Fréttablaðið - 17.09.2003, Page 26
■ ■ TÓNLEIKAR
Halli og Kolla taka frumsamið efni í
bland við lög eftir aðra á Pakkhúsinu,
Selfossi.
Strákarnir í EE Project verða með
tónleika á Gauki á Stöng í kvöld.
20.00 Kristinn Sigmundsson og
Jónas Ingimundarson endurflytja opn-
unartónleika Tíbrár í Salnum, Kópavogi,
vegna fjölda áskorana. Á efnisskrá eru
tveir glæsilegir söngvasveigar eftir Ro-
bert Schumann. Því miður verður ekki
hægt að flytja tónleikana oftar. Margir
þurftu frá að hverfa í fyrra skiptið en
enn eru nokkur sæti laus í kvöld.
21.00 Bubbi er farinn í hausttón-
leikaferð og spilar í Félagsheimilinu
Víðihlíð í kvöld. Miðaverð er 1.500
krónur og ekkert aldurstakmark.
■ ■ FYRIRLESTRAR
16.30 Ertu að fara elsku vinur? Þór-
oddur Bjarnason, lektor í félagsfræði
við State University of New York í
Bandaríkjunum, fjallar um framtíðarsýn
íslenskra unglinga og viðhorf þeirra til
heimahaganna, 1992-2003. Fyrirlestur-
inn verður fluttur í stofu 14 í Háskólan-
um á Akureyri, Þingvallastræti 23.
■ ■ FUNDIR
12.30 Hádegisfundir Geðræktar í
Grensáskirkju. Eru þunglyndi og kvíði
eðlilegir fylgifiskar efri áranna? Berglind
Magnúsdóttir sálfræðingur, Hildur Við-
arsdóttir læknir og Guðjón Bergmann
jógakennari verða með erindi og sitja
fyrir svörum. Boðið er upp á súpu,
brauð og kaffi fyrir 500 kr. Allir - á öllum
aldri – eru hjartanlega velkomnir.
16.15 Málstofa á vegum Hag-
fræðistofnunar: Jón Þór Sturluson sér-
fræðingur spyr hvort reynsla keppinauta
skipti máli. Í fyrirlestrinum verður fjallað
um hagfræðilega tilraun á sviði sam-
keppnismála. Fyrirlesturinn fer fram á
Aragötu 14.
26 17. september 2003 MIÐVIKUDAGURhvað?hvar?hvenær?
14 15 16 17 18 19 20
SEPTEMBER
Miðvikudagur
Það er ferlega gaman að fara útá land. Fólkið er svo þakklátt
og svo eru þessi hús úti á landi,
félagsheimilin og bíóin, mörg al-
veg frábær tónlistarhús,“ segir
Bubbi Morthens, sem í gær hélt
af stað í sína árlegu tónleikaferð
um landið.
„Og þegar veðrið er gott skipt-
ir engu máli hvar maður er. Land-
ið er svo yndislegt. Það er alveg
einstakt að vera að þvælast svona
einn um þessa staði alla.“
Bubbi hefur haldið þessum sið
í 23 ár að ferðast um landið þvert
og endilangt að flytja tónlist sína.
Oftast er hann einn á ferð með gít-
arinn sinn og svo er einnig núna.
„Hera var með mér í fyrra, en
hún er í upptökum núna.“
Bubbi hóf túrinn á Skagaströnd
í gærkvöld og verður svo með tón-
leika í félagsheimilinu í Víðihlíð í
kvöld. Á morgun verður hann á
Hvammstanga en á föstudaginn
verður hann á Akranesi.
„Þetta verður alveg helvíti
langt. Fyrsta törnin stendur alveg
fram í október. Þá kem ég í bæinn
út af idolinu,“ segir Bubbi.
Síðan fer hann aftur af stað og
fer þá á alla smærri staðina í
kringum hina stærri. Túrnum lýk-
ur ekki fyrr en í desember, enda
segir hann stefnuna að heimsækja
nánast öll byggðarlög á landinu.
Á tónleikunum ætlar hann að
kynna nýja plötu sem kemur út í
haust og heitir „Þúsund kossa
nótt“.
Tónleikaferðina nefnir Bubbi
„Þúsund kossa nótt“, sem er sama
nafn og á nýju plötunni sem hann
sendir frá sér í haust.
