Fréttablaðið - 11.12.2003, Page 38

Fréttablaðið - 11.12.2003, Page 38
38 11. desember 2003 FIMMTUDAGUR Pondus eftir Frode Øverli „My plug in baby Crucifies my enemies When I’m tired of giving My plug in baby In unbroken virgin realities Is tired of living“ - Einhverjir gestir Laugardalshallar í gær hafa ef- laust fengið dýpri skilning á textanum Plug in Baby af plötunni Origin of Symmetry frá árinu 2001. Text- inn gæti hæglega fjallað um sjónvarp, kynlífstæki eða gítar. Matthew Bellamy veit svarið. Popptextinn 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 MEST SELDU SKÁLDVERKIN Í VERSL- UNUM PENNANS-EYMUNDSSONAR FIFA FOOTBALL 2004 Allar tölvur CHAMPIONSHIP MANAGER PC RETURN OF THE KING Allar tölvur TRUE CRIME: STREETS OF L.A. Allar tölvur NEED FOR SPEED Allar tölvur TONY HAWK’S UNDERGR. Allar tölvur MEDAL OF HONOR: RISING SUN Allar tölvur MANHUNT PS2 SSX 3 Allar tölvur FINDING NEMO Allar tölvur Topp 10tölvuleikir MUSE Fréttiraf fólki Fréttiraf fólki Guði sé lof fyrir P!nk. Á samatíma og Britney (og hvað þær nú heita allar þessar stráka og stelpusveitir!?!) syngja ofan á sál- arlausu súpu sem er málamiðlun 40 pródúsenta rifrildis mætir á svæðið stúlka sem virðist hafa puttana í sínum málum. Hún virð- ist líka gædd vænum skammti af hroka, sem er ekkert nema gott í tónlistarbransanum ef menn of- metnast ekki. Þó svo að P!nk teljist til MTV- poppara liggur grunnur hennar greinilega í rokkinu. Lagasmíðar eru öruggar og passað upp á að þær séu „þægilega ögrandi“, ef svo má að orði komast. P!nk er enginn pönkari, en það er alveg líklegt að markaðsstjórinn hennar hafi einhvern tímann verið það! P!nk fær svo prik fyrir það að hún tekur á hlutum sem skipta máli í textum sínum. Í stað þess að vera bara í þeim gír að fram- kalla standpínu hjá unglingsstrák- um eins og Britney tekur hún annað slagið á eiturlyfjanotkun, bjagaðri sjálfsímynd og auðvitað ástinni. Svo getur hún sungið og hefur flotta hása rödd, smá viskí þar sem eykur töffaraímynd hennar. Svo er hún með Peaches sem gest í einu laginu, getur ekki klikkað! Mjög fín poppplata frá stráka- stelpu með karakter. Birgir Örn Steinarsson Umfjölluntónlist P!NK TRY THIS Bleikt en ekki beygt Þetta er önnur platan frá Mið-nesi en sú fyrsta, Reykjavík helvíti, kom út fyrir þremur árum. Miðnes spilar létta popp/rokktónlist og minnir stundum á þær fínu sveitir Nýdönsk og Beach Boys. Sér- staklega fannst mér henni svipa til Nýdanskrar í laginu „Allt sem þú vilt“. Það sem Miðnes vantar hins vegar til að ná al- mennum vinsældum eru hittar- ar. Þeir eru ekki til staðar á þessari plötu en næstum því. „Hún er“ er til dæmis mjög fínt popplag með skemmtilegum texta. Stendur það upp úr öðrum á plötunni, þó svo að hin séu flest hver góð. Þar má nefna „Allt sem þú vilt“ og lokalagið „Verður ekki verra“ þar sem Rúnar Júl stendur fyrir sínu sem gestasöngvari. „Hugsaðu um aðra“ er einnig fínt og við- lagið í „Ég sprengi klukkan þrjú“ er mjög grípandi. Meiri brodd vantaði hins vegar í söng- inn í „Ef þú lifir“. „Alein“ er ágæt poppplata og fór hún fram úr mínum vænt- ingum. Ekkert lag var slæmt heldur voru þau flest nokkuð jöfn að gæðum. Yfirhöfuð var seinni hluti plötunnar þó ekki jafn góður og sá fyrri. Engu að síður, prýðilegt. Freyr Bjarnason Umfjölluntónlist MIÐNES ALEIN Prýðilegt Lögreglan í Atlanta rannsakar núásakanir á hendur Bobby Brown um heimilisofbeldi. Eiginkona hans Whit- ney Houston hringdi taugaveikluð í lög- regluna á sunnudags- kvöldið og sagði að maðurinn sinn hefði barið sig. Bobby hoppaði upp í bíl sinn og flúði til Kaliforníu. Þegar lög- reglan mætti á heimili þeirra hjóna var Houston með áverka á vinstri kinn. Lögreglan er nú að rannsaka það hvort Bobby verði kærður eða ekki. Lögfróðir menn í Bandaríkjunumspá því nú að málið gegn Mich- ael Jackson verði fellt niður. Ástæð- an er sú að lögreglurannsókn fyrr á árinu, sem fréttist ekki af í fjölmiðlum, þótti sanna að Jackson hefði ekki brotið á stráknum. Rannsókn var sett af stað eftir atriði í heimildarmynd Martin Bashir þar sem pilturinn viðurkenndi að hafa sofið í rúmi Jackson. Þá var pilturinn ítrekað yf- irheyrður vegna grunnsemda um kynferðisbrot Jackson en þá þvertók stráksi fyrir allt og skrifaði meira að segja undir yfirlýsingu þess efnis að Jackson væri saklaus. Saksóknari þarf því að sanna það að strákurinn hafi