Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.09.2003, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 20.09.2003, Qupperneq 18
Svokallaðir raunveruleikasjónvarpsþættir hafa notið mikilla vinsælda þrátt fyrir það að þeir séu varla raunverulegri en önnur framleidd afþreying. Þeir sem finna þáttunum allt til foráttu óttast að raunveruleikablekking þeirra sé líkleg til að grafa undan siðferðiskennd áhorfenda. Þetta kom skýrt fram í viðbrögðum við nýlegum hugmyndum á Skjá Tveimur um nýtt íslenskt raunveruleikasjónvarp. Sex stelpur á karlafar til Vegas Dagskrárstjóri sjónvarpsstöðv-arinnar SkjárTveir greindi á dögunum frá áformum stöðvar- innar um að framleiða raunveru- leikasjónvarpsþætti með sex ís- lenskum stúlkum sem var ætlað að finna sér maka í spilaborginni Las Vegas. Íslendingar eru þekkt- ir fyrir áhuga sinn á einkalífi ná- ungans en viðbrögðin við hug- myndinni urðu þó hörð, ekki síst á spjallrásum á Netinu þar sem því var almennt haldið fram að hug- myndin slægi það lágkúrulegasta frá Bandaríkjunum út, en þar hef- ur raunveruleikasjónvarp náð hvað hæstum hæðum. Sviðsettur raunveruleiki Það er ljóst að fyrirbærið „raunveruleikasjónvarp“ er um- deilt hér á landi eins og annars staðar. Margar spurningar vakna. Það er líklega ekki síst samhengið sem þættirnir eru settir í sem stuðar fólk, það er að segja að um raunveruleika sé að ræða og stúlkurnar séu því beinlínis gerð- ar út með það fyrir augum að selja þær. Raunveruleikaþættirn- ir eru hins vegar klipptir, rétt eins og aðrir þættir, tökur eru valdar eða þeim hent og alltaf hljóta hlut- ir að gerast utan sjónmáls mynda- vélarinnar. Um leið og búið er að stilla upp tökuvél setja allir sig í stellingar, raunveruleikinn hverf- ur og sviðsetningin tekur við. Fyr- irhugað ferðalag stúlknanna á því fátt skylt við raunverulegt ferða- lag og er leikur þó þær séu ekki leikarar. Kveikjan að þessari tálsýn um að hægt sé að fanga einhvern tær- an raunveruleika og matreiða ofan í áhorfendur hefur væntan- lega orðið á Netinu, þar sem hver sem er getur sjónvarpað því sem hann kærir sig um; hvílubrögðum, salernisferðum og 20 mínútum á þrekhjólinu. Með tilkomu Netsins má deila þessu öllu með heims- byggðinni. Hvað tekur við? Áhrif raunveruleikasjón- varpsþáttanna á ungt og óharðnað fólk þurfa í sjálfu sér ekki að vera neitt verri en annað afþreyingar- efni sem gerir markvisst út á óraunveruleika með tilheyrandi yfirgangi í ofbeldi og kynlífi. Blekkingin um að verið sé að fanga raunveruleikann getur hins vegar verið hættuleg þar sem það hlýtur að liggja í hlutarins eðli að þættirnir verða stöðugt að ganga lengra og nær viðfangsefninu ef áhorfandinn á að halda áhuganum. Stephen King skrifaði árið 1982 söguna „The Running Man“, en þar segir frá samnefndum sjónvarpsþætti sem gengur út á það að þátttakendur eiga að reyna að komast lífs af, hundeltir af þrautþjálfuðum morðingjum. Myndavélar eru úti um allar triss- ur og áhorfið eykst jafnt og þétt eftir því sem hringurinn þrengist utan um dauðadæmdan flótta- manninn. Þeir sem finna raun- veruleikasjónvarpinu flest til for- áttu eru þegar farnir að spá því að hugarheimur hrollvekjuhöfundar- ins verði að bláköldum alvöru raunveruleika þegar raunveru- leikasjónvarpið