Fréttablaðið - 20.09.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.09.2003, Blaðsíða 4
4 20. september 2003 LAUGARDAGUR Eru að verða grundvallarbreyting- ar í íslensku viðskiptalífi? Spurning dagsins í dag: Á að aðskilja ríki og kirkju? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 23,1% 76,9% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is MINNINGARATHÖFN „Þetta var mjög falleg athöfn – með sorglegri at- höfnum sem ég hef farið í,“ segir Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra, sem var viðstödd minning- arathöfn um Önnu Lindh, fyrr- verandi utanríkisráðherra Svía, í Stokkhólmi í gær. „Það voru haldnar ræður og flutt ljóð. Það var mjög mikil sorg við athöfnina og fólk átti erfitt með sig. Stina Ekblad, ein þekktasta leikkona Svía, brast í grát þegar hún gekk af sviðinu eftir að hafa flutt ljóð. Þetta snerti alla og það voru allir klökkir.“ Siv segir að ræðurnar sem fluttar voru hafi verið mjög hjartnæmar. „Þær fjölluðu um hvernig manneskja Anna Lindh var. Hún tvinnaði saman fjölskyldulíf og stjórnmálalíf, sem er mjög krefj- andi og ögrandi. Ég held að allir sem voru þarna hafi samsamað sig með henni. Ég kannaðist ágætlega við hana og hef fylgst sérstaklega með henni því mitt lífshlaup hefur ekki verið ósvip- að hennar. Hún byrjaði ung í stjórnmálum og var formaður ungliðasamtakanna í sínum flokki fyrst kvenna. Hún var bæjarfulltrúi, umhverfisráð- herra og átti tvo syni.“ ■ Lindh minnst við ráðhúsið í Stokkhólmi Minningarathöfn um Önnu Lindh fór fram í ráðhúsinu í Stokkhólmi í gær. Þar komu um 1.300 manns saman. Lindh var minnst sem boðbera lýðræðis og jafnréttis. STOKKHÓLMUR, AP Um 1.300 manns sóttu minningarathöfn um Önnu Lindh, fyrrverandi ut- anríkisráðherra Svíþjóðar, sem myrt var miðvikudaginn 10. september. Siv Friðleifs- dóttir umhverfis- ráðherra og Svav- ar Gestsson sendi- herra sóttu at- höfnina fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Össur Skarphéð- insson og Guðmundur Árni Magnússon sóttu hana fyrir hönd Samfylkingarinnar, syst- urflokks sænska Jafnaðar- mannaflokksins, sem Lindh var meðlimur í. Gríðarleg öryggisgæsla var við ráðhúsið í Stokkhólmi þegar athöfnin, sem tók einn og hálfan tíma, fór fram. Auk innlendra stjórnmálamanna og Karls Gústavs Svíakonungs mættu fjölmargir erlendir ráðamenn til að heiðra minningu Lindh, sem minnst var sem boðbera lýðræðis og jafnréttis. Á meðal þeirra sem sóttu at- höfnina voru Romano Prodi og Chris Patten úr framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins, Hans Blix, fyrrverandi yfir- maður vopnaeftirlits Samein- uðu þjóðanna, Jack Straw, utan- ríkisráðherra Bretlands, og George Papandreou, utanríkis- ráðherra Grikklands, sem bjó um tíma og lærði í Svíþjóð. „Við stjórnmálamenn tjáum okkur ekki alltaf með tilfinn- ingu, en þú varst undantekning- in,“ sagði Papandreou á sænsku. „Þú þorðir að vera einlæg.