Fréttablaðið - 20.09.2003, Blaðsíða 8
8 20. september 2003 LAUGARDAGUR
Parlez-vous Francaise?
„Ég kann að blóta og panta
leigubíl. Ég þykist oft ekki skilja
þegar það hentar mér, ég skil
miklu meira en ég get talað.“
Barði Jóhannsson, í DV 19. september.
Sá hlær best...
Eimskip lét á sínum tíma ríkis-
valdið koma Hafskipum fyrir
kattarnef
með ofbeldi.
Kaldhæðnis-
leg niður-
staða undan-
genginna
hamfara á ís-
lenzkum fjár-
málamarkaði
er, að forstjóri Hafskipa hefur
nú eignazt Eimskip. Sá hlær
bezt, sem síðast hlær.
Jónas Kristjánsson, á jonas.is
19. september
Orðrétt
Uppsagnir þungaðra kvenna virðast með meira móti nú um stundir:
Ófrískum konum sagt upp
UPPSAGNIR „Það er misjafnt hversu
mörg mál koma til okkar kasta í
hverjum mánuði en þetta er með
því mesta,“ sagði Anna J. Sævars-
dóttir, sérfræðingur í kjaramála-
deild Verslunarfélags Reykjavík-
ur. Sex ný mál hafa borist félag-
inu að undanförnu vegna upp-
sagna á þunguðum konum, en
slíkt er ólöglegt samkvæmt samn-
ingum.
„Þær eru æði skrautlegar
ástæðurnar sem við heyrum fyrir
þessum uppsögnum,“ segir Anna
og bætir við: „Blessunarlega leys-
ist samt meirihluti allra mála og
atvinnurekendur sjá oftast að sér.
Af þessum sex málum sem okkur
bárust í byrjun mánaðarins hefur
tekist að leysa fjögur þeirra en
óvissa er enn um niðurstöðu í
tveimur málum.“
Samkvæmt lögum um fæðing-
ar- og foreldraorlof er óheimilt
að segja þungaðri konu upp stör-
fum, einnig konu sem nýlega hef-
ur alið barn. Í þeim sex málum
sem komu til kasta VR í septem-
bermánuði hafði vinnuveitendum
í öll skipti verið tilkynnt með lög-
legum fyrirvara um þungun
starfsmanns. ■
RÁN Lögreglan rannsakar vopn-
uð rán sem framin hafa verið
síðustu vikur. Þegar Fréttablað-
ið fór í prentun í gær hafði sá
sem framdi vopnað rán í Ís-
landsbanka við Lóuhóla ekki
fundist. Sama er að segja um
ræningja úr tveimur ránum í
Biðskýlinu í Kópavogi. Banka-
gjaldkerar hafa áhyggjur af
aukningu rána og ræða meðal
annars hvort gera verði breyt-
ingar á gjaldkerastúkum.
„Ég vil ráð-
leggja fólki,
sem er ógnað af
ræningja, að
bjarga sínu
skinni og hlýða
öllum fyrir-
mælum. Fólk á
ekki að sýna
neinn hetju-
skap,“ segir
Þórir Stein-
grímsson, rann-
sóknarlögreglumaður hjá lög-
reglunni í Kópavogi, um hvernig
best er að bregðast við ef manni
er ógnað er af ræningja.
Þurfa ekki andlitsmyndir
Þórir hvetur vinnuveitendur
til að útvega strax áfallahjálp
fyrir starfsfólk og hafa mynd-
bandsupptökutæki sem hægt er
að vinna eftir. „Ég bið ekki um
meira en að myndirnar séu
skýrar. Við þurfum ekki endi-
lega að ná andlitinu á mynd.
