Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.10.2003, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 11.10.2003, Qupperneq 34
34 11. október 2003 LAUGARDAGUR Þeir sem muna eftir útvarps-stöðinni Útrás, útvarpi fram- haldsskólanema sem sendi út á tíðninni 97.7 til ársins 1993, muna eflaust eftir Ajax. Sveitin var svo á meðal þeirra sem áttu lag á IceRave safnplötunni, sem hlýtur að vera fyrsta íslenska raftónlist- arsafnplatan. Þessi frumkvöðla- dúett var samansettur af tveimur mönnum sem síðan þá hafa verið mjög áberandi í raftónlistarsen- unni. Það eru Þórhallur Skúlason, eiganda Thule útgáfunnar, og Sig- urbjörn Þorgrímsson sem hefur starfað undir nafninu Biogen frá því að Ajaxbrúsinn tæmdist. Í kvöld verða því straumhvörf þegar Ajax rís úr gröfinni og kem- ur aftur fram á raftónlistarhátíð- innni á Vídalín eftir tíu ára fjar- veru. „Við fréttum af því að Hljómar væru komnir aftur, og okkur lang- aði til þess að vera með,“ segir Þórhallur Skúlason í gamni. Tím- arnir eru þó breyttir og það tekur víst ekki eins mikið á að vera raf- tónlistarmaður í dag. Á tónleikadagskránni verða gömlu lögin, en í nýjum búning. „Hugmyndin er að fara í þessi lög, sækja búta úr þeim, klippa þau niður og setja nýja hluti ofan á þau. Það sem við gerum er að þetta verður alveg lifandi, sem er mikil áhætta því flestum tilvikum mæta raftónlistarmenn eiginlega með tónlistina tilbúna og ýta á play.“ Á Vídalín í kvöld koma einnig fram Exos, Tómas T.H.X. og Biggi Veira. biggi@frettabladid.is ■ TÓNLIST Í Lazyboy á hljóm- sveitaræfingum hvað?hvar?hvenær? 8 9 10 11 12 13 14 OKTÓBER Laugardagur ■ ■ KVIKMYNDIR  Kvikmyndasafn Íslands sýnir kvik- myndina Viridiana eftir Luis Buñuel. Myndin er svarthvít frá árinu 1961. Sýn- ingarnar fara að venju fram í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Miðasala opnar hálftíma fyrir sýningu og miðaverð er kr. 500.  Bílskúrsbíó í bíósal MÍR að Vatnsstíg 10 á vegum Lorts og Bíó Reykjavík. Sýnd- ar verða fjórar stuttmyndir Lorts ásamt gestabíómyndinni Raflost eftir Arnar Jón- asson.  Bílskúrsbíó í bíósal MÍR að Vatnsstíg 10 á vegum Lorts og Bíó Reykjavík. Sýndar verða fjórar stuttmyndir Lorts ásamt gestabíómyndinni Raflost eftir Arnar Jónasson.  Sjá www.kvikmyndir.is Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800 Sambíóin Álfa- bakka, s. 587 8900 Háskólabíó, s. 530 1919 Laugarásbíó, s. 553 2075 Regn- boginn, s. 551 9000 Smárabíó , s. 564 0000 Sambíóin Keflavík, s. 421 1170 Sambíóin Akureyri, s. 461 4666 Borg- arbíó, Akureyri, s. 462 3500 ■ ■ TÓNLEIKAR  Nanna Hovmand, lýrískur mezzó- sópran og Jónas Ingimundarson, pí- anóleikari flytja íslensk sönglög og söng- va eftir norræn tónskáld á tónleikum í Salnum, Kópavogi.  Margrét Bóasdóttir sópran, Sigurð- ur Halldórsson sellóleikari og Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari verða með tónleika í Langholtskirkju í tón- leikaröðinni „Blómin úr garðinum,“ sem Kór Langholtskirkju gengst fyrir.  Þrjú hundruð manna karlakór hljómar í Íþróttahúsinu á Selfossi. Sjö karlakórar sameinast þar í einn kór og flytja nokkur þekkt lög. Þessir kórar eru: Karlakórinn Jökull frá Höfn í Hornafirði, Karlakór Rangæinga, Karlakór Hreppa- manna, Karlakór Selfoss, Karlakórinn Fóstbræður, Karlakór Keflavíkur og Lög- reglukórinn.  Kammerkór Suðurlands flytur í Iðnó tónlistardagskrá með leikrænu ívafi undir heitinu „Gengið á lagið“. Kórinn hefur flutt þessa dagskrá undanfarið á Suðurlandi við frábærar undirtektir áheyrenda. Stjórnandi kórsins er Hilmar Örn Agnarsson organisti í Skálholti.  Íslenska óperan sýnir Frá Nagasaki til Alsír á 90 mínútum. Sýndar verða í stuttformi óperurnar Madama Butterfly og Ítalska stúlkan í Alsír. ■ ■ LEIKLIST  Lína Langsokkur eftir Astrid Lind- gren verður á Stóra sviði Borgarleik- hússins.  