Fréttablaðið - 11.10.2003, Side 32
FÓLK Tónlistarmaðurinn Sting tók
við heiðursorðu úr höndum
Elísabetar Bretlandsdrottningar í
gær. Hann segir þetta mikinn heið-
ur og viðurkenningu á tónlist hans
í heimalandinu.
„Ég ímyndaði mér aldrei þegar
ég lagði af stað frá Newcastle með
gítar og poka fullan af lögum að ég
myndi enda í Buckinghamhöll,“
segir Sting. „Þetta eru tímamót
fyrir mig og viðurkenning á tónlist
minni. Ég hef alltaf álitið að ég sé
fulltrúi Bretlands í heiminum.“
Sting segist líka vonast til þess
að drottningin hlusti á tónlist hans
í framtíðinni.
„Það kæmi mér mjög á óvart ef
hún þekkti tónlistina mína. Ég veit
að Karl Bretaprins hlustar á hana,
en maður lifir alltaf í voninni.“
Þegar kom að því að veita Sting
heiðursorðuna var hann kallaður
upp með réttu nafni sínu, Gordon
Sumner.
„Ég var örlítið utan við mig og
spenntur. Ég var líka mjög stress-
aður. Ég hafði aldrei hitt drottning-
una áður. Þetta var svolítið eins og
að vera í draumi.“ ■
32 11. október 2003 LAUGARDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
Íbúum starfssvæðis Heilsugæslunnar Seltjarnarnesi
er boðið upp á influensubólusetningar
fimmtud. 16. október og föstud. 17. október
kl. 14:00 - 16:00 báða dagana.
Gengið er inn gegnt Valhúsaskóla.
Starfsfólk Heilugæslunnar Seltjarnarnesi
Influensusprauta
Heilsugæslunni Seltjarnarnesi
við Suðurströnd, Seltjarnarnesi. Sími 561-2070.
Heilsugæslan www.hr.is
Já, strákar mínir!
ÉG er búinn
með þetta!
Nick Rivers: I’m sorry, I don’t knowany German. (eftir að veitingar-
stúlkan spyr hann spurningar á þýsku)
Hillary Flammond: I know a littleGerman. He’s sitting over there.
(bendir á dverg klæddan austurríska
þjóðbúningnum sem veifar á móti)
- Bandaríska rokkstjarnan Nick Rivers, sem leikinn
var af Val Kilmer, kynnist Hillary Flammond á veit-
ingastað í Berlín í hinni sprenghlægilegu mynd Top
Secret! frá árinu 1984.
Bíófrasinn
TOP SECRET!
B Í Ó
tillitsemiogviðkvæmnifyrirTími
STING
Hefur kannski ekki fengið góða
dóma fyrir nýju plötuna, en fékk
þó heiðursorðu í skammarverð-
laun og virðist sáttur við það.
Sting fær
heiðursorðu