Hægt er að vinna eftir ýmsu
öðru svo framarlega sem mynd-
irnar eru skýrar ekki bara af
einstaklingnum heldur líka um-
hverfinu.“
Þórir segist telja að fleiri rán
megi rekja til þess hversu harð-
ur fíkniefnaheimurinn er. „Fólki
þykir sjálfsagt að ræna banka
og bera fyrir sig fíkniefna-
neyslu og bágindum.“ Hann seg-
ir samfélagið samþykkja þær
afsakanir. „Persónulega og sem
lögreglumaður sem vinn við að
rannsaka svona mál þá kaupi ég
ekki slíka skýringu. Fólkið á
ekki svona bágt. Úrræðin sem
eru til eru ekki notuð. Það er
ekki einungis hjálp að fá hjá
hinu opinbera heldur oft einnig
hjá fjölskyldunni. Ég er ekki að
véfengja að fólk sé haldið fíkn
en það leitar sér ekki lækninga
eða hjálpar á þennan hátt.“
„Fyrsta vopnaða bankaránið
var framið í desember 1995 í
Búnaðarbankanum á Vesturgötu
og er enn óupplýst. Á fyrri hluta
þessa árs voru þrjú vopnuð rán
framin; í Hafnarfirði, Kópavogi
og Grindavík og eru þau öll upp-
lýst. Síðan var framið vopnað
bankarán hér í Reykjavík í
fyrradag,“ segir Hörður Jó-
hannesson, yfirlögregluþjónn
lögreglunnar í Reykjavík.
Minni peningar í umferð
Hörður segir enga eina skýr-
ingu vera á þessum ránum, sum-
ir stela, einhverjir falsa tékka
og aðrir ræna. Hann segir
minna af peningum í umferð en
áður var. Tékkar séu nánast
horfnir og peningum í umferð
hafi fækkað mjög mikið þar sem
margir nota greiðslukort.
Einnig hafi innbrotavarnir í fyr-
irtækjum og á heimilum aukist.
„Það eru fáir staðir þar sem
peningar eru á lausu. Reiðufé er
varla að finna nema í búðarköss-
um og bönkum. Þó er það ekki
eina skýringin á auknum ránum
en gæti verið hluti af henni.“
hrs@frettabladid.is
Umbreyting viðskiptalífs:
25 milljarða
viðskipti
VIÐSKIPTI Markaðsverð viðskipta
með helstu eignir Straums og Eim-
skipafélagsins námu um 25 millj-
örðum króna.
Stærsti nettó seljandi viðskipt-
anna er Sjóvá Almennar sem losaði
eignir fyrir rúma fjóra milljarða
með töluverðum gengishagnaði. Ís-
landsbanki keypti fyrir um níu
milljarða. Sameining félaganna
breytir þeirri nettótölu. Auk þess
seldi bankinn Lífeyrissjóðum tölu-
vert úr Straumi til lífeyrissjóða.
Straumur og Landsbankinn eru
nettóseljendur eigna og innleysa
gengishagnað af fjárfestingum sín-
um. ■
UMKRINGDUR AÐDÁENDUM
Fjöldi manna var saman komin í höfuð-
borginni Pristina til þess að fagna Bill
Clinton.
Heimsókn til Kosovo:
Bill Clinton
ákaft fagnað
KOSOVO, AP Þúsundir Albana fögn-
uðu Bill Clinton, fyrrum forseta
Bandaríkjanna, þegar hann kom í
eins dags heimsókn til Kosovo.
Vopnaðir öryggisverðir og
friðargæsluliðar Nató fylgdu
Clinton á leið hans frá flugvellin-
um að háskólanum í Pristina þar
sem forsetinn fyrrverandi var
sæmdur heiðursgráðu. Clinton er
í miklum metum meðal Kosovo-
Albana sem þakka Bandaríkja-
mönnum það að bundinn var end-
ir á þjóðarmorð serbneska hers-
ins í Kosovo fyrir fjórum árum. ■
Fjármálaráðherra:
Farinn til
Dubai
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde, fjár-
málaráðherra, situr ársfund Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins og Al-
þjóðabankans í Dubai í Samein-
uðu arabísku furstadæmunum á
næstu dögum.
Geir mun flytja ræðu á árs-
fundinum fyrir hönd Norðurlanda
um málefni Alþjóðabankans.
