Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.09.2003, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 20.09.2003, Qupperneq 32
32 20. september 2003 LAUGARDAGUR Fréttiraf fólki Pondus eftir Frode Øverli Ég hækka um 200 kall! Sé þig, og bæti 500 kalli við! Hvað segir þú, Jói? Vá.. .sjáiði pókerfésið á honum! Þetta er rosalegt! Þú ert ískaldur í kvöld, Jói! ...Jói? G e r i s t þ e t t a oft? Já, hann beyglast niður með allt hærra en tvö pör! Hann er með fjórar drottning- ar! Útgáfutónleikar Bang Gangverða í Hafnarhúsinu, Lista- safni Reykjavíkur, í kvöld. Fjöldinn allur af erlendum aðdá- endum og fjölmiðlafólki verður viðstaddur tónleikana. Barði verður í broddi fylkingar en strengjasveit og gestasöngvarar plötunnar; Karen Ann Zeidel, Daníel Ágúst Haraldsson, Esther Talia Casey og Nicolette, mæta á svæðið. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 en eftir tónleikana verður haldið svo- kallað Panik partí í fyrsta skipti á Íslandi. Þar munu erlendu listamennirnir Terranova, Vitalic, Nicolette og Tommy Hool skemmta fjöldanum ásamt íslensku hæfileikafólki. Panik partíin eru vinsæl í París þar sem þau eru haldin hálfsmánað- arlega og ku vera mikill hiti fyr- ir partíinu í kvöld enda ekki á hverjum degi sem Panik er hald- ið utan heimavallar. Partíið verður í Kapital, Hafnarstræti, og hefst klukkan 00.30. Eins og kunngert hefur hefur verið fékk stórfyrirtækið Armani að nota fyrsta lag Bang Gang-plötunnar í nýja auglýsingaherferð og hægt er að sjá auglýsinguna ef farið er inn á heimasíðu Bang Gang. Slóðin er www.recall- group.com/banggang. Panik hjá Barða BARÐI JÓHANNSSON Fjöldi erlendra og innlendra listamanna kemur fram á tónleikum Bang Gang í Hafnarhús- inu í kvöld. Að þeim loknum verður haldið á Panik partí á Kapital í Hafnarstrætinu. ■ Tónleikar Fyrrum kryddpían Geri Halli-well ætlar nú að reyna fyrir sér í kvikmyndaleik í Hollywood. Hún er nú komin með Hollywoodleikar- ann Jerry O’Conn- ell úr Kangaroo Jack upp á arm- inn en þau kynntust við tökur myndarinnar Fat Slags. Gene Simmons, bassaleikararokkhljómsveitarinnar Kiss, hefur verið bannað að árita sjálfsævisögu sína í bókabúðum nokkurra borga í Bandaríkj- unum. Ástæðan er sú að læti búðargesta og æsingur- inn verður mun meiri en búðar- eigendur kæra sig um. Border Bookstore- keðjan hef- ur afþakkað boð hans um að mæta og árita bók sína og segir hann vera að hagnast á sög- um um fyllerí, kynlífssvall og eit- urlyf. Simmons, sem segist hafa sofið hjá rúmlega 3.000 konum, varð mjög hissa á þessum við- brögðum. „Er það mér að kenna að stúlkur mæti og lyfti upp bol- unum sínum til þess að sýna mér brjóstin? Já, eða hvað þegar þær þrýsta rasskinnum sínum upp í andlitið á mér þegar ég er að árita?“ spurði hann undrandi. Nú segja slúðurblöðin í Banda-ríkjunum það hafa verið mömmu Bens Afflecks að kenna hvernig fór á milli hans og Jenni- fer Lopez. Hún á að hafa talað við son sinn og varað hann við því að líf hans myndi alla tíð verða eins og í fiskabúri og að utanaðkomandi fólk myndi alltaf vera forvitið um að fylgjast með lífi hans. Við þetta á Ben að hafa byrjað að efast um að brúðkaupið væri þess virði og hætt við. Hún er ansi dugleg við aðfjölga sér þessa dagana leik- konan Cate Blanchett. Hún og eigin- maður henn- ar, leikrita- höfundurinn Andrew Upton, eign- uðust sitt fyrsta barn fyrir tæpum tveimur árum og eiga nú von á öðru. Þetta var greinilega ekki á áætluninni því Blanchett hefur þurft að breyta vinnudagskrá sinni vegna þessa. Hún hætti m.a. við að leika í myndinni „Closer“ þar sem hún átti að leika aðal- hlutverk á móti Jude Law. Bono, söngvari U2, helduráfram að reyna að bjarga heiminum og fór á dögunum á fund George W. Bush Bandaríkjafor- seta. Bono hef- ur reynt að sannfæra Bush um að eyða meira fé í það að stöðva útbreiðslu al- næmis í Afr- íku en forsetinn er víst ekki til í það. Samkvæmt Bono hitnaði þeim félögum báðum í hamsi en Bush haggaðist víst ekkert í af- stöðu sinni. Bono segist ekki vera að berjast fyrir málstað. Sjö þúsund manns deyji daglega og því sé þetta neyðarástand, ekki málstaður. dreifing J.S. Helgason 30 daga Fæst í apótekum og í Gripið og greitt Liturinn endist í 30 daga og festist aðeins við hárin en ekki við húðina. Þægileg skál og hræripinni fylgja með í umbúðum Fáanlegir litir: Brúnn og svartur Popptextinn PUBLIC ENEMY I´m ready and hyped plus I’mamped. Most of my heroes don’t appear on no stamps. Sample a look back you look and find nothing but rednecks for 400 years if you check.“ -Chuck D úr Public Enemy gerir upp sakirnar við hvíta manninn í Bandaríkjunum í laginu Fight the Power frá 1989, sem lék m.a. stórt hlutverk í kvikmynd Spike Lee, Do the Right Thing. Tai Chi Hugleiðsla í hreyfingu á námskeiði hjá Sigrúnu Völu Björnsdóttur Sjúkraþjálfara - Tai Chi iðkanda sigrunvala@strik.is Sími: 699 2871 ☯ ☯ Lab Loki sýnir í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu barnaleikritið „Baulaðu nú...“ Dagur í lífi Kristínar Jósefínu Páls. Sun. 21. sept. kl.14:00 Lau. 27. sept. kl. 14:00 Miðaverð er kr. 1200. Miðapantanir í síma 590-1200. Nánari upplýsingar í síma 662-4805.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.