Fréttablaðið - 17.09.2003, Blaðsíða 24
FÓTBOLTI Stjórn Evrópska knatt-
spyrnusambandsins, UEFA, mun
væntanlega ákveða í dag hvaða
reglur verða viðhafðar í umspili
um laust sæti á Evrópumótinu í
knattspyrnu í Portúgal á næsta ári.
Átta lið munu leika í umspili um
sætin fjögur sem í boði eru. Stjórn
UEFA á eftir að ákveða hvort dreg-
ið verði um hvaða lið mætist eða
hvort liðum verði raðað í styrk-
leikalista. Ef seinni leiðin verður
farin munu þjóðir sem eru ofar-
lega á styrkleikalista Alþjóða
knattspyrnusambandsins mæta
lakari þjóðum, sem gerir þeim síð-
arnefndu erfiðara fyrir að komast
í lokakeppnina.
Líklegra þykir þó að fyrri leiðin
verði farin en sá háttur hefur ver-
ið hafður á síðustu ár. England
dróst til að mynda gegn Skotlandi í
umspili fyrir Evrópukeppnina árið
2000.
Ísland gæti lent í umspili við
þjóðir á borð við Danmörk, Noreg,
Holland, Spán, England, Króatíu,
Ítalíu og Írland. Það skýrist þó
ekki fyrr en í lokaleikjum und-
ankeppninnar þann 11. október. ■
24 17. september 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Handbolti
SÁTTUR
Gianfranco Zola, fyrirliði Cagliari, fagnar
hér marki sem hann skoraði úr vítaspyrnu
í leik gegn Pescara. Zola virðist sáttur að
vera kominn aftur heim til Ítalíu.
Fótbolti
Meistaradeild Evrópu:
Kennslustund á Old Trafford
FÓTBOLTI Manchester United tók
Panathinaikos frá Grikklandi í
kennslustund á Old Trafford í gær
í fyrstu umferð Meistaradeildar
Evrópu og vann stórsigur 5-0.
Ensku meistararnir sýndu á
köflum snilldartilþrif og í hálfleik
var staðan 4-0. Mickael Silvestre,
Quinton Fortune, Ole Gunnar Sol-
skjær, Nicky Butt og Eric
Djemba-Djemba skoruðu mörk
heimamanna.
Eiður Smári Guðjohnsen sat á
varamannabekknum þegar Chel-
sea lagði Spörtu Prag að velli 1-0.
William Gallas skoraði mark
Lundúnaliðsins á 85. mínútu.
Stjörnum prýtt lið Real Ma-
drid vann Marseille frá Frakk-
landi 4-2. ■
FÓTBOLTI Fyrstu umferð riðla-
keppni Meistaradeildar Evrópu
lýkur í kvöld með átta leikjum.
Stórleikur umferðarinnar verður
á Highbury þegar Arsenal tekur á
móti Inter Milan í B-riðli. Arsenal
hefur aldrei tapað fyrir ítölsku
liði á heimavelli undir stjórn
Arsene Wenger. Lundúnaliðið
þarf þó að bæta árangur sinn á
heimavelli. Á síðustu leiktíð gerði
liðið fjórum sinnum jafntefli og
tapaði einum leik í þeim sex leikj-
um sem liðið lék á heimavelli í
Meistaradeildinni. Arsenal hefur
byrjað tímabilið í ensku úrvals-
deildinni vel, er á toppi deildar-
innar og hefur ekki tapað leik.
„Leikurinn í kvöld skiptir okk-
ur miklu máli,“ sagði Arsene
Wenger. „Inter er líklega helsti
keppinautur okkar í riðlinum og
það er nauðsynlegt fyrir okkur að
hefja mótið með sigri.“
Framherjinn Christian Vieiri
getur ekki leikið með Inter Milan
í kvöld vegna ökklameiðsla sem
hann hlaut í landsleik í síðustu
viku.
Dynamo Kiev og Lokomotiv
Moskva eigast við í hinum leik
riðilsins.
Í A-riðli mætast Bayern
München og Glasgow Celtic.
