Fréttablaðið - 02.01.2004, Qupperneq 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Spá mín fyrir
árið 2004
Sko. Ég held að þetta verði alveghreint ágætt ár að mörgu leyti, þó
svo að einhverjar hörmungar muni
vissulega eiga sér stað og margir
munu eiga bágt. En þótt margir muni
jafnvel hafa það mun verr en þeir
höