Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.09.2003, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 20.09.2003, Qupperneq 38
38 20. september 2003 LAUGARDAGUR Vikan byrjaði vel. Það var frí ámánudaginn,“ segir tónlistar- maðurinn KK sem var þó ekki lengi til setunnar boðið því strax á þriðjudag var hann kominn á fulla ferð um landið með gítarinn og Magnús Eiríksson: „Við erum með tónleika til að fylgja eftir plötu sem við gáfum út og höfum selt í rúmlega 13 þúsund eintökum þannig að við þurfum varla að fylgja henni eftir,“ segir KK. „Við erum búnir að vera á Egilsstöð- um, Eskifirði, Húsavík og Akur- eyri. Þetta er gaman. Við fáum fólk til að hlæja og gleyma stað og stund í tvo tíma; færum það inn í annan og skemmtilegri heim.“ Annars líst KK ekki meira en svo á heimsmálin eins og þau hafa þróast í vikunni. „Nú ætla Banda- ríkjamenn og Ísraelar að fara að drepa þjóðarleiðtoga. Það er ekki gott að sjá fyrir hvað gerist ef þeir drepa Arafat. Annars virðist ríkja heimstyrjaldarástand í veröldinni og við Magnús erum fegnir að vera hér á Íslandi og njóta haust- litanna í stað blóðbaðsins sem blasir við annars staðar,“ segir KK sem notaði tímann á ferðalagi vik- unnar til að skoða skip Green- peace-manna þar sem það lá við festar á Seyðisfirði. „Ég greip gít- ar í messanum hjá þeim og söng Hann var sjómaður dáðadreng- ur...Það féll í góðan jarðveg.“ Af innlendum málefnum vik- unnar hefur KK þetta að segja: „Það hefur verið gaman að fylgj- ast með framhaldssögunni um Björgólf og Eimskip. Þetta er eins og ævintýrið um Greifann af Monte Cristo. Fín framhalds- saga.“ ■ Vikan sem var ■ KK hefur verið á ferð og flugi alla vikuna og söng meira að segja fyrir Greenpeace á Seyðisfirði. Imbakassinn ÓDÝRAR GÆÐA ÞAK- SKRÚFUR Ál Ryðfríar Galvaniseraðar Heitgalvaniseraðar Söðulskinnur í úrvali Stórhöfða 33 Sími: 577 4100 Haustlitir fallegri en blóðbað KK Á FERÐ OG FLUGI Hefur áhyggjur af heimsmálunum en hefur gaman af framhaldssögunni um Björgólf og Greifann af Monte Cristo. Mér sýnist að á lestri blaðannaá netinu að heilmikið sé að gerast heima á Íslandi, segir tískuhönnuðurinn Stella sem býr í Los Angeles. Hún segir að það geti allt eins verið að hún láti verða af því að færa sig heim. Stella varð fyrst til að opna verslun á Íslandi þar sem ekkert var á boðstólum nema hennar eigin framleiðsla. Hún hét Tísku- hús Stellu og var í Hafnarstræti. Stellu langaði að breyta til og fara í erfiðara umhverfi eins og hún segir sjálf. Hún fluttist því út til Kaliforníu árið 1987 og hef- ur allar götu síðan verið vestra og selt sína eigin framleiðslu. „Það gekk ágætlega til að byrja með en síðan fékk ég ást á New Orleans og opnaði litla búð í franska hverfinu sem er ógur- lega sætt. Það gekk ágætlega þar til trukkur keyrði í inn í búðina. Ég held bara að ég hafa verið heppin því þá var ég búin að fá leið á henni,“ segir Stella sem yfirgaf uppáhaldsborgina sína og kom sér að nýju fyrir í Kaliforn- íu. Til Stellu leita margir þekktir viðskiptavinir en hún segist gleyma þeim jafnóðum. „Menn finna mig á netinu, en ég held úti síðu með fötunum mínum, og það gengur bara vel. Ég er ekkert mikið að koma mér á framfæri, læt þá bara koma til mín,“ segir hún og bendir á fötin hennar séu bæði falleg og rómantísk. „Að- stoðarmaður Phil Spector hringdi í mig og vildi fá mig í heimsókn til hans. Ég get ekki annað sagt en ég vorkenni honum, aleinn í stóru húsi á leið í réttarhöld. Ég vissi ekkert um þennan mann fyrst og alls ekki að hann væri frægur. Nú vill hann að ég búi til meira af fötum fyrir sig og það er alltaf að bætast við listann,“ seg- ir Stella sem gæti alveg eins hugsað sér að flytja til Íslands og hanna föt fyrir efnaða Íslend- inga. ■ STELLA Phil Spectrum vill fá meira af fötum og það er alltaf að bætast við það sem Stella á að hanna fyrir hann. RÓMANTÍSK FÖT Stella segist hanna rómantísk föt og segir konur sækjast eftir að klæðast þeim. Föt TÍSKUHÖNNUÐURINN STELLA ■ Hún hefur hugsað mikið um það eftir að hún fór að lesa blöðin á netinu hve gaman gæti verið að koma heim aftur. Fyrir þetta mót tökum við enga sénsa heldur teygjum VEL á eftir hverja æfingu! Lárétt: 1 sjávargróður, 5 slæm, 6 hrosshúð, 7 átt, 8 söngflokkur, 9 besti árangur, 10 sérhljóðar, 12 næ í , 14 lengst frá, 16 ásaka, 17 glufa, 19 þraut. Lóðrétt: 1 kauptún, 2 fæða, 3 samhljóðar, 4 kassi, 6 gististaður, 8 matur, 11 Bandaríkin, 13 stúta, 15 tíu, 18 öðlast. 1 5 6 7 8 14 15 17 18 16 19 2 3 1311 9 1210 4 ■ Krossgáta Lausn:Lárétt:1þang,5ill,6há,7na,8kór, 9 met,10eu,12tek,14yst,16lá,17rauf, 19gáta. Lóðrétt:1þingeyri,2ala,3nl,4lár, 6hótel,8 ket,11usa,13kála,15tug,18fá. Konan mín er besti vinurminn,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson sjónvarpsmað- ur. „Hávaxinn, dökk yfirlitum og grönn og hvergi fegurri en í bliki franskra vína á síðkvöldum. Án hennar væri líf mitt undir fá- tæktarmörkum.“ ■ Konan mín Augun Hann hefur horft til framtíðar um langt skeið. Verið á undan öðrum að skynja nýja tíma og uppsker nú eins og hann hefur sáð. Hver á augun? (Björgólfur Guðmundsson.) Heppin að fá trukk inn í búðina mína

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.