Fréttablaðið - 11.12.2003, Side 41
41FIMMTUDAGUR 11. desember 2003
George Clinton kærður fyrir fíkniefnabrot
TÓNLIST Lögfræðingur fönkmeist-
arans George Clinton berst núna
fyrir því að fá kærur á hendur
tónlistarsmanninum felldar
niður. George Clinton, sem er
orðinn 63 ára gamall, var hand-
tekinn í Flórída á laugardag eft-
ir að poki af krakk-kókaíini og
pípa fundust í fórum hans. Lög-
fræðingur hans segir leit lög-
reglu á Clinton hafa verið ólög-
lega. Þar af leiðandi eigi að fella
niður kærur.
„Það er þegar orðið ljóst að
staðreyndir varðandi handtöku
George eru ónákvæmar og vill-
andi á köflum,“ sagði Matt Will-
ard lögfræðingur.
Ef Clinton verður fundinn sek-
ur gæti hann átt yfir höfði sér
fimm ára fangelsisdóm. ■
GEORGE CLINTON
George Clinton varð þekktur á sjöunda og áttunda áratugnum með hljómsveitunum Parli-
ament og Funkadelic. Síðar hóf hann sólóferil en stofnaði sína eigin sveit, P-Funk All Stars.
Laika leikur sér
Ég veit að ég er alltaf að tönglastá því í þessum umsögnum mín-
um að tónlistarmenn eigi að bjóða
upp á eitthvað nýtt með hverri
plötu. Enda er það bara listamönn-
um hollt að vera í stöðugri þróun og
kynna sér eitthvað nýtt. En svo auð-
vitað lendir maður á plötum eins og
nýju Laika plötunni.
Sveitin er ekki að gera neitt hér
sem hún hefur ekki gert áður. Lög-
in eru byggð á stöðugum endur-
tekningum hjá trommu og bassa á
meðan aukahljóðfærin hlaðast á
hvert annað þar til að seiðandi
söngurinn tekur völdin. Þessa lýs-
ingu mætti í rauninni nota á flest
lög sveitarinnar frá því að fyrsta
plata þeirra, Silver Apples of the
Moon, kom út árið 1995.
En í tilfelli Laika skiptir þróun-
arleysið engu. Af hverju? Jú, af því
tónlistin sem þau gera er engri
annarri sveit lík. Alveg sér á báti og
minnir ekki á neina aðra sveit. Lög-
in eru góð og tónarnir ennþá ótrú-
lega svalir og því gengur dæmið al-
gjörlega upp. Það er í raun ótrúlegt
að brautryðjanda sveit eins og
Laika hafi aldrei náð upp á yfirborð-
ið. Tékkið á þessari, ein af betri
plötum ársins.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
LAIKA:
Wherever I Am, I Am What is Missing
KATIE HOLMES
Stúlkan úr Dawson’s Creek mun næst
vafra um skuggastræti Gotham-borgar.
Katie Holmes
í Batman
KVIKMYNDIR Nú vinnur leikstjórinn
ungi Christopher Nolan hörðum
höndum að nýrri Batman-mynd
sem bjarga á hetjunni frá frekari
niðurlægingu. Myndin Batman &
Robin frá árinu 1997 með þeim
George Clooney og Arnold
Schwarzenegger í aðalhlutverk-
um þótti heldur betur undarleg og
ekki hefur verið gerð mynd síðan.
Nolan, sem er þekktastur fyrir
myndir sínar Memento og
Insomnia, ætlar að sýna hetjuna í
glænýju ljósi og að öllum líkind-
um mun myndin gerast á undan
þeirri fyrstu sem leikstjórinn Tim
Burton gerði árið 1989 og skartaði
Michael Keaton í aðalhlutverki.
Talað er um að Christian Bale fari
með aðalhlutverkið í þessari.
Nýjustu fregnir herma svo að
leikkonan Katie Holmes hafi ver-
ið ráðin til þess að fara með hlut-
verk kærustu Blaka í myndinni en
hann virðist skipta um slíka í
hverri mynd eins og James Bond.
MADONNA LES FYRIR BÖRNIN
Söngkonan Madonna fylgist hér með að-
dáanda halda ánægðum á braut með árit-
að eintak af bókinni sinni Eplin hans
Peabodys sem hún gaf út í síðasta mán-
uði. Sagan, sem komin er út í íslenskri
þýðingu, fjallar um mikilvægi kennara og
hvað slúður getur verið slæmt.