Fréttablaðið - 11.12.2003, Page 31

Fréttablaðið - 11.12.2003, Page 31
31FIMMTUDAGUR 11. desember 2003 Uppáhaldsstaðurinn minn á Ís-landi um þessar mundir er Hvammstangi,“ segir Flosi Ólafs- son, leikari og rithöfundur. „Það er vegna þess að ég er nýbúinn að stjórna þar jólahlaðborðsveislu og þeim þótti ég svo skemmtilegur. Nú er sumsé Hvammstangi minn uppáhaldsstaður,“ segir Flosi, sem flutti heimamönnum gaman- mál og brotabrot úr bókinni sinni Ósköpin öll. Hann segist þó ekki endilega velja sér áfangastaði eftir því hvernig hann fellur í kramið „Ég hef ekki tök á því og ég renni yfir- leitt blint í sjóinn. En mér þótti ákaflega gaman að gera svona mikla lukku á Hvamms- tanga. ■ FLOSI ÓLAFSSON Segist hlæjandi eiga vini um land allt sem komi til af því að hann sé svo skemmtilegur maður. 12. janúar – 8 dagar Við fljúgum til Orlando þar sem sólin skín og garðar eða golf stytta þér stundir. Síðan er siglt í þrjá daga á Carnival Fantasy frá Port Canaveral til Bahamas. Lífið um borð í skipinu er sannkallað kóngalíf og ekki skemmir fyrir, að í Nassau er nógu langt stopp til að skoða sig vel um, versla og spila golf. Innifalið í verði: Flug, gisting á Holiday Inn og Adams Mark, flutningur milli flugvallar, hótela og skips, sigling með fullu fæði (án drykkja) og skemmtiaðstöðu um borð, þjórfé á skipinu, hafnargjöld og íslensk fararstjórn í Orlando. Aukagjald: Flugvallaskattur kr. 6.400. Verð aðeins kr. 96.100 Ferðaávísun má nýta sem greiðslu inn á eina pakkaferð (flug og gisting) hjá söluaðilum ferða í samstarfi við MasterCard. Orlando og sigling til Bahamas Um 2.500 Íslendingar fara ískipulagðar ferðir til útlanda um jólin. Auk þess fer alltaf tölu- verður fjöldi á eigin vegum, til dæmis að hitta vini og ættingja sem búa erlendis. Jólaferðir ferðaskrifstofanna virðast allar vera uppseldar og virðist sem ásókn í þær sé að aukast. „Það hefur sjaldan verið jafn mikill áhugi á að vera erlendis um jólin,“ segir Laufey Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Plúsferða, en á þeirra vegum fara um 500 manns til Kanaríeyja og Benidorm um jólin. Laufey segist hafa skýringar á þessari auknu aðsókn. „Það er klárt að þegar skólafrí barnanna breyttust og sumarleyfið styttist fór fólk að nota jólafríið betur. Við fundum sterkt fyrir þessu í fyrra, allt í einu seldist ein vikan upp og voru þá vetrarfrí framundan.“ Um eitt þúsund manns verða erlendis á vegum Heimsferða um jólin, en þar eru Kanaríeyjar langstærsta pakkaferðin. Um átta hundruð manns fara þangað í fjór- um vélum og er það fjórðungs- aukning frá því í fyrra. „Í vetur er heildaraukning farþega til Kanaríeyja 50%,“ segir Andri Már Ingólfsson. Jólaferðirnar hafi verið uppseldar í október og sí- fellt fleiri sæki í þær. „Fólk lítur á þetta sem tækifæri til að komast í frí með fjölskyldunni. Þetta fer mikið eftir því hvernig frí raðast upp og margir vilja komast í frí eftir föstudaginn 19. desember. Þá er komið frí í skólum. Svo er helgi í byrjun janúar þannig að margir vilja nýta hana og koma heim 6. janúar. Þannig fær fólk gott frí út úr ferðinni, næstum eins og sum- arfrí.“ Um 900 manns fara í skipulagð- ar ferðir á vegum Úrvals-Útsýnar um jólin. „En svo gæti verið annað eins sem fer á eigin vegum,“ segir Guðrún Sigurgeirsdóttir. „Við för- um í þrjár ferðir til Kanaríeyja með 600 farþega. Þá förum við til Benidorm, en beint leiguflug þangað er nýjung. Þangað fara um 200 farþegar. Síðan fara um 100 farþegar í skíðaferðir til Ítalíu.