Fréttablaðið - 11.10.2003, Page 18
Bókaútgáfan Hólar sendir frásér fjölmargar bækur fyrir
jólin. Af barnabókum útgáfunnar
má nefna Bestu barnabrandar-
arnir - sjúklega fyndnir, en þetta
er áttunda bókin í þeim flokki og
eru flestir af hinum titlunum upp-
seldir. Þá er það Spurningabókin
2003 sem er nokkurs konar fjöl-
skyldubók. Í bókaflokknum Ævin-
týri Nonna er komið að bókinni Á
Skipalóni, en hún segir frá bar-
áttu Nonna upp á líf og dauða við
þær óhugnalegu skepnur sem ís-
birnir eru. Nonnabókina prýða
framúrskarandi myndir Kristins
G. Jóhannssonar. Og útgefendur
segja myndir Rúnu Gísladóttur í
ævintýrabók hennar, Allan ársins
hring, vera frábærar, en bókin
fræðir börn á skemmtilegan hátt
um mánuðina og ýmsa siði sem
þeim tengjast. Þá er það græn-
lenska ævintýrið Anngannguujuk
eftir H. C. Petersen, í þýðingu
Hjörleifs Hjartarsonar, en það
segir frá ungum dreng sem er
rænt og leit föður hans að þessum
týnda syni sínum. Ennfremur er
komin út bókin Hvar er Valli? í
þýðingu Ólafs Víðis Björnssonar.
Unglingarnir fá síðan hina mergj-
uðu bók Drakúla eftir Bram
Stoker í þýðingu Þorsteins Gunn-
ars Jónssonar.
Gamansögur og dulræn efni
Guðjón Ingi Eiríksson og Jón
Hjaltason hafa umsjón með bóka-
útgáfu Hóla og saman hafa þeir
sent frá sér fjölda gamansagna-
bóka. Níunda bókin kemur út í ár
og heitir Afsakið hlé. Hún inni-
heldur gamansögur af fjölmiðla-
mönnum þessa lands; mismælum
þeirra, hrekkjum, vankunnáttu og
eflaust einhverju fleiru.
Lyginni líkast í ritstjórn Jóns
Hjaltasonar inniheldur sögur af
íslenskum ýkjumönnum sem
sögðu sögur af sömu list og sjálf-
ur Münchausen. „Lygilega góð
bók,“ segir útgefandinn Guðjón
Ingi. Jón stendur einnig að baki
bókarinnar Heimskupör og trú-
girni sem fjallar um mistök, trú-
girni og klúður, jafnt Íslendinga
sem annarra jarðarbúa. Þá er það
bókin Lífsspeki, en eins og nafnið
bendir til þá fjallar hún um það
sem gerir lífið þess virði að því sé
lifað.
Í bókinni Hvað segir þitt hjar-
ta? opnar Þórhallur Guðmunds-
son miðill hjarta sitt fyrir lesend-
um, segir frá því sem gerist á
miðilsfundum, hvað dauðinn feli í
sér, hvað bíði okkar hinum megin
og hvernig við eigum að takast á
við sorgina.
Ástir Gríms Thomsen
Lífsþorsti og leyndar ástir eftir
Kristmund Bjarnason bregður
upp svipmyndum úr lífi Gríms
Thomsen og nokkurra samferðar-
manna hans. Í þessari bók er hann
viðkvæmur elskhugi óhemjunnar
frá Fredericia, Magdalenu Krag.
Þau eignast barn saman en halda
því leyndu. „Þetta er bók sem
kemur mjög á óvart og varpar
nýju og óvæntu ljósi á þjóðskáld-
ið,“ segir Jón Hjaltason, fram-
kvæmdastjóri Hóla.
Bylting í sjávarútvegi Íslend-
inga á öndverðri 20. öld er við-
fangsefni dr. Jóns Þ. Þór í 2. bindi
Sögu sjávarútvegs á Íslandi sem
spannar árin 1902 til 1939. „Jón Þ.
Þór hefur dregið að sér gríðarleg-
an fróðleik um allar hliðar útgerð-
ar á Íslandi sem hann tvinnar
saman af þekkingu og lipurð svo
úr verður öndvegisrit,“ segir Guð-
jón Ingi.
Skáldverk og ljóðabækur
Eitt skáldverk kemur út hjá
Bókaútgáfunni Hólum fyrir jól-
in. Það er Leiðin til Jerúsalem
eftir Jan Guillou í þýðingu Sig-
urðar Þórs Salvarssonar. Bókin
hefur verið á toppi metsölulista í
Noregi, Danmörku og Svíþjóð, en
í síðastnefnda landinu hafa selst
yfir 600.000 eintök af henni. Hún
gerist á 12. öld og segir sögu hins
sænska Árna Magnússonar sem
elst upp í klaustri undir handar-
jaðri vopnfimasta krossfarans.
Bókaútgáfan Hólar gefur út
þrjár ljóðabækur á næstunni.
