita sök, eru sagðir hafa skotið samtals 8,4 milljónum króna undan skatti með fölsun reikninga. PAR ÁKÆRT FYRIR SKATTSVIK Ríkislögreglustjóri hefur höfðað mál gegn pari á fertugsaldri fyrir að hafa í atvinnurekstri sínum ekki staðið skil á staðgreiðslu tæplega 900 þúsund króna opin- berum gjöldum sem haldið var eftir af launum starfsmanna þeirra árið 1999. STURLA BÖÐVARSSON Samgönguráðherra segir málið í höndum einkavæðingarnefndar. BÓNUSGREIÐSLUR Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Eim- skipafélagsins, fékk þriggja milljóna króna bónus í formi kaupréttar í félaginu. LAUGAVEGUR 162 Þjóðskjalasafn Íslands og Viðlagatrygging Íslands eru m.a. til húsa á Laugavegi 162. Össur Skarphéðinsson telur að breytingar á samfélaginu kalli á endur- skoðun á stöðu þjóðkirkjunnar í stjórnarskrá. Hann segir mikilvægt að allir, óháð trúhneigð, finni sama skjól undir stjórnarskrá Íslands. AÐSKILNAÐUR RÍKIS OG KIRKJU Össur Skarphéðinsson vill að breytingar á stjórnarskránni verði gerðar í samstöðu við kirkjuna. BANKARÆNINGINN Nítján ára piltur úr Keflavík vakti athygli í vor eftir að hafa tvívegis framið vopnað bankarán. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Segir að kominn sé tími til breytinga. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.