Fréttablaðið - 11.12.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 50
Leikhús 50
Myndlist 50
Íþróttir 46
Sjónvarp 52
FIMMTUDAGUR
ERINDI UM TEIKNIMYNDIR Kyle
Balda heldur fyrirlestur um hreyfimynda-
gerð, kvikmyndagerð og tölvuvinnslu á Hót-
el Nordica klukkan 16. Balda er mjög
reyndur á sínu sviði og vann meðal annars
við myndir eins og Toy Story 2, Monsters
Inc., A Bug’s Life og Hringadróttinssögu.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
11. desember 2003 – 309. tölublað – 3. árgangur
jólagreinar ● jólagjafaþjónusta
Anna Guðný Guðmundsdóttir:
▲
SÍÐUR 32 til 37
Skötustappa af
ýmsum styrkleika
FELLDUR NIÐUR Í ÁFÖNGUM Frum-
varp um afnám sjómannaafsláttar var lagt
fram á Alþingi í gærkvöld. Samkvæmt því
skerðist afslátturinn um fjórðung á ári og
kemur fyrsta skerðing til árið 2005. Sjá síðu 6
ÓVIÐUNANDI ÁSTAND Ný mál hafa
hrannast inn hjá Geðhjálp. Starfsfólk samtak-
anna hefur ekki undan og er að bugast und-
an álaginu en 67 ný mál hafa komið inn á
borð samtakanna að undanförnu. Sjá síðu 2
TILLÖGUR KYNNTAR Stjórnendur Land-
spítalans kynntu í gær stjórnarnefnd spítalans
tillögur að rekstrarniðurskurði fyrir næstu ár.
Samþykkt var að kynna heilbrigðisráðherra til-
lögurnar á fundi í dag. Sjá síðu 2
ALÞINGI Þingfararkaup for-
manna þeirra þriggja stjórn-
málaflokka á Alþingi sem
ekki eru ráðherrar mun
hækka um 50% samkvæmt
nýju frumvarpi sem lagt var
fram af fimm þingmönnum
úr öllum flokkum á Alþingi
seint í gærkvöld.
Í greinargerð með frum-
varpinu kemur fram að ráð-
herrar fái greitt 80% álag á
þingfararkaup og forsætis-
ráðherra nær tvöfalt þingfarar-
kaup. Því þyki þessi breyting hóf-
leg.
Þær takmarkanir eru settar að
aðeins þeir formenn stjórnmála-
flokka sem hafa fengið að minnsta
kosti þrjá þingmenn kosna á Al-
þingi fái 50% álag á þingfarakaup.
Samkvæmt því munu þeir Össur
Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, Guðjón Arnar
Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, og Stein-
grímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna,
eiga von á þessari launa-
hækkun.
Gylfi Arnbjörnsson,
framkvæmdastjóri Al-
þýðusambands Íslands,
segir að helstu forystu-
menn sambandins hafi
rætt saman í gærkvöldi eft-
ir að þeir heyrðu af fyrir-
huguðum lagabreytingum.
Hann segir að forystumenn Al-
þýðusambandsins muni koma sam-
an í dag til að bera saman bækur
sínar og meta hvaða áhrif þetta
muni hafa á komandi kjarasamn-
inga. ■
MUSE Í HÖLLINNI Matthew Bellamy, söngvari og gítarleikari bresku rokkhljómsveitin Muse, hélt uppi góðri stemmningu á tónleikum
sveitarinnar í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Höllin var þéttsetin enda löngu uppselt á tónleikana.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
LF
U
R
Bónusránið:
Starfsmaður
í vitorði
LÖGREGLUMÁL Starfsmaður Bónus í
Kópavogi hefur játað að hafa tek-
ið þátt í skipulagningu vopnaðs
ráns í versluninni á mánudags-
kvöld. Starfsmaðurinn var við-
staddur þegar ránið var framið.
Samkvæmt lögreglunni hefur
komið í ljós að haglabyssurnar
sem notaðar voru í ráninu eru þýfi
úr innbroti í Keflavík í síðustu
viku.
Mennirnir tveir sem hand-
samaðir voru á mánudagskvöld
hafa verið úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 23. desember. Þeir
eru nítján ára og voru búnir að
saga framan af haglabyssunum
sem þeir ógnuðu starfsfólki með.
Andlit þeirra sáust ekki, þar sem
þeir voru með húfur sem þeir
höfðu dregið niður og klippt á göt
fyrir augun. ■
jólin koma
tímalaus hönnun ● íslenskt skart
Kristín Stefánsdóttir:
▲
SÍÐUR 26 til 29
Í miðaldakjól
um jólin
tíska o.fl.
kanaríeyjar ● kaupmannahöfn
Flosi Ólafsson:
▲
SÍÐUR 30 og 31
Frábært á
Hvammstanga
ferðir o.fl.
Alþýðusamband Íslands fundar um launahækkun alþingismanna í dag:
Þingfararkaup hækkar um 50%
Opið til 22.00
fram að jólum
FALSANIR Málverkum sem hald var
lagt á í málverkafölsunarmálinu
verður skilað til eigenda sinna eft-
ir að Hæstiréttur hefur fellt dóm í
málinu. Ekki er lagastoð til þess
að gera verkin upptæk og eyða
þeim. Alls er um að ræða 103 lista-
verk sem sönnur hafa verið færð-
ar á að séu fölsuð og merkt mörg-
um helstu meisturum íslenskrar
málaralistar.
„Það er ekki hægt að gera
verkin upptæk. Fólkið á myndirn-
ar og fær þær aftur en það er ekki
hægt að selja þær aftur þar sem
upplýsingar munu liggja fyrir hjá
Listasafni Íslands,“ segir Jón H.B.
Snorrason, yfirmaður efnahags-
brotadeildar Ríkislögreglustjóra.
Mál þetta veldur miklum
áhyggjum innan listaheimsins og
þykir ávísun á það að verkin munu
ganga kaupum og sölum síðar og
skekkja markaðinn. Ólafur Kvar-
an, forstöðumaður Listasafns Ís-
lands, sagði í samtali við Frétta-
blaðið að sú áhætta væri fyrir
hendi að verkin færu aftur inn á
markaðinn.
„Þetta veldur öllum þeim sem
láta sig málið varða miklum
áhyggjum. Þá er þetta afar sér-
kennilegt í ljósi höfundarréttar,“
segir Ólafur.
Víða í nágrannalöndum eru
lagaákvæði um að eyða skuli föls-
unum af þessu tagi. Ólafur segir
alvöru málsins vera svo mikla að
ástæða sé til þess að Alþingi gefi
málinu gaum.
„Það er eðlilegt að huga að
lagabreytingu til að tryggja að
þessi verk fari ekki aftur í dreif-
ingu,“ segir Ólafur.
rt@frettabladid.is
hrs@frettabladid.is
Fölsuðu málverkin
fara aftur í umferð
103 fölsuð listaverk aftur til eigenda þegar hæstaréttardómur fellur í málverkafölsunarmálinu.
Forstöðumaður Listasafns Íslands áhyggjufullur og vill lagabreytingu til að verkin fari ekki á markað.
EIGA VON Á LAUNAHÆKKUN
Þingfararkaup þeirra Össurar Skarphéðinssonar, Guðjóns Arnars
Kristjánssonar og Steingríms J. Sigfússonar mun hækka um 50%.
ÓLAFUR KVARAN
Hætt við að verkin fari aftur á markað.
Þá er þetta afar sérkennilegt í ljósi
höfundarréttar.
ÍSKALT UM ALLT LAND Éljaloft hér og
hvar. Lúmsk hálka. Dúða sig og sína vel.
Frostbit í tærnar er mjög vont. Jólagjafainn-
kaupin fara fram í kulda en ekki þó trekki.
Sjá síðu 6
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T