Fréttablaðið - 17.09.2003, Side 30
Hrósið 30 17. september 2003 MIÐVIKUDAGUR
Hér erum við að búa til stjörn-ur eins og víða annars stað-
ar,“ segir Ólafur Flosason, óðals-
bóndi á Breiðabólsstað í Reyk-
holtsdal, en Ólafur er formaður
undirbúningsnefndar dægurlaga-
keppni sem haldin verður í félags-
heimilinu Logalandi áður en langt
um líður. Dægurlagakeppnin í
Reykholtsdal er orðinn árviss at-
burður í sveitinni og nýtur sívax-
andi vinsælda. Í fyrra bárust 20
lög í keppnina og búast menn við
að þau verði síst færri í ár:
„Einu skilyrðin eru þau að
lagið sé frumsamið, með ís-
lenskum texta og hafi ekki verið
flutt áður opinberlega. Allt ann-
að er opið,“ segir Ólafur Flosa-
son, sem sjálfur er tónlistar-
menntaður og lék á óbó með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands áður en
hann flutti í Borgarfjörðinn og
sneri sér að hestamennsku.
„Verðlaun eru að sjálfsögðu
vegleg en í fyrra voru þau tíu
tímar í stúdíói. Nú bjóðum við
15 tíma í hljóðveri fyrir vinn-
ingslagið,“ segir hann.
Frestur til að skila inn lögum
í Dægurlagakeppnina í Reyk-
holtsdal er til 1. nóvember en
keppnin sjálf fer fram þremur
vikum síðar. Heimilisfangið er:
Ó.F. / Breiðabólsstaður / 320 /
Reykholt. ■
Dægurlagakeppni
ÓLAFUR FLOSASON
■ Ólafur er formaður undirbúnings-
nefndar Dægurlagakeppninnar í Reyk-
holtsdal. Hann hvetur fólk til að senda
inn lög enda til mikils að vinna.
Imbakassinn
...fær Alex Ferguson fyrir að
standast gylliboð Rómans
Abramóvits um að yfirgefa
Manchester United og taka við
Chelsea. Nóg er að Beckham sé
farinn.
Stjarna fæðist í Reykholtsdal
Þingflokkur Samfylkingarinnar heldur vinnufund á Akureyri dagana 17.-18.september
og heimsækir m.a. fyrirtæki og stofnanir.
Opinn stjórnmálafundur með
þingflokki Samfylkingarinnar
M I Ð V I K U D A G U R I N N 1 7 . S E P T E M B E R K L . 2 0 . 0 0
www.samfylking.is
Í kvöld kl. 20 er boðað til opins stjórnmálafundar
með þingflokknum á Hótel KEA.
Tökum þátt í líflegum umræðum
um stjórnmálin og þingið framundan.
Frummælendur:
Össur Skarphéðinsson
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Kristján L. Möller
Fundarstjóri: Bryndís Hlöðversdóttir
Lárétt: 1 óró, 5 snæða, 6 íþr.félag, 7
tónn, 8 hrós, 9 frestur, 10 hæð, 12 þvott-
ur, 14 tæki, 16 tveir eins, 17 lengra frá,
19 álegg.
Lóðrétt: 1 sjóskip, 2 munda, 3 skóli, 4
sær, 6 hreysi, 8 nennir ekki, 11 aska, 13
gefa frá sér hljóð, 15 ábreiða, 18 fer á
sjó.
Lausn:
Lárétt: 1voma,5éta,6ka,7la,8lof, 9
töf, 10ás,12tau,14tól,16rr, 17utar,
19kæfa
Lóðrétt: 1vélbátur, 2ota,3ma,4haf, 6
kofar, 8löt,11sót,13urra,15lak,18ræ.
1
5 6
7 8
14 15
17 18
16
19
2 3
1311
9
1210
4
ÓLAFUR FLOSASON
Býður 15 tíma í hljóðveri fyrir frambærilegasta dægurlagið í Reykholtsdal.
Lítill
BMW-
jeppi
BÍLAR Bílasala í landinu hefur
tekið kipp eftir að hafa verið í lá-
deyðu um langt skeið:
„Við kætumst yfir þessu enda
tími til kominn,“ segir Erna
Gísladóttir, forstjóri hjá B&L.
„Fimman frá BMW hefur verið
að seljast vel hjá okkur,“ segir
Erna og á þar við sérstaka gerð
af þýska eðalvagninum sem
kostar 4-6 milljónir króna eftir
búnaði sem fylgir. „Þá bíðum við
spennt eftir heimskynningu á
litlum jeppa frá BMW sem heitir
X3. Hann verður kynntur eftir
áramót og það er bíll sem ætti að
ganga vel hér.“
Sem kunnugt er hefur James
Bond skipt úr BMW yfir í Jagú-
ar og er það mikið kappsmál fyr-
ir BMW-verksmiðjurnar að ná
samningum aftur við kappann.
Enn hefur það ekki tekist. ■
X5
Fimman selst vel en Þristurinn er
væntanlegur.
Þú ert með stóra holu í
aftasta jaxlinum!
Og þá meina ég STÓRA holu!
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að ný barna-
bók Madonnu heitir ekki
Björt mey og hrein.
Mánaðargamall
á landsþingi
Yngsti fulltrúinn á Lands-þingi Sambands ungra sjálf-
stæðismanna, sem haldið var í
Borgarnesi um síðustu helgi,
var aðeins mánaðargamall. Hér
er um nýfæddan dreng að ræða
sem sat þingið ásamt foreldrum
sínum, þeim Önnu Sigríði Ás-
geirsdóttur og Albert Torfa
Ólafssyni. Mun aldrei fyrr jafn
ungur sjálfstæðismaður hafa
setið landsþing ungliða flokks-
ins:
„Ég vildi ekki missa af
þessu,“ segir móðir drengsins.
„Svo get ég ekki neitað því að
mig langaði í mynd af barninu
með Davíð Oddsyni.“
Og það tókst. Davíð stillti sér
upp með móður og barni og
flassljósin flóðu.
Þó drengurinn sé aðeins eins
mánaðar gamall var hann til
friðs á landsþingi Sambands
ungra sjálfstæðismanna: „Hann
hefur reyndar aldrei verið stillt-
ari og virtist bara líða vel,“
segir móðirin, sem eins og gefur
að skilja er eldheit sjálfstæðis-
manneskja líkt og faðirinn. Og
eitt er víst: Þau ætla að ala upp
sjálfstæðismann.
„Við erum ekki búin að
ákveða nafn á barnið ennþá,“
segir Anna Sigrún aðspurð en
Davíð Albertsson hljómar vissu-
lega ekki illa á ungan sjálfstæð-
ismann. ■
LITLI LANDSFUNDARFULLTRÚINN
Var til friðs á fundinum og naut sín vel við hlið Davíðs Oddssonar ásamt móður sinni.
Sjálfstæðismenn
LANDSFUNDUR
■ Yngsti fulltrúinn á Landsþingi ungra
sjálfstæðismanna sem haldið var um síð-
ustu helgi var aðeins mánaðar gamall.
Hann var myndaður með formanninum.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Armani.
Guðmundur Halldórsson.
Haukum og ÍBV.