Fréttablaðið - 19.10.2003, Síða 34
um afmælistónleikum á Café Aroma í
Verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafna-
firði.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Tveir menn og kassi eftir
Torkild Lindebjerg verður frumsýnt í
Möguleikhúsinu við Hlemm.
14.00 Lína Langsokkur eftir Astrid
Lindgren í Borgarleikhúsinu.
14.00 Dýrin í Hálsaskógi leika laus-
um hala á stóra sviði Þjóðleikhússins.
17.00 Dýrin í Hálsaskógi á stóra
sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Með fulla vasa af grjóti á
stóra sviði Þjóðleikhússins. Hilmir Snær
Guðnason og Stefán Karl Stefánsson
fara á kostum.
20.00 Púntila og Matti eftir Bertolt
Brecht á Stóra sviði Borgarleikhússins.
21.00 Björk Jakobsdóttir flytur
einleik sinn, Sellófon, í Iðnó.
■ ■ SKEMMTANIR
20.00 Caprí-tríó leikur fyrir dansi í
Ásgarði, Glæsibæ.
21.00 Hudson Wayne spilar á
Sirkus á Airwaves-hátíðinni.
21.00 Dj Ewok og Dj Panik sjá um
tónlistina á Vídalín á Airwaves hátíðinni.
21.30 Tenderfoot, Moody
Company, Lights on the Highway,
Rúnar og Ingó spila á Bar 11.
21.30 Tenderfoot, Moody
Company, Lights on the Highway,
Rúnar og Ingó spila á Bar 11.
22.00 Andrea Gylfa og Eðvarð
Lárusson leika af fingrum fram „bland í
poka“ þetta kvöld á Central café bar.
22.00 Gaukurinn: Sunnudagur 19.
okt Í kvöld eru sunnudagstónleikar með
Stebba og Eyfa sem eru með Simon og
Garfunkel-prógramm. Tónleikar byrja kl.
22.
Hörður Torfa syngur og spilar í Mið-
garði, Grenivík á sínu árlega haust-
ferðalagi um landið. Á ferðalaginu kynn-
ir hann nýútkomna plötu sína Eldssaga.
Margrét Jónsdóttir listmálari opnaði
í gær einkasýningu í Gallerí Skugga,
Hverfisgötu 39 og kallast sýningin Mis-
skilningur er svo áhugaverður!
■ ■ ÚTIVIST
10.00 Ferðafélag Íslands býður
upp á gönguferð um Reykjanesskaga.
Gengin verður gamla alfaraleiðin milli
Voga og Grindavíkur, Skógfellaleið.
Áætlaður göngutími eru 4 klukkutímar.
Verð kr. 2.200 fyrir félagsmenn og 2.500
fyrir aðra. Brottför frá BSÍ með viðkomu
í Mörkinni 6.
34 19. október 2003 SUNNUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
16 17 18 19 20 21 22
OKTÓBER
Sunnudagur
Ég var að klára óperudeildina íGuildhall-skólanum í London
í júlí og er með debut-tónleika
núna í Gerðubergi með rosalega
góðum píanóleikara,“ segir Guð-
rún Jóhanna Ólafsdóttir mezzó-
sópran.
Píanóleikarinn heitir Inese
Klotina og hefur unnið til ýmissa
verðlauna. Sjálf hlaut Guðrún Jó-
hanna Kathleen Ferrier-verð-
launin í Wigmore Hall í apríl á
þessu ári. Saman ættu þær því að
fara létt með að töfra áheyrend-
ur upp úr skónum með tónlist-
inni.
Guðrún Jóhanna kynntist
henni í London í Guildhall School
for Music and Drama og þær
hafa starfað mikið saman, verið
með tónleika bæði í skólanum og
víða í Bretlandi.
„Við ætlum að flytja fyrst
nokkur íslensk lög, síðan flytjum
við okkur yfir í þýsk lög eftir
Wolf og Alban Berg.“
Eftir hlé flytja þær síðan
sönglagaflokk eftir Nordal Grieg
sem heitir upp á norsku Haug-
tussa. Guðrún Jóhanna segir
ekki neitt dónalegt vera þarna á
feðinni þótt nafnið hljómi frekar
vafasamt á norskunni.
„Nafnið þýðir bara Stúlkan á
heiðinni. Þetta er mjög fallegur
ljóðaflokkur. Hann fjallar um
unga stúlku sem býr uppi á fjalli.
Hún verður ástfangin af ungum
manni en lendir svo í ástarsorg,“
segir Guðrún Jóhanna.
Guðrún segir að sér finnist
þetta besti sönglagaflokkur fyrir
kvenrödd sem hún hefur haft
kynni af.
„Hann gerist allur uppi á fjöll-
um og það eru bæði sterkar nátt-
úrulýsingar og sterkar lýsingar á
stúlkunni, sem er mikið náttúru-
barn.“
Hún segir píanóleikarann sinn
ekki síður vera hrifinn af þess-
um sönglagaflokki Griegs.
„Það er svo mikið að gerast í
píanóinu, miklu meira en oft ger-
ist í ljóðasöngvum.“
Píanóleikarinn kemur hingað
til lands sérstaklega fyrir þessa
tónleika.
Fyrr í vikunni hélt Guðrún Jó-
hanna tónleika á Akureyri fyrr í
vikunni ásamt eiginmanni sín-
um, spænska gítarleikaranum,
Francisco Javier Jauregui.
„Við vinnum mikið saman og
giftum okkur í sumar í miðalda-
kastala á Norður-Spáni. Hann út-
setti öll lögin fyrir söngrödd og
klassískan gítar. Nú er hann á
fullu að útsetja íslensk sönglög.“ ■
Komin til að syngjaJólahlaðborð
Okkar vinsæla og hátíðlega
jólahlaðborð á Hótel Geysi verður
á eftirfarandi kvöldstundum nú
í nóvember og desember:
29. nóvember:
Sigríður Beinteinsdóttir og Grétar Örvarsson
munu koma fram og skemmta gestum yfir
kvöldverði.
5. desember:
Regína Ósk, söngkona mætir ásamt undirleik-
ara og syngur falleg lög, m.a. „Don’t try to fool
me“
6. desember:
Grétar & Co mæta á svæðið og spila undir borð-
haldi ásamt því sem við sláum upp balli síðar
um kvöldið.
12. desember:
Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson
munu syngja saman sín fallegustu lög í tilefni
jólanna.
13. desember:
Hljómsveitin Karma ætlar að eiga með okkur
góða kvöldstund. Eftir ljúfa tóna og borðhald
tökum við fram dansskóna og dönsum fram á
rauða nótt.
14. desember:
Fjölskylduhlaðborð. Eftir að fjölskyldan hefur
farið saman í Haukadalsskóg og valið sér jóla-
tré, þá kemur hún á Hótel Geysi og borðar sam-
an í friði og ró. Jólasveinninn hefur boðað komu
sína og mun hann gleðja börn og foreldra.
Jólahlaðborð kr. 4.900 fyrir manninn.
Jólahlaðborð og gisting, kr. 8.900
fyrir manninn
Geysir Center, Haukadal,
801 Bláskógabyggð,
s. 486 8915, fax 486 8715,
e-mail: geysir@geysircenter.is,
www.geysircenter.is
■ ■ KVIKMYNDIR
15.00 „Nokkrir dagar í lífi
Oblomovs“ nefnist kvikmyndin sem
sýnd verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10.
Myndin var gerð í Moskvu 1979 og
byggð á frægri skáldsögu eftir rússneska
rithöfundinn Ivan A. Gontsjarov (1812-
91). Leikstjóri er Nikita Mikhalkov.
Enskur texti. Aðgangur ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Sjá www.kvikmyndir.is Sambíóin
Kringlunni, s. 588 0800 Sambíóin Álfa-
bakka, s. 587 8900 Háskólabíó, s. 530
1919 Laugarásbíó, s. 5532075 Regn-
boginn, s. 551 9000 Smárabíó, s. 564
0000 Sambíóin Keflavík, s. 421 1170
Sambíóin Akureyri, s. 461 4666 Borg-
arbíó, Akureyri, s. 462 3500
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Íslenska óperan sýnir tvær
óperur, Madama Butterfly og Ítölsku
stúlkuna í Alsír, í stuttformi.
17.00 Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
mezzósópran og Inese Klotiña píanó-
leikari flytja íslensk einsöngslög og verk
eftir E. Grieg, H. Wolf og Alban Berg á
ljóðatónleikum í Gerðubergi.
17.00 Söngkvartettinn Út í vorið
heldur tónleika í Langholtskirkju. Á efn-
isskránni eru vinsæl kvartettlög fyrri ára
og nýrri útsetningar fyrir kvartettinn,
meðal annars á lögum Jóns Múla Árna-
sonar.
20.00 Liene Circene píanóleikari
frá Lettlandi flytur verk eftir Schubert,
Beethoven, Vasks og Liszt á tónleikum í
Salnum í Kópavogi.
20.30 Tómas R. Einarsson bassa-
leikari og félagar hans verða með út-
gáfutónleika í Nasa við Austurvöll í til-
efni þess að fyrir skemmstu kom út
með þeim geisladiskurinn Havana, sem
inniheldur íslensk/kúbanskan latíndjass.
20.30 Jasssöngkonan Kristjana
Stefánsdóttir flytur lög Ellu Fitzgerald,
Söru Vaughan og Nancy Wilson ásamt
þeim Agnari Má Magnússyni píanóleik-
ara, Gunnari Hrafnssyni bassaleikara
og Erik Qvick trommuleikara á sérstök-
■ TÓNLEIKAR
GUÐRÚN JÓHANNA OG INES KLOTINA
Þær flytja meðal annars sönglagabálkinn Haugtussa eftir Grieg á ljóðatónleikum í Gerðubergi í dag.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
R
A
Foreldrar -
Stöndum saman
Leyfum ekki
eftirlitslaus
unglingapartý.