Fréttablaðið - 11.10.2003, Page 15
LAUGARDAGUR 11. október 2003 15
Opið frá kl. 12–16 laugardaga
Komdu og reynsluaktu
Mazda6
Kynnstu af eigin raun hvað það er sem heillar bílaáhugafólk um víða veröld
við Mazda6. Og svo er verðið miklu hagstæðara en ríkulegur búnaður bílsins
gefur til kynna.
Mazda6 fæst fernra og fimm dyra, sem skutbíll eða sportbíll, með
bensín- eða dísilvél, beinskiptur eða sjálfskiptur, framhjóladrifinn
eða fjórhjóladrifinn með eða án sóllúgu og eingöngu fáanlegur
í fallegum litum.
Sá sem er í mestu uppáhaldi hjámér í dag heitir Grigory
Aleksandrovich Potemkin. Ég var
að lesa ævisögu hans eftir gagn-
merkan sagnfræðiprófessor,
Simon Sebag-Montefiore, sem
einnig hefur skrifað mjög merki-
lega bók um Jósep Stalin og er
mjög umtöluð núna,“ segir Har-
aldur Blöndal hæstaréttarlögmað-
ur um mann sem er að hans skapi.
Potemkin-tjöld misskilingur
„Potemkin var rússneskur
fursti, ástmaður Katrínar miklu,
og að öllum líkindum eiginmaður
hennar. Hann var afburða herfor-
ingi sem skóp Svartahafsflota
Rússa og lagði undir sig keisara-
dæmið Krímskaga og syðstu ríki
Rússneska keisaradæmisins.
Hann var óhemju mikill athafna-
maður og stofnaði hverja borgina
á fætur annarri. Dó aðeins 52 ára gamall,“ segir Haraldur sem
aldrei hefur til Rússlands komið
og ekki lagt lykkju á leið sína sér-
staklega til að kynna sér manninn
sem nýtur aðdáunar hans nú um
stundir. Helst er á honum að
heyra að honum þyki vitneskja
Vesturlandabúa um þetta mikil-
menni af skornum skammti.
„Þeir þekkja hann aðeins af
hinum svokölluðu Potemkin-tjöld-
um. Menn trúðu ekki sögunum um
uppbyggingu þá sem Potemkin
stóð fyrir og héldu því fram að
hann hefði sýnt Katrínu miklu
leiktjöld þegar hún heimsótti
Krímskagann. Svo var ekki.“
Haraldur heldur áfram að lýsa
kostum Potemkins sem hann segir
mann umbóta og mannúðar. „Já,
þó hann væri Rússi. Hann var
óvenju vel lesinn, talaði fjölda
tungumála; grísku, latínu, ensku,
frönsku og líkast til þýsku einnig.
Þau Katrín mikla skrifuðust á
nánast á hverjum degi. Ef málefn-
in voru prívat skifuðu þau frön-
sku. En ef það varðaði ríkismál-
efni þá var það rússneskan.“
Vildi leysa veldi
Ottómana upp
Sem dæmi um fjölhæfni
Potemkins og hversu víða hann
kom við á tiltölulega stuttri ævi
nefnir Haraldur að hann hafi haf-
ið silkirækt, vínrækt og kartöflu-
rækt á Krímskaga. „Það má segja
að þannig sé hann eins konar
Björn í Sauðlauksdal þeirra
Rússa.“
Og Haraldur heldur áfram og
segir bók Sebag-Montefiore stór-
kostlega bók um stórkostlegan
mann sem Vesturlandabúar viti
alltof lítið um. „Hugsjón hans var
að leysa Ottómanaheimsveldið
upp, stofna kristið heimsveldi
með Konstanstínópel sem höfuð-
borg. Konstantín, sonarsonur
Katrínar miklu, átti að verða keis-
ari. Því miður komu skammtíma-
sjónarmið Breta, Frakka, Prússa
og Svía í veg fyrir að þetta úrsér-
gengna heimsveldi múhameðstrú-
armanna yrði limað sundur. Hann
hafði einnig hugsað sér að Gyð-
ingar fengju aftur Jerúsalem. Lík-
legast fyrstur til að hugsa eftir
þeim leiðum.“
jakob@frettabladid.is
■ Maður að mínu skapi
Björn í Sauðlauks-
dal þeirra Rússa
POTEMKIN (1739-1791)
Var talinn best hærður Rússa. Ótrúlegur af-
reksmaður að mati Haraldar Blöndal en
Vesturlandabúar þekkja því miður lítið til
hans, eina sem þeir hugsanlega þekkja eru
Potemkin-tjöldin.
HARALDUR BLÖNDAL
Rússinn Potemkin er sá sem lögmaðurinn
hefur helst í hávegum þessa dagana enda
afrek þessa skammlífa herforingja margvís-
leg. Því miður komst Potemkin ekki til
þess að lima sundur hið úrsérgengna
heimsveldi múhameðstrúarmanna.
Sölustríð með miklum auglýs-ingum er skollið á í Bretlandi
milli eggjaframleiðenda annars
vegar og kartöflubænda hins veg-
ar. Bretar hafa til þessa verið
stórtækar kartöfluætur, en nú
hafa kartöflubændur áhyggjur af
því að Bretar muni fara að dæmi
Bandaríkjamanna sem hafa dreg-
ið úr jarðeplaneyslu sinni um heil
10% að undanförnu. Þetta er ekki
síst vegna áhrifa frá svonefndum
Atkins-megrunarkúr, sem hefur
hina kolvetnaríku kartöflu á bann-
lista, en dásamar egg. Verslana-
keðjur eru farnar að miða vöruút-
stillingar sínar við þá staðreynd
að fjölmargir neytendur leggja nú
stund á kúrinn, kartöflufram-
leiðendum til mikils ama. ■
Atkins-kúrinn:
Kartöflur
víkja fyrir
eggjum
KARTÖFLUR
Ein afleiðing þess hvað Atkins-megrunar-
kúrinn er vinsæll er að kartöfluneysla
dregst saman, en eggjaneysla rýkur upp.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI