Fréttablaðið - 20.09.2003, Side 22
22 20. september 2003 LAUGARDAGUR
BÓK VIKUNNAR:
Spútnik-ástin eftir Haruki Murakami.
Murakami var stjarnan á síð-
ustu bókmenntahátíð. Bjartur hef-
ur nýlega gefið út þessa skáldsögu
hans, sem er hans sjötta. Hin rúm-
lega 22 ára Sumire verður yfir sig
ástfangin af Miu, fertugri konu,
sem býr yfir óvenjulegri lífs-
reynslu. Sumire og Miu fara til
grískrar eyjar og þar hverfur Sum-
ire óvænt. Sögumaður er karlmað-
ur sem elskar Sumire. Þetta er
falleg, þunglyndisleg og dularfull
ástarsaga um sambönd og sam-
bandsleysi. Hinir fjölmörgu aðdá-
endur Murakamis ættu ekki að
verða fyrir vonbrigðum.
METSÖLU-
LISTI
BÓKABÚÐA
MÁLS OG
MENNINGAR
Allar bækur
1. Blinda. José Saramago
2. Óvinurinn. Emmanuel Carrére
3. Sagan af Pí. Yann Martel
4. Skuggaleikir. Jose Carlos Somoza
5. Í upphafi var morðið.
Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson
6. Mýrin. Arnaldur Indriðason
7. Rokkað í Vittula. Mikael Niemi
8. Kortabók 1:300.000. Mál og menning
9. Spútnik-ástin. Haruki Murakami
10. Sunnan við mærin, vestur af sól.
Haruki Murakami
Handbækur, fræðibækur
og ævisögur
1. Óvinurinn. Emmanuel Darrére
2. Kortabók 1:300.000. Mál og menning
3. Af bestu lyst. Vaka Helgafell
4. Íslensk-ensk/ensk-íslensk vasa-
orðabók. Orðabókaútgáfan
5. Almanak Háskóla Íslands. Háskólaútg.
6. Um víðerni Snæfells. Guðmundur
Páll Ólafsson
7. Dönsk-íslensk/íslensk-dönsk orða-
bók. Orðabókaútgáfan
8. Af bestu lyst II. Vaka Helgafell
9. Ekið um óbyggðir. Jón G. Snæland
10. Spáðu í mig. Salka
METSÖLUBÆKUR BÓKABÚÐA MÁLS OG MENNINGAR
10. - 16. SEPTEMBER.
METSÖLU-
LISTI
EYMUNDS-
SONAR
Allar bækur
1. Óvinurinn. Emmanuel Carrére
2. Sagan af Pi. Yann Martel
3. Skuggaleikir. Jose Carlos Somoza
4. Mýrin. Arnaldur Indriðason
5. Elling - Paradís í sjónmáli.
Ingvar Ambjörnsen
6. Ár hérans. Arto Paasilinna
7. Röddin. Arnaldur Indriðason
8. Blinda. José Saramago
9. Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð. Arto Paasilinna
10. Spútnik-ástin. Haruki Murakami
Handbækur, fræðibækur
og ævisögur
1. Óvinurinn. Emmanuel Darrére
2. Ensk-íslensk/íslensk-ensk orðabók.
Orðabókaútgáfan
3. Litla messubókin. Skálholtsútgáfan
4. Dönsk-íslensk/íslensk-dönsk orða-
bók. Orðabókaútgáfan
5. Frönsk-íslensk skólaorðabók.
Mál og menning
6. Evrópusamruninn og Ísland. Eiríkur
Bergmann Einarsson
7. Ensk-íslensk/íslensk-ensk vasa-
orðabók. Orðabókaútgáfan
8. Spænsk-íslensk/íslensk-spænsk
orðabók. Orðabókaútgáfan
9. Ökutæki og tjónabætur.
Arnljótur Björnsson
10. Leggðu rækt við sjálfan þig. Anna
Valdimarsdóttir
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA EYMUNDSSONAR
10. - 16. SEPTEMBER
■ bækur
Meðal bóka sem Almennabókafélagið gefur út um
þessi jól er Hrapandi jörð, skáld-
saga Úlfars Þormóðssonar um
Tyrkjaránið. Hér er á ferðinni
sagnfræðileg skáldsaga. Mikil
heimildavinna liggur að baki
verkinu, enda hefur höfundurinn
margsinnis dvalist í Norður-Afr-
íku við rannsóknir.
Ævar Örn Jósepsson er að
ljúka við nýja glæpasögu sem ber
titilinn Svartir englar. Kona
hverfur sporlaust og þegar lög-
reglan hefur eftirgrenslan kemur
í ljós að í hlut á einstæð fráskilin
móðir – sem einnig er einn færasti
kerfisfræðingur landsins. Það er
hraður taktur í sögunni og lög-
reglumaðurinn Árni sýnir hér á
sér nýja hlið.
