Fréttablaðið - 17.09.2003, Síða 14
bílar o.fl.
Blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur bí lum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: bilar@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Hann er kallaður ljónabíllinn ífjölskyldunni,“ segir Vanda
Sigurgeirsdóttir, þjálfari Íslands-
meistara KR í kvennafótbolta,
sem hefur átt Peugeot station-
fjölskyldubíl í tvö ár.
„Mér finnst hann mjög góður.
Hann er líka kraftmikill. Við keyr-
um svolítið á honum út á land því
mamma mín og pabbi eiga heima
á Sauðárkróki. Ég er mjög ánægð
með bílinn.“
Vanda ferðaðist ekki mikið í
sumar en náði þó að fara í hring-
ferð um landið með fjöl-
skyldunni. „Ég hef
ekki komist mikið út af fótboltan-
um en fékk smá frí í sumar.“
Þegar Vanda bjó á Sauðárkróki
fyrir nokkru keyptu þau hjónin
sér LandCruiser jeppa sem þau
áttu í eitt ár. Þar áður óku þau um
á stationbíl. „Það er draumurinn
að vera á jeppa en það kostar bara
ansi mikla peninga,“ segir Vanda,
sem er tveggja barna móðir. „Það
var rosalega gaman að eiga jeppa
en við erum samt mjög ánægð
með þennan bíl.“ ■
Fjölskyldubíllinn minn:
Kallaður ljónabíllinn
í fjölskyldunni
Bandarísk ungmenni:
Fleiri á not-
uðum bílum
36 % bandarískra ungmenna áaldrinum 16 til 17 ára aka á not-
uðum bílum, samkvæmt nýrri
könnun. Á meðal ungmenna á
aldrinum 18-19 ára er talan nokk-
uð hærri eða 47%.
Þetta eru mun hærri tölur en
komu fram í síðustu könnun sem
var gerð árið 1999. Þá áttu 14%
16-17 ára ungmenna notaða bíla
og 12% 18 til 19 ára ungmenna.
Fjöldi bandarískra ungmenna
sem geta montað sig af nýja bíln-
um sínum hefur aukist lítillega.
Samkvæmt könnuninni hafa 9%
ungmenna á aldrinum 16 til 17 ára
eignast nýja bíla á árinu. Sömu
sögu er að segja af 11 prósentum
unglinga á aldrinum 18-19 ára.
Fjöldinn hefur aukist um eitt til
fimm prósent frá síðustu könnun.
„Foreldrar og unglingar hafa
mismunandi forgangsröðun. Ung-
lingar vilja eitthvað sem getur
bætt ímynd þeirra í samfélaginu,“
sagði aðstandandi könnunarinnar.
„Foreldrar vilja kaupa hluti sem
þeir hafa efni á og um leið eitt-
hvað sem er áreiðanlegt.“ ■
Tíska í bílakaupum:
Vinsældir lúxusfólksbíla aukast
Fólk er farið að skoða lúxus-fólksbíla mun meira en áður,“
segir Guðmundur Gíslason,
markaðsstjóri B&L, um nýjustu
tískuna í bílakaupum.
„Krafturinn er farinn að
skipta minna máli. Menn eru
farnir að hugsa verulega mikið
um öryggið og þá er litið til þess-
ara NCAP-prófa frá Evrópu þar
sem bílar fá stjörnugjöf. Sem
dæmi var Renault Laguna valinn
öruggasti bíllinn í slíku prófi og
fyrir vikið eru Renault-bílarnir
orðnir mest seldu bílar í Evr-
ópu.“
Guðmundur segir að margar
ástæður séu fyrir auknum áhuga
á lúxusfólksbílum. „Það helsta er
að vegirnir eru orðnir mjög góð-
ir. Fólk er líka farið að uppgötva
aksturseiginleika fólksbílanna.
Þeir eru komnir með breiðari
dekk og eru orðnir öruggari en
áður. Lúxussportjeppar eru líka
orðnir nokkuð vinsælir.“
Vinsældir fjölnota fjölskyldu-
bíla hafa einnig aukist upp á
síðkastið, sem og fjórhjóladrifnir
jepplingar. „Þessir fjölnota bílar
eru þægilegir bílar fyrir fjöl-
skyldur. Krakkarnir sitja hærra
og sjá betur út. Plássið er líka
meira og það er hægt að taka sæt-
in úr þeim,“ segir Guðmundur. ■
RENAULT LAGUNA
Vinsælir og öruggir bílar.
