Fréttablaðið - 19.10.2003, Síða 38
Hugleiðingin 38 19. október 2003 SUNNUDAGUR
■ Morgunstund
Vikan fram undan er annasömhjá Bergvini Oddssyni: „Ég er
að skipuleggja styrktartónleika
fyrir börn með Goldenhar-sjúk-
dóminn, sem verða haldnir á Gauki
á Stöng á fimmtudagskvöldið. Það
hefur farið mikil vinna í að hafa
samband við þá sem koma fram en
næsta vika fer í að setja upp aug-
lýsingar og skipuleggja kynningu
á tónleikunum.“
Fimm börn eru greind með
Goldenhar-sjúkdóminn á Íslandi:
„Ég heyrði viðtal við móður sem á
barn með þennan sjúkdóm í
Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og
fékk þá þessa hugmynd. Sjúkdóm-
urinn lýsir sér þannig að annar
helmingurinn af mannslíkaman-
um er á einhvern hátt skaddaður.
Líkamsþroski er hægari en hjá
venjulegum börnum og krakkana
skortir jafnvel eða eru með gallað
líffæri á annarri hlið líkamans.“
En gengur Bergvini vel að fá
tónlistarmenn til liðs við sig? „Ég
er að verða búinn að setja saman
dagskrána og KK ætlar að koma
og spila. Einnig verða hljómsveit-
irnar Underwater og Skítamórall
og nokkrir uppistandarar þar á
meðal Davíð Þór, og svo er ég
sjálfur með uppistand.
Eftir tónleikana á fimmtudag-
inn verður einnig nóg að gera hjá
Bergvini: „Strax eftir tónleikana
fer ég á Sauðarkrók þar sem ég
skemmti með uppistandi alla
helgina.“
Hægt er að nálgast miða á
styrktartónleikana í forsölu Skíf-
unnar. Þar er miðaverð 1.000
krónur en það kostar 1.500 krónur
við innganginn. ■
Víkan sem var
BERGVIN ODDSSON
■ Skipuleggur tónleika í næstu viku til
styrktar börnum sem þurfa að glíma við
Goldenhar-sjúkdóminn.
Velgengni
Ef A er velgengni í lífinu þá er A sama sem
x+y+z þar sem x er vinna, y leikur og z listin
að halda sér saman.
Albert Einstein, 1879 - 1955.
Skipuleggur styrktartónleika
BÓNUSVÍDEÓ
Söluturnakóngar á Akureyri og í Reykjavík
rugla saman reytum sínum.
Breytingar í
Bónusvídeó
MYNDBÖND Breytingar hafa orðið á
eignarhaldi Bónusvídeós sem rek-
ur 29 myndbandaleigur á landinu
auk annarra söluturna. Þóroddur
Stefánsson, stofnandi fyrirtækis-
ins, hefur selt stóran hlut fyrir-
tækis síns og starfar nú sem
stjórnarformaður þess án viðveru
á skrifstofu. Kaupandi er Pétur
Bjarnason og fleiri fjárfestar en
Pétur rekur Ak - Inn söluturnana
á Akureyri auk ísbúða bæði þar og
í Reykjavík. Þá er Pétur einn af
eigendum Sporthússins í Kópa-
vogi sem hann á og rekur ásamt
Lindu Pétursdóttur og fjölskyldu
hennar.
Með samstarfi Þórodds og Pét-
urs eru flestar myndbandaleigur
á landinu komnar undir einn hatt
og reknar sem slíkar. ■
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Árni Johnsen.
Karl Steinar Guðnason.
Tæp 17%.
Verðlaunamyndin
NÓI ALBINÓI Sýnd í Háskólabíói kl. 4, 6 og 8.
INNSETNING RITHÖFUNDA
Penninn Eymundsson og bókabúðir Máls og menningar standa fyrir átaki til að vekja at-
hygli á íslenskum rithöfundum og bókum þeirra. Rithöfundar hafa verið fengnir til að vera
með innsetningar og voru það Vilborg Davíðsdóttir og Viktor Arnar Ingólfsson sem riðu á
vaðið og komu með persónulega muni í búðina.
