Fréttablaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 14
Nú þegar „tortímandinn“, kvik-myndastjarnan og kraftajöt- uninn Arnold Schwarzenegger hef- ur verið kjörinn ríkisstjóri í Kali- forníu eru margir að velta því fyr- ir sér hvort „stjörnur“ búi yfir ein- hverjum hæfileikum sem geri það af verkum að stjörnuljómi fylgi þeim upp á þungbúinn himin stjórnmálanna. Allir muna eftir því að Ronald Reagan vann mikinn sigur í fylkisstjórakosningum ein- mitt þar, og embætti ríkisstjóra varð síðan stökkpallur hans í sjö- unda himin bandarískra stjórn- mála, forsetaembættið og Hvíta húsið. Vinnusemi, staðfesta, sigurvilji En það er ekki einungis Ron- ald Reagan sem komið hefur úr stjörnufansi afþreyingariðnaðar- ins inn í stjórnmálin. Leikararnir Clint Eastwood og Charlton Heston hafa verið kosnir til trún- aðarstarfa í Bandaríkjunum, sem og söngvarinn Sonny Bono. Á vefsetri breska ríkisútvarpsins birtust nýverið vangaveltur um Arnold Schwarzenegger í þessu samhengi. Arnold er holdtekja „ameríska draumsins“; draumsins um það hvernig vinnusemi, staðfesta og viljinn til að vinna getur lyft manni í sigurhæðir. Arnold var orðinn milljónamæringur aðeins 22 ára. Hann hefur reynslu úr viðskiptalífinu, hefur stjórnað póstsölufyrirtæki sínu sem selur líkamsræktarvörur í langan tíma og sýnt af sér þá kænsku og kunnáttu í viðskiptum sem til þarf. Schwarzenegger er heldur ekki algjör nýgræðingur á sviði opinberra mála, því að fyrir 13 árum gerði George Bush eldri, sem þá var forseti Bandaríkj- anna, Arnold að formanni Íþrót- ta- og heilbrigðisráðs landsins, þar sem hann barðist m.a. við vaxandi offituvanda þjóðarinnar. Forskot á keppinautana Að sögn Philips Davies sem er prófessor í bandarískum fræðum við De Montfort-háskólann í Leicester í Bretlandi hafa fram- bjóðendur í stjórnmálum sem vanir eru að standa frammi fyrir myndavélum umtalsvert forskot á keppinauta sína. „Í Bandaríkj- unum er stjórnmálabarátta í vax- andi mæli háð frammi fyrir sjón- varpsmyndavélum og frægt fólk með reynslu á þessu sviði getur sýnt meiri „einlægni“ í miðlinum heldur en viðvaningar,“ segir prófessorinn og bætir því við að Reagan og Schwarzenegger hafi sýnt og sannað að yfirgripsmikil þekking á stefnumálum sé óþörf til að ná árangri í stjórnmálum. „ S t e f n u y f i r l ý s i n g a r Schwarze-neggers hafa í besta falli verið almenns eðlis, og hann virðist hafa tileinkað sér þá að- ferð Reagans að mála stöðuna með breiðum pensli. Reagan hafði mjög ljósar skoðanir sem skírskotuðu til kjósenda og marg- ir studdu, en síðan eftirlét hann starfsliði sínu að hrinda þessum skoðunum í framkvæmd. Schwarzenegger hefur sömu- leiðis góða yfirsýn í stórum dráttum, en hins vegar virðist hann ekki hafa það á hreinu hvernig hann vill láta fram- kvæma hlutina.“ Getan til að fanga athygli Thomas Mann, stjórnmála- fræðingur frá Brookings-stofn- uninni í Washington segir að stjörnur frá Hollywood hafi getu til þess að fanga athygli fjölmiðla og athygli fólks sem yfirleitt fyl- gist ekki náið með stjórnmálum. Hann segir að þessi geta til að draga að sér athygli sé hins veg- ar enginn mælikvarði á getu við- komandi til að leysa vandamál. Um Schwarzenegger segir Thom- as Mann: „Hann hefur hvorki þróað með sér stjórnmálalega né heimspekilega afstöðu. Aðalhvati hans á stjórnmálasviðinu er sókn eftir völdum.