Bubbi segir þetta þriðju plötuna
í þríleik sem byggir á svipuðu
þema, sem kenna má við fjölskyld-
una að nokkru leyti, segir Bubbi.
Fyrst kom platan Lífið er ljúft og
síðan Sól að morgni.
gudsteinn@frettabladid.is
■ TÓNLIST
Einn á ferð
með gítarinn
Miðvikudagur 17. september
Félagsheimilið Víðihlíð
Fimmtudagur 18. september
Félagsheimilið Hvammstanga
Föstudagur 19. september
Bíóið, Akranesi
Mánudagur 22. september
Dalabúð, Búðardal
Þriðjudagur 23. september
Félagsheimilið, Patreksfirði
Miðvikudagur 24. september
Félagsheimilið, Tálknafirði
Fimmtudagur 25. september
Ísafjörður
Föstudagur 26. september
Félagsheimilið Þingeyri
Sunnudagur 28. september
Vagninn, Flateyri
Mánudagur 29. september
Bragginn, Hólmavík
Sunnudagur 12. október
Sport-Barinn, Sauðárkróki
Mánudagur 13. október
Víkurröst, Dalvík
Þriðjudagur 14. október
Tjarnarborg, Ólafsfirði
Miðvikudagur 15. október
Hótel Húsavík
Fimmtudagur 16. október
Sjallinn, Akureyri
Föstudagur 17. október
Félagsheimilið Þórshöfn
Laugardagur 18. október
Félagsheimilið Vopnafirði
HausttúrBubba
BUBBI MORTHENS
Er kominn af stað í 23. tónleikaferð sína um landið. Í kvöld verður hann í félagsheimilinu í Víðihlíð.
Stórsöngvari í Salnum
Í kvöld verða tónleikar meðsöngvaranum Kristni Sig-
mundssyni og píanóleikaranum
Jónasi Ingimundarsyni í Salnum í
Kópavogi. Það gefst ekki oft tæki-
færi til að hlýða á stórsöngvarann
hér á landi því hann starfar aðal-
lega erlendis. Þegar hann kemur
til Íslands er það aðallega til að
taka sér frí og njóta samvista með
fjölskyldunni: „Ég er nýkominn
frá Bandaríkjunum þar sem ég
var að syngja í sálumessu Verdis
með Detroit-sinfóníuhljómsveit-
inni. Ég er með umboðsmenn er-
lendis og þetta var eitt af verkefn-
unum sem mér fannst spennandi
að taka að mér. Hljómsveitin er
mjög góð og hljómsveitastjórinn,
Neeme Jarvi, er einn af þeim
betri í heiminum.“
En Kristinn ætlar ekki bara að
vera í fríi í þetta skiptið: „Við
Jónas ætlum að endurtaka opnun-
artónleika Tíbrár sem við héldum
í Salnum 7. september. Á dag-
skránni eru tveir ljóðaflokkar eft-
ir Robert Schumann við ljóð
Eichendorffs og Kerners. Margir
urðu frá að hverfa í síðustu viku
og af því tilefni ákváðum við að
endurtaka þetta.“
En fyrir aðdáendur Kristins er
eins gott að missa ekki af þessu
tækifæri því víst er að tónleikarn-
ir verða ekki aftur á dagskrá sök-
um anna: „Ég fer fljótlega aftur til
útlanda. Í byrjun næsta mánaðar
syng ég hlutverk höfuðsmannsins
í Don Giovanni í ríkisóperunni í
München,“ segir Kristinn, sem
dvelur svo í París til áramóta þar
sem hann syngur í Parísaróper-
unni í Meistarasöngvurunum frá
Nürnberg og Hollendingnum
fljúgandi eftir Wagner.
En hvernig er að syngja í Saln-
um fyrir mann sem hefur saman-
burð við helstu óperuhús heims-
ins? „Það er mjög gott að syngja í
Salnum. Þar er góður hljómur
enda er þetta eina húsið á Íslandi
sem hefur verið sérstaklega
hannað með það fyrir augum að
tónlistarflutningur eigi sér þar
stað.“
Tónleikarnir með þeim Kristni
og Jónasi Ingimundarsyni hefjast
klukkan 20.00 í kvöld. ■
KRISTINN SIGMUNDSSON OG JÓNAS INGIMUNDARSON
Verða með ljóðatónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld.
■ TÓNLEIKAR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T