Fréttablaðið - 19.10.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 19.10.2003, Blaðsíða 14
14 19. október 2003 SUNNUDAGUR ■ Viðskipti ■ Vikan sem leið Á Íslandi eru starfandi tæplegafimmtíu lífeyrissjóðir. Hafliði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Lífeyris- og tryggingasviðs hjá Kaupþingi Búnaðarbanka, segir líklegt að sjóðum muni fækka á næstu árum. Það sé sjóðfélögum til hagsbóta að lífeyrissjóðir verði stærri og öflugri. Hafliði er í forsvari fyrir fram- tak Kaupþings Búnaðarbanka sem hefur gefið út Lífeyrisbókina, handbók fyrir stjórnendur lífeyr- issjóða. Hann segir greinilegt að það hafi verið eftirspurn eftir slíkri handbók þar sem þau þrjú- hundruð eintök sem prentuð voru runnu út og prenta þurfti upplagið aftur. Eftirspurnin eftir bókinni hef- ur bent til þess, að mati Hafliða, að hún eigi erindi við fleiri en stjórnendur lífeyrissjóða, til dæmis þá sem starfa í verkalýðs- hreyfingunni og stjórnendur fyr- irtækja, þar sem atvinnurekendur og launþegar eru þeir sem skipa stjórnir þessara lífeyrissjóða og sameinast um þá hagsmuni sem eru lífeyrisréttur launþeganna í landinu. Umhverfi lífeyrissjóðanna hef- ur tekið talsverðum breytingum á síðustu árum. Umhverfi eigna- stýringar sjóðanna er orðið mjög flókið. „Lífeyrissjóðirnir hafa verið að fjárfesta erlendis, sem þýðir að að taka þarf tillit til áhættu varðandi þróun á gengi ís- lensku krónunar. Ef íslenska krónan styrkist falla allar erlend- ar eignir sem því nemur,“ segir Hafliði. Flókið umhverfi Þá hafa komið til á síðustu misserum og árum nýjar fjár- málaafurðir eins og t.d. vogunar- sjóðir. „Þetta hefur í för með sér að stjórnarmenn þurfa sífellt að vera að kynna sér nýja hluti og ný fjármálatæki sem hægt er að nota til að bæta ávöxtun og minnka áhættu. Umhverfið er flókið og stjórnarmenn í lífeyris- sjóðum hafa í raun og veru ekk- ert val annað en að kynna sér málin vel.“ Þegar hann er spurður um ástæðu þess að ákveðið var að gefa þessa bók út segir Hafliði að hún sé afrakstur samstarfs við stjórnir margra lífeyrissjóða. „Við höfum rekið marga sjóði og unnið með öðrum sjóðum til skemmri eða lengri tíma og á þeim tíma safnað miklum upplýs- ingum og gögnum til að mennta þá stjórnarmenn sem við höfum unn- ið með. Við höfum átt í samstarfi við flestalla lífeyrissjóði landsins og því lá beint við að gefa þetta út í bók og dreifa til allra stjórnar- manna lífeyrissjóða.“ Geta ekki vikið sér undan ábyrgð Handbókin skiptist í nokkra hluta og bendir Hafliði til dæmis á kafla um innra eftirlit lífeyris- sjóða sem sé afar mikilvægur þáttur í starfi stjórna lífeyris- sjóða. Þannig er fjallað um ábyrgð stjórna og stjórnarmanna lífeyris- sjóða, hættu og viðbrögð við mál- sókn og í hvaða tilvikum bóta- skylda eigi við. „Stjórnir sjóðanna geta ekki vikið sér undan ábyrgð ef framkvæmdastjóri hefur brot- ið af sér kerfisbundið án þess að stjórnin hafi tekið eftir því.“ Stjórnarmenn bera ábyrgð gagn- vart sjóðfélögum þótt þeir séu ekki kosnir af þeim heldur skipað- ir af samtökum launþega og at- vinnurekenda. Í handbókinni er einnig kafli um eignastýringu til að skýra hugtök sem stjórnarmenn þurfa að þekkja: „Hvað er hlutabréf, hvað er skuldabréf, hvað er af- leiða, hvað er gengisáhætta og svo framvegis.“ Áhætta miðuð við réttindi Fjórði kafli bókarinnar er um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða þar sem velt er upp spurningum um hvaða stefnu sé æskilegt að velja við tilteknar aðstæður. Þá er metið hversu hátt hlutfall af eign- um lífeyrissjóða eigi að vera í hlutabréfum, hvort þeir eigi að verja gengisáhættu eða ekki, o.s.frv. Svo er í bókinni kafli um hvernig hægt sé að hafa eftirlit með áhættuþáttum, hvaða áhætt- ur séu í rekstrinum og hvernig hægt sé að fylgjast með þeim og bregðast við frávikum. „Í þessum köflum er verið að kynna ákveðna aðferðafræði sem hefur ekki ver- ið mikið notuð hingað til. Hún byggir á því að setja markmið um réttindi og miða áhættu við líkur á réttindaskerðingu. „Núna geta menn sett sér fjárfestingarstefnu og ef þeir spyrja okkur getum við sagt að miðað við þessa fjárfest- ingarstefnu séu tíu prósent líkur á að það þurfi að skerða réttindi. Þetta eru mikilvægar upplýsingar fyrir stjórnarmenn við mótun fjárfestingarstefnu. Lykilatriðið er náttúrlega,“ segir Hafliði, „að það er nauðsynlegt fyrir stjórnar- menn að kunna þessi fræði því þeir bera ábyrgð á afkomu sjóðfé- laga eftir að starfsaldri lýkur.“ kgb@frettabladid.is Stjórnendur lífeyrissjóða þurfa að gæta að réttindum sjóðfélaga og ávöxtun sjóða. Umhverfi lífeyrissjóða hefur gjörbreyst, sem kallar á nýja þekkingu sjóðstjórna. Ný handbók útskýrir flókin viðfangsefni til að stjórnir geti starfað sem best. Stjórnarmenn lífeyrissjóða verða að taka ábyrgð HAFLIÐI KRISTJÁNSSON Stjórnir sjóðanna geta ekki vikið sér undan ábyrgð ef framkvæmdastjóri hefur brotið af sér kerfisbundið án þess að stjórnin hafi tekið eftir því. NÝTT MET Úrvalsvísitalanstendur nú í 1.903,6 stigum og hefur aldrei verið hærri. Ávöxtun á íslenskum verðbréfum hefur verið mjög góð það sem af er ár- inu en vísitalan hefur hækkað um 44% á þessu ári. Í síðustu viku hækkaði hún um 36,6 stig eða tæp 2%. DECODE HÆKKAR Í kjölfarnokkurra nýrra uppgötvana vísindamanna Íslenskrar erfða- greiningar hefur verðmæti móð- urfélagsins, DeCode, hækkað mjög á bandaríska NASDAQ- markaðnum. Á föstudaginn hækk- aði hluturinn um ríflega þriðjung og kostar nú 6,79 dali. Hækkunin frá áramótum er 239,5%. ■ Flaga á markað SvefnrannsóknarfyrirtækiðMedcare Flaga hyggst sækja um skráningu á Verðbréfaþing Ís- lands. Þetta yrði fyrsta nýskrán- ingin á þessu ári og önnur skrán- ingin síðustu þrjú ár. Samhliða stendur til að auka hlutafé um tólf til sextán milljón- ir Bandaríkjadala. Félagið er nú öflugasta fyrirtæki heims í fram- leiðslu tækja og hugbúnaðar til rannsókna á svefni. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.