Austfirsk skemmtiljóð, í saman-
tekt Ragnars Inga Aðalsteinsson-
ar, inniheldur eins og nafnið
bendir til skemmtilegan kveð-
skap sem á rætur að rekja til
Austurlands. Stef úr steini er af-
mælisrit til heiðurs séra Jóni
Bjarman, fyrrum fanga- og
sjúkrahússpresti. Ritið inniheld-
ur áður óbirt ljóð Jóns og nokkr-
ar ljóðaþýðingar hans. Blíðsum-
ars nætur, skagfirsk úrvalsljóð
II, er framhald bókarinnar Undir
bláhimni. Bjarni Stefán Kon-
ráðsson frá Frostastöðum tók
saman og valdi til birtingar skag-
firskar ljóðaperlur eftir sýsl-
unga sína, lífs og liðna, og hafa
flest ljóðanna ekki birst á prenti
fyrr.
kolla@frettabladid.is
18 11. október 2003 LAUGARDAGUR
VANSÆMD
eftir J.M. Coetzee
Hinn nýbakaði Nóbelsverð-
launahafi J.M. Coetzee er vel að
heiðrinum kominn því hann er
stórgóður höfundur. Hann fékk
Booker-verðlaunin árið 1999 fyrir
Vansæmd sem kom út árið 2000
hjá Bjarti og stingur nú upp koll-
inum á metsölulistum vikunnar
hér á landi. Í bókinni segir frá há-
skólaprófessor sem hefur sér-
kennileg viðhorf til kvenna og eft-
ir að hafa lent í hneykslismáli
leitar hann athvarfs hjá dóttur
sinni sem býr í uppsveitum Suð-
ur-Afríku. Feðginin verða þar fyr-
ir árás sem breytir lífi þeirra og
hugmyndum prófessorsins. Vel
skrifuð bók og áhrifamikil og á
köflum ansi grimm
METSÖLU-
LISTI
BÓKABÚÐA
MÁLS OG
MENNINGAR
Allar bækur
1. Burt með verkina. Chris McLaughlin
2. Vansæmd. J.M. Coetzee
3. Vín. Þorri Hringsson
4. Supersex. Tracey Cox
5. Óvinurinn. Emmanuel Carrére
6. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason
7. Röddin. Arnaldur Indriðason
8. Sagan af Pí. Yann Martel
9. Andvökuskáld - Viðar Hreinsson
10. Ensk - íslensk skólaorðabók. Mál
og menning
Skáldverk
1. Vansæmd. J.M. Coetzee
2. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason
3. Röddin. Arnaldur Indriðason
4. Sagan af Pí. Yann Martel
5. Rokkað í Vittula. Mikael Niemi
6. Reisubók Guðríðar Símonardóttur.
Steinunn Jóhannesdóttir
7. Skuggaleikir. Jose Carlos Samoza
8. Ár hérans. Arto Paasilinna
9. Elling - Paradís í sjónmáli. Ingvar
Ambjörnsen
10. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason
METSÖLUBÆKUR BÓKABÚÐA MÁLS OG MENNINGAR
1. - 7. OKTÓBER
METSÖLU-
LISTI
BÓKABÚÐA
EYMUNDS-
SONAR
Allar bækur
1. Vín. Þorri Hringsson
2. Supersex. Tracey Cox
3. Stjórnun á tímum... Þórður Víkingur
Friðgeirsson
4. Skuggaleikir. Jose Carlos Somoza
5. Röddin. Arnaldur Indriðason
6. Mýrin. Arnaldur Indriðason
7. Dagbók barnsins. Setberg
8. Burt með verkina. Chris McLaughlin
9. Leiðin til lífshamingju. Dalai Lama
10. Vansæmd. J.M. Coetzee
Skáldverk
1. Skuggaleikir. Jose Carlos Samoza
2. Röddin. Arnaldur Indriðason
3. Mýrin. Arnaldur Indriðason
4. Vansæmd. J.M. Coetzee
5. Synir duftsins. Arnaldur Indriðason
6. Sagan af Pí. Yann Martel
7. Elling - Paradís í sjónmáli. Ingvar
Ambjörnsen
8. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason
9. Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð. Arto
Paasilinna
10. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA EYMUNDSSONAR
1. - 7. OKTÓBER
■ bækur
Ég á auðveldast með að festamig við bækur sem fjalla
annaðhvort um einhver fræði
eða þjóðfélagið eins og það er í
dag, en er aftur slakari við að
lesa skáldskap og fagurbók-
menntir,“ segir Birgir Guð-
mundsson stjórnmálafræðingur
um lesefni sitt undanfarið „Ég lét
mig hafa það á sínum tíma að
hraðlesa Höfund Íslands eftir
Hallgrím Helgason. Sú bók er
raunar ennþá á náttborðinu hjá
mér því ég dunda mér oft við að
lesa úr henni síðu og síðu svona
bara til að smjatta á orðalagi og
stíl Hallgríms. Það er alveg
merkilegt hvað ekki eldri maður
hefur gott vald á málinu og fjöl-
breyttan orðaforða. Kannski er
það ástæðan fyrir því hve lengi
og seint mér gengur að lesa fag-
urbókmenntir, að ég freistast iðu-
lega til að staldra við og margle-
sa setningar og
kafla sem mér
þykja vel
skrifaðir. Það er nánast eins og
að lesa ljóð, en ég á það einmitt til
að taka skorpur í því að lesa ljóð.
Þessa dagana er ég búinn að
vera að glugga dálítið í Davíð
Stefánsson í kjölfar þess að
Hjálmar Jónsson dómkirkju-
prestur fór með fallegt ljóð eftir
hann í útför ömmu minnar fyrir
stuttu. Ég fletti að gamni upp
kvæðinu á eftir og hef síðan stað-
ið fyrir nokkrum davíðskum
ljóðakvöldum einn með sjálfum
mér fyrir háttinn. Ég var lengi
með hálfgerða fordóma gagnvart
Davíð og las hann lítið, en eftir að
ég flutti norður til Akureyrar og
ég fór meðal annars að syngja
ljóð hans í kór og kynnast honum
meira, breyttist afstaða mín al-
gerlega til hans.“ ■
BIRGIR GUÐMUNDSSON
„Það er ekki langt síðan ég datt í bækurnar
hans Arnalds Indriðasonar og las þær í einum
rykk. Leynilögreglumaðurinn Erlendur náði
mér alveg.“
Bókaútgáfan Hólar sendir frá sér fjölmargar bækur fyrir þessi jólin og kennir þar ýmissa grasa.
Lygasögur og sannleikur
Davíðsk ljóðakvöld
„Ég freistast iðulega
til að staldra við og
marglesa setningar og kafla
sem mér þykja vel skrifaðir.
Það er nánast eins og að
lesa ljóð.“
,,
ÞÓRHALLUR GUÐMUNDSSON MIÐILL.
Skrifar um dulræn efni í bókinni Hvað segir þitt hjarta?
Dætur Kína - bældarraddir eftir Xinran,
kemur út seinna í þessum
mánuði hjá JPV útgáfu.
Bókin er metsölubók víða
um heim og selst til dæm-
is eins og heitar lummur
á Amazon-vefnum þessa
dagana.
Í bókinni er að finna
sannar frásagnir um líf
kvenna í Kína og jafn-
framt er þetta saga Xinr-
an sjálfrar. Xinran er
fædd árið 1958. Kínversk
stjórnvöld létu taka hana
frá foreldrunum þegar
hún var eins mánaða og
hún ólst upp hjá ömmu
sinni og sá móður sína ekki fyrr
en hún var fimm ára gömul.
Skömmu seinna voru foreldrar
hennar handteknir fyrir landráð
og sjálf eyddi hún næstu fimm
árum, ásamt bróður sínum, í skóla
fyrir „menguð“ börn. Sem ung
kona sá Xinran í átta ár um út-
varpsþátt þar sem konur hringdu
inn og sögðu sögu sína. Xinran
hefur sagt í viðtali að á þessum
árum hafi hún vaknað upp um
nætur eftir martraðir um sögur
kvenna og æsku sína. Árið 1997
var svo komið að hún þurfti að
taka átta svefntöflur til að geta
sofnað. Þetta var ein
ástæða þess að hún
ákvað að flytja frá
Kína en hún býr nú í
London ásamt seinni
eiginmanni sínum sem
er breskur.
Dætur Kína - bæld-
ar raddir byggir á frá-
sögnum kínverskra
kvenna sem bæði skrif-
uðu Xinran og hún hitti
á ferðum sínum um
Kína. Þær segja frá of-
beldi, skipulögðum
hjónaböndum, aðskiln-
aði frá börnum og fá-
tækt og allsleysi. Xinr-
an segir að við gerð
bókarinnar hafi hún orðið að berj-
ast við fordóma fólks, bæði karla
og kvenna, sem álitu að konan
væri eign karlmannsins og að það
væri ekki við hæfi að ræða við
konur um frelsi, menntun og
fleira. Það var ekki óalgengt að
Xinran fengi bréf sem innihéldu
hnífa og byssukúlur.
Rithöfundurinn Amy Tan hefur
sagt um þessa bók Xinran: „Þess-
ar sögur verða allir að lesa. Lífs-
saga þessara ónafngreindu kven-
na er svo áhrifamikil að mér
fannst ég ekki vera söm þegar ég
var búin með bókina.“ ■
DÆTUR KÍNA -
BÆLDAR RADDIR
Þessi áhrifamikla bók
um líf kvenna í Kína er
væntanleg seinna í
þessum mánuði hjá JPV
útgáfu.
Reynsluheimur
kínverskra kvenna
GRÍMUR THOMSEN.
Kristmundur Bjarnason bregður upp svip-
myndum úr lífi Gríms Thomsen í nýrri bók.
JÓN SVEINSSON. „NONNI“.
Bók hans á Skipalóni kemur út
fyrir þessi jól.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M