“ Það er ekki einungis í Banda- ríkjunum sem frægt fólk hefur komist til áhrifa í stjórnmálum. Í Bretlandi má benda á hinn heims- fræga hlaupara Sebastian Coe, leikkonuna Glendu Jackson og sjónvarpsmanninn Giles Brandreth sem öll komust á þing. Að treina sér frægðina Prófessor Davies segir að sumt frægt fólk hafi raunveru- legar hugsjónir og stefnumál í stjórnmálum, en annað vilji framlengja frægðarferil sinn og sjái stjórnmálin sem leið til að halda sér í sviðsljósinu. „Stjörn- ur eru vanar því að þurfa að taka ákvarðanir. Þetta fræga fólk hef- ur þrek til að lifa lífi í hringiðu fjölmiðlaumfjöllunar og al- mennrar athygli, og kann þrátt fyrir það að líta út fyrir að vera sallarólegt.“ Hin ytri rósemi sem Schwarzenegger hefur tamið sér hefur örugglega reynst honum vel á endaspretti kosningabarátt- unnar, og sennilega reyna næstu mánuðir rósemi kappans til hins ýtrasta. thrainn@frettabladid.is ■ Nafnið mitt Arnold Schwarzenegger er ekki eina stjarnan sem náð hefur frama í pólitík í Bandaríkjunum. Eins og stjórnmál eru þar í landi þykir ekki slæmt að hafa reynslu fyrir framan myndavélina. Arnold fetar í fótspor manna eins og Ronald Reagans og Clint Eastwood. Stjörnur í stjórnmálum ARNOLD SCHWARZENEGGER Nýkjörinn fylkisstjóri Kaliforníu. „Hann hefur hvorki þróað með sér stjórnmálalega né heimspekilega afstöðu. Aðalhvati hans á stjórnmálasviðinu er sókn eftir völdum,“ segir Thomas Mann stjórnmálafræðingur hjá Brookings stofnuninni í Washington. Í Bandaríkjunum er stjórnmálabarátta í vaxandi mæli háð frammi fyrir sjónvarpsmyndavélum og frægt fólk með reynslu á þessu sviði getur sýnt meiri „einlægni“ í miðlinum en viðvaningar. ,, Ég heiti Bjartmar eftir Bjart-mari Jónssyni bónda á Steina- borg á Berufjarðarströndinni en þar stóð uppeldisheimili föður míns sem launaði Bjartmari upp- eldið með því að nefna drenginn sinn eftir honum.“ Þannig svarar tónlistarmaðurinn Bjartmar Guð- laugsson spurningunni: Hvers vegna heitir þú Bjartmar? Bjartmar hefur ekki kynnt sér merkingu nafns síns en rámar í að hafa einhvern tíma verið upp- lýstur um að það merki sólstafi á sjó. „Það er sjórinn - marinn. Þetta er einhvers konar indíána- nafn. Bjartur sjór. Mér fannst þetta mjög stórt nafn þegar ég var lítill og horaður drengur. Mér fannst Bjartmar Guðlaugsson einhvern veginn betur hæfa presti en litlum dreng. Séra Bjartmar Guðlaugsson þjónar fyrir altari. Ég tók hins vegar ekki stefn- una á prestinn, var svo ungur þegar ég byrj- aði að syndga að það var einhvern veginn aldrei inni í mynd- inni.“ Annað sem plagaði Bjartmar unga í tengslum við nafnið, fyrir utan hversu fáránlegt það var á pasturlítinn pottorm, var hversu fáir báru nafnið. Hann vissi um Bjartmar Guðmundsson frá Sandi alþingismann en svo hafa fleiri komið fram í dagsljós- ið og Bjartmörunum fjölgað. „Svo var nafnið mitt aldrei stytt né hengt við það viðurnefni. Mér fannst miklu meira kúl að heita Daddi, Gunni eða Dóri í gamla daga. En ég er algerlega horfinn frá þeirri skoðun í dag.“ Já, Bjartmar litli óx upp í nafnið með árunum, fitnað vel útí það og hækkaði. „Og svo hjálpaði það mér þegar ég fór útí brans- ann að vera með þetta fágætt nafn. Ég vissi að það kæmi að notum einn góðan veð- urdag og er mjög sáttur við nafnið núna.“ ■ Sólstafir á sjó BJARTMAR GUÐLAUGSSON „Mér fannst Bjarmar Guðlaugsson ein- hvern veginn betur hæfa presti en litlum dreng. Séra Bjartmar Guðlaugsson þjónar fyrir altari.“ 14 11. október 2003 LAUGARDAGUR Fjandinn virðist vera hlaupinní Dani. Prestar dönsku kirkj- unnar fá sífellt fleiri fyrirspurn- ir frá fólki sem óskar eftir því að þeir reki burt djöfla eða illa anda sem hafa tekið sér bólfestu í manneskjum. Þetta kemur fram í grein sem Jens Ejsing skrifaði nýverið í danska blaðið Berlinske Tidende. Skrattinn og árar hans virðast í vaxandi mæli læsa klónum í saklausar danskar sálir, ef marka má hina vaxandi eftirspurn, sem prestar hafa orðið varir við, eftir aðstoð frá fólki sem er sannfært um að illir andar hafi sest að í umhverfi þess eða jafnvel lagt undir sig mannssálir. Illir andar úr sjónvarpi Séra Ole Skjerbæk Madsen segir að hann sé oft í viku beðinn um að koma fólki til hjálpar sem vill að hann reki burt illa anda. „Fólk lítur ekki lengur á það sem óeðlilegt þótt því finnist eitthvað illt vera á sveimi í námunda við sig,“ segir hann og bætir við að vaxandi ótti fólks við að lenda í klóm illra afla stafi meðal annars af því að sjón- varpsefni fjalli í vaxandi mæli um yfirnáttúrlega hluti. Erik Hviid Larsen sóknar- prestur við Betlehemskirkjuna í Kaupmannahöfn segir frá því að tveir til þrír aðilar leiti til kirkj- unnar í hverri viku og biðji um aðstoð við að reka út illa anda. „Ég giska á að ég reki burt 25-50 djöfla á ári,“ segir hann og telur að í Kaupmannahöfn sé að finna um það bil 25 þjóðkirkju- presta sem taki að sér að fást við illa anda. Sálfræðileg vandamál - ekki máttur myrkranna Séra Ole Skjerbæk Madsen segir að eftirspurnin eftir að prestar komi á staði til að taka að sér fyrirbænir og særingar sé orðin svo mikil að hann og marg- ir aðrir prestar séu að velta því fyrir sér að setja á fót sérstaka símaþjónustu fyrir fólk sem þarf á slíkri fyrirgreiðslu að halda. „Í mörgum tilvikum kemur í ljós að vandamál fólksins eru fremur af sálfræðilegum toga en að þau stafi af völdum myrkra afla.“ Séra Jens Barfod sem er stjórnarmaður í danska prestafé- laginu og sóknarprestur í Gråsten hefur persónulega ekk- ert á móti því að ákveðnir prest- ar taki að sér að hjálpa fólki sem telur sig vera andsetið. „En það gerir þá ekki að betri prestum,“ segir Jens Barfod sem ekki trúir á skrattann, né heldur ára og djöfla sem raunveruleg fyrir- bæri, heldur segir hann að „illsk- an sé eitthvað í manneskjunni“. Ný skilgreining á dulræn- um upplifunum Það breytir því ekki að mun fleiri Danir en nokkru sinni fyrr leita um þessar mundir til sálu- sorgara sinna og biðja um aðstoð þeirra við að reka út djöfla og illa anda. „Þetta er nokkuð sem hefur farið ört vaxandi á seinni árum,“ segir séra Erik Hviid Larsen sem þó er ekki þeirrar skoðunar að djöflar séu teknir að leika lausum hala í dönsku samfélagi, en hann er þeirrar skoðunar að hinir ýmsu sjón- varpsþættir um yfirnáttúrleg efni hafi valdið því að fólk sé farið að skilgreina á þennan hátt ýmiss konar dulrænar upplifan- ir sem það verður fyrir. ■ Prestar í Danmörku fá sífellt fleiri beiðnir um að reka út illa anda. Fjandinn hleypur í Dani ÚR EXORCIST Sífellt fleiri Danir leita aðstoðar presta til að hrekja út illa anda. Draugalegt sjónvarpsefni er meðal þess sem kennt er um. FRÉTTABLAÐIÐ/BILLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.