Fréttablaðið - 19.10.2003, Síða 33

Fréttablaðið - 19.10.2003, Síða 33
33SUNNUDAGUR 19. október 2003 3.34 milljón dílar, 3X linsuaðdráttur (38-114mm), kvikmyndir 320x240 dílar 15 rammar á sek. Hreyfanlegur skjár aftan á sem hægt er að snúa í 180 gráður lóðrétt og 180 gráður lárétt. ACDSee og Magix hugbúnaður fylgir. Notar Compact Flash minniskort. 11MB innbyggð. TILBOÐ meðan birgðir endast Pentax Optio S, ótrúlega lítil með ekta aðdráttarlinsu 3.34 milljón dílar, 3X linsuaðdráttur (35-105mm), kvikmyndir 320x240 dílar 12 rammar á sek. Ótrúlega lítil og nett (kemst inn í sígarettupakka!). 98gr. Lithium Ion hleðslurafhlaða fylgir. ACDSee og Magix hugbúnaður fylgir. Notar SD minniskort. 11MB innbyggð. Tilboð kr. 39.900 Verð áður kr. 49.900 Pentax Optio 33L, með hreyfanlegum skjá Tilboð kr. 29.900 Verð áður kr. 39.900 Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 • Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850 HANDBOLTI HK vann rússneska fé- lagið Stephan 20-18 í seinni leik liðanna í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa í gær. Rússarnir unnu fyrri leikinn 23-22 og komust Kópavogsbúarnir því áfram í keppninni á einu marki. „Við byrjuðum vel og náðum ágætri forystu,“ sagði Árni Stef- ánsson, þjálfari HK. „Svo kom lé- legur kafli hjá okkur en við sýnd- um rosalegan karakter í lokin.“ HK leiddi 19-18 og hefði það dug- að liðinu til að komast áfram í keppninni. Elías Már Halldórs- son tók af skarið og skoraði markið sem gulltryggði HK sigur í viðureiginni samanlagt. „Þeir hleyptu Elíasi í gegn og vonuðu að hann myndi klikka og þeir komast upp í hraðaupphlaup og jafna,“ sagði Árni, sem var mjög ánægður með aðsóknina og stuðninginn sem HK fékk í Digranesi í gær. Árni var ekki farinn að spá í hugsanlega mótherja HK í næstu umferð. Hann segir að þar séu margir spennandi möguleikar, bæði sterk lið eins og TUSEM Essen sem Guðjón Valur Sigurðs- son leikur með og svo önnur sem gæfu HK betri möguleika á að komast áfram í keppninni. ■ FÓTBOLTI Bayer Leverkusen treysti stöðu sína á toppi þýsku Búndeslígunnar með 4-1 sigri á Herthu Berlin á útivelli í gær. Stuttgart vann Werder Bremen og komst í annað sætið og stórsigur á Hannover kom Dormund í þriðja sæti. Bayer Leverkusen hefur eins stigs forskot á Stuttgart eftir leiki dagsins. Brasilíumaðurinn Franca – Francoaldo Sena de Souza – skor- aði snemma leiks fyrir Lever- kusen en Fredi Bobic jafnaði fyrir Herthu snemma í seinni hálfleik. Mörk frá Dimitar Berbatov, Bernd Schneider og Marko Babic tryggðu gestunum sannfærandi sigur. Denis Lapaczinski (Herthu) og Diego Placente (Bayer) voru reknir af velli í seinni hálfleik. Hertha tapaði fyrir pólska félag- inu Groclin Grodzisk á miðvikudag og þykir Huub Stevens, þjálfari Herthu, orðinn valtur í sessi eftir útreiðina gegn Leverkusen. Stuttgart komst upp í annað sætið eftir öruggan sigur gegn Werder Bremen á útivelli. Imre Szabics og Kevin Kuranyi skoruðu með þriggja mínútna millibili seint í fyrri hálfleik og Christian Tiffert bætti þriðja markinu við á lokamínútinni. Gestina munaði ekki um að Andreas Reinke varði vítaspyrnu Aliaksandr Hleb á lokamínútu fyrri hálfleiks. Markið sem Grikkinn Angelos Charisteas skoraði fyrir Werder Bremen á 60. mínútu fékk þó mesta athyglina. Þetta var fyrsta markið sem Timo Hildebrand fær á sig í 884 mínútur og bætti hann met Oliver Kahn frá því í fyrra um 82 mínútur. Borussia Dortmund burstaði Hannover 6-2 á Westfalenstadion. Ewerthon, Lars Ricken og Sebasti- an Kehl komu Dortmund í 3-0 áður en Bergantin Vinicius kom gestun- um á blað. Ewerthon og Jan Koller (2) svöruðu fyrir heimaliðið en Denis Wolf rétti hlut Hannover lít- illega undir lokinn. Bayern München náði aðeins markalausu jafntefli gegn Bor- ussia Mönchengladbach og situr í fimmta sæti. Oliver Kahn lék í marki Bayern og hélt hreinu í fyrsta sinn í tæpa tvo mánuði. ■ Evrópukeppni bikarhafa: HK áfram með einu marki HK Elías Már Halldórsson og Árni Stefánsson fagna sigri HK á rússneska félaginu Stephan í Evrópukeppni bikarhafa. Hildebrand hélt út í 884 mínútur Grikkinn Angelos Charisteas varð fyrstur til að skora hjá Timo Hildebrand á leiktíðinni. Bayer Leverkusen er efst eftir stóran sigur á Herthu í Berlín. LEIKIR LAUGARDAGSINS Werder Bremen - Stuttgart 1-3 Angelos Charisteas - Imre Szabics, Kevin Kuranyi, Christian Tiffert 1860 München - Frankfurt 1-0 Benjamin Lauth Köln - Freiburg 1-0 Mustafa Dogan Mönchengladbach - Bayern München0-0 Dortmund - Hannover 6-2 Ewerthon 2, Lars Ricken, Sebastian Kehl, Jan Koller 2 - Bergantin Vinicius, Denis Wolf Wolfsburg - Hansa Rostock 3-1 Diego Klimowicz, Fernando Baiano 2 - Rene Rydlewicz Hertha Berlin - Bayer Leverkusen 1-4 Fredi Bobic - Franca, Dimitar Berbatov, Bernd Schneider, Marko Babic STAÐAN Leverkusen 9 7 1 1 22:7 22 Stuttgart 9 6 3 0 12:1 21 Dortmund 9 6 1 2 19:8 19 Werder Bremen 9 6 1 2 22:12 19 Bayern München 9 5 3 1 21:12 18 Wolfsburg 9 5 0 4 20:19 15 1860 München 9 4 1 4 8:11 13 Bochum 8 3 3 2 14:10 12 Freiburg 8 3 3 2 12:11 12 Hannover 9 3 2 4 17:21 11 Schalke 8 2 4 2 10:12 10 Hamborg 8 2 2 4 7:15 8 Kaiserslautern 8 3 1 4 8:12 7 Mönchengladb. 9 1 3 5 6:14 6 Hansa Rostock 9 1 2 6 11:19 5 Frankfurt 9 1 2 6 6:14 5 Hertha Berlin 9 0 5 4 7:17 5 Köln 8 1 1 6 7:14 4 LEIKIR Í DAG Kaiserslautern - Hamburg Schalke - Bochum BORUSSIA DORTMUND Sebastian Kehl fagnar marki sínu gegn Hannover ásamt Tékkanum Jan Koller, Norðmann- inum André Bergdölmo og Dananum Niclas Jensen. Enska knattspyrnan: Tranmere vill fá Julian FÓTBOLTI Enska 2. deildarfélagið Tranmere Rovers hefur lýst yfir áhuga sínum að fá Færeyinginn Julian Johnsson í sínar raðir. Julian gekk í sumar í raðir ÍA og er samn- ingsbundinn Skagamönnum út leik- tíðina 2005. Brian Little tók við þjálfun Tran- mere í síðustu viku en Julian lék undir hans stjórn hjá Hull City leik- tíðina 2001-2002. Umboðsmaður Julians hefur haft samband við Skagamenn og sagt þeim frá áhuga Tranmere og sagði Gunnar Sigurðs- son, formaður rekstrarfélags ÍA, að Skagamenn myndu skoða málið á mánudag. ■ FÓTBOLTI Aston Villa og Birming- ham City mætast í 79. sinn í ensku deildakeppninni í dag. Villa hefur fimm sigra forskot á nágranna sína en Birmingham vann hins vegar báða leiki félaganna í fyrra, 3-0 heima og 2-0 á Villa Park. Leikur félaganna á Villa Park fékk langan eftirmála vegna framkomu leikmanna. Dion Dublin var rekinn af velli snemma í seinni hálfleik fyrir að skalla mótherja og Jó- hannes Karl Guðjónsson fékk rautt spjald seint í leiknum eftir glannalega tæklingu. Maik Taylor, markvörður Birmingham, tekur út leikbann í dag og leikur Ian Bennett í hans stað. Aston Villa endurheimtir hins vegar aðalmarkvörð sinn, Danann Thomas Sörensen. Miðju- maðurinn Robbie Savage leikur með Birmingham að nýju en Tyrk- inn Alpay Özalan, sem var í sviðs- ljósinu í síðustu viku, fær frí. Birmingham er í sjötta sæti og getur með sigri stokkið upp í það fjórða. Villa er hins vegar í fjórt- ánda sæti, aðeins þremur stigum á undan botnliði Leicester. ■ Enska knattspyrnan: Nágrannaerjur í Birmingham

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.