Í vetur munu nemendur á öðru ári í leiklistardeild LHÍ leiklesa nokkur af verkum Williams Shakespeare, ásamt at- vinnuleikurum sem tekið hafa þátt í uppfærslum þeirra á íslensku leiksviði. Lestrarnir eru óæfðir og leikritin verða lesin óstytt í Smiðjunni, leikhúsi LHÍ við Sölvhólsgötu. Riðið verður á vaðið með Hamlet, í þýðingu Helga Hálfdanarsonar.  Leikritið Pabbastrákur eftir Hávar Sigurjónsson verður sýnt á litla sviði Þjóðleikhússins.  Farsinn Allir á svið á stóra sviði Þjóðleikhússins.  Púntila og Matti eftir Bertolt Brecht á Stóra sviði Borgarleikhússins.  Veislan á Smíðaverkstæði Þjóðleik- hússins.  Leikfélagið Brynjólfur sýnir kanadís- ka einleikinn Fjóla á ströndinni í Hlöð- unni við Litla Garð á Akureyri. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir fer með hlutverk Fjólu og Skúli Gautason leikstýrir.  Björk Jakobsdóttir flytur einleik sinn, Sellófon, í Iðnó. ■ ■ LISTOPNANIR  Ljósmyndasýning Öldu Sverrisdóttur verður opnuð í húsakynnum Reykjavíkur- Akademíunnar við Hringbraut 121, 4. hæð og ber sýningin titilinn Landslag. Sýn- ingin stendur til 6. nóvember og er opin alla daga nema sunnudaga frá 13-17.  Níræður listamaður, Jóhannes Ara- son, opnar sýningu sem ber yfirskriftina "Þetta þarf skýringar við" í Listasafni Borgarness. Á sýningunni verða útskorn- ar klukkur, leirmunir og málverk ásamt völdum ljósmyndum af grjóthleðslum Jóhannesar og endurbyggingum á gömlum torfhúsum, þ.á m. er baðstofan í Seljalandi sem Jóhannes byggði á ár- unum 1990-1994.  Sýning á verkum Péturs Halldórs- sonar verður opnuð í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarð- ar.  Sýning Þorsteins Helgasonar hefst Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi. Þar sýnir hann 48 listaverk. Sýningin stendur til 26. október. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15-18.  Sýning á leirlist Sigríðar Erlu Guð- mundsdóttur verður opnuð í Sverrissal og apóteki Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar.  Ásgeir Lárusson opnar sýningu í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Að þessu sinni sýnir Ásgeir 24 olíumyndir, allar af stærðinni 18x24. Sýningin er opin virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-16. Henni lýkur 30. október.  Sýningin „Áfram stelpur!“ verður opnuð í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Að sýningunni standa Borgarskjalasafn Reykjavíkur og Kvennasögusafn Íslands í samvinnu við Femínistafélag Íslands. Sýnd eru skjöl og munir tengdum kvennahreyfingum. Sýningin er opin mánudaga til fimmtudaga 10-20, föstu- daga 11-19 og um helgar 13-17. Hún stendur til 2. nóvember og er aðgangur ókeypis.  Lovísa Lóa Sigurðardóttir myndlistar- maður opnar sýninguna "Af því bara er ekkert svar" á Kaffi Karólínu, Akureyri. Sýningin stendur til 7. nóvember. ■ ■ SKEMMTANIR  Ríó-tríó verður með útgáfutónleika á Tónahátíðinni í Þjórsárveri. Með þeim Ágústi Atlasyni, Helga Péturssyni og Ólafi Þórðarsyni leika á tónleikunum gít- armeistararnir Björn Thoroddsen og Gunnar Þórðarson.  Hörður Torfa kemur fram í Dala- búð, Búðardal, á sinni árlegu hausttón- leikaför um landið.  Geðhjálp stendur fyrir stórtónleikum í Austurbæ í tilefni af Alþjóðageðheil- brigðisdeginum. Fram koma hljómsveit- irnar Land og synir, Botnleðja, 200.000 naglbítar, Bent & 7berg, Trabant, Úlpa og Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Frítt inn meðan húsrúm leyfir.  Magadanssýning verður í Tjarnar- bíói. Sýningin ber titilinn Sharazade and the Sultan. AJAX Ajax kominn til að vera? „Maður á aldrei að segja aldrei en þetta verður væntanlega eina skiptið á þessu ári sem við gerum þetta,“ segir Þórhallur Skúlason. „Ef þetta tekst vel er alveg hægt að gera eitthvað meira síðar.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Fimmtudagur 16.10. kl. 20:30 uppselt Sunnudagur 19.10. kl. 16 uppselt Sunnudagur 19.10. kl. 20 uppselt Föstudagur 24.10 kl. 20 örfá sæti laus Föstudagur 31.10. kl. 20 laus sæti Ósóttar pantanir seldar daglega.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.