hefur þanið ramma laga og siðferðis til hins ýtrasta og allir hafa fengið sig fullsadda af leikurum og gervi- blóði. En aðrir eru þessu ósam- mála og hafa ekki jafn þungar áhyggjur af þróuninni. thorarinn@frettabladid.is 18 20. september 2003 LAUGARDAGUR Ætli það sé ekki spennandi aðsjá hinn almenna mann í óraunverulegum aðstæðum og fylgjast með manninum í næsta húsi verða kannski að stjörnu,“ segir Helgi Hermannsson, dag- skrárstjóri hjá SkjáEinum, þeg- ar hann er beðinn að skýra mikl- ar vinsældir raunveruleikasjón- varpsþátta á borð við Survivor, en þeir þættir njóta gríðarlegra vinsælda á SkjáEinum. Helgi segir það rétt að í sum- um tilfellum geti það orkað tví- mælis að kenna þætti af þessu tagi við raunveruleika þar sem stundum sé fólk vissulega sett í óraunverulegar aðstæður en bætir því við að hins vegar sé skyggnst inn í sálarlíf fólks í þessum sömu aðstæðum. Helgi telur skort á fjármagni fyrst og fremst hafa komið í veg fyrir innlenda framleiðslu á raunveruleikasjónvarpi þó framleiðslukostnaðurinn geti verið minni en þegar leikið efni er annars vegar. „Öll innlend framleiðsla er bara dýr, það er ekkert flóknara en það.“ Helgi greindi á dögunum frá áformum SkjásTveggja um gerð þáttanna Viva Las Vegas þar sem ætlunin er að senda íslenskar stúlkur til Las Vegas í makaleit. „Það má segja að þetta sé okkar útfærsla á raunveruleikasjónvarpi,“ segir Helgi, sem hefur bæði fengið já- kvæð og neikvæð viðbrögð við hugmyndinni. „Sumum finnst þetta full langt gengið en al- mennt hafa viðbrögðin verið já- kvæð. Þetta hefur vakið athygli og það er gott þar sem það hefur ekki mikið upp á sig að fram- leiða sjónvarpsefni sem enginn vill sjá. Við erum þarna að sýna það frumkvæði sem hefur ein- kennt SkjáEinn og gerum eitt- hvað sjálf í stað þess að kaupa konsept að utan eins og Stöð 2 hefur gert, þó það séu líka ágæt- is þættir.“ Helgi bætir því við að þeir sem hafi helst talað gegn Viva Las Vegas átti sig ef til vill ekki á því að þó hugmyndin sé í ætt við raunveruleikasjónvarp verði þetta ekki háalvarlegt þó öllu gamni fylgi vissulega nokkur al- vara. „SkjárTveir lætur umræðuna ekkert á sig fá og heldur sínu striki með verkefnið. Ég vona að þetta geti orðið að veruleika og við stefnum að því að þættirnir fari í loftið snemma á næsta ári.“ ■ Mín greining á þessu er mjögeinföld og er sú að þarna hafi menn dottið niður á, fyrir ein- hverja hendingu eða skarp- skyggni, alveg ótrúlega ódýra að- ferð til þess að halda uppi afþrey- ingarsjónvarpi,“ segir Þorbjörn Broddason, prófessor í hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla Íslands. „Þetta er bara ósköp venjulegur hasar og afþreying en í stað þess að kaupa dýra leikara til þess að fylla hlutverkin er smalað saman áhugafólki sem er ekki borgað neitt eða bara einhverjar mála- myndagreiðslur og síðan fær kannski einhver verðlaun í lokin sem eru bara brot af því sem al- vöru leikari fengi. En vegna þess að fólki er talin trú um að þarna sé eitthvað að gerast í raunveruleik- anum, að það sé verið að fylgjast með einhverju raunverulegu lífi, þá vekur þetta áhuga fólks. Þar að auki höfðar þetta til venjulegrar hnýsni og hlýtur að höfða alveg sérstaklega til Íslendinga vegna þess að þeir eru svo áhugasamir hver um annan. Úr því að þetta gekk vel í útlöndum hlýtur þetta að vera alveg gósenefni fyrir ís- lenskar sjónvarpsstöðvar en að kalla þetta raunveruleikasjónvarp er bara öfugmæli. Þetta er sami raunveruleiki og Sópranó-þætt- irnir. Auðvitað er einhver meining í þessu en þetta kemur daglegu lífi fólks ekki nokkurn skapaðan hlut við.