Fréttablaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 12
11. október 2003 LAUGARDAGUR taktu eftir... debenhams S M Á R A L I N D fiú verslar fyrir 5.000 kr. í Barnadeild og fær› 1.000 kr. inneign sem gildir í barnadeild ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D EB 2 24 95 10 /2 00 3 Ég tel að óhófleg notkun tölvu-pósts viðgangist á kostnað þess að menn eigi í mannlegum samskiptum sem er ólíkt skyn- samlegri leið og vænlegri til ár- angurs. Og mér virðist í sumum tilvikum tölvupóstssending flótti frá því að horfast í augu við við- mælanda sinn. Tölvupóstur er auðveld leið til að setja fram sín sjónarmið og þurfa ekki að hlusta á það sem aðrir hafa að segja, sem telst nú ekki gott,“ segir Óskar Magnússon forstjóri Og Vodafone. Honum finnst jafnvel koma til greina að banna notkun tölvupósts tímabundið á meðan verið er að ná tökum á notkun- inni. Gengdarlaus misnotkun Gunnar Salvarsson, fyrrum fréttamaður, er nú starfandi hjá Aco Tæknival og hefur skrifað grein á vef tölvufyrirtækisins en tilefnið er tillaga Johns Caudwell hjá símafyrirtækinu Phones 4U um að banna tölvupóst. Caudwell gerir því skóna að starfsmenn fyrirtækis síns verji þremur klukkustundum á dag hver og einn í sýsl við tölvupóst sem að stórum hluta er sendur milli starfsmanna. ATV stóð fyrir skoðanakönnun á Netinu í kjöl- farið og kom þar fram mikil and- staða við hugmyndir um bann eða 86 prósent. Gunnar leitaði álits fjögurra stjórnenda: Bjarna Ár- mannssonar bankastjóra Íslands- banka, Einars Bendiktssonar for- stjóra Olís og Árna Sigfússonar bæjarstjóra Reykjanesbæjar sem allir eru þeirrar skoðunnar að verulegt hagræði felist í notk- un tölvupósts. Óskar tekur hins vegar í sama streng og Caudwell og hafa ýmsir innan tölvugeirans íslenska tekið því óstinnt upp. Og samstarfsmenn Óskars klikka ekki á því að skíra póst þann sem þeir senda foringja sínum eitt- hvað á þessa leið: Hér koma um- beðnar upplýsingar í óþörfum tölvupósti. „Já, það er alveg rétt. Mér hef- ur ofboðið þessi ofgnótt tölvu- pósts. Stundum eru menn að senda tölvupóst milli herbergja í stað þess að koma í gættina. Og þeir hafa tekið þessum skoðunum mínum fremur illa svona netverj- ar, menn sem starfa við tölvur og Netið og skilja mig sem svo að þetta sé atlaga að þeirra starfi. Jafnframt hefur það heyrst að þetta séu sérkennileg sjónarmið forstjóra fjarskiptafyrirtækis. En þetta er mikill misskilningur - gagnsemi tölvupósts er ótvíræð en misnotkunin er engu að síður til staðar,“ segir Óskar sem nú er staddur í Þýskalandi meðal ann- ars til að fylgjast með landsleikn- um við Þjóðverja. Hin fínni blæbrigði Óskar vill meina að tölvupóst- ur geti verið hentugur til styttri skeytasendinga, að boða saman hóp manna til fundar og slíkt en hins vegar hætti mönnum til að nota hann í lengri bréf. „Þegar það svo bætist við að ekki er öll- um jafn lagið að koma frá sér hugsunum á rituðu máli þá getur málið farið að vandast og oft elur þetta beinlínis á misskilningi. Jafnvel færustu rithöfundar þurfa að glíma við þann vanda að geta ekki komið hugsunum sínum sæmilega óbrengluðum á ritað mál og skilur þar oft á milli feigs og ófeigs,“ segir Óskar sem hef- ur ýmislegt út á þetta samskipta- form að setja eins og heyra má. „Svo var nú lengi plagsiður að menn litu á þennan samskipta- máta sem óæðra form bréfa- skrifta, notuðu til dæmis ekki há- stafi, punkta eða kommur ... þetta var oft nánast með öllu óskiljan- legt. Í það minnsta nennti ég ekki alltaf að reyna að stauta mig í gegnum bréf frá ýmsum. En þetta sýnir hugsunarháttinn.“ Óskar segist hafa fengið mik- inn óþarfa tölvupóst, jafnvel svo að líkja megi við plágu. „En það hefur lagast eftir að ég viðraði þessar skoðanir mínar.“ Heyrst hafa þær hugmyndir að Óskar sé ekki með öllu heill hvað þessar skoðanir varðar. Að hann vilji á óbeinan hátt fá menn til að nota síma í stað tölvupósts. „Þetta má heita makleg gagnrýni. En ég var ekki svo frumlegur að átta mig á samhenginu í þessu til- felli. Svo má benda á að ég hef líka gagn af því að menn sendi tölvupóst viðskiptalega. Við hjá Og Vodafone bjóðum uppá slíka þjónustu og erum með marga við- skiptavini sem gera slíkt. Það er mér því ekkert sérstakt keppi- kefli í þeim skilningi að færa menn frá lyklaborðinu og að sím- anum. En ég vil undirstrika að ár- angursríkari samskiptamáti er að menn tali saman, augliti til auglitis eða í síma. Hin fínni blæ- brigði samskipta tapast í tölvu- pósti.“ jakob@frettabladid.is ÓSKAR MAGNÚSSON Hefur horn í síðu þess sem hann kallar óþarfa tölvupóst: Plága og plagsiður var sú bylgja sem gekk, og lýsti hugarfarinu, þegar menn skrif- uðu bréf í tölvupósti og slepptu há- stöfum, punktum og kommum. „Ég nennti ekki að stauta mig í gegnum bréf ýmissa manna.“ Óskar Magnússon forstjóri Og Vodafone hefur tekið undir hugmyndir þess efnis að banna tölvupóst um stundarsakir meðan verið er að ná tökum á ofnotkun þessa samskiptamáta - en því hefur verið haldið fram að starfsmenn eyði allt að þremur klukkustundum í sýsl við tölvupóstinn sinn. Árangursríkari samskiptamáti er að menn tali saman, augliti til auglitis eða í síma. Hin fín- ni blæbrigði samskipta tap- ast í tölvupósti.“ ,, Forstjóra í nöp við tölvupóst FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.