Fréttablaðið - 20.09.2003, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 20.09.2003, Blaðsíða 37
Glersalurinn er n‡r og glæsilegur veislusalur a› Salavegi 2, Kópavogi. Öll a›sta›a er eins og best gerist me› gó›um hljómbur›i og full- komnu hljó›kerfi – og úts‡ni› ver›ur hver einasti ma›ur a› upplifa… Salavegi 2 201 Kópavogi Sími 586 9006 glersalurinn@simnet.is Vi› bjó›um hópum a› halda jólahla›bor› hjá okkur á tímabilinu frá 15. nóvember til 20. desember. Matrei›slumeistari er Sturla Birgis. Hringdu og fá›u nánari uppl‡singar í símum 586 9006 og 564 2112. N O N N I O G M A N N I | Y D D A / s ia .i s N M 1 0 3 4 8 LAUGARDAGUR 20. september 2003 37 Tönn í kjúklingasúpu Móðir frá Utah í Bandaríkjun-um hefur kært Campbell- súpufyrirtækið, sem hefur verið einn stærsti súpuframleiðandi landsins í áratugi. Konan hafði keypt sér kjúklinganúðlusúpu sem hún svo bar á borð fyrir sig og 13 ára son sinn. Eftir að þau höfðu klárað af diskum sínum tók hún eftir því að pilturinn hélt á hvítum hörðum hlut í lófa sér. Þetta var tönn sem hann hafði fundið í súpunni. „Það er alltaf frekar ógeðslegt að finna eitthvað í matnum sín- um, en að það hafi verið tönn úr manneskju sem var áður uppi í einhverjum öðrum er algjör við- bjóður,“ sagði konan í New York Times. Lögfræðingur hennar lét meinafræðing rannsaka tönnina og staðfesti hann að hún kæmi úr manni. Nánar tiltekið 13 ára ára manneskju. Sérfræðingurinn benti svo á að búið væri að skera í tönnina, sem reyndist vera hálf, með einhvers konar tæki eða vél. Talsmenn Campbell Soup Co. hafa ekkert viljað tjá sig um mál- ið. Þeir hafa ekki fengið að gera sínar eigin rannsóknir á tönninni. Vinsamlegast sýnið aðgát áður en þið kyngið. ■ Skrýtnafréttin KJÚKLINGASÚPA „Þjónn, það er tönn í súpunni minni!“ FÓLK Hann er kannski þekktur fyr- ir að vera nokkuð hispurslaus í fari og fyrir að halda sér í góðu jafn- vægi. Það kom því nokkuð á óvart að Bítillinn Paul McCartney skyldi missa stjórn á skapi sínu við ljós- myndara á fimmtudagskvöldið. McCartney var staddur á Tower Bridge í London til þess að sjá bandaríska sjónhverfingar- manninn David Blaine í plastbúri sínu þegar ljósmyndari kom upp að honum og bjó sig undir að smella af honum mynd. Einn vinur McCartney ýtti þá við ljósmyndaranum og sagði að það væri enginn séns á mynda- töku. Því næst á McCartney sjálf- ur að hafa ýtt við honum og sagt að þetta væri einkaheimsókn og að hann vildi ekki láta mynda sig. Ljósmyndarinn sagði lögreglu að hann hefði orðið fyrir höggi. „Það vissi enginn að hann (McCartney) væri á staðnum því það var svo dimmt,“ sagði Geoff Baker, sem hefur unnið sem fjöl- miðlafulltrúi McCartneys í mörg ár. „Af einhverjum ástæðum, sem líklegast aðeins geðlæknirinn minn getur útskýrt, ákvað ég að hafa samband við ljósmyndara The Evening Standard. En Paul vildi ekki láta mynda sig og tveir vinir hans reyndu að vernda hann fyrir ljósmyndaranum. Mönnum var ýtt og það urðu læti, en það var enginn kýldur.“ Baker segir að McCartney hafi orðið sér ævareiður og rekið sig á staðnum. Plastbúr Blaine, sem McCart- ney var að skoða, hangir úr krana við hlið Tower Bridge og ætlar hann að búa þar í 44 daga samfellt án matar. Það eina sem hann legg- ur sér til munns er ferskvatn. Margir hafa lagt leið sína að brúnni til þess að fylgjast með brellu sjónhverfingamannsins. ■ PAUL MCCARTNEY Er þekktur fyrir að vera í góðu jafnvægi en missti stjórn á skapi sínu í miðborg Lundúna á fimmtudagskvöld. TÍSKUVIKA Í NEW YORK Þessi fallegi kjóll er hönnun Cynthiu Rowley og var sýndur sem hluti af vor/sumarlínu hennar fyrir næsta ár. Sýningin var sett upp eins og hún ætti sér stað í Nammilandi. Platan „Háaloftið“ með hljóm-sveitinni Flugunni hljómar eins og hún hafi verið samin fyr- ir leikrit eða söngleik. Það er eitthvað við lögin og textana sem fær mann til að hugsa um leikhús og þá stemningu sem þar ræður ríkjum. Flest lögin eru tiltölulega róleg og ljúfsár þar sem aðalumfjöllun- arefnið er ástin. Kassagítarinn er notaður til að ná upp réttu tónun- um og tekst það bara mjög vel. Inn á milli læðast þó inn stuðlög sem hefðu sum mátt missa sín, sér í lagi hið leiðinlega „Vellíðan“. Það lag er fjarri því að vera í takt við hin á plötunni og skemmir fyr- ir heildarútkomunni. Annars er þetta bara ágæt plata með mörgum hugljúfum lögum. Best voru „Drama“ og „Flugan“. Fín popplög og hrífandi. Flutningur er allur í lagi þó svo að söngvarinn virðist stund- um vera á mörkunum að ná réttu tónunum, en sérstaklega á það við í lögunum „Konukvalarinn“ og „Ávallt“. Það kemur þó ekki tilfinnanlega að sök og þótt lögin virðist oft vera tekin úr mismun- andi áttum og plötuna skorti heildarstefnu breytir það heldur ekki miklu því flest eru þau í skemmtilegri kantinum. Freyr Bjarnason Umfjölluntónlist FLUGAN: Háaloftið Samin fyrir leikhús Paul McCartney: Lenti í átökum við ljósmyndara

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.