Fréttablaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 11.10.2003, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 11. október 2003 RAFLAGNA ÞJÓNUSTA RAFSÓL Skipholti 33 • 105 Reykjavík Sími: 553 5600 E i n n t v e i r o g þ r í r 2 6 6 .0 0 2 lögg i l tu r ra fverk tak i Mexíkóskur maður sem lagðurvar inn á spítala með skotsár á hálsi og baki heldur því fram að hundurinn sinn hafi skotið sig. Juan Evangelista, 22, frá Yucatan, sagði læknum spítalans að hann hefði verið fyrir utan heimili sitt þegar hann varð fyrir skotinu. Hann segist hafa snúið sér við og séð hund sinn halda á byssunni í kjafti sér. „Ég veit ekki hvað gerðist,“ sagði Juan í viðtali við vefsvæðið las Ultimas Noticias. „Eina mínút- una erum við að leika okkur og þá næstu var hann með byssu í munninum. Þessi hund- ur er besti vinur minn“. Talsmaður lögregl- unnar segir söguna eina þá lygilegustu sem hann hafi heyrt í starfi sínu. „En við höfum samt enga ástæðu til þess að halda að maður- inn sé að ljúga. Það virðist vera að hundur- inn hafi einhvern veg- inn náð að skjóta byss- unni, en hvað eigum við að gera? Handtaka hundinn?“ Juan er búinn að fyrirgefa hundi sínum og hefur alls ekki í hyggju að láta lóa greyinu, þrátt fyrir skotárásina. Slík er vinátta þeirra, ef þetta hefði verið konan hans, þá væri hún komin út á göt- una. ■ Skrýtnafréttin SATT EÐA LOGIÐ ■ Mexikóskur maður liggur á spítala með skotsár. Hann segir að hundurinn sinn hafi skotið sig. Lögreglan segir söguna þá lygilegustu sem heyrst hefur. HUNDUR „Gefðu mér bein, eða ég skýt þig í bakið“.Hundur skýtur mann Mist Hálfdanardóttir, 15 ára, Hagaskóla „Félagsmiðstöðvarnar þyrftu að fá meira fjármagn til þess að það gæti verið opið oftar og hægt væri að taka upp á fleiri snið- ugum hlutum. Þær eru lokaðar á sumrin og bara opin þrjú kvöld í viku á veturna. Svo finnst mér líka svolítið skrýtið að krökkum sé hleypt inn á skemmtistaði þegar þau eru átján en samt er ekki leyfilegt að kaupa áfengi fyrr en um tví- tugt.“ Sindri Eldon, 17 ára, Borgarholtsskóla „Ég þoli ekki skemmti- staði. Mér finnst miklu skynsamlegra að fólk sæki í sína vinahópa og fari bara á skólaböll með jafnöldrum sínum. Aldurstakmarkið meikar alveg sens og ég held að það sé nauðsynlegt að hafa þessa skiptingu. Ég passa alla vega ekki inn á skemmtistaðina enn sem komið er og sé ekki jafnaldra mína fyrir mér þar.“ Dagbjört Hákonardóttir, 19 ára, Menntaskólinn við Hamrahlíð „Það vantar kannski staði fyrir krakka á aldr- inum 15-19 ára og á ákveðnum aldri pirraði það mann að komast ekki inn á skemmti- staðina. En þetta eru bara leiðindi í svona eitt ár þetta bless- ast allt að lokum.“ Atli Þór Árnason, 15 ára, Hvassaleitisskóla „Það má alltaf gera meira og betur en ég veit ekki alveg hvort skemmtistaður fyrir fólk á okkar aldri myndi ganga upp. Fé- lagsmiðstöðvarnar eru alveg að gera sig en þær mættu vera opnar oftar, sérstaklega á sumrin. Þær þyrftu ekki að vera opnar oft í viku á sumrin en það mætti að minnsta kosti halda eitt ball eða jafnvel tvö.“ Ung ráð ■ Unga fólkið býr oft yfir opnum og skemmtilegum skoðunum um hin ýmsu málefni. Skemmtanir?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.