Fréttablaðið - 19.10.2003, Side 23

Fréttablaðið - 19.10.2003, Side 23
þætti, svo sem trú, trúfesti, heil- indi.“ En verður kirkjan ekki að taka afstöðu til samkynhneigðra? Um þessi mál eru deilur víða erlendis. „Við fylgjumst auðvitað náið með því hvað er að gerast innan systurkirkna okkar. Þar valda þessi mál titringi og sársauka. Spurn- ingin um vígslu samkynhneigðs prests hefur aldrei vaknað hér á landi en ég sé ekki að það væri neitt sem mælti á móti því að vígja samkynhneigðan prest.“ Þú sæir ekkert athugavert við það? „Ég sé það ekki.“ Ekki hægt að kyngera Guð Víkjum aðeins að konum í prestastétt. Mér er sagt að 70 prósent nemenda í guðfræðideild séu konur en það er ekki sama hlutfall innan prestastéttarinnar. „Það er ekki óeðlilegt út af fyrir sig. Það er innan við þrjátíu ár síðan fyrst var vígð kona til prestsembættis. Kirkjan heldur fram jafnrétti og hefur samþykkt jafnréttisáætlun. En ætli árang- urinn sé ekki bara spegill af því sem er annars staðar í þjóðfélag- inu þar sem konur í stjórn- unarstörfum eiga undir högg að sækja? Konur eru reyndar sí- stækkandi hluti prestastéttarinn- ar. Frá því ég tók við biskups- embætti árið 1998 hafa 28 prestar vígst til prestþjónustu og þar af 15 konur. Þannig að konurnar eru að sækja fram, og það er vel.“ Truflar það þig ekkert þegar þú heyrir fullyrðingar eins og að Guð sé kona? „Jú, jú, það truflar mig alveg á sama hátt og þegar menn segja að Guð sé karlmaður. Guðsmyndin er miklu blæbrigðaríkari en svo að hægt sé að kyngera hana. Orðið Guð er karlkyns í íslensku máli, en í Biblíunni og í okkar trúarhefð eru notaðar ótal myndir af Guði og þær eru margar hverjar mjög andstæðar, Guð birtist sem konungur, sem Drottinn hersveit- anna, sem hirðir, sem faðir og sem móðir. Kannski eru allar þessar ólíku myndir notaðar um Guð til þess að minna okkur á að engin þeirra er tæmandi. Það er mikil- vægt að muna að Guð er alltaf svo miklu meira en allar okkar hugmyndir um hann. Um leið og við teljum okkur vera komin með tæmandi hugmynd um Guð þá er það um leið ekki hinn lifandi Guð heldur skurðgoð.“ Á fundi í Hallgrímskirkju fyrir síðustu alþingiskosningar sagði Jónína Bjartmarz að margt í öðrum trúarbrögðum stangaðist á við gott siðferði. Ertu sammála þessu? „Eru þessi orð ekki tekin úr samhengi? Grandvart og gott fólk er að finna alls staðar og Guð hefur ritað lögmál sitt í brjóst allra manna. Allar góðar mann- eskjur vita muninn á réttu og röngu en ég fer ekki ofan af því að bestu og heillavænlegustu leiðina í siðferðilegum efnum er að finna í kristinni trú. Jesús Kristur er uppfylling lögmálsins. Ekkert er fegurra, göfugra, sannara en orð hans og leiðsögn. Ég veit ekki hvaða orð þú ert að vitna í en það er vissulega margt í siðum fram- andi menningarheima sem við teljum ekki samrýmast siðferðis- hugmyndum okkar, eins og til dæmis umskurður kvenna og annað þvílíkt sem er haldið fram í nafni trúarbragða.“ Prestar eiga að vera þjóðfélagsgagnrýnendur Oft er talað um neysluna í sam- bandi við fermingar og jól, jafnvel talað um neyslubrjálæði. Hver er afstaða þín til þessa? „Ég er á móti neyslubrjálæði! Auðvitað. Kaupmaður í mið- bænum gaf sig á tal við mig um daginn. Hann sagði: „Er ekki hægt að stoppa þá vitleysu sem þessi sunnudagsopnun er fyrir jólin? Þetta er vinnuþrælkun sem við græðum ekki á en það eru þeir stóru sem ráða ferðinni og við höfum ekki bolmagn til að hamla gegn því.“ Það er kapphlaup um að ná í viðskiptavinina, álagið á fjölskyldur verður mikið og fólk kiknar undan því. Sennilega erum við komin of langt í neyslukapp- hlaupinu. En það er samt snúið að ræða um þessi mál því sem neyt- andi er maður hluti af þessu. Ég hef gaman af því að fara í búðir um jólin og vil gjarnan halda hátíðir á tyllidögum með fjöl- skyldunni og gera það með glæsi- brag. En það gildir í þessu eins og öðru að hófið er best.“ Nú hafa ummæli þín um ein- stök mál oft vakið athygli. Finnst þér að kirkjunnar menn eigi að vera þjóðfélagsgagnrýnendur, benda á meinsemdir og vera óhræddir? „Já, það finnst mér. Þetta hafa prestar alltaf gert og vonandi halda þeir því áfram. Það er hluti af þeirra starfi.“ Hvað með þína stöðu? Stendur kirkjan sameinuð á bak við þig eða eru þar enn flokkadrættir? „Flokkadrættir eru óhjá- kvæmilegir og sitt sýnist hverjum um menn og málefni. Ég er ekkert upptekinn af vangaveltum um það. Maður reynir bara að gera sitt besta. Stundum tekst manni vel upp og stundum illa. Það verður bara að hafa það. Ég veit það líka að enginn gerir svo öllum líki.“ kolla@frettabladid.is SUNNUDAGUR 19. október 2003 UM AÐSKILNAÐ RÍKIS OG KIRKJU „Spurningunni: „Ertu hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju?“ er svarað með já-i eða nei-i, – einu litlu orði. Spurningin er svo miklu flóknari en svo að henni sé hægt að svara með þessum hætti. Ég gef mér það að meirihlutinn sem svarar játandi geri það af umhyggju fyrir þjóðkirkjunni og gefi sér að kirkjan sé með einhverjum hætti undir hæl ríkisvaldsins. En ég veit líka að einhver hluti fólks svarar svo vegna þess að það vill öll kristin áhrif út úr þjóðlífi og okkar opinbera sviði. Ég held samt ekki að meirihluti þjóðarinnar vilji það.“ Mér hefur fundist mikil lágkúra vaða uppi kringum margt af þessu. Til dæmis drauga- göngur sem hafa verið auglýstar á sjálfum Hóla- stað, þvílíkt og annað eins! Og galdrasetrið á Ströndum sem gerir galdrabrennur og kukl að skemmtiefni fyrir ferðamenn. En þetta er ekk- ert grín, það er ógnvænleg og skelfilega saga á bak við þessa hluti. Hin myrku öfl eru raunveruleg. Þau ber að umgangast með varúð. ,, ER GUÐ KONA? „Guðsmyndin er miklu blæbrigðaríkari en svo að hægt sé að kyngera hana. Orðið Guð er karlkyns í íslensku máli, en í Biblíunni og í okkar trúarhefð eru notaðar ótal myndir af Guði og þær eru margar hverjar mjög andstæðar, Guð birtist sem konungur, sem Drottinn hersveitanna, sem hirðir, sem faðir og sem móðir.“ FRÉTTAB LAÐ IÐ /IR A FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.