Mér finnst gott að vera laturþegar tækifæri gefst til,“
segir Einar Oddur Kristjánsson
alþingismaður um morgunstund-
ina sína. „Þá sjaldan ég á frí á
sunnudagsmorgnum finnst mér
gott að dorma og lesa. Og dorma
svo aftur. En það er bara allt of
sjaldan sem ég kemst upp með
það. Það er hins vegar liðin tíð að
ég fái mér sætabrauð á slíkum
morgnum og þá alls ekki upp í
rúm. Nú er það bara fitness –
kornfleks. Ekkert annað.“ ■
LÁRÉTT: 1 hetja, 7 hor, 8 prik, 9 reykháfa-
hreinsara, 11 fimmtíu og einn, 12 furðu,
15 samtenging, 16 mikil mergð, 17 gerði
oddhvassari.
LÓÐRÉTT: 1 varningur, 2 frá, 3 lokin, 4 fugl,
5 lengra frá, 6 saumaði lauslega eða hag-
ræddi seglum, 10 geðvonska, 13 ganga
upp og niður, 14 skjögur, 15 eyja.
LAUSN. LÁRÉTT: 1garpur, 7ófeiti,8staf,
9sótara,11li,12undri,15en,16úi,17
yddaði.
LÓÐRÉTT: 1góss,2af, 3restin,4rita,
5utar, 6rifaði,10ólund,13dúa,14rið,
15ey.
1
7
8
9 10
12 13
15 16
14
17
2 3 4 5
11
6
BERGVIN ODDSSON
Hefur nóg að gera í vikunni við að
skipulegga styrktartónleika sem verða á
Gauknum á fimmtudaginn en þar
verður Bergvin einnig með uppistand.
Ég var einmitt að öfundast út ífólkið í ítölsku myndinni sem
var sýnd í sjónvarpinu síðasta
sunnudag. Þar var hópur sem hitt-
ist alltaf á sunnudögum og borð-
aði saman í skínandi sól úti á svöl-
um. Þannig væri ég til í að eyða
sunnudagseftirmiðdeginu,“ segir
Hildur Rúna Hauksdóttir hómó-
pati.
„Ég er löngu hætt að hafa læri
á hverjum sunnudegi, sú venja
lagðist af þegar börnin fluttu að
heiman. Nú er ég bara með góðan
mat á laugardögum eða hvenær
sem börnin mín eða vinir eru til
staðar.“
Á æskuheimili Hildar var hefð
fyrir sunnudagsmatnum: „Þar var
alltaf lambalæri með súpu á und-
an. Ég byrjaði snemma að aðstoða
mömmu við eldamennskuna og
þegar ég fór að búa viðhélt ég
þessari venju. Ég kaupi lambið
við hvert tækifæri sem gefst.
Bæði til að styrkja landbúnaðinn
og líka af því að mér finnst það
svo gott.“
Hildur lumar á góðri uppskrift
að lambinu: „Stundum elda ég það
á hefðbundinn hátt en mín aðferð
er mun vinsælli. Þá steiki ég
lambið með kíló af lauk og kílo af
sneiddum kartöflum og helli svo
kjötsoðinu yfir í restina. Svo bý ég
til gott lífrænt ræktað salat og hef
enga sósu með því salatið er svo
gott á bragðið.“
Sunnudagarnir í seinni tíð eru
með ýmsu sniði hjá Hildi: „Nú á
sunnudögum eru allir orðir svo
þreyttir að það þarf að nota þá til
að hvíla sig. Við vinkonurnar för-
um oft og fáum okkur súpudisk í
Nauthóli á sunnudögum því það
nennir engin að hafa fyrir því að
elda. Sindri dóttursonur minn var
mikið hjá mér þegar hann var
yngri og þá eldaði ég oft fyrir
hann. Fyrir ekkert ægilega mörg-
um sunnudögum síðan vorum við
á Bæjarins bestu, svona eru
sunnudagarnir nú orðnir.“ ■
HILDUR RÚNA HAUKSDÓTTIR
Er löngu hætt að hafa læri á hverjum
sunnudegi en hefur gaman af að elda fyrir
fjölskyldu og vini.
Sunnudagssteikin
HILDUR RÚNA HAUKSDÓTTIR
■ Lumar á góðri uppskrift að íslenska
lambalærinu.
Lambið við
hvert tækifæri
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
R
A