Fréttablaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar EIRÍKS JÓNSSONAR Gott og vont www.IKEA.is Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IK E 22 46 2 10 .2 00 3 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 3 LUDDE gæra hvít 4.990,- 690,- stk. GOSA KRAMA koddi millistífur 50x50 sm SANNI handklæði 100x150 sm drapplitað 1.490,- WILMA gardína 145x300 sm 2 stk. SOVA koddaver 50x60 sm hvít 2 stk. INDIRA rúmteppi 220x250 sm hvítt 1.990,- POLARVIDE teppi 130x170 sm hvítt 1.290,- TOFTBO baðmotta 65x100 sm 1.250,- 1.490,- 390,- Mundu eftir að stilla vekjaraklukkuna! Hef hugsað um það lengi og lokskomist að niðurstöðu: Fólk er ekki annaðhvort gott eða vont. Það er skemmtilegt eða leiðinlegt. Það var Steingrímur Sigurðsson listmál- ari sem fattaði þetta fyrstur og þá á ég við glóbalt. Hélt fyrst hann væri að rugla en það var öðru nær. Hef sannreynt orð hans á samferðarfólk- inu sem sífellt bætist í lífsgönguna. Blessuð sé minning Steingríms að öðru leyti. SKEMMTILEGUR maður hlýtur að vera góður því honum fylgir birta sem lýsir upp tilveru annarra. Og hvað getur góðmennska verið annað? Engin tilviljun að bjart sé á himnum og myrkur í Helvíti í teiknimynda- sögum. Á sama hátt hlýtur leiðinleg- ur maður að vera vondur því honum fylgir drungi og ládeyða sem dregur okkur niður. Það er neikvætt og bæði illt og vont. GETUR þá skemmtilegur maður ekki unnið illvirki? Tæpast. Eðlislæg gleði stöðvar hann einhvers staðar á leiðinni. Sönnum húmorista kemur ekki hlátur í hug andspænis því nei- kvæða. Hann forðast slíkar aðstæður og tekur sér stöðu með andhverf- unni. Leiðinlegum manni veitist hins vegar auðvelt að gera öðrum grikk. Áttaviti sálar hans vísar yfirleitt norður og niður ef þannig má að orði komast. ÞÁ má spyrja um heiðarleikann. Er skemmtilegur maður heiðarlegri en sá leiðinlegi? Því er til að svara að skemmtilegheit eru í raun viðbót við almenna eðliseiginleika mannsins. Skemmtilegur maður er því þróaðri en sá leiðinlegi hvort sem litið er til lífeðlisfræðinnar eða siðferðis. Hann á því að hafa meiri möguleika og aukið svigrúm til verka . Og þá sér- staklega góðra verka því þroskinn færir hann frá myrkrinu og í átt til ljóssins. AÐ gefnu tilefni skal tekið fram að með skemmtilegu fólki er ekki átt við skemmtikrafta sem sprikla fyrir pening. Heldur hina sem færa okkur gleði með útgeislun, frásögnum, glaðlegu viðmóti og hlýju sem er systir húmorsins. Þar fer góða fólk- ið. Skemmtilega fólkið. Eða einsog Silli & Valdi sögðu: „Af ávöxtunum skulið þið þekkja þá“. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.