Fréttablaðið - 02.01.2004, Qupperneq 1
HÚSNÆÐISLÁN Hámarkslán sem
íbúðakaupendur geta fengið hjá
Íbúðalánasjóði hækka um mitt
næsta ár. Vonir eru bundnar við að
vextir húsnæðislána lækki við það
að stjórnvöld bjóða fjármögnun
húsnæðislána út á almennum
markaði. Útboðið verður sniðið að
alþjóðlegum fjármálamarkaði til
að ná niður vöxtum.
Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra telur þessar breytingar
vera mikilvægt skref í þá átt að
framfylgja ákvörðunum sem
kynntar voru í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar í vor um að
hækka hlutfall og fjárhæð hús-
næðislána. „Við erum þarna að
stíga eitt skrefið enn í þá átt, eins
og fjallað er um í okkar stjórnar-
sáttmála,“ segir Árni.
Stefnt er að því að útgáfu hús-
bréfa og húsnæðisbréfa verði
hætt frá og með 1. júlí en þess í
stað muni Íbúðalánasjóður bjóða
út á almennum markaði nýjan
flokk húsnæðisskuldabréfa sem
nefnist íbúðabréf. Stefnt er að því
að sníða hin nýju bréf að alþjóð-
legum fjármálamarkaði.
„Í sinni einföldustu mynd þýðir
þetta að húsbréfin, sem hafa þjón-
að vel sínum tilgangi bæði í hús-
næðiskerfinu og uppbyggingu
verðbréfamarkaðar, munu heyra
sögunni til og með því sú áhætta
sem húsnæðiskaupendur hafa
borið í formi affallanna. Í staðinn
koma þessir stóru skuldabréfa-
flokkar sem ættu að geta haft
áhrif til vaxtalækkunar,“ segir
félagsmálaráðherra.
Hallur Magnússon, verkefna-
stjóri hjá félagsmálaráðuneytinu,
telur líklegt að vextir til fast-
eignakaupenda muni lækka við
þessa breytingu á húsnæðislána-
kerfinu og færist nær alþjóðleg-
um vöxtum en nú er.
Félagsmálaráðherra segir að
áhugi erlendra fjárfesta á ríkis-
tryggðum íslenskum skuldabréf-
um þyki benda til þess að hægt sé
að ná niður vöxtum á húsnæðis-
lánum.
Félagsmálaráðuneytið hefur
einnig hækkað hámarkslán fyrir
nýtt húsnæði úr níu í 9,7 milljónir
og fyrir notað húsnæði úr átta í 9,2
milljónir. Þá hafa vextir á viðbót-
arlánum verið lækkaðir úr 5,6% í
5,3%.
thkjart@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
FÖSTUDAGUR
hollur fiskur ● til hnífs og skeiðar
▲
SÍÐUR 16-17
matur o.fl.
Grænkryddað
kjöt sérkennilegast
Steingrímur J. Sigfússon:
MIÐALDRA UNGLINGAHLJÓM-
SVEIT Pops koma saman og leika á
Kringlukránni í kvöld og annað kvöld.
Þeir hafa haft fyrir vana að koma saman
tvær helgar í janúar ár hvert en láta sér
nægja eina helgi nú.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HÆGT HLÝNANDI VEÐUR Fyrst um
suðvestanvert landið en síðan ætti að vera
orðið frostlaust um allt á morgun. Það má
búast við allnokkrum vindi með Suður- og
Vesturlandinu. Sjá síðu 6.
2. janúar 2004 – 1. tölublað – 4. árgangur
● framkvæmdabókin 2004
Þorsteinn Garðarsson:
▲
SÍÐA 31
Skipulag á nýju ári
● nýr aðstoðarmaður þorgerðar katrínar
Steingrímur Sigurgeirsson:
▲
SÍÐA 14
Í ráðuneyti mennta
og menningar
● sala íslenskrar tónlistar
Björgvin Halldórsson:
▲
SÍÐA 18
Nær hann
gullinu?