“ Byggir á skepnuskap „Vegna þess hversu þetta er fá- nýtt og meiningarlaust í sjálfu sér og í rauninni gersamlega óáhuga- vert verða menn auðvitað að reyna að hafa einhverja til- breytni,“ segir Þorbjörn þegar hann er spurður að því hvort það sé ekki innbyggt í eðli raunveru- leikasjónvarpsins að það verði alltaf að ganga lengra til að halda áhuga áhorfenda. „Það er ekkert eina leiðin að hækka þröskuldinn en hún er freistandi. Hin leiðin er að finna nýtt umhverfi en þannig hafa þættir af þessu tagi til dæm- is verið teknir í íbúðarhúsi og á eyðieyju. Menn geta svo valið mismunandi náttúrufar til til- breytingar en síðan verða þeir líka að róa á þessi öfgamið. Ég hef nú hvorki haft tíma né tök á því að horfa á mikið af þessu en þetta byggjast töluvert á skepnuskap sem virðist vera leiðarhnoða í mjög mörgu af þessu. Það er ver- ið að flokka fólk og skipta því nið- ur, sem er ein tegund af einelti, og það er hægt að gera það verra og verra. Þarna er líka töluvert af ungu og fallegu fólki sem hægt er að láta fækka fötum. Það er nátt- úrlega alveg upplagt þó það sé nú kannski það meinlausasta í þessu. Ef fólk hefur gaman af því að striplast gerir það kannski ekki svo voðalega mikið til en það er svolítið óvenjulegt að maður geti legið á glugganum hjá fólki þegar það sinnir daglegum þörfum sín- um og hvötum. Það kann að vekja einhverja forvitni, kannski ekki síst hjá ungu og óreyndu fólki. Fólk er alltaf að læra á lífið og heldur kannski að það geti lært eitthvað af þessu.“ ■ SURVIVOR Hefur notið mikilla vinsælda á Skjá Einum undanfarin ár og er þekktasti raunveruleika- sjónvarpsþátturinn sem sýndur er í íslensku sjónvarpi. Makavalsþættir á borð við The Bachelor hafa vakið meiri hneykslan og umtal, og nokkuð fjaðrafok hefur nú orðið í kring- um fréttir af áformum Skjás Tveggja að framleiða þátt með íslenskum stúlkum í makaleit í Las Vegas. HELGI HERMANNSSON Dagskrárstjóri SkjásEins segir að þættirnir Viva Las Vegas fari í loftið eftir áramót. „Þetta verður auðvitað gert með íslenskum hætti og yfirbragði en verður þó nokkuð dýrt í framleiðslu“. Helgi Hermannsson, dagskrárstjóri SkjásEins, er bjartsýnn á vinsældir Viva Las Vegas: Sambland gamans og alvöru Sumum finnst þetta full langt gengið en almennt hafa viðbrögðin verið jákvæð. ,, Fólk er alltaf að læra á lífið og held- ur kannski að það geti lært eitthvað af þessu. ,, ÞORBJÖRN BRODDASON Telur að smæð samfélagsins hafi mikið með það að gera að framleiðsla á inn- lendu raunveruleikasjónvarpi hefur ekki verið jafn öflug og í nágrannalöndunum. „Ísland er bara eins og lítið þorp í þessum skilningi og að því leyti er erfiðara að taka þátt í svona leik í litlu þjóðfélagi. Það þekkjast allir hérna hvort eð er.“ Þorbjörn Broddason, prófessor í hagnýtri fjölmiðlun, gefur lítið fyrir raunveruleikasjónvarp: Gert út á skepnuskap FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.