Í skáldsögunni Elling - Paradís
í sjónmáli eftir Ingvar Ambjørn-
sen er aðalpersónan, Elling, ekki
eins og fólk er flest. Þegar móðir
hans deyr þarf hann að finna fót-
festu í nýjum veruleika og takast
á við lífið einn og óstuddur. Með
látlausum stíl og einlægri en um
leið ágengri frásögn tekst höfundi
bókarinnar að hleypa lesendum
inn í einstakan hugarheim Ellings
sem er í senn átakanlega fyndinn
og broslega sorglegur. Ambjørn-
sen hefur hlotið fjölda verðlauna
fyrir bækur sínar um Elling sem
alls eru fjórar og er Elling – Para-
dís í sjónmáli sú fyrsta. Elling
hefur notið vinsælda víða um lönd
og samnefnd kvikmynd vakti
mikla athygli hérlendis sem er-
lendis og var tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna. Leikgerð sögunnar
er nú á fjölunum hér á landi.
Gullkorn þingmanna
Sálfræðingarnir Álfheiður
Steinþórsdóttir og Guðfinna Ey-
dal senda frá sér bókina Í blóma
lífsins – Karlar og konur á besta
aldri. Í bókinni taka þær til um-
fjöllunar það sem fólk er að fást
við í lífi sínu á miðjum aldri, þær
umbreytingar sem gjarnan eiga
sér stað og þau spennandi tæki-
færi sem myndast í einkalífi og
starfi. Höfundarnir byggja á nýj-
ustu rannsóknum á þessu sviði
sem og áratugareynslu sem sál-
fræðingar.
Með leyfi forseta – Saga lands
og þjóðar inniheldur tilvitnanir í
ræður þingmanna frá lýðveldis-
stofnun. Bókin er mikil að vöxtum
enda hefur Leifur Hauksson dag-
skrárgerðamaður farið í gegnum
allt það sem sagt hefur verið úr
ræðustól þingsins frá lýðveldis-
stofnun. Hann valdi stutta kafla
úr ræðum þingmanna af öllu tagi
sem samhliða því að gefa nýstár-
lega mynd af sögu lands og þjóðar
veita innsýn í hvað efst var á
baugi á hverjum tíma og hvaða
augum menn litu umheiminn og
landsins gagn og nauðsynjar.
Uppgjör Sverris
Í bókinni Burt með verkina eft-
ir Chris McLaughlin er að finna
lýsingar á eðli ólíkra náttúrulegra
úrræða gegn verkjum og sárs-
auka og leiðbeiningar um fram-
kvæmd þeirra. Bókin er ríkulega
myndskreytt og með aðgengileg-
um töflum yfir mismunandi verki
og ýmsar leiðir til að draga úr
þeim.
Lengi hefur vantað á íslenskan
bókamarkað bók um hunda.
Hundabókin geymir hafsjó af
fróðleik í máli og myndum um all-
flestar hundategundir í heimin-
um. Bókin er unnin í samráði við
fjölda sérfróðra aðila hérlendis og
hefur verið kappkostað að laga
bókina að íslenskum aðstæðum.
Brynja Tomer þýddi og staðfærði.
Sverrir – Skuldaskil er uppgjör
Sverris Hermannssonar, fyrrver-
andi þingmanns, ráðherra og
bankastjóra. Sverrir er að vanda
beinskeyttur og óhræddur við að
koma skoðunum sínum um menn
og málefni á framfæri. Pálmi Jón-
asson fréttamaður skrifaði bók-
ina.
Valtýr Stefánsson – Ævisaga er
saga eins áhrifamesta manns í
sögu fjölmiðlunar á Íslandi. Ævi-
söguna ritar Jakob F. Ásgeirsson
og hefur hann haft ótakmarkaðan
aðgang að heimildum í skjalasafni
Morgunblaðsins og einkaskjala-
safni Valtýs Stefánssonar, þar á
meðal dagbókum og einkabréfum.
kolla@frettabladid.is
Skáldsagan The Great Gatsby erein af perlum bandarískra bók-
mennta. Nú er komið í ljós að fyrir-
myndin að Daisy Buchanan, kon-
unni sem Gatsby gat ekki gleymt,
var Ginevra King, sem höfundur-
inn Francis Scott Fitzgerald kynnt-
ist þegar hann var 19 ára og hún 16
ára. King skrifaði dagbók þar sem
er að finna langa kafla um ást
hennar til Fitzgeralds. Hún skrif-
aði honum fjölmörg ástarbréf en
tíu árum eftir dauða Fitzgeralds
skilaði dóttir hans, Scottie, bréfun-
um aftur til King. Dóttir King hef-
ur nú afhent Princeton-háskóla
dagbókina og bréfin til eignar en
Fitzgerald var við nám í háskólan-
um á sínum tíma.
