Fréttablaðið - 19.10.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 19.10.2003, Blaðsíða 4
4 19. október 2003 SUNNUDAGUR Er öryrkjadómurinn ósigur fyrir ríkisstjórnina? Spurning dagsins í dag: Finnst þér rétt að lækka áfengiskaupa- aldur niður í 18 ár? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 20% 80% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ LögreglufréttirUppsagnir hjá Samherja: Fimmtíu fengu uppsagnarbréf SJÁVARÚTVEGUR „Við erum að fara með eitt skip í viðgerð og seldum annað skip,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, en um fimmtíu menn voru í áhöfn skipanna og hafa nú fengið upp- sagnarbréf. Þeir eru nánast allir af Eyjafjarðarsvæðinu. „Hluti af þessum mönnum fær vinnu á öðr- um skipum Samherja þar sem við erum að fjölga í áhöfn. En það liggur fyrir að einhver varanleg fækkun verður á sjómönnum hjá fyrirtækinu. Ég vonast til að þeg- ar upp er staðið verði það ekki fleiri en tíu til fimmtán manns sem missa vinnuna,“ segir Þor- steinn. Þorsteinn segir að þróunin hjá fyrirtækinu undanfarið hafi ver- ið sú að sjómannsstörfum hafi fækkað á meðan starfsfólki fjölg- ar í landi. „Ég tel það miður. Þessi sjómannsstörf eru oft há- launastörf og það er mikil verð- mætasköpun sem fer fram í frystitogurunum,“ segir Þor- steinn en hann telur ekki von á frekari uppsögnum sjómanna. ■ Prestur í þjónustu Draugasafns ÞJÓÐKIRKJAN Menn ganga aftur og valda usla á Suðurlandi í nýrri stuttmynd sem gerð hefur verið fyrir Draugasetrið á Stokkseyri og byggir á gömlum heimildum. Verður myndin sýnd á safninu þegar það opnar formlega næsta sumar. Í hlutverki djáknans í Vill- ingaholti sem á endanum nær að kveða niður drauginn er sóknar- presturinn við Hraungerðis- prestakall, Kristinn Ágúst Frið- finnsson. Er hlutverk hans eitt það veigamesta í allri myndinni. Þykir það merkilegt fyrir þær sakir að biskup Íslands, Karl Sig- urbjörnsson, fordæmdi safnið í prédikun sinni í Stokkseyrar- kirkju síðastliðinn sunnudag. Sagði hann að Stokkseyri væri lít- ill greiði gerður með því að gera út á minningar um myrkur og fá- fræði og matreiða það sem skemmtiefni fyrir túrista. „Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem prestur er fenginn til að leika í kvikmynd. Hvort sem við- komandi leikur prest eða eitt- hvað allt annað skiptir engu máli. Þarna er um að ræða lítið hlut- verk í heimildarmynd sem ein- ungis er sýnd í safninu sjálfu. Þetta er hluti af okkar sögu og ég fagna því að sögur sem þessi séu kvikmyndaðar,“ sagði Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Myndin er um tíu mínútna löng og fjallar um atvik er getið er í gömlum heimildum Sunnlend- inga. Samkvæmt þeim gekk aftur hollenskur sjómaður er drukknað hafði með skipi sínu við ströndina og gekk illa að kveða hann niður fyrr en djákninn í Villingaholti kom heimamönnum til aðstoðar. Komst þá loks á friður. Forráðamenn safnsins segja að sýningar á myndinni séu hafnar en enn sem komið er er safnið ein- göngu opið stærri hópum ferða- manna. Formleg opnun verður ákveðin síðar en gert er ráð fyrir að það verði næsta vor. Karl Sigurbjörnsson biskup neitaði að tjá sig um þetta mál þegar eftir því var leitað. albert@frettabladid.is TVÖ INNBROT Í REYKJAVÍK Til- kynnt var um tvö innbrot til lögreglunnar í Reykjavík í gær- morgun. Annað þeirra var inn í herbergi á Barónsstíg þar sem stolið var fartölvu og mynda- vél. Í hinu innbrotinu var farið inn í nýbyggingu við Leiru- bakka og þaðan stolið verkfær- um. Málin eru í rannsókn lög- reglu. ERILL Í HAFNARFIRÐI Nokkur erill var hjá lögreglunni í Hafn- arfirði aðfaranótt laugardags sökum ölvunar í bænum. MARGIR ÚTI Á LÍFINU Nokkuð mikið af fólki var úti á lífinu í Keflavík á föstudagsnótt. Erill var hjá lögreglunni vegna tals- verðrar ölvunar og pústra. GRO HARLEM BRUNDTLAND Eiginmaður hennar greinir frá því í nýút- kominni bók að Gro Harlem hafi greinst með krabbamein skömmu fyrir jól í fyrra. Gro Harlem Brundtland: Greindist með krabba- mein í fyrra NOREGUR, NTB Gro Harlem Brundtland, fyrrum yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- arinnar og fyrrum forsætisráð- herra Noregs, greindist með krabbamein um jólin í fyrra. Frá þessu er greint í nýútkominni bók eiginmanns Brundtland, Arne Olav Brundtland. Þar segir að Gro Harlem hafi fengið grein- inguna daginn áður en Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjafor- seti, tók við friðarverðlaunum Nóbels. Skömmu síðar gekkst hún undir aðgerð á Ullevål- sjúkrahúsinu þar sem meinið var fjarlægt. Meinið var staðbundið og mánuði síðar var hún komin til starfa á ný. ■ Verðkönnun Samkeppn- isstofnunnar: Ávextir hækka í verði NEYTENDUR Meðalverð á ávöxtum hefur hækkað talsvert á milli mánaðanna september og október. Breytingar á grænmetisverði eru óverulegar á sama tíma. