Fréttablaðið - 19.10.2003, Blaðsíða 25
25
Ég las mikið sem barn oggleypti í mig Ævintýrabæk-
urnar, Fimmbækurnar, Frank og
Jóa, Gula skuggann (Bob Moran)
og síðar Ísfólkið. Það var meira á
unglingsárunum. Bókin sem mér
fannst nú samt vænst um í endur-
minningunni er Bróðir minn
Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren.
Hún er svo fallega skrifuð og
hafði mikil áhrif á mig. Ég tek
hana enn upp og þegar ég las úr
henni fyrir börnin
mín féllu eitt eða tvö
tár af hvarmi.
Af öðrum bókum
var ég mjög hrifinn
af Frank og Jóa. Það
var eitthvað svo út-
lenskt allt saman í
þeim bókum. Þeir
voru í þessu dularfulla
sambandi við Hitch-
cock, sem ég vissi ekk-
ert hver var.
Enid Blyton var líka mikill
hluti af mínum uppvexti og maður
drakk í sig ævintýrasögur hennar.
Ég man ennþá einstaka setningar
úr bókunum hennar, eins og: „Á
meðan stúlkurnar vöskuðu upp at-
huguðu drengirnir aðstæður“.
Snilld. Þá var karakterinn Georg
mjög minnisstæður. Ég held að
hún hafi verið í Dularfullu bókun-
um. Hún var stelpa sem vildi vera
strákur. Skemmtileg.
Sjálfur er ég að koma með
mína fyrstu alvöru barnabók um
jólin. Bókin heitir Ævintýrið um
Augastein og er jólasaga fyrir 4ra
til 10 ára, byggð á leiksýningu
sem ég skrifaði í fyrra. Ég vona
að hún eigi eftir að skilja eftir sig
minningar hjá nýrri kynslóð les-
enda.“ ■
Málverk vikunnar heitir Svörtfjöll frá árinu 1963 eftir Jó-
hann Briem. Hann fæddist árið
1907 að Stóra-Núpi í Árnessýslu.
Hann stundaði nám hjá þeim
Eyjólfi Eyfells og Ríkarði Jóns-
syni á árunum 1927-29 en fór síð-
an til Dresden í Þýskalandi næstu
fimm árin til frekara listnáms.
Þar þróaði Jóhann með sér ljóð-
rænan expressjónisma þar sem
saman fór einfaldur litaskali
hreinna lita og einföld myndbygg-
ing sem oft sýnir dýr og fólk úti í
náttúrunni.
Í byrjun 6. áratugarins, þegar
verkið Svört fjöll er málað, gáfu
sterkari litir og ákafari pensil-
drættir til kynna að Jóhann hafði
snúið sér til fullþroska ex-
pressjónisma. Jóhann lést árið
1991. ■
Jón Ársæll
Þórðarson
Um hann erspurt á
blaðsíðu 19 –
þennan ástsæla
sálfræðimennt-
aða sjónvarps-
mann sem
loksins hreppti
E d d u -
v e r ð l a u n i n
eftir að hafa
verið tilnefnd-
ur, Guð einn
veit hversu oft. Þessi kollegi sem
Sigurjón Kjartansson vísar til
mun vera Eiríkur Jónsson blaða-
maður. N
FELIX BERGSSON
„Enid Blyton var líka mikill hluti af
mínum uppvexti og maður drakk í sig
ævintýrasögur hennar. Ég man ennþá
einstaka setningar úr bókunum henn-
ar, eins og: „Á meðan stúlkurnar
vöskuðu upp athuguðu drengirnir að-
stæður“. Snilld.“
Krossgáta Nr. 1
Felix Bergsson:
Enid Blyton hluti
af uppvextinum
Síung Nancy Drew
Meirihluti lesenda Enid
Blyton var og er stúlkur þótt
drengir leiti einnig í bækurnar.
Skiptingin í strákabækur og
stelpubækur var sennilega mun
sterkari á árum áður, og þá var
mikið um að höfundar einbeittu
sér að því að skrifa seríubækur.
