Fréttablaðið - 20.09.2003, Síða 2

Fréttablaðið - 20.09.2003, Síða 2
2 20. september 2003 LAUGARDAGUR „Nei, ég held mig við kettina.“ Valur Richter, meindýraeyðir á Ísafirði, hefur staðið í ströngu í baráttunn við villiketti vestra. Spurningdagsins Valur, ertu að fara í hundana? ■ Lögreglufréttir Sautján létust af völd- um fellibylsins Isabel Fellibylurinn Isabel olli tugmilljarða tjóni þegar hann gekk yfir austurströnd Bandaríkjanna. Raf- magn fór af milljónum heimila og samgöngur lömuðust þegar ár og lækir flæddu yfir bakka sína. VIRGINÍA, AP Þök fuku af húsum, tré rifnuðu upp með rótum og raf- magnslaust varð á milljónum heimila þegar fellibylurinn Isabel fór yfir austurströnd Bandaríkj- anna. Að minnsta kosti sautján dauðsföll eru rakin til veðurofs- ans. Tjón af völdum fellibylsins var síðdegis í gær metið á jafngil- di um það bil 40 milljarða ís- lenskra króna. Vindhraði fellibylsins mældist um 40 metrar á sekúndu þegar hann kom á land í Norður-Kar- ólínu. George W. Bush, Banda- ríkjaforseti lét skilgreina hluta af Norður-Karólínu og Virginíu sem hamfarasvæði en auk þess var lýst yfir neyðarástandi í Vestur- Virginíu, Pennsylvaníu, Mary- land, New Jersey og Delaware. Innanlands- og millilandaflugi um flugvelli á svæðinu var aflýst vegna veðurofsans. Fyrirtækjum, skólum og opinberum stofnunum var víðast hvar lokað og hundruð- um þúsunda manna ráðlagt að yf- irgefa heimili sín. Tugir þúsunda leituðu skjóls í sérstökum neyðar- skýlum sem komið var upp vegna fellibylsins. Mikill viðbúnaður var í höfuð- borginni Washington. Stjórnar- skrifstofur voru lokaðar, almenn- ingssamgöngur lágu niðri og varla sást sála á ferli í borginni. Öllum flugvöllum í nágrenninu var lokað. Forsetinn hafði yfirgef- ið borgina þegar um miðja vikuna og leitað skjóls í Camp David. Mikil úrkoma hefur fylgt felli- bylnum og valdið flóðum í ám og lækjum. Vatn sem flæðir um göt- ur í borgum og bæjum hefur hindrað samgöngur og orsakað umferðaróhöpp. Óttast er að vatnsflaumurinn eigi eftir að valda verulegu tjóni þegar fram dregur. Nokkuð dró úr vindhraða felli- bylsins eftir að hann kom inn yfir land og var hann því skilgreindur sem hitabeltisstormur þegar í gær. Veðurfræðingar telja að hann muni fjara út yfir Kanada í dag. Isabel náði til allrar ham- ingju ekki sama styrkleika og fellibylurinn Floyd sem gekk yfir Norður-Karólínu árið 1999. Floyd kostaði 56 manns lífið og olli gífurlegum flóðum í ríkinu. ■ SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Reykja- nesbæjar ætlar að fella niður sér- stakt 6.000 króna gjald á eigendur fasteigna vegna fráveitufram- kvæmda. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá telur Úrskurðarnefnd um hollustuhætti og mengunar- varnir að fráveitugjaldið sé ólög- legt. Frá árinu 1997 hefur þetta gjald verið innheimt samfara hefðbundnu holræsagjaldi sem þekkist einnig í öðrum sveitafé- lögum. Holræsagjaldið er ákveðið hlutfall af fasteignamati en ekki föst krónutala eins og fráveitu- gjaldið í Reykjanesbæ. Meirihluti bæjarráðs segir að Reykjanesbær hafi til þessa talið sér heimilt að innheimta fráveitu- gjaldið vegna staðfestingar Um- hverfisráðuneytis á gjaldtökunni 10. mars 1997 og vegna staðfest- ingar Úrskurðarnefndar um holl- ustuhætti og mengunarvarnir frá 30. mars 2001. Umboðsmaður Alþingis tók hins vegar aðra afstöðu í málinu og taldi úrskurðarnefndin í kjöl- farið að gjaldið væri ólöglegt. „Reykjanesbær mun nú kanna réttarstöðu sína gagnvart inn- heimtu gjaldsins frá því það var sett á og staðfest af Umhverfis- ráðuneytinu og fyrri Úrskurðar- nefnd,“ segir meirihlutinn í bæj- arráði Reykjanesbæjar. Lögreglan á Selfossi: Ölvuð með börn í bíl ÖLVUNARAKSTUR Fjögurra barna móðir var tekin ölvuð undir stýri, með öll börnin í bílnum, í Hveragerði rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt föstudags. Að sögn Gríms Hergeirsson- ar hjá lögreglunni á Selfossi hafði lögreglan fylgt konunni eftir smá spöl áður en hún var stöðvuð. Konan var látin blása og reyndist hún vera töluvert ölvuð. Hún var færð í blóðsýna- töku og var yfirheyrð á lög- reglustöðinni. Börnunum var ekið heim þar sem faðir þeirra tók á móti þeim. ■ Salan á Flugleiðum: Burðarás fékk hærra boð VIÐSKIPTI Jón Ásgeir Jóhannesson bauð í bréf Eimskipafélagsins í Flugleiðum. Eimskipafélagið vildi ekki selja. „Ég bauð Burðarási að kaupa bréfin fyrir tveimur vikum á mun hærra gengi, en Straumur keypti á,“ segir Jón Ásgeir. Hann vill ekki gefa upp gengið en segir áhuga enn fyrir hendi. Jón Ásgeir og tengdir aðilar ráða um 20% í Flugleiðum. Samkvæmt heimildum var Landsbankanum og Björgólfi ná- kvæmlega sama um hvert Flugleið- ir færu. Straumur veit af áhuga Jóns Ásgeirs. Hjá Straumi er talið rétt að bíða með allar ákvarðanir um fyrirtækið í bili. ■ Uppstokkun viðskiptalífsins: Nesskip tafði samninga VIÐSKIPTI Óvænt tillaga Benedikts Jóhannessonar, stjórnarfor- manns Eimskipafélagsins um kaup Eimskips á Nesskipum tafði endanlegt samkomulag Ís- landsbanka, Landsbanka, Eim- skipafélagsins og Sjóvár Al- mennra aðfaranótt föstudagsins. Tillögunni var fálega tekið í her- búðum bankanna og var hafnað. Tillagan að skiptingu eigna Straums og Eimskipafélagsins kom fram þremur dögum áður en gengið var frá samningum á milli bankanna. Samkvæmt heimildum var tillagan upphaf- lega sprottin úr Fjárfestingarfé- laginu Straumi. Bankarnir tóku svo við úrvinnslunni og náðu að lokum samkomulagi um tillög- una. Það sem blasti við mönnum var að pattstaða ríkti í Straumi og Eimskipafélaginu. Staða sem var óskemmtileg fyrir báða aðila sem hvorir um sig vildu vinna áfram með eignir félaganna. ■ EIMSKIP Hugmyndir um kaup á Nesskipum töfðu endanlega samninga um uppstokkun viðskiptalífsins. SIGLT UM GÖTUR ALEXANDRÍU Áin Potomac flæddi yfir bakka sína í Alexandríu í Virginíu með þeim afleiðingum að götur bæjarins fóru undir vatn. ÓSKEMMTILEG AÐKOMA Fellibylurinn olli skemmdum á fjölda bygg- inga í strandbæjum Norður-Karólínu og Virginíu en íbúar höfðu flestir yfirgefið heimili sín áður en óveðrið skall á. Ólöglega fráveitugjaldið í Reykjanesbæ fellt niður: Bæjarráð kannar réttarstöðu sína REYKJANESBÆR Bæjarráð Reykjanesbæjar fellir niður frá- veitugjald sem úrskurðað hefur verið ólög- legt. Gjaldið hefur verið innheimt í sex ár en ekkert er enn minnst á endurgreiðslu. VÖRUBÍLL VALT Vörubíll valt þeg- ar hann mætti öðrum stórum bíl á malarvegi við Teigabjarg á Fljótsdalsheiði í gærdag. Kantur vegarins gaf sig með þeim afleið- ingum að vörubíllinn valt. Bíl- stjóranum til happs var pallur bílsins hærri en bílhúsið þannig að maðurinn slapp með marn- inga. Hann var þó fluttur undir læknishendur til öryggis. Bíllinn er töluvert skemmdur. FÉKK SÖG Í ANDLITIÐ Maður sag- aði í andlitið á sér með steypusög þegar hann var að saga rusla- tunnuskýli í Breiðholti í gærdag. Sögin fór í járnbita og slóst til og lenti í andlitið á manninum. Neðri vör hans fór í sundur og skarst hann niður eftir hálsinum. TILKYNNT UM INNBROT Maður tilkynnti um innbrot í íbúð í vest- urbæ Reykjavíkur um miðjan dag í gær. Athugun leiddi í ljós að ekki hafði verið brotist inn í íbúð heldur mátti rekja tilkynninguna til þess að tilkynnandinn, vistmaður á Grund, þjáist af Alzheimer-sjúk- dómi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.