Parið skrifaðist á í tvö ár en
King eyðilagði bréfin sem Fitzger-
ald sendi henni að beiðni hans. Þeg-
ar Fitzgerald var í Princeton skrif-
aði hann smásögu um King og
gerði hana síðan ódauðlega sem
Daisy Buchanan, stóru ástina í lífi
Gatsbys. James West bókmennta-
fræðingur, sem er sérfræðingur í
Fitzgerald, segir að ástarsamband
Fitzgeralds við King hafi verið það
mikilvægasta í lífi hans og skipt
hann meira máli en samband hans
við eiginkonu sína, Zeldu. Samband
Fitzgeralds og Kings átti ekki
framtíðina fyrir sér. King giftist
kunningja sínum og sennilega var
það fyrir bestu því Fitzgerald var
skelfilegur í sambúð, drykkjusjúk-
ur og haldinn sjálfseyðingarhvöt.
King og Fitzgerald hittust í síð-
asta sinn í Hollywood árið 1937 þar
sem hann starfaði sem handrita-
höfundur. Hann var drukkinn við
fund þeirra. Hún spurði hann að
því að hvaða kvenpersónum hans
hún hefði verið fyrirmynd. Fitzger-
ald svaraði: „Hver þessara tíka
heldurðu að þú sért?“ ■
Í sumarfríinu sökkti ég mér nið-ur í The Trust, sem vinur minn
Flosi Eiríksson lánaði mér í vor.
Hún er um sögu fjölskyldunnar
sem hefur átt The New York
Times síðan á öndverðri 19. öld,
fantavel skrifuð og hrein spennu-
lesning á köflum,“ segir Karl Th.
Birgisson, fjölmiðlamaður og
framkvæmdastjóri Samfylking-
arinnar, um lesefni sitt þessa dag-
ana. „Þetta er heiðarleg samtíma-
sagnfræði af því tagi sem fengist
líklega seint gefin út á Íslandi.
Adolph Ochs, sem eignaðist blað-
ið árið 1896 með ekkert nema
stórskuldir í vasanum, kunni
hvort tveggja í senn, að eiga við-
skipti og að eiga fjölmiðil, sem er
því miður sárasjaldgæft í þessum
bransa. Eins og sumar amerískar
sögubækur er þessi býsna löng,
um 800 síður, og virðist því engan
endi ætla að taka, en það er ekki
einu orði ofaukið.
Önnur bók hefur legið á nátt-
borðinu mánuðum
saman, en það
er Röddin eftir
Arnald Ind-
riðason. Mér
mun líklega
aldrei takast að ljúka henni, því
að mér er andsk... sama um fólkið
sem í henni er og örlög þess,
öfugt við Times-fjölskylduna. Það
er örugglega ekki Arnaldi að
kenna. Ég hef bara svo ósköp lít-
inn áhuga á skáldskap. Raunveru-
leikinn er miklu forvitnilegri.
Annars er ég mest að fletta
alls kyns orðabókum og málsögu-
bókum, því ég er að undirbúa
nýja seríu af spurningaleik um
orð og orðanotkun, Orð skulu
standa, sem heldur áfram á
Rás eitt í vetur.“ ■
KARL TH. BIRGISSON
„Annars er ég mest að fletta alls
kyns orðabókum og málsögu-
bókum, því ég er að undirbúa
nýja seríu af spurningaleik um
orð og orðanotkun, Orð skulu
standa, sem heldur áfram á
Rás eitt í vetur.“
Raunveruleikinn
forvitnilegri
Í sumarfríinu sökkti
ég mér niður í The
Trust, sem vinur minn Flosi
Eiríksson lánaði mér í vor.
Hún er um sögu fjölskyld-
unnar sem hefur átt The
New York Times síðan á
öndverðri 19. öld, fantavel
skrifuð og hrein spennulesn-
ing á köflum. Þetta er heið-
arleg samtímasagnfræði af
því tagi sem fengist líklega
seint gefin út á Íslandi.
,,
Scott Fitzgerald gerði 16 ára skólastúlku
ódauðlega í bestu skáldsögu sinni:
Fyrirmyndin að Daisy
THE GREAT GATSBY
Robert Redford og Mia Farrow léku í kvikmyndaútgáfunni af The Great Gatsby.
SVERRIR HERMANNSSON
Beinskeytt uppgjör hans kemur út í haust.
Almenna bókafélagið kynnir jólabækur sínar:
Bækur af ýmsum toga
ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON
Sendir frá sér nýja glæpasögu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T