Fréttablaðið - 11.12.2003, Síða 6
6 11. desember 2003 FIMMTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 73,37 0,04%
Sterlingspund 127,96 0,19%
Dönsk króna 12,05 -0,27%
Evra 89,66 -0,29%
Gengisvísitala krónu 124,86 -0,14%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 335
Velta 4.815 milljónir
ICEX-15 2.081 -0,92%
Mestu viðskiptin
Kaldbakur hf. 762.631.119
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 327.941.174
Pharmaco hf. 292.222.787
Mesta hækkun
Flugleiðir hf. 1.68%
Kögun hf. 1.01%
Sölum.Hraðfrystihúsanna hf. 0.88%
Mesta lækkun
Nýherji hf. -5.56%
Landsbanki Íslands hf. -2.48%
Fjárfestingarfélagið Atorka hf. -2.30%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.949,0 0,3%
Nasdaq* 1.909,8 0,1%
FTSE 4.335,4 -1,0%
DAX 3.820,9 -0,7%
NK50 1.261,3 -0,2%
S&P* 1.059,7 -0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvað heitir friðarverðlaunahafiNóbels?
2Á hvaða reikistjörnu telja bandarískirvísindamenn að menn geti lifað?
3Hvaða enska stórliði hefur verið boðiðað leika gegn KR á næsta ári?
Svörin eru á bls. 54
Samgönguráðherra um millilandaflug:
Verður ekki ríkisstyrkt
ALÞINGI „Millilandaflug verður ekki
stundað nema fyrir því séu rekstr-
arlegar forsendur. Stjórnvöld hafa
ekki í hyggju að beita beinum
styrkjum eða sértækum aðgerðum
til að millilandaflug verði stundað
frá Akureyri,“ sagði Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra á Al-
þingi í gær þegar hann var spurður
að því í fyrirspurnartíma hvort
stjórnvöld ætluðu að kanna leiðir til
að stuðla að beinu millilandaflugi
frá Akureyri í ljósi ákvörðunar
Grænlandsflugs að hætta að bjóða
upp á slíkt.
Sturla sagði að teldu flugfélög
markaðslegar forsendur fyrir slíku
fögnuðu stjórnvöld því og greiddu
götu þess félags eins og mögulegt
væri, eins og með fyrirgreiðslu Air
Greenland þegar það félag fékk öll
leyfi og undanþágur. Hann sagði að
vissulega væru það vonbrigði að
ekki væru lengur markaðslegar for-
sendur fyrir fluginu.
„Ríkisstyrkt millilandaflug
þekkist ekki á Evrópska efnahags-
svæðinu mér vitanlega og er í
grundvallaratriðum óheimilt. Ég
treysti hins vegar því að þeir sem á
þessum markaði starfa komi fram
með lausnir sem geri millilandaflug
frá öðrum stöðum en Keflavík fýsi-
legt, eins og flug LTU til Egilsstaða
tvö undanfarin sumur. Ég vara ein-
dregið við því að sveitarfélög taki
að sér að greiða halla á millilanda-
flugi til landsins,“ sagði Sturla. ■
KJARASAMNINGAR „Það er nokkuð
sérstakt að sá fjármálaráðherra,
sem fjórum sinnum hefur neyðst
til þess að setja lög á kjaradeilur
sjómanna og útvegsmanna, skuli
nú koma með
þetta innlegg í
upphafi kjara-
viðræðna þess-
ara aðila,“ segir
Sævar Gunnars-
son, formaður
Sjómannasam-
bands Íslands.
Hann vísar
þar til áforma
Geirs H. Haarde
fjármálaráðherra um afnám sjó-
mannaafsláttarins. Samkvæmt
frumvarpi sem lagt var fram á Al-
þingi í gærkvöld verður afsláttur-
inn felldur niður í jöfnum áföng-
um á tímabilinu frá 1. janúar 2005
til 1. janúar 2008. Sjómanna-
afslátturinn lækkar um 25% á
hverju ári frá 2005 og fellur alveg
niður árið 2008.
Upphaf sjómannaafsláttar má
rekja allt aftur til ársins 1954 þeg-
ar lögfestur var annars vegar svo-
nefndur hlífðarfatafrádráttur og
hins vegar fæðisfrádráttur. Af-
slátturinn hefur minnkað að raun-
gildi undanfarin ár vegna fækk-
unar sjómanna og er áætlað að
hann nemi um 1.100 milljónum
króna á næsta ári.
„Þetta er hluti af okkar kjörum
og verður ekki tekið af bótalaust,“
segir Sævar Gunnarsson og bætir
við að áformin geti torveldað
kjaraviðræður sem eru að skríða
af stað mili sjómanna og útvegs-
manna.
Í greinargerð með frumvarp-
inu segir að sjómannaafslátturinn
þyki ekki í takt við tímann eða
ríkjandi viðhorf í skattamálum.