Bayern er talið eitt af sigur-
stranglegustu liðum keppninnar
enda skipað frábærum leikmönn-
um. Liðið fékk einnig hollenska
markahrókinn Roy Makaay í sínar
raðir fyrir þetta tímabil. Hann
hefur þó ekki enn náð að sýna sitt
rétta andlit. Ottmar Hitzfeld,
knattspyrnustjóri Bayern, getur
þó ekki stillt upp sínu sterkasta
liði því Michael Ballack, Sebasti-
an Deisler, Jens Jeremies og
Brasilíumaðurinn Ze Roberto eru
allir meiddir.
Franska liðið Lyon mætir And-
erlecht í hinum leik riðilsins.
PSV Eindhoven mætir Monaco
í C-riðli. Óvíst er hvort Kasper
Bøgelund geti leikið með hol-
lenska liðinu en hann meiddist í
leik gegn Utrecht á laugardag.
Guus Hiddink, þjálfari PSV, var
ekki ánægður með leik sinna
manna þá þótt þeir hefðu unnið
2-1.
„Við þurfum að leika betur en
þetta gegn Monaco,“ sagði Hidd-
ink á laugardag. Deportivo La
Coruña sækir AEK frá Grikklandi
heim í sama riðli.
David Trezeguet getur líklega
ekki leikið með Juventus í kvöld
gegn Galatasaray í D-riðli keppn-
innar vegna meiðsla. Trezeguet
skoraði sigurmark Juve gegn
Chievo um síðustu helgi. Fatih
Terim, stjóri Galatasaray, gagn-
rýndi leikmenn sína eftir 1-0 tap
gegn Konyaspor um síðustu helgi.
„Ef við leikum svona áfram mun
Juventus kjöldraga okkur,“ sagði
Terim. ■
Sjálfboðaliðar
óskast!
Kópavogsdeild Rauða kross Íslands óskar eftir
sjálfboðaliðum til þess að sinna margvíslegum
mannúðarverkefnum deildarinnar.
Kynningarfundur fyrir nýja sjálfboðaliða verður haldinn
í Hamraborg 11 fimmtudaginn 18. september kl. 20.
Um er að ræða verkefni sem henta körlum
jafnt sem konum, fólki á öllum aldri:
• Heimsóknavinir
• Aðstoð við geðfatlaða
• Föt sem framlag
• Neyðarvarnir
• Ökuvinir
• Fataflokkun og afgreiðsla í L-12
• Hjálparsíminn
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11,
opin virka daga kl. 12-14
Sími 554 6626 / kopavogur@redcross.is
www.redcross.is/kopavogur
Nánari upplýsingar:
Remaxdeild karla – úrslit
Suðurriðill:
KA - Fram 30 - 31
Víkingur - Grótta/KR 24 - 24
Afturelding - Þór 29 - 26
BLAÐAMANNAFUNDUR ÍSLENSKA LANDSLIÐSINS
Gæti mætt Englandi, Ítalíu, Hollandi eða öðrum stórþjóðum í umspili um laust sæti á Evr-
ópumótinu.
Stjórn UEFA hittist í dag:
Ákveður reglur umspils
Arsenal mætir Inter
Átta leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Arsenal mætir Inter Milan og Bayern
München fær Celtic í heimsókn. Christian Vieiri getur ekki leikið með Inter vegna meiðsla.
Sömu sögu er að segja úr herbúðum Bayern München þar sem Michael Ballack er meiddur.
ARSENAL
Thierry Henry verður væntanlega í eldlínunni í kvöld þegar Arsenal fær Inter Milan
í heimsókn.
LEIKIR KVÖLDSINS:
A Bayern - Celtic
A Lyon - Anderlecht
B Arsenal - Internazionale
B Dynamo Kiev - Lokomotiv Moskva
C AEK - Deportivo
C PSV - Monaco
D Juventus - Galatasaray
D Real Sociedad - Olympiakos
MARKI FAGNAÐ
Manchester United burstaði Panathinaikos
5-0 í gærkvöldi.
ÚRSLITIN
Manchester United - Panathinaikos 5-0
AC Milan - Ajax 1-0
Club Brugge - Celta Vigo 1-1
Real Madrid - Marseille 4-2
Rangers - Stuttgart 2-1
Sparta Prag - Chelsea 0-1
Besiktas - Lazio 0-2
Partizan Belgrad - Porto 1-1