NÝR BÍLL
Níu prósent bandarískra ungmenna hafa
eignast nýja bíla á árinu.
Nýr Alfa Romeo:
Fimm manna
sportbíll
Nýr Alfa Romeo var frumsýnd-ur hér á landi á dögunum.
Gerðar hafa verið töluverðar
breytingar á 156-bílnum sem hef-
ur verið vinsælasti Alfa Romeo-
bíllinn hér á landi.
Að sögn Sturlu Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra hjá Fiat og
Alfa Romeo-umboðinu, felast
breytingarnar mest í útlitshönnun
á fram- og afturenda bílsins.
„Þessar breytingar eru til viðbót-
ar við þær tæknilegu breytingar
sem voru gerðar fyrir ári. Þá tóku
þeir bílinn í gegn að innan en núna
hafa þeir breytt andlitinu á bíln-
um,“ segir Sturla.
Sturla segir að á fyrstu þremur
mánuðum ársins hafi salan á Alfa
Romeo verið meiri en allt árið í
fyrra. Þegar séu komnar pantanir
fyrir nýja bílinn. „Þessi nýi bíll er
mjög sportlegur. Það var frægur
ítalskur hönnuður sem hannaði
breytingarnar. Bíllinn hefur þetta
grimma andlit sem sportbílar
hafa. Þetta er í raun fimm manna
sportbíll án þess að vera neitt
óþarflega hastur,“ segir Sturla. ■
ALFA ROMEO
Þessi nýja tegund af Alfa Romeo er komin
til Íslands.
■ Bílar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
EYJABÍLAR
Þessir fjórir sérhönnuðu eyjabílar stóðu við hafnarbakka í Montego
í Jamaíka á dögunum og biðu þess að vera fluttir til Bahama-eyja.
Bílarnir, sem eru tveggja dyra, voru smíðaðir í verksmiðju Excel
Motort í vesturhluta Jamaíka.
AP
/M
YN
D
Jeppaferð Útivistar:
Farið um
Fjallabak
Jeppadeild Útivistar stendurfyrir ferð um Breiðbak og
Syðri-Fjallabaksleið helgina 26. til
28. september. Þátttakendur ferð-
ast á eigin jeppum undir leiðsögn
fararstjóra Útivistar.
Á föstudagskvöldið verður
ekið inn í Hrauneyjar þar sem
tekið verður eldsneyti. Þaðan er
ekið í Jökulheima þar sem gist
verður í skálum Jöklarannsókna-
félags Íslands. Á laugardeginum
verður meðal annars leitað að
vaði yfir Tungnaá. ■
Evrópsk samgönguvika:
Aðgengi
fyrir alla
Dagana 16. til 22. septembertekur Reykjavíkurborg þátt í
Evrópsku samgönguvikunni. Í ár
taka um 240 borgir víðs vegar í
Evrópu þátt í verkefninu.
Meginþema vikunnar er „að-
gengi fyrir alla“ í tengslum við
Evrópuár fatlaðra.
Evrópska samgönguvikan er
haldin til þess að vekja almenning
til umhugsunar um umferðar-
menningu. Einnig er lögð áhersla
á mikilvægi þess að skapa betra
aðgengi, meðal annars fyrir gang-
andi vegfarendur, hjólreiðafólk
og fatlaða. ■
VETRARDEKKIN 1. NÓV. Nú er
veturinn að nálgast og þá þurfa
ökumenn að huga að ýmsum at-
riðum, svo sem að setja vetrar-
dekkin undir bílinn sinn. Frestur-
inn til að setja dekkin undir
bílinn rennur út 1. nóvember.
Frostið gæti þó gert vart við sig
fyrr og því um að gera fyrir öku-
menn að fara að huga að skiptun-
um.
VANDA VIÐ
PEUGEOT
BÍLINN
Fór í hringferð
um landið í
sumar með
fjölskyldunni.