logið eða að Jackson hafi brotið á honum eftir að hann skrifaði undir yfirlýsinguna. Sharon Osbourne rauk beint áspítalann til þess að vera við hlið eiginmanns síns eftir að hann stórslasaðist í fjórhjólaslysi á mánu- dag. Ozzy braut viðbeinið, sex rif- bein og hryggjarlið í hálsi þegar hann krassaði hjólinu á landi sínu í Suður- Englandi. Vinir segja að þrátt fyrir að meiðsli Ozzy séu alvarleg sé hann hinn hress- asti, geri mikið grín að sjálfum sér og að hann sé bara glaður fyrir að vera á lífi. Persónulegur harm- leikur í sumarbústað TÓNLIST Íslenska kántrísveitin The Funerals sendi nýlega frá sér plötuna Lordy, sem er önnur plata sveitarinnar. „Lordy er mjög sorgleg plata og lýsir miklum persónulegum harmleikjum,“ segir Lára Sveins- dóttir söngkona. „Við tókum upp 26 lög en fundum mestan sam- hljóm með þeim sem eru á plöt- unni. Hin komust því miður ekki fyrir.“ Fyrsta plata sveitarinnar, Pathetic Me, kom út fyrir tveimur árum og vakti mikla athygli. Hún var tekin upp í Hvammi í Borgar- firði og Hrafntóftum í Rangár- vallasýslu. The Funerals höfðu sama háttinn á við tökur á Lordy nema nú settust þau að á Kóngs- bakka, gömlum sveitabæ á Snæ- fellsnesi. „Við fengum inni hjá eigendunum í tíu daga og settum upp stúdíó í gamalli hlöðu með út- sýni yfir Breiðafjörðinn. Það var voðalega ljúft að komast aftur í sveitina,“ segir Lára, sem er alin upp úti á landi eins og Viðar Hákon Gíslason gítarleikari. „Borgarbörnin kunnu líka að meta sveitina. Það er gott fyrir þennan hóp, sem er annars mjög upptek- inn, að einangra sig úti í sveit og láta ekki aðra hluti trufla sig,“ segir Lára. The Funerals hefur fengið tals- verða athygli erlendis og birtist meðal annars ferðasaga um sveit- ina í The New York Times. Það var tónlistargagnrýndandinn Neil Strauss sem ferðaðist með sveit- inni um Ísland en hann hefur með- al annars skrifað bækur um Mötley Crue og Marilyn Manson. „Hann sá okkur á fyrstu Air- waves-hátíðinni og varð skotinn í okkur,“ segir Lára. „Hann stakk upp á því að við færum um landið og við héldum tónleika á Grundar- firði, Skagafirði og Akureyri.“ The Funerals hefur tvisvar fengið boð um að spila í öðrum löndum en hefur því miður ekki getað þekkst boðið. „Við höfum klúðrað því í bæði skiptin því við eigum aldrei pening og kunnum ekki að sækja um styrki,“ segir Lára en virðist kippa sér lítið upp við að missa af hugsanlegri heimsfrægð. „Þetta er ekkert stress, bara gaman. Aðrar hljóm- sveitir sem meðlimir eru í hafa fengið að ganga fyrir. Þar að auki býr einn meðlimur í Danmörku svo það er erfitt fyrir okkur að hlaupa af stað óundirbúin.“ ■ THE FUNERALS Önnur plata sveitarinnar, Lordy, er komin út. Hún var tekin upp úti á landi eins og fyrri platan, Pathetic Me. M YN D /B R IA N S W EE N EY Nicole Kidman, fyrrum eigin-maður hennar Tom Cruise, núverandi kærasta hans Pen- elope Cruz og Lenny Kravitz, sem er núver- andi kærasti Nicole, ætla öll að eyða jólunum saman á Fídjí- eyjum. Allir eru bestu mátar og Nicole og Tom vilja að börn sín eyði jólunum með foreldrum sínum. Rokkekkjan Courtney Loveskrapp af meðferðastofnun- inni sem hún er á í Los Angeles til þess að fara á rokktónleika á klúbbi. Þar lét hún mikið fyrir sér fara og end- aði meðal annars uppi á sviði þar sem hún spann lag á staðnum. Hún lét allan salinn vita að hún þyrfti mikið á karlmanni að halda. Eftir tónleikana rauk hún þó upp í bíl sinn og sagði bíl- stjóranum að keyra sig beina leið aftur upp á meðferðastofn- unina. Pink og nýi kærastinn hennar,trommarinn Tommy Lee úr Mötley Crue, komu gestum skemmtistaðar- ins Lotus í opna skjöldu á föstu- dagskvöldið með því að hafa háværar sam- farir á salern- inu. Fyrst skipt- ust þau á að leika sér með einni stúlku á klósettinu en hurfu svo inn sam- an og nutu hvort annars. Eig- andi staðarins gekk inn á þau og segir sjónina hafa verið ansi skrautlega. Trúðu mér, Leeds tekur þetta í ár! En hverjar eru þínar væntingar? Hvað heitir aftur liðið þitt? Swimmingpool? Nei... var það Lifrarpylsa? Hm, nei... alveg stolið úr mér... Þú verður að afsaka! Það er erfitt að muna nöfnin á öllum þessum liðum sem hanga alltaf þarna um miðja deild einhvers staðar! Hvað er þetta? Þetta hérna á toppnum? Finnurðu það? Það er Liverpool, vinur minn! Þetta verður langt tímabil!nudd nudd

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.