Fréttablaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 30
30 11. október 2003 LAUGARDAGUR PÉTUR MARTEINSSON Pétur Marteinsson meiddist á æfingu í gær og verður ekki með gegn Þjóðverj- unum í dag. Fótbolti Eyjólfur Sverrisson: Erfitt fyrstu fimmtán mínúturnar FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson, fyrr- verandi landsliðsfyrirliði, er mætt- ur til Hamborgar til að fylgjast með leiknum á AOL-vellinum í dag. „Þetta verður rosalega gaman en að öðru leyti mjög erfitt. Þjóð- verjarnir eiga eftir að fylla völlinn og það verður mikil stemmning,“ sagði Eyjólfur í samtali við Frétta- blaðið í gær. Eyjólfur telur að á brattann verði að sækja en telur íslenska lið- ið til alls líklegt. „Strákarnir hafa verið að spila vel undanfarið og hafa ekki tapað leik í lengri tíma. Það verður erfitt að halda út fyrstu fimmtán mínúturnar og við verðum að reyna að verjast fyrstu árásun- um og reyna nýta okkur skyndi- sóknirnar.“ Eyjólfur lék til langs tíma með Herthu Berlín og hefur leikið nokkrum sinnum á AOL-vellinum. Völlurinn er að hálfu yfirbyggður og þegar íslenska liðið var á æfingu í gær bergmáluðu köll leikmanna um allan völl. Það má því búast við gríðarlegum hávaða þegar 50 þús- und manns troðfylla völlinn. „Þetta er mikil gryfja og það myndast flott stemmning hér. En það er hægt að nýta sér það í hag og það verða nokkrir Íslendingar hérna. Þannig að það er allt mögu- legt í stöðunni,“ segir Eyjólfur. ■ Gefum okkur alla í leikinn hvað?hvar?hvenær? 8 9 10 11 12 13 14 OKTÓBER Laugardagur Fj ár m ál ar áð st ef n a ÍS Í verður haldin á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 31. október kl. 16:15 - 19:45 Meðal dagskrárliða Rekstur íþróttahreyfingarinnar Gunnar Bragason, formaður Fjármálaráðs ÍSÍ Hvað gengur vel og hvað gengur illa í rekstri okkar Rekstur sérsambanda Rekstur héraðssambanda og íþróttabandalaga Rekstur félaga og deilda Mikilvægi stjórnandans Vilmar Pétursson, M.Sc. UmræðurTekið er við skráningum í síma 514-4000 og á netfangið andri@isisport.is Ráðstefnan er ætluð öllum aðilum íþróttahreyfingarinnar og er aðgangur ókeypis. Fjármálaráðstefna ÍSÍ 2003 Liðurinn Hvað gengur vel og hvað gengur illa í rekstri okkar fer fram í þremur sölum á sama tíma. Þannig geta ráðstefnugestir tekið þátt í þeim efnisþætti er tengist þeim helst og hlýtt á framsögu reyndra aðila úr hreyfingunni. Nánari dagskrá er að finna á www.isisport.is EYJÓLFUR SVERRISSON Spurður hvort það kitli ekki að sjá íslenska landsliðið á æfingu fyrir leik gegn Þjóð- verja sagði Eyjólfur: „Jú, það kitlar þegar ég sé þá spila. Þá langar mig til að taka í bolt- ann. En minn tími er búinn.“ FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir því þýska í dag á AOL-vellinum í Hamborg í undankeppni Evrópumótsins. Leikurinn í dag er einn sá stærsti í íslenskri knattspyrnusögu en í fyrsta skipti getur karlalandslið- ið tryggt sér sæti í lokakeppni stórmóts. Ásgeir Sigurvinsson stýrði ís- lenska landsliðinu á æfingu í gær. Hann býst við gríðarlegri stemmningu hjá þýsku áhorfend- unum í dag en vonast til að geta snúið henni sér í hag. „Það verður gaman að sjá hvernig við komum til með að standa í Þjóðverjum. Umgjörð vallarins er frábær og það má bú- ast við gríðarlegri stemmningu hér. Ég vona svo sannarlega að við náum að sýna okkar rétta andlit og halda hreinu fram í leik- inn og snúa áhorfendum. Þeir hafa ekki mikla þolinmæði ef það gengur ekki hjá liðinu eins og það á að ganga. Flautukonsertarnir hefjast ef ekkert hefur gerst fyrsta hálftímann,“ sagði Ásgeir eftir æfinguna á AOL-vellinum þar sem Fréttablaðið hitti hann að máli. „Þetta verður gríðarlega erfiður leikur fyrir okkur og á brattann að sækja. Við munum gera okkar besta og ef það dugar ekki munum við sætta okkur við það.“ Ásgeir ætlar að stilla upp sama leikkerfi og í síðustu leikj- um, 3-5-2, en ljóst er að nokkrar breytingar verða á liðinu frá því það mætti Þýskalandi í fyrri leik þjóðanna á Laugardalsvelli. Jó- hannes Karl Guðjónsson er í leik- banni og þeir Lárus Orri Sigurðs- son og Heiðar Helguson eru meiddir. Í gær varð ljóst að Pétur Hafliði Marteinsson getur ekki leikið en Hermann Hreiðarsson og Rúnar Kristinsson verða með, en þeir hafa verið tæpir vegna meiðsla. „Það eru menn sem bíða og eru tilbúnir að gefa sig alla í leik- inn og sanna sig,“ sagði Ásgeir aðspurður hver myndi leysa Pét- ur Hafliða af. Þjóðverjar eru í efsta sæti 5. riðils með fimmtán stig. Íslend- ingar eru í öðru sæti með þrettán en Skotar í því þriðja með ellefu. Skotar mæta Litháum í dag. Efsta lið riðilsins tryggir sér sæti á Evrópumótinu í Portúgal á næsta ári. Liðið í öðru sæti lendir í um- spili um laust sæti. Landsliðsþjálfarinn telur lík- legt að Skotar vinni Litháa og ef það gengur eftir þarf íslenska liðið á sigri að halda gegn Þjóð- verjum ætli það sér sæti á Evr- ópumótinu. „Ég tel samt meiri líkur á að Litháarnir hjálpi okkur í annað sætið en að við vinnum sigur á Þjóðverjum,“ sagði Ásgeir Sigur- vinsson, landsliðsþjálfari í knatt- spyrnu. ■ Íslenska landsliðið mætir því þýska í dag. Ein stærsta stund í íslenskri knattspyrnusögu. Möguleiki á sæti á Evrópumótinu. ÍSLENSKA LIÐIÐ Á ÆFINGU Gríðarleg stemmning var hjá íslenska landsliðshópnum á æfingu í gær. Strákarnir okkar mæta þeim þýsku í dag. ÁSGEIR SIGURVINSSON Stýrði íslenska liðinu í gær ásamt Loga Ólafssyni á AOL-vellinum í Hamborg. FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson hefur átt við meiðsli að stríða að undanförnu og hefur ekki leikið með liði sínu Charlton í heilan mánuð. Hann segist þó tilbúinn í slaginn gegn Þjóðverjum. „Við höfum allt að vinna en engu að tapa. Við þurfum að vinna þennan leik - jafntefli eða tap gefur okkur ekkert,“ sagði Hermann eftir æfingu með landsliðinu í gær. „Við verðum fyrst og fremst að ná hörkuleik og góðri stemmningu. Ef við náum góðum leik verðum við sáttir,“ sagði Hermann. Íslenski landsliðshópurinn æfði í gær og virtist sem góð stemmning væri meðal leik- manna. „Það hefur alltaf verið góð stemmning í hópnum frá því ég byrjaði í honum. Nú hefur þetta verið töluvert skemmtilegra enda er það alltaf þegar vel gengur. Þá styðja allir við bakið á okkur og tala um það sem vel gengur og það smitast inn í hópinn,“ sagði Eyjapeyinn að lokum. ■ Hermann Hreiðarsson: Höfum allt að vinna HERMANN HREIÐARSSON „Við þurfum að vinna þennan leik - jafntefli eða tap gefur okkur ekkert,“ ■ ■ SJÓNVARP  11.45 Formúla 1 á RÚV. Upptaka frá tímatöku fyrir kappaksturinn í Japan.  13.00 Samantekt frá Opna breska meistaramótinu í golfi 2003 á RÚV.  14.00 Landsleikur í fótbolta á RÚV. Upphitun fyrir leik Þjóðverja og Ís- lendinga. Bein útsending frá leiknum hefst klukkan 14.50.  15.30 Fastrax 2002 (Vélasport) á Sýn. Hraðskreiður þáttur með ökutæki af öllum stærðum.  17.05 Landsleikur í fótbolta á RÚV. Sýndur verður leikur Skota og Lit- háa.  21.50 Hnefaleikar á Sýn. Útsend- ing frá hnefaleikakeppni í Los Angeles.  05.00 Formúla 1 á RÚV. Bein út- sending frá kappakstrinum í Japan. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.