FYRSTA BARNIÐ Í REYKJAVÍK
Stúlkubarn sem fæddist í Reykjavík í gær-
morgun var fyrsta barn ársins. Stúlkan lét
finna fyrir sér á gamlárskvöld og gaf móður
sinni lítið færi á að fylgjast með flugelda-
sýningunni. Sjá síðu 2
EKKERT GREITT Tryggingastofnun end-
urgreiðir ekki lengur lækniskostnað vegna
heimsókna sjúklinga til sérfræðinga. Samn-
ingur stofnunarinnar við læknana rann út
um áramót og því greiðir stofnunin ekkert
fyrr en semst á ný. Sjá síðu 2
FUNDUST Á LÍFI Björgunarmenn á
jarðskjálftasvæðunum í Íran fundu í gær
fertugan karlmann sem hafði grafist undir
rústum í jarðskjálftanum. Ellefu hafa bjarg-
ast síðustu daga. Sjá síðu 8
ÓLÍK SÝN Ólafur Ragnar Grímsson for-
seti varaði við því að frumherjar í atvinnulífi
gætu flúið land ef íslensk stjórnvöld gengju
of hart að þeim. Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra varaði við því að frelsi í viðskipta-
lífi mætti ekki verða of mikið. Sjá síðu 10
ÍSRAEL Áætlanir Ísraelsmanna um
frekari uppbyggingu landnema-
byggða í Gólanhæðum hafa verið
harðlega gagnrýndar víða um
heim, en ísraelsk stjórnvöld
kynntu í gær áætlanir um að
byggja 900 ný heimili á svæðinu
sem hertekið var frá Sýrlending-
um árið 1967.
Frakkar eru meðal þeirra sem
harðast hafa gagnrýnt áætlunina
og hafa hvatt Ísraelsmenn til þess
að hætta við hana enda standist
áætlunin engan veginn alþjóðleg
lög auk þess sem hún setji friðar-
ferlið í uppnám.
Sýrlensk stjórnvöld fordæmdu
áætlunina í gær og sögðu hana
sanna að ríkisstjórn Ariels Sharon
væri helsta hindrunin fyrir friði á
svæðinu, en gangi þessi 60 milljón
dollara áætlun Ísraelsmanna eftir
mun íbúum í Gólanhæðum fjölga
um fimmtíu prósent á næstu þrem-
ur árum.
Bashar al-Assad, forseti Sýr-
lands, sagði að deiluna um yfirráð-
in í Gólanhæðum ætti að leysa með
viðræðum á alþjóðlegum laga-
grundvelli. Beiting hervalds, eins
og Ísraelsmenn ætluðu sér, gerði
aðeins illt verra.
Yisrael Katz, landbúnaðar-
ráðherra Ísraels, sagði í gær að
með áætluninni væri verið að
senda út ákveðin skilaboð um að
Gólanhæðir væru óaðskiljanleg-
ur hluti Ísraels. ■
Húsnæðislánin hækka
og vextir af þeim lækka
Ríkisstjórnin hefur samþykkt breytingar á húsnæðislánakerfinu sem fela í sér að upphæð lána
hækkar. Breytingar á formi lánanna eiga að leiða til þess að vextir til kaupenda húsnæðis lækka.
Ísraelar hyggja á frekari uppbyggingu í Gólanhæðum:
Sagðar draga úr friðarlíkum
Meðallestur fólks
á föstudögum
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í okt. ‘03
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
75%
53%
OLÍU SKVETT Á BRENNU Á NESKAUPSSTAÐ Áramótin fóru friðsamlega fram að þessu sinni, sums staðar svo mjög að menn muna
vart annað. Á Neskaupsstað voru ungir björgunarsveitarmenn naktir að ofan þegar þeir skvettu olíu á brennuna. Í gegnum tíðina hafa
þeir gjarnan skellt sér í sjóinn á eftir. Sjá síðu 4
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
G
Handtaka í Moskvu:
Sagðist vera
bin Laden
RÚSSLAND Lögreglan í Moskvu hand-
tók í gærmorgun
mann sem hélt því
fram að hann væri
hryðjuverkafor-
inginn Osama bin
Laden. Maðurinn
hafði hagað sér ein-
kennilega í einni af
neðanjarðalestum
borgarinnar og var
því kallað á lög-
regluna sem hand-
tók manninn á
næstu lestarstöð.
Þegar maðurinn var beðinn um
skilríki sagðist hann heita Osama
bin Laden og að hann væri eftirlýst-
ur af Bandaríkjamönnum. Lögregl-
an lét ekki blekkjast og var maður-
inn fluttur á næsta geðveikrahæli
þar sem hann dvelur nú.■
BASHAR AL-ASSAD
Assad Sýrlandsforseti segir að leysa eigi
deiluna um Gólanhæðir með viðræðum.
MÁNAÐARLEGAR AFBORGANIR
AF HVERRI MILLJÓN Í 25 ÁR
VIÐ ÓLÍKT VAXTASTIG.*
5,1% 5.904 (70.848 á ári)
4,9% 5.788 (69.456 á ári)
4,7% 5.672 (68.064 á ári)
4,5% 5.558 (66.696 á ári)
*Miðað við jafngreiðslulán með 1%
lántökugjaldi og núverandi verðlag.
Útreikningur samkvæmt lánareiknivél
www.bi.is.
SJÁLFUR BIN
LADEN
Hann reyndist
ekki á ferð í
Moskvu.