“ Hjá Terra Nova - Sól er skipu- lögð ferð til Kýpur með um sextíu manns, en þar hefur einnig orðið aukning frá því í fyrra. ■ Húnaþing vestra: Hvammstangi frábær staður FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Utanlandsferðir um jólin: Sjaldan verið jafn mikill áhugi FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR Farþegum hefur fjölgað um rúmlega 26% milli nóvembermánaða 2002 og 2003. Flugstöð Leifs Eiríkssonar: Fjölgun farþega Farþegum um Flugstöð LeifsEiríkssonar fjölgaði um rúm- lega 26% í nóvembermánuði mið- að við sama mánuð í fyrra, úr tæplega 71 þúsund farþegum árið 2002 í rúmlega 89 þúsund farþega nú. Mest vegur fjölgun farþega til og frá Íslandi sem er rúmlega 28% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um 15% á sama tíma. Nóvember er sá mánuður ársins þar sem fjölgun farþega hefur verið hlutfallslega mest milli ára. Alls hefur farþegum um Flug- stöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um tæplega 12% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2002, eða úr rúmlega 1.157 þúsund far- þegum í rúmlega 1.291 þúsund farþega. ■ Ísíðustu viku héldu Landmæl-ingar Íslands ráðstefnu í Bíó- höllinni á Akranesi undir yfir- skriftinni „IS 50V – Landupplýs- ingar fyrir framtíðina“. Þar var kynnt 1. útgáfa stafræns korta- grunns af öllu Íslandi í mæli- kvarðanum 1:50.000 sem nefnist IS 50V. Sama dag var opnuð sýningin „Í rétta átt“ í Safnaskálanum að Görðum þar sem rakin er saga landmælinga og kortagerðar á Ís- landi. Við opnun sýningarinnar af- henti Þorkell Helgason, forstjóri Orkustofnunar, Magnúsi Guð- mundssyni, forstjóra Landmæl- inga Íslands, eldri landmælinga- gögn Orkustofnunar. ■ VIÐ LEIFSSTÖÐ Upplýsingar í síma 421 2800 Landmælingar Íslands: Landupplýsingar til framtíðar OPNUN SÝNINGAR Í SAFNASKÁLANUM AÐ GÖRÐUM Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra opnar sýninguna. Með henni á myndinni eru Þorvaldur Bragason, forstöðumaður upplýsingasviðs Landmælinga Íslands, og Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands. Niðurstöður úr talningu Ferða-málaráðs Íslands á ferðamönn- um sem fara um Leifsstöð sýna að nýliðinn nóvembermánuður skilaði, eins og aðrir mánuðir ársins, veru- lega fleiri erlendum ferðamönnum en í fyrra. Aukningin á milli ára nemur rúmum 22%. Verði áfram- haldandi aukning í desember með sama hætti stefnir í að ferðamenn verði um 320.000 í ár, sem þar með væri orðið metár í íslenskri ferða- þjónustu. Talningarnar sýna að 15.136 er- lendir ferðamenn fóru um Leifsstöð í nóvember nú en þeir voru 12.404 í sama tímabili í fyrra. Banda- ríkjamarkaður hefur styrkst og sýnir tæp- lega 17% aukn- ingu á milli ára. Mesti hluti f j ö l g u n a r farþega er frá Norðurlönd- unum og Bretlandi. Þýskaland og Suður-Evrópa halda áfram með góða aukningu og betri samgöngur við Japan skila auknum farþega- fjölda þaðan. ■ FERÐAMENN Ferðamönnum fjölgar milli ára. 22% fjölgun erlendra ferðamanna í nóvember: Stefnir í 320 þúsund ferðamenn í ár KANARÍEYJAR Vinsælasti áfangastaðurinn um jólin. TILBOÐ TIL KANARÍ Plúsferðir eru með tilboð á ferð- um til Kanarí 10. og 17. janúar í 14 nætur. Gisting á Aloe 10. eða 17. janúar í 14 nætur á 49.990 kr á mann. Sama verð fyrir þrjá í íbúð. Innifalið er flug, flugvallar- skattar, gisting, akstur og íslensk fararstjórn. ■ Út í heim

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.