“ Göran Persson, forsætisráð- herra Svíþjóðar, var hrærður þegar hann flutti sína ræðu. „Við munum halda minningu Önnu á lofti og sækja í hana styrk þegar við þurfum á hon- um að halda,“ sagði hann. Patten sagði Önnu hafa látið verulega til sín taka í alþjóða- málum og hún hafi verið sér- stök að því leyti að hún hafi ekki átt í vandræðum með að nota orðin „siðferði“ og „utan- ríkisstefna“ í sömu setningunni. Önnur minningarathöfn var haldin við verslunarmiðstöðina þar sem Anna Lindh var myrt. Þar hefur fólk skilið eftir blóm og minningarkort sem flutt verða í ráðhúsið í dag. ■ TILKYNNT UM ÁRÁS Bandaríski ofurstinn James Hickey greinir fjölmiðlum frá árásinni í útjaðri Tíkrít. Mannskæð fyrirsát: Þrír féllu og tveir særðust ÍRAK, AP Þrír bandarískir hermenn féllu og tveir særðust þegar írask- ir uppreisnarmenn veittu þeim fyrirsát í þorpi skammt suður af Tíkrít, heimaborg Saddams Husseins. Hermennirnir voru að rann- saka svæði sem talið er að upp- reisnarmenn hafi notað til að varpa sprengjum á bandaríska herinn. Að sögn vitna skutu árás- armennirnir að hermönnunum, sem svöruðu í sömu mynt til að verja sig þar til liðsauki bærist. Engar upplýsingar hafa borist um mannfall í röðum árásarliðsins. ■ GRIPAFLUTNINGABÍLLINN Þýski svínaflutningabíllinn í Sundahöfn verður væntanlega fluttur út á næstunni. Gripaflutningabíll: Ekki svar frá ráðuneytinu SJÚKDÓMAVARNIR Gripaflutninga- bíll sem fluttur var til landsins í ágúst án tilskilinna leyfa stendur enn í Sundahöfn. Landbúnaðarráðuneytið hefur sagt að bílinn fái ekki innflutn- ingsleyfi þar sem hann var ekki sótthreinsaður í Þýskalandi sam- kvæmt kröfum yfirdýralæknis hér. Rafn Guðjónsson, eigandi bíla- sölunnar Hrauns, sem flutti bílinn inn fyrir kaupanda í Borgarfirði, segir hins vegar að formlegt af- svar hafi ekki borist frá landbún- aðarráðuneytinu. „Við metum stöðuna í næstu viku. Það ætti ekki að vera vandamál að ná bíln- um út úr landinu aftur,“ segir Rafn. ■ SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR „Það var mjög mikil sorg við athöfnina og fólk átti erfitt með sig.“ Sprenging í stálverk- smiðju í Finnlandi: Þrír verka- menn fórust HELSINKI Þrír menn fórust þegar sprenging varð í stálverksmiðju AvestaPolarits í bænum Tornio í Finnlandi. Mikill eldur braust út í kjölfar sprengingarinnar. Það tók slökkviliðsmenn aðeins um hálfa klukkustund að ráða nið- urlögum eldsins en ekki liggur fyr- ir hversu mikið tjón varð. Óhappið er rakið til ónýtrar súrefnisleiðslu en hrundið hefur verið af stað rann- sókn sem ætlað er að varpa frekara ljósi á orsakir sprengingarinnar. Um það bil 2.000 manns starfa í stálverksmiðjunni. ■ Endurskoðun EES-samnings: Svo gott sem útilokuð EVRÓPUMÁL „Eins og komið hefur í ljós frá fulltrúum Evrópusam- bandsins virðist fullljóst að Evr- ópusambandið hefur engan áhuga á því að uppfæra eða aðlaga EES- samninginn efnislega. Það verða engar efnislegar uppfærslur á samningnum, sem þýðir að það er svo gott sem útilokað fyrir Íslendinga að fá verulega aukna aðkomu að ákvarðana- töku innan E v r ó p u s a m - bandsins í gegnum EES- samninginn,“ segir Eiríkur B e r g m a n n E i n a r s s o n , s t j ó r n m á l a - fræðingur við Háskóla Ís- lands, um þau orð Árna Magnússonar félagsmálaráðherra um að ná þurfi fram endurskoðun EES-samningsins. Í ræðu á fimmtudag sagðist Árni vilja ná fram aðkomu íslenskra sveitarfélaga að ákvarðanatöku Evrópusambandsins. „EES–samn- ingurinn gerir ekki ráð fyrir slíkri aðkomu. Ef menn eru farnir að tala um slíkt eru þeir farnir að tala um allt aðra nálgun en EES-samningur- inn gerir ráð fyrir. Af rannsóknum mínum vegna ritunar bókar minnar Evrópusamruninn og Ísland að dæma hefur Evrópusambandið engan áhuga á því,“ segir Eiríkur. ■ EIRÍKUR BERG- MANN EINARSSON „Ef markmiðið er að- koma að ákvarðana- töku verður það ekki gert öðru vísi en með ESB-aðild. Hins vegar þarf það ekki að vera markmiðið.“ NÚMER 27 Bandaríska hernámsliðið í Írak hefur heitið því að sýna Hashim Ahmad vinsemd og virðingu. Varnarmálaráðherra Íraks: Gaf sig fram við her- námsliðið ÍRAK, AP Hashim Ahmad, sem gegndi embætti varnarmálaráð- herra í stjórnartíð Saddams Husseins, gaf sig fram við banda- ríska hernámsliðið í borginni Mósúl í norðurhluta Íraks. Ahmad var númer 27 á lista Bandaríkjanna yfir eftirlýsta ráðamenn í Írak. Samningaviðræður við Ahmad höfðu staðið yfir í nokkrar vikur en að sögn milligöngumanna ákvað hann að gefa sig fram þeg- ar bandaríski herinn hét því að fjarlægja nafn hans af fyrrnefnd- um lista. Hashim Ahmad verður fluttur til Bagdad til yfirheyrslu en vonast er til þess að hann geti veitt Bandaríkjamönnum mikil- vægar upplýsingar um vopnaeign Íraka. ■ ■ Þú þorðir að vera einlæg.“ MINNINGARATHÖFN „Hér má sjá sorg í hverju andliti. Svíar eru mjög slegnir yfir þessu hroða- lega morði,“ segir Össur Skarp- héðinsson, formaður Samfylking- arinnar, sem var við minningar- athöfn um Önnu Lindh, utanríkis- ráðherra Svía, í Stokkhólmi í gær. Össur og Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður mættu til minningarathafnarinnar ásamt leiðtogum annarra jafnað- armannaflokka á Norðurlöndum. Hann segir að athöfnin hafi verið einstaklega falleg. „Þetta var í senn látlaus, hóf- stillt og tilfinningaþrungin athöfn. Minningarræða Perssons forsætis- ráðherra var í senn falleg og áhrifamikil,“ segir Össur. Hann sagði að ræða Pap- andreou, utanríkisráðherra Grikklands, hefði vakið mikla at- hygli. Gríski ráðherrann flutti sína ræðu á lýtalausri sænsku. „Hann hafði flúið ásamt for- eldrum sínum undan ofríki grísku herforingjastjórnarinnar og ólst upp í Svíþjóð. Líkt og flestir þeirra sem töluðu beindi hann máli sínu til fjölskyldu Önnu Lindh sem þarna var viðstödd,“ segir Össur. Hann segir að Norðurlandabú- ar sem töluðu við athöfnina hafi margir lagt á það áherslu að þessi hryllilegi atburður mætti ekki verða til þess að skemma það ein- staka samband sem væri á milli stjórnmálamanna og kjósenda. Þá hefði mönnum orðið tíðrætt um að varðveita þann ferska andblæ sem einkenndi stjórnmálastörf Önnu Lindh. ■ Össur Skarphéðinsson um minningarathöfnina: Sorg í hverju andliti ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Látlaus og tilfinningaþrungin athöfn. GÖRAN PERSSON, FORSÆTISRÁÐHERRA SVÍÞJÓÐAR Persson var hrærður þegar hann minntist Önnu Lindh í ráðhúsinu í Stokkhólmi. MARGIR GRÉTU Kona grætur við minningarathöfnina um Önnu Lindh. Siv Friðleifsdóttir um minningarathöfnina í Svíþjóð: Það voru allir klökkir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.