Árið 1930 kom út í Bandaríkjun-
um fyrsta bókin um Nancy Drew
og enn eru að koma út nýjar bæk-
ur í þessari ritröð. Bækurnar nutu
mikilla vinsælda hér á landi og
nokkrar þeirra hafa verið endur-
útgefnar. Höfundur bókanna um
Nancy er Carolyn Keene sem er
dulnefni fjölda karla og kvenna
sem skiptast á að skrifa sögurn-
ar. Á þeim rúmu sjötíu árum sem
liðið hafa frá útkomu bókanna
hefur Nancy elst um tvö ár, frá
16 ára til 18 ára, og hefur leyst
rúmlega 350 ráðgátur. Sérstök
heimasíða er til um Nancy, auk
bókaklúbba.
Beverly Gray-bækurnar voru
einnig vinsælar seríubækur hér á
landi en hafa ekki verið endurút-
gefnar. Þær fjalla um ævintýri
ungrar stúlku sem leysti ýmis dul-
arfull mál og þegar hún útskrifað-
ist úr skóla gerðist hún blaðamað-
ur og rithöfundur. Höfundur var
Clair Blank, sem var einungis
nítján ára þegar hún skrifaði
fyrstu Beverly Gray-bókina. Sú
kom út árið 1934 en þær urðu alls
26 talsins.
Leigupennar á lágum launum
Frank og Jóa-bækurnar eftir
Franklin W. Dixon hafa notið gríð-
arlegra vinsælda víða um allan
heim og enn er verið að endurút-
gefa þær. Frank og Jói Hardy eru
synir Fenton Hardy, sem er einn
besti leynilögreglumaður Banda-
ríkjanna og synir hans hafa erft
gáfu hans. Frank er alvörugefinn
og með skarpa greinandi hugsun.
Jói, yngri bróðirinn, er glaðsinna
og telur ekkert ómögulegt. Saman
leysa bræðurnir hverja ráðgátuna
á fætur annarri.
Maðurinn sem sagður er höf-
undur bókanna, Franklin W. Dixon,
var aldrei til. Sá sem átti hug-
myndina að bókunum um Frank og
Jóa hét Edward L. Stratemeyer.
Hann réð höfunda til að útfæra
söguþráðinn og skrifa textann og
borgaði þeim skammarleg laun
fyrir. Þeir voru einnig látnir sverja
þess eið að láta ekkert uppskátt
um skrif sín og það að Dixon væri
ekki til. Snjallasti skrifari Strate-
meyers hét Leslie McFarlane.
Hann skrifaði ellefu fyrstu Frank
og Jóa-bækurnar. Af öllum þeim
fjölda leigupenna sem komu að
skrifum bókanna er McFarlane
talinn sá besti.
Missir af sígildum sögum
Ekki er hægt að skrifa grein
eins og þessa án þess að minnast á
breska rithöfundinn Richmal
Crompton sem skrifaði frábær-
lega skemmtilegar bækur um
Grím grallara. Bækurnar njóta
enn mikilla vinsælda á Bretlandi
en af einhverjum ástæðum hafa
íslensk bókaforlög ekki séð
ástæðu til að endurútgefa þær.
Meiri æsistíll var á Bob Moran-
sögunum þar sem herflugmaður-
inn og ævintýramaðurinn mætti
hverjum andstæðingnum á fætur
öðrum. Tarzan apabróðir mætti
líka hverri hættunni á fætur
annarri í bókum sem eru ódauðleg
klassík, enn gefnar út og mikið
lesnar. Bækurnar um Mary Popp-
ins hafa hins vegar ekki verið
endurútgefnar. Mestur missir er
þó af bókaflokknum Sígildar sög-
ur Iðunnar en þar voru margir
ódauðlegir klassíkerar endur-
sagðir á aðgengilegan hátt.
Þannig kynntust ungir lesendur
meðal annars Róbinson Krúsó,
Ívari hlújárn, Skyttunum og Fang-
anum í Zenda. Það má margt
ágætt segja um töfradrenginn
Harry Potter en líklega stenst
hann ekki samjöfnuð við þær bók-
menntaperlur.
kolla@frettabladid.is
Maðurinn erMálverk vikunnar
Svört fjöll
SVÖRT FJÖLL
Olía, 70x65 frá árinu 1963 eftir Jóhann
Briem.
SUNNUDAGUR 19. október 2003
TARZAN
Bækurnar um
Tarzan apabróð-
ur er í stöðugri
endurprentun.