Fréttablaðið - 17.09.2003, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 17. september 2003
FÓTBOLTI Bandaríska kvennadeild-
in í knattspyrnu, WUSA, hefur
verið lögð niður. Stjórn WUSA tók
ákvörðun um að leggja deildina
niður á fundi í New York á mánu-
dag aðeins nokkrum dögum áður
en heimsmeistaramót kvenna
hefst þar í landi. Rekstur deildar-
innar hefur gengið afar illa;
áhorfendum hefur fækkað til
muna og erfitt hefur reynst að ná
í styrktaraðila.
„Rekstrargrundvöllur er ekki
lengur fyrir hendi,“ sagði John
Hendricks, stjórnarformaður
deildarinnar.
WUSA-deildinni var komið á
laggirnar árið 1999 í kjölfar
heimsmeistaramótsins í Banda-
ríkjunum sama ár, sem þótti
takast einstaklega vel. Flestar af
bestu knattspyrnukonum heims
leika í deildinni, þar á meðal allt
bandaríska landsliðið.
Eigendur WUSA lögðu 100
milljónir dollara í deildina en án
árangurs. Leikmenn tóku á sig
launalækkun til að reyna að
bjarga henni en allt kom fyrir
ekki. Tæplega 400 manns starfa
við deildina og átta lið hafa leikið
þar síðustu ár. ■
FÓTBOLTI Helena Ólafsdóttir, þjálf-
ari kvennalandsliðsins, hefur til-
kynnt átján manna æfingahóp
fyrir leikinn gegn Póllandi í und-
ankeppni Evrópumótsins sem
fram fer í Bydgoszcz í Póllandi.
Sextán leikmenn verða valdir til
ferðarinnar þegar nær dregur
leik.
Þórunn H. Jónsdóttir úr KR er
eini nýliðinn í hópnum. Hún er að-
eins átján ára en hefur staðið sig
vel með Íslandsmeisturunum í
sumar. Ásthildur Helgadóttir fyr-
irliði er sem fyrr leikjahæst, hef-
ur leikið 55 landsleiki.
Landsliðið fer til Póllands
fimmtudaginn 25. september en
leikurinn sjálfur verður tveimur
dögum síðar. Íslenska landsliðið
vann það pólska um síðustu helgi
10-0. Það er stærsti sigur sem ís-
lenskt A-landslið hefur unnið.
Íslensku stelpurnar eru í efsta
sæti 3. riðils undankeppni Evr-
ópumótsins með sjö stig, jafn
mörg og Rússland en með betri
markatölu. Íslenska liðið hefur
leikið fjóra leiki; unnið tvo, gert
eitt jafntefli og tapað einum. ■
SORGARSTUND
Mia Hamm, ein besta knattspyrnukona
heims, grætur hér eftir að Washington
Freedom tapaði í úrslitaleik fyrir Carolina
Courage. WUSA-deildin hefur verið lögð
niður vegna slæmrar fjárhagsstöðu. Ís-
lensku landsliðskonurnar Ásthildur Helga-
dóttir, Margrét Ólafsdóttir og Rakel Ög-
mundsdóttir léku um tíma í deildinni.
WUSA-deildin:
Bandaríska kvenna-
deildin lögð niður
ÍSLAND - PÓLLAND
Íslenska liðið kjöldró það pólska þegar þau áttust við á Laugardalsvelli um síðustu helgi.
Liðin eigast aftur við í Póllandi þann 27. september.
ÍSLENSKA LIÐIÐ
Markverðir:
Þóra B. Helgadóttir KR
María B. Ágústsdóttir Stjörnunni
Aðrir leikmenn:
Björg Ásta Þórðardóttir Breiðablik
Erna B. Sigurðardóttir Breiðablik
Erla Hendriksdóttir FV Köbenhavn
Margrét L. Viðarsdóttir ÍBV
Olga Færseth ÍBV
Edda Garðarsdóttir KR
Embla S. Grétarsdóttir KR
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir KR
Hólmfríður Magnúsdóttir KR
Hrefna H. Jóhannesdóttir KR
Þórunn H. Jónsdóttir KR
Ásthildur Helgadóttir Malmö FF
Íris Andrésdóttir Valur
Laufey Jóhannsdóttir Valur
Laufey Ólafsdóttir Valur
Málfríður E. Sigurðardóttir Valur
Helena Ólafsdóttir velur landsliðshópinn:
Þórunn eini
nýliðinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T