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun Samkeppnisstofnunnar en stofn- unin kannar verð á ávöxtum og grænmeti mánaðarlega. Verðþróun hefur verið metin miðað við febrúar á síðasta ári áður en tollar voru afnumdir á ýmsum algengum grænmetisteg- undum. Fram kemur að minni verðmunur var á milli verslana í þessari könnun en í fyrri könn- unum, en óvenju mikill verðmun- ur hefur verið í verslunum að undanförnu. ■ PÁFINN HITTIR KARDINÁLA Í ávarpi sínu sagðist páfi ætla að sitja áfram, þrátt fyrir veikindi og háan aldur. Stórafmæli í Róm: Páfinn fær sér köku PÁFAGARÐUR, AP Jóhannes Páll II páfi settist að snæðingi með kard- inálum í Páfagarði í gær. Tilefnið var aldarfjórðungurinn sem Jó- hannes Páll hefur setið á páfa- stóli. Á borðum var stóreflis kaka sem var í lögun eins og Péturs- torgið í Róm. Páfinn ítrekaði í ávarpi til kardinálanna að hann ætli sér að sitja áfram, þrátt fyrir háan aldur sinn og erfið veikindi. „Ég bið ykkur um að biðja fyr- ir mér svo ég geti haldið áfram að sinna þjónustu minni við kirkjuna af trúnaði, svo lengi sem drottinn óskar,“ sagði hann í ávarpi sínu. ■ ÖRYGGISMÁL Varnar- og leiðigarðar og uppkaup húsa til að tryggja Bílddælinga gegn ofanflóðum myndu kosta nálægt 300 milljón- um króna. Hættumatsnefnd Vesturbyggð- ar kynnti bæjarbúum á Bíldudal tillögu sína að hættumati vegna ofanflóða í bænum. Þar voru einnig sérfræðingar frá Veður- stofu Íslands til að skýra málið. Brynjólfur Gíslason, bæjar- stjóri í Vesturbyggð, segir að um 50 manns hafi mætt á fundinn en umræður verið litlar. Skýringin sé sú að tillaga hættumatsnefnd- arinnar sé í samræmi við eldri skýrslur. Í október 1996 taldi Veðurstofa Íslands að kosta myndi um 160 milljónir króna að byggja nauð- synlega varnar- og leiðigarða og kaupa upp samtals 10 íbúðarhús þannig að ekki væri búið í þeim á vetrum. Framreiknað til dagsins í dag eru þetta tæpar 290 milljónir króna. Áætlað verðmæti varinna eigna var samtals 1.050 milljónir. Fæstar eru þó á mesta hættu- svæðinu. Framreiknað sam- kvæmt neysluverðsvísitölu svar- ar upphæðin til 1.875 milljóna króna í dag. ■ Lögreglan í Reykjavík: Veitti piltum eftirför LÖGREGLAN Tveimur piltum var veitt eftirför af lögreglunni í Reykjavík aðfaranótt laugardags vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Þeir óku frá Víkurvegi að gatnamótum Sæ- brautar og Sogavegs þar sem þeir yfirgáfu bílinn og þurfti lögreglan að hlaupa þá uppi. Þeir voru hand- teknir og færðir á lögreglustöð- ina. Að loknum yfirheyrslum í gær var piltunum sleppt. ■ AÐ STÖRFUM Sjómönnum hefur fækkað meðan starfsfólki fjölgar í landi. Ofanflóð á Bíldudal: Uppkaup og varnir kosta 290 milljónir BÍLDUDALUR Íbúar á Bíldudal báru ekki fram margar fyr- irspurnir á opnum fundi um nýtt hættumat fyrir bæinn. Bæjarstjórinn segir ástæðuna þá að engar nýjar fréttir séu fólgnar í hættumatinu. Sóknarpresturinn við Hraungerðisprestakall leikur í stuttmynd fyrir Draugasetrið á Stokkseyri sem biskup Íslands fordæmdi nýlega fyrir menningarlega lágkúru. ÚR STUTTMYNDINNI Kristinn Ágúst kveður niður hollenskan draug með biblíu eina að vopni. VERÐMISMUNUR Á MILLI VERSLANA Lægsta hæsta kílóverð kílóverð Appelsínur 88 kr. 165 kr. Bananar 135 kr. 239 kr. Grape rautt 128 kr. 229 kr. Jarðarber 792 kr. 1645 kr. LÍF OG FJÖR Á ÓLAFSVÍK Um 350 börn eru á Ólafsvík á landsmóti æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar. Líf og fjör var í bænum í blíð- skaparveðri í gær. BÍLVELTA Á SNÆFELLSNESI Bíll endastakkst og fór eina veltu á Stykkishólmsvegi í Helgafells- sveit á föstudag. Eitt barn var í bílnum ásamt ökumanni og sluppu þau bæði ómeidd. Bíllinn var óökufær eftir óhappið. EINN GISTI FANGAGEYMSLUR Einn maður var vistaður í fanga- geymslu lögreglunnar á Ísafirði á föstudagskvöld vegna óláta og slagsmála. ÓK OF HRATT Maður var tekinn fyrir hraðakstur í Hnífsdal um klukkan hálffjögur aðfaranótt laugardags. Hann ók á 87 kíló- metra hraða þar sem hámarks- hraði er 35 kílómetrar. ■ Lögreglufréttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.