Einnig situr fjármálaráðherra
fund í fjárhagsnefnd Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins fyrir hönd
Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
og mun flytja þar ræðu. Í nefnd-
inni sitja fjármálaráðherrar eða
seðlabankastjórar 24 landa undir
forystu fjármálaráðherra Bret-
lands. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá ráðuneytinu. ■
Vopnuð rán:
Gjaldkerar
hræddir
BANKARÁN Bankagjaldkerar ótt-
ast aukningu rána. Þeir hafa rætt
sín á milli um hvað beri að gera.
Viðmælandi Fréttablaðsins,
gjaldkeri með áralanga reynslu,
staðfestir þetta.
Hann segir áfallahjálp fyrir
starfmenn vera nauðsynlega eft-
ir að rán hafi verið framið og
ekki megi gera lítið úr henni.
Hann segir eitt að standa frammi
fyrir ræningja vopnuðum hnífi,
fólk óttist að ræningjar noti
byssur.
Hann telur nauðsynlegt að
bankarnir taki ógnun vegna
vopnaðra ræningja fastari tök-
um, til dæmis með endurhönnun
á gjaldkerastúkum þannig að
gjaldkerar og fjármunir séu bet-
ur varðir. Hann segir að taka
þurfi mjög alvarlega á glæpum
sem þessum og eftir því sem
refsingarnar við ránunum eru
vægari freistist fleiri til að frem-
ja þau. ■
ÞÓRIR STEINGRÍMSSON RANNSÓKNARLÖGREGLUMAÐUR Í KÓPAVOGI
Þórir telur aukningu rána vera til komna vegna harðari fíkniefnaheims.
RÁN Á ÁRINU
Banki Dagssetning vopn þýfi upplýst
Sparisjóður Hafnarfjarðar 1. apríl eggvopn 1.692.000 upplýst
Sparisjóður Kópavogs 16. maí eggvopn um milljón upplýst
Subway 3. júní eggvopn lítið fé upplýst
Landsbankinn í Grindavík 5. júní eggvopn 914.000 upplýst
Söluturninn Biðskýlið 18. júní eggvopn 35-40.000 óupplýst
Söluturninn Biðskýlið 24. ágúst eggvopn 50-60.000 óupplýst
Íslandsbanki Eiðistorgi 29. ágúst vopnlaus 100.000 upplýst
Íslandsbanki Lóuhólum 18. september eggvopn ekki vitað óupplýst
Fréttaskýring
HJÖRDÍS SIGURJÓNSDÓTTIR
■ skrifar um vopnuð rán.
„Ég er ekki
að vefengja
að fólkið sé
háð fíkn en
það leitar sér
ekki lækninga
eða hjálpar á
þennan hátt.
Átta rán framin á árinu
Þórir Steingrímsson rannsóknarlögreglumaður segist ekki taka undir að ræningjar geti afsakað
glæpina með fíkniefnaneyslu. Hann segir engar úrlausnir að finna í ránum.
BANKARÆNINGI
Þessi framdi tvö bankarán, annað í Hafnarfirði og hitt í Grindavík.
VERSLUNARMANNAFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Mikil fjölgun hefur orðið á ólögmætum
uppsögnum sem koma til kasta VR.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Héraðsdómur Vestfjarða:
Tvíburar
sakfelldir
DÓMSMÁL Tvíburabræður á þrítugs-
aldri voru dæmdir sekir, í Héraðs-
dómi Vestfjarða, fyrir brot gegn
valdstjórninni í október á síðasta
ári. Samkvæmt dómnum beit annar
bróðirinn í fingur eins lögreglu-
manns og sló annan með hnefum og
handjárnum, hinn bróðirinn var
dæmdur fyrir að skalla þriðja lög-
reglumanninn í andlitið. Lögreglan
hafði verið kölluð til að stöðva
slagsmál á milli bræðranna í ná-
grenni við skemmtistað í Bolungar-
vík.
Annar tvíburanna rauf skilorð og
hlaut fjögurra mánaða fangelsi.
Hinn fékk tveggja mánaða fangelsi
skilorðsbundið til þriggja ára. ■