Fréttablaðið - 19.10.2003, Blaðsíða 21
21SUNNUDAGUR 19. október 2003
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
á mann í tvíb‡li í 7 nætur á Havana Libre hótelinu.
97.670 kr.*
Sta›grei›sluver› frá:
* Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í
7 nætur, akstur og íslensk fararstjórn.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
2
24
51
10
/2
00
3
Fer› til Kúbu er upplifun. Eyjan er heillandi
fögur og Kúbverjar gla›legir og gestrisnir.
Gist er á fyrsta flokks hótelum bæ›i í
Havana og úti á ströndinni í Varadero.
Misstu ekki af Kúbu eins og hún er í dag.
Það er gömul saga og ný að rík-isfjölmiðlar eru undir stækk-
unargleri þegar kemur að pól-
itískri umfjöllun þeirra. Og þan-
nig á það auðvitað að vera meðan
fjármunum skattborgara er sóað í
apparöt af því tagi,“ segir Andrés
Magnússon blaðamaður aðspurð-
ur um álit sitt á bréfi Markúsar
Arnar.
Andrési vitanlega hefur ekki
verið gerð könnun á stjórnmála-
afstöðu blaða- og fréttamanna hér
á landi, en erlendis hefur það víða
verið gert og hefur niðurstaðan
jafnan verið á eina leið: Þorri
blaðamanna á Vesturlöndum telur
sig vera vel til vinstri við miðju.
„Það er svo önnur saga hvort eða
hvernig sú afstaða skilar sér í
fréttaflutningi. Að undanförnu
hefur umræða um þessi efni auk-
ist í þeim nágrannalöndum okkar
þar sem ríkisfjölmiðlar eru reknir
á annað borð. Ekki síst hefur
hennar gætt á Bretlandi þar sem
BBC hefur sætt harðri gagnrýni
íhaldsmanna um langt skeið, en
nú er Verkamannaflokknum orðið
ámóta uppsigað við þessa móður
allra ríkisfjölmiðla. Þar eins og
víða annars staðar eru reknar
sjálfstæðar fjölmiðlarannsókna-
stofnanir, sem veita fjölmiðlum
þarft aðhald, og í nýlegri rann-
sókn var sýnt fram á að BBC hafði
gætt einhverra allt annarra sjón-
armiða en sannleiksástarinnar í
fréttaflutningi. Hér á landi tíðkast
hins vegar engar slíkar rann-
sóknir og þess vegna er erfitt að
kveða upp úr um það hvort
athugasemdir á borð við þær sem
útvarpsstjóri gerir eiga við rök að
styðjast. Þar ræður bara almenn
og oft óljós tilfinning manna.“
Andrés segir hins vegar
vafamál hvort mikið sé hægt að
gera við því að þáttur eins og
Spegillinn hallist til vinstri.
Meginefni hans séu skoðanir og
álitaefni en ekki hreinræktaðar
fréttir og hættan á hlutdrægni
því ávallt til staðar. „Spurningin
er því fremur hvort RÚV eigi að
halda úti slíkum þætti með eigin
starfsmönnum. Fyrir nokkrum
áratugum var fréttaskýringaþátt-
urinn Efst á baugi á dagskrá
Ríkisútvarpsins. Umsjónarmenn
hans voru blaðamenn annarra
fjölmiðla en fáum blandaðist
hugur um pólitíska afstöðu
þeirra. Þær skoðanir sem
þar komu fram voru því
á þeirra ábyrgð en ekki
RÚV. Í Ríkissjónvarpinu var að
hefjast þátturinn Pressukvöld þar
sem fulltrúar annarra fréttamiðla
leggja sjónvarpinu lið. Kannski
það sé rétti meðalvegurinn að feta
í þessum efnum. Það skiptir nefni-
lega ekki öllu máli hvort það er
vinstri slagsíða á Speglinum eða
ekki, það er nóg að slíkar efa-
semdir komi fram og þá er trú-
verðugleiki RÚV í stórhættu. Eina
lausnin sem dugir er
hins vegar sú að
ríkið láti af
f j ö l m i ð l a -
rekstri.“ ■
Er vinstri slagsíða á ríkisstofn-un þar sem Hannes Hólm-
steinn Gissurarson hefur verið í
fastri áskrift að dagskrártíma
með efni sem flest ætti heima í
skólablaði? Þar sem keypt er af
honum klukkutíma löng auglýsing
um bókina hans um það leyti sem
hún kemur út? Er verið að gera
grín að okkur?“ spyr Karl Th.
Birgisson, framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar, á móti að-
spurður hvort vinstri slagsíða sé á
RÚV. Á sínum tíma var Karl
látinn taka hatt sinn og staf sem
pistlahöfundur á Útvarpinu, ein-
mitt í Speglinum, vegna þess að
pistlar hans þóttu of vinstrisinn-
aðir.
„Reynsla mín af Ríkisútvarp-
inu er sú að þar starfi frábært
fagfólk sem fyrst og fremst vill fá
að vinna vinnuna sína vel og vera
í friði fyrir gjammandi varðhund-
um stjórnmálaflokka. Þannig
hefur það því miður ekki verið
þau tólf ár sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur ráðið menntamála-
ráðuneytinu og beitt ótrúlegustu
aðferðum við að tryggja stöðu
sína þar innanhúss. Stundum
undrast maður raunar þolinmæði
starfsfólksins, að það skuli hafa
geð í sér til að vinna þarna, undir
þessu þrúgandi valdi sem sífellt
minnir á sig og ekki alltaf með
geðslegum hætti.“
Ekki er á Karli að skilja að
Markús Örn sé á réttri leið að
setja ofan í við „kommana“ á
Speglinum. „Markús Örn á náttúr-
lega sem yfirmaður stofnunar-
innar að hafa skoðanir á því sem
þar er á dagskrá, en tónninn í
þessu bréfi er með miklum ólík-
indum. Í stað þess að setjast niður
með umsjónarmönnum og ræða
faglega það sem honum þætti
betur mega fara, þá skrifar hann
bréf með uppnefnum og hæðist að
sínum eigin starfsmönnum. Svo
þegar bréfið spyrst út setur hann
sig í stellingar fórnarlambs í
heljarmiklu samsæri. Það er ótrú-
legur kaldastríðsþankagangur
sem þarna birtist og ótrúlegur
dónaskapur að draga gott fagfólk
ofan í pólitískar skotgrafir þar
sem það á ekki heima og vill alveg
örugglega ekki vera.“
Spegillinn er frábært pró-
gramm að viti Karls þó hann sé
hreint ekki alltaf sammála sjónar-
miðum og vinklum sem þar er velt
upp. „Það er tekið krítískt á
málum og fjallað um mál með
öðrum hætti en annars staðar,
sem stjórnendur eiga skilið hrós
fyrir. Það liggur í hlutarins eðli,
að krítísk umfjöllun beinist
einkum gegn valdhöfum, í okkar
tilviki ekki síst Sjálfstæðis-
flokknum sem hefur verið við
völd samfleytt í tólf ár. Tvö
einkenni þess flokks eru
ofurviðkvæmni fyrir gagnrýni og
sú árátta að böðlast á fjölmiðla-
fólki í von um að það gefist upp og
taki upp sjálfsritskoðun. Bréf
Markúsar Arnar er mild birting-
armynd þessara vinnubragða.“
Samanborið við önnur lönd
segist Karl ekki mjög kunnugur
öðrum ríkisfjölmiðlum. „En
ég er nokkuð viss um að af
því hefðu borist fréttir ef
viðlíka draugagangur
væri í kringum þá og
RÚV. Getiði ímyndað
ykkur að forsætis-
ráðherra Bretlands
hringdi í fram-
kvæmdastjóra BBC
og bæði hann að fara í
frí, af því að einkavin ráðherrans
vantaði vinnu? Þetta gerðist á
Íslandi fyrir tíu árum. Rétt eins
og í austantjaldslöndunum, þar
sem Flokkurinn réð.“ ■
ANDRÉS MAGNÚSSON
Segir ekki skipta öllu máli hvort vinstrislagsíða sé á Speglinum eða
ekki, nóg sé að slíkar efasemdir komi fram og þá er trúverðugleiki
RÚV í stórhættu.
Andrés Magnússon:
Ríkið láti af fjölmiðlarekstri
KARL TH. BIRGISSON
Segir Markús Örn
Antonsson ráðast að eigin
starfsmönnum, hæðast að
þeim og uppnefna.
Karl Th. Birgisson:
Gjammandi varðhundar Flokksins