Fréttablaðið - 11.10.2003, Page 6

Fréttablaðið - 11.10.2003, Page 6
6 11. október 2003 LAUGARDAGUR ■ Sjávarútvegur GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 75.68 -0.32% Sterlingspund 125.98 -0.44% Dönsk króna 12.01 -0.60% Evra 89.2 -0.60% Gengisvístala krónu 125,52 -0,17% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 421 Velta 19.282 milljónir ICEX-15 1.867 1,18% Mestu viðskiptin Fjárf.f. Straumur hf. 6.695.592.023 Eimskipafélag Íslands hf. 4.309.627.577 Íslandsbanki hf. 3.167.973.296 Mesta hækkun Vinnslustöðin hf. 5,56% Kaupþing Búnaðarbanki hf. 5,04% Össur hf. 2,94% Mesta lækkun Grandi hf. -1,39% Marel hf. -1,10% Landsbanki Íslands hf. -0,88% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 9.683,0 0,0% Nasdaq* 1.915,0 0,2% FTSE 4.311,0 -0,1% DAX 3.474,9 -0,2% NK50 1.363,1 0,1% S&P* 1.039,5 0,1% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hvað heitir hinn nýi stjórnarformaðurEimskips? 2Ráðist var á tvo íslenska athafna-menn í Austur-Evrópu á miðvikudag- inn. Í hvaða landi voru mennirnir þegar ráðist var á þá? 3Hvað heitir fyrirliði íslenska lands-liðsins í knattspyrnu? Svörin eru á bls. 39 GAZA-STRÖNDIN Sex Palestínumenn féllu og 38 særðust í hörðum skot- bardaga sem braust út þegar ísra- elskar hersveitir gerðu áhlaup á Rafah-flóttamannabúðirnar á Gaza-ströndinni. Á meðal þeirra sem létust voru tveir drengir, átta og fimmtán ára. Einn hermaður særðist í átökunum. Ísraelski herinn fór inn í flótta- mannabúðirnar um miðja nótt með tugi skriðdreka og nokkrar her- þyrlur. Flestir hinna særðu urðu fyrir flugskeyti sem skotið var úr herþyrlu á hóp manna á jörðu niðri. Sjúkrahúsið í Rafah er yfir- fullt og mikill skortur á sjúkra- gögnum. Ekki er unnt að flytja hina særðu á sjúkrahús í nærliggj- andi bæjum vegna takmarkanna á ferðafrelsi Palestínumanna. Að sögn Ísraela var markmiðið með áhlaupinu að eyðileggja göng sem Palestínumenn höfðu notað til að smygla vopnum frá Egypta- landi. Hermennirnir nutu aðstoðar sérþjálfaðra hunda til þess að leita uppi göngin. Heimildarmenn innan ísraelska hersins segja að borist hafi vísbendingar um að herskáir Palelestínumenn hefðu í hyggju að smygla inn hættulegum vopnum á borð við flugskeyti til að ráðast á Ísraela. ■ ATVINNUMÁL Um 60 portúgalskir verkamenn við Kárahnjúka héldu áfram verkfalli annan daginn í röð þegar ljóst var að Impregilo gat ekki útvegað nægan fatnað fyrir alla Portúgalina samdæg- urs. Var það þvert á yfirlýsingar þeirra daginn áður um að hætta verk- falli þegar Impreg- ilo lofaði að verða við óskum þeirra um vinnuskó og fatnað. Var mik- ill hiti í mönnum vegna þessa og var lögregla kölluð á staðinn fljótlega upp úr hádegi. Viðbrögð Impregilo voru þau að segja þeim starfsmönnum upp störfum sem héldu verkfallinu áfram og var Portúgölunum til- kynnt það fljótlega. „Þeir segjast ætla að reka okk- ur alla,“ sagði einn verkfalls- manna sem Fréttablaðið náði tali af í gærmorgun. „Þeir gátu ekki útvegað fatnað og skó eins og þeir lofuðu okkur og því brugðum við á það ráð að halda áfram þessu verkfalli. Svo var okkur tilkynnt að við yrðum reknir allir saman.“ Fyrir tilstuðlan íslenskra aðila tókst að stilla til friðar og koma á sátt síðdegis og lyktir málsins voru þau að forsvarsmenn Impregilo féllust á að gefa eftir og halda því allir störfum sínum. Gert er ráð fyrir að eftir eina viku hafi allir Portúgalarnir fengið vinnufatnað og skó eins og lofað var. Talsverðar deilur hófust á milli þeirra Portúgala sem vildu halda verkfallinu til streitu og hinna sem vildu halda áfram störfum. Urðu þær harðar og þurftu Íslendingar á svæðinu að ganga á milli þeirra. Í framhaldi af því var kallað á lögregluna sem kom á staðinn skömmu sein- na. Aðilar sem fylgdust með þró- un mála sögðu að með frekara verkfalli hefðu Portúgalarnir gengið aðeins of langt. „Ég hef á tilfinningunni að margir þeirra hafi engan áhuga að vera hérna lengur,“ sagði einn viðmælenda Fréttablaðsins. „Þeir voru í raun búnir að fá það sem þeir óskuðu eftir og þetta var óþarfa upp- hlaup í þeim.“ albert@frettabladid.is LÖGFRÆÐINGAR Verjendur Malvos, Craig Cooley og Michael Arif, ávarpa blaðamenn fyrir utan dóms- húsið í Fairfax-sýslu. Leyniskyttumorð: Ósakhæfur sökum geðveiki USA Verjendur Lee Boyd Malvo, sem grunaður er um að hafa tekið þátt í leyniskyttumorðunum í Bandaríkjunum á síðasta ári, ætla að halda því fram fyrir rétti að hann sé ósakhæfur sökum geð- veiki. Lögmennirnir halda því fram að Malvo hafi verið heila- þveginn af John Allen Muhammad, sem einnig er ákærð- ur fyrir morðin. Verjendur Malvos segjast hafa ráðið sérfræðinga til að rannsaka Malvo og þeir hafi komist að þeir- ri niðurstöðu að hann þjáist af geðtruflunum. Að sögn saksókn- ara er ekkert í skýrslum réttar- geðlæknis sem styður fullyrðing- ar verjendanna. Það kemur að líkindum í hlut kviðdóms að skera úr um hvort Malvo sé ábyrgur gjörða sinna. ■ MUN SKEMMRI FUNDARTÍMI Fundartími Alþingis á síðasta vetri var meira en þriðjungi skemmri en árið áður að því er fram kemur í ársskýrslum þings- ins. Munurinn skýrist að mestu af því að síðasti vetur var kosn- ingavetur og þinghald með styt- tra móti. Álíka tími fór í at- kvæðagreiðslur, 19 og 20 klukku- stundir. Samdráttur var mestur í umræðu um frumvörp semfór úr 388 tímum í 205. ÞORSTEINN EA SELDUR Fjölveiði- skipið Þorsteinn EA hefur verið selt frá Akureyri til Þórshafnar fyrir 1.360 milljónir króna. Skipið hefur verið í eigu Samherja. Með því fylgja aflahlutdeildir í loðnu, kolmunna og íslenskri síld. ■ Alþingi Ísraelar gera áhlaup á flóttamannabúðir Palestínumanna: Sex fallnir og 38 særðir SJÚKRAFLUTNINGAR Sjúkrahúsið í Rafah er yfirfullt af alvarlega særðu fólki sem ekki hlýtur viðeigandi um- önnum vegna skorts á sjúkragögnum. AÐALVINNUBÚÐIR IMPREGILO Til stóð að reka þá Portúgala sem stóðu að verkfalli en málin leystust farsællega. Mikill hiti í Portúgölum Málefni Dvergasteins: Þreifingar í gangi ATVINNUMÁL „Það eru þreifingar í gangi en ómögulegt að segja til um hvað þær leiða af sér,“ sagði Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, en tveir aðilar hafa sýnt áhuga á að koma að eða kaupa frystihúsið Dvergastein. Starfs- mönnum þess var sagt upp störfum um mánaðarmótin þar sem eigandi þess, Útgerðarfélag Akureyringa, hefur ekki áhuga á að halda starf- seminni áfram. Tryggvi sagði að fyrirtæki hefðu sýnt áhuga á að koma að rekstrinum. „Þetta er allt á frumstigi enn sem komið er og menn velta ýmsum möguleikum fyrir sér en þetta er byrjun.“ ■ Portúgalskir verkamenn við Kárahnjúka héldu áfram verkfalli sínu annan daginn í röð þrátt fyrir að Impregilo hafi fallist á kröfur þeirra. Fyrir tilstuðlan Íslendinga leystist málið farsællega. ■ Þeir segjast ætla að reka okkur alla.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.