Eðlilegt sé að um kjör sjómanna
sé samið í frjálsum samningum
milli þeirra og viðsemjenda
þeirra. Þá þyki ríkisstjórninni rétt
að af hennar hálfu liggi fyrir á Al-
þingi mörkuð stefna varðandi af-
nám sjómannaafsláttarins, þannig
að samningsaðilar geti haft hana
til hliðsjónar í viðræðum sínum.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, hefur lýst
því yfir hér í Fréttablaðinu að
ekki komi til greina að útgerðin
bæti sjómönnum afsláttinn.
the@frettabladid.is
ZHÍRINOVSKÍ
Zhírinovskí ávarpar fréttamenn í Moskvu.
Vladimir Zhírinovskí:
Tilkynnir
framboð
MOSKVA, AP „Ég vonast til þess að ná
að minnsta kosti öðru sæti,“ sagði
rússneski þjóðernissinninn Vladi-
mír Zhírinovskí þegar hann lýsti því
yfir að hann ætlaði að bjóða sig
fram til forseta Rússlands í kosn-
ingunum á næsta ári. Þjóðernis-
öfgaflokkur Zhírinovskís, sem
reyndar nefnist Frjálslyndir
demókratar, lenti í þriðja sæti, með
11,6% atkvæða, í nýafstöðnum
þingkosningum.
Fyrir skemmstu kynnti flokkur
Zhírinovskís sex ára áætlun um að
koma á fót breyttu stjórnkerfi í
Rússlandi. Breytingarnar fela í sér
aukin völd til handa forseta landsins
og afnám efri deildar þingsins.
Zhírinovskí bauð sig fram til
forseta í kosningunum 1996 og
2000. ■
Pakkar til Bandaríkjanna:
Tilkynni
um mat
SENDINGAR Einstaklingar og fyrir-
tæki sem ætla að senda matvæli til
Bandaríkjanna þurfa að tilkynna
sendinguna til Matvæla- og lyfja-
eftirlits Bandaríkjanna áður en
sendingin fer úr landi. Gildir þá
engu hvort um stórar sendingar
eða litlar er að ræða.
Tilkynna á um sendinguna
gegnum vef Matvæla- og lyfjaeft-
irlitsins, www.fda.gov.
Egg og flestar tegundir kjöts eru
undanþegin reglugerðunum. ■
Samráðsskýrslan:
Olíufélögin
skoða málin
SAMKEPPNISMÁL Þó ekkert olíufélag-
anna hafi enn farið fram á viðbótar-
frest til að skila athugasemdum sín-
um við seinni hluta frumskýrslu
Samkeppnisstofnunar um meint
ólöglegt samráð þykir ljóst að þau
muni fara fram á slíkan frest, verði
ekki samið um lausn mála áður.
„Við erum að melta þetta,“ sagði
Kristinn Hallgrímsson, lögmaður
Esso, en vildi að öðru leyti lítið tjá
sig um skýrslu Samkeppnisstofnun-
ar og ekkert efnislega. Á honum var
helst að skilja að ekki hefðu verið
teknar ákvarðanir um næstu skref í
málinu. ■
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
2
0
3
STURLA BÖÐVARSSON
Ráðherra sagði að stjórnvöld hefðu ekki í
hyggju að beita beinum styrkjum til að
millilandaflug yrði stundað frá Akureyri.
■ Bandaríkin
ÁKÆRUR VEGNA ELDSVOÐA Í
NÆTURKLÚBBI Eigendur nætur-
klúbbs í Rhode Island, þar sem
eitt hundrað manns brunnu inni í
eldsvoða í febrúar, hafa verið
ákærðir fyrir manndráp af gá-
leysi. Eldurinn kviknaði út frá
sviðsbúnaði rokkhljómsveitarinn-
ar Great White. Skipuleggjandi
tónleikaferðalags hljómsveit-
arinnar var einnig kærður.
TRÉ FÉLL Á HLAUPARA Ung kona
varð fyrir tólf metra háu tré þeg-
ar hún var úti að skokka í bænum
Titusville í Flórída. Konan lést
þegar tréð féll á hana og lá lík
hennar fast undir trjábolnum.
Eiginmaðurinn lýsti eftir konunni
þegar hún skilaði sér ekki heim
en líkið fannst þó ekki fyrr en
daginn eftir.
SJÓMANNAAFSLÁTTURINN FYRIR BÍ
Frumvarp fjármálaráðherra, sem lagt var fram á Alþingi í gærkvöld, gerir ráð fyrir að
sjómannaafslátturinn, sem verið hefur við lýði í hálfa öld, falli út í áföngum á
árunum 2005 til 2008.
„Þetta er
hluti af okkar
kjörum og
verður ekki
tekið af bóta-
laust.
Afslátturinn felldur
niður í áföngum
Frumvarp um afnám sjómannaafsláttar var lagt fram á Alþingi í gær-
kvöld. Samkvæmt því skerðist afslátturinn um fjórðung á ári og kemur
fyrsta skerðing til árið 2005. Getur torveldað kjaraviðræður.