Fréttablaðið - 19.10.2003, Side 6
6 19. október 2003 SUNNUDAGUR
■ Lögreglufréttir
Veistusvarið?
1Hvaða fyrrverandi þingmaður hefurverið skikkaður til að mæta á AA-
fundi?
2Hver er forstjóri Tryggingastofnunarríkisins?
3Hvert er hlutfall karlnemenda í Kenn-araháskóla Íslands?
Svörin eru á bls. 38
SJÁVARÚTVEGSMÁL Nýjar mælingar
á kjöti af hrefnu sem veidd er við
Ísland sýna að kvikasilfur er að-
eins um helmingur þess sem
fannst í sýnum úr norskveiddri
hrefnu. Flest sýnin reyndust inni-
halda brot af þeim mörkum sem
sett eru í reglum um aðskotaefni.
Niðurstöður íslensku rannsókn-
anna hafa ekki verið birtar opin-
berlega en fréttavefurinn bb.is
segist hafa þær undir höndum.
bb.is segir frá því að hrefnu-
veiðimenn séu ósáttir vegna þess
að þessar niðurstöður hafi ekki
verið birtar opinberlega eins og
gerðist með norsku rannsóknina.
Þeir telja norsku rannsóknina
vera til þess fallna að koma ómak-
lega óorði á afurðir þeirra.
„Greinargerð varðandi neyslu
á hrefnukjöti og öðru sjávar-
fangi fyrir barnshafandi konur
og konur með börn á brjósti“ er
að finna á heimasíðu Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins. Fyrir-
sögn fréttar á heimasíðunni þar
sem greinargerðin er birt þann
8. október er „Er óhætt að borða
hrefnukjöt?“. ■
Tengsl milli fyrir-
tækja og ráðuneyta
RANNSÓKN „Það eru greinileg
tengsl á milli stjórna fyrirtækja og
ráðuneytanna,“ segir Bryndís Ís-
fold Hlöðversdóttir, sem hefur
rannsakað hverjir sitja í stjórnum
skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni
og nefndum ráðuneyta og stærstu
sveitarfélaga. Fjórðungur þeirra
sem sitja í stjórnum fyrirtækja í
Kauphöllinni sitja einnig í nefnd-
um á vegum ráðuneyta.
Bryndís segir erfitt að meta
hvort þetta séu mikil tengsl eða
lítil þar sem engan samanburð sé
að hafa. Hennar mat er þó að
tengslin séu mikil. Hún segir tvær
kenningar uppi um hvernig skuli
meta þetta, annars vegar sé kjarn-
ræðiskenning sem byggi á skipun
í embætti og hins vegar marg-
ræðiskenning þar sem áherslan er
á að kanna ákvarðanatöku. Í rann-
sókn sinni studdist Bryndís við
fyrri kenninguna og horfir til þess
að menn sitji í nokkrum stjórnum
og nefndum. „Þetta býður upp á
umboðsvanda, að menn sitji
beggja megin borðs. Það er sam-
þjöppun valda í stöðunum en ekki
þar með sagt að verið sé að mis-
nota valdið.“
Í rannsókninni var einnig horft
til kynjaskiptingar í stjórnum fyr-
irtækja og nefndum á vegum ríkis
og sveitarfélaga. Í stjórnum fyrir-
tækja sem skráð eru hjá Kauphöll-
inni eru 19 karlmenn fyrir hverja
eina konu. Konur eru 26% aðal-
manna í nefndum hjá ríkinu en
38% hjá fjórum stærstu sveitarfé-
lögunum, Reykjavík, Kópavogi,
Akureyri og Hafnarfirði.
„Það er augljóst að stjórnvöld
hafa ekki náð markmiðum sem þau
hafa sett sér um samþættingu
kynjasjónarmiða,“ segir Bryndís
Ísfold. „Milli áranna 2001 og 2003
fjölgar konum um 1,6% í nefndum
ráðuneytanna. Það er fækkun í
fjórum ráðuneytum og sérstaklega
mikil hjá forsætisráðuneytinu.“
Bryndís segir athyglisvert að hjá
sveitarfélögunum, sem séu öll með
hærra hlutfall kvenna í nefndum
en stjórnvöld, séu jafnréttisfull-
trúar í hálfu eða heilu starfi sem
hafi jafnréttismál að aðalmáli. Í
ráðuneytunum hafi jafnréttismál
hins vegar bæst við skyldur ann-
arra starfsmanna. Þetta kunni að
ráða miklu. Þannig hafi Reykjavík-
urborg lagt mjög mikla áherslu á
jafnréttismál og þar sé hlutfall
kvenna í nefndum hæst, 42,6%.
brynjolfur@frettabladid.is
Uppbygging Lundar:
Hlusta á öll
sjónarmið
SKIPULAG Nágrannar Lundar í
Kópavogi gagnrýndu á kynning-
arfundi á fimmtudagskvöld
áform um byggingu átta blokka á
landinu. Hæst eiga þær að rísa 14
hæðir.
Gunnar I. Birgisson, forseti
bæjarstjórnar Kópavogs, segir
ekki hægt að segja til hvenær
endanleg ákvörðun um uppbygg-
inguna í Lundi geti legið fyrir.
„Þetta er einfaldlega tillaga
sem uppi er. Við leggjum áherslu
á að það komi þarna byggð. Við
hlustum á þær athugasemdir sem
fram koma og tökum ákvörðun í
framhaldi af því,“ segir Gunnar. ■
Ólafur Ólafsson:
Spyrjum að
leikslokum
STJÓRNMÁL „Það er sannarlega
traustvekjandi að vita til þess að
það eru í raun og veru dómstólar í
þessu landi,“ segir Ólafur Ólafs-
son, fyrrverandi landlæknir og
núverandi for-
maður félags eldri
borgara í Reykja-
vík. Nýgenginn
dómur Hæstarétt-
ar í máli sem Ör-
yrkjabandalagið
höfðaði gæti einn-
ig haft áhrif á út-
reikninga tekju-
tryggingar eldri
borgara.
„Það er ekki
hægt að segja að
við núum saman
höndum en við
fylgjumst með af
áhuga. Félag eldri borgara er með
lögfræðinga að vinna í málefnum
okkar og þeir munu væntanlega
skoða þessa dómsniðurstöðu í
máli Öryrkjafélagsins.“ ■
Smásöluvísitalan hækkar:
Íslendingar
eyða meira
VIÐSKIPTI Samkvæmt nýrri smá-
vísitölu Samtaka verslunar og
þjónustu eyddu Íslendingar 5,5%
meiru til kaupa á dagvöru en á
síðastliðnu ári.
Útgjöld til áfengiskaupa jukust
um 1,5% á milli septembermán-
aða á þessu ári og því síðasta.
Vísitölumælingin sýnir í fyrsta
sinn samanburð á veltu lyfja-
verslana milli ára. Aukning um
9% varð einnig þar miðað við árið
á undan.
Smásöluvísitalan er reiknuð af
IMG samkvæmt upplýsingum
sem berast beint frá fyrirtækjun-
um. ■
FUNDU TÆKI TIL FÍKNIEFNA-
NEYSLU Lögreglan á Húsavík
fann tæki og tól til fíkniefna-
neyslu við húsleit hjá manni á
þrítugsaldri. Málið telst upp-
lýst.
FJÖGUR INNBROT Fjögur inn-
brot í bíla voru tilkynnt til lög-
reglunnar í Reykjavík á
fimmtudag. Enginn hefur verið
handtekinn. Málin eru í rann-
sókn lögreglu.
SEX TEKNIR Sex ökumenn voru
stöðvaðir fyrir of hraðan akstur
í umdæmi lögreglunnar á
Blönduósi í fyrradag. Einn
mældist á 133 kílómetra hraða.
edda.is
„Frægasti Íslendingurinn“
Löngum hefur stafa›
ljóma af persónu og afrekum
Vilhjálms Stefánssonar
landkönnu›ar, jafnt hér á
landi sem í Vesturheimi.
Hann var frægasti Íslendingur
síns tíma og fyllti fljó›arsálina
stolti.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
KLIPPTI Á BORÐANN
Um 80 manns munu starfa í nýju
höfuðstöðvunum.
Air Atlanta:
Flutt til
Reykjavíkur
VIÐSKIPTI Air Atlanta hefur tekið
nýjar höfuðstöðvar að Höfðabakka
9 í Reykjavík formlega í notkun.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
klippti á borðann síðasta föstudag,
að viðstöddu fjölmenni. Þar á með-
al voru allir núlifandi samgöngu-
ráðherrar þjóðarinnar.
Air Atlanta hefur frá stofnun
fyrir um sautján árum haft
höfuðstöðvar í Mosfellsbæ en
langt er síðan félagið sprengdi
þau húsakynni utan af sér. Nýju
höfuðstöðvarnar eru um 1.800
fermetrar og þar munu um 80
manns starfa. Áfram starfa um
60 manns í húsnæði fyrirtækisins
í Mosfellsbæ. ■
Þungmálmar í norskri hrefnu:
Íslensk hrefna er
snauð af kvikasilfri
HREFNUVEIÐAR
Íslensk rannsókn sýnir að þungmálmar
í hrefnu eru aðeins brot þess sem gerist
við Noregsstrendur.
Fjórði hver stjórnarmaður í fyrirtæki sem skráð er í Kauphöll situr
einnig í nefnd á vegum ráðuneyta. Karlar eru mun fjölmennari í
stjórnum fyrirtækja og opinberum nefndum.
BRYNDÍS ÍSFOLD HLÖÐVERSDÓTTIR
Fjórðungur þeirra sem sitja í stjórnum fyrirtækja í Kauphöllinni sitja í fleiri stjórn en einni.
Það eru þó einungis karlmenn. Konur eru fimm prósent stjórnarmanna og situr hver að-
eins í einni stjórn.
KYNJAHLUTFÖLL
Vettvangur Karlar Konur
Stjórn fyrirtækis 95% 5%
Nefndir ráðuneyta 74% 26%
Nefndir sveitarfélaga 62% 38%
ÓLAFUR
ÓLAFSSON
Traustvekjandi að
vita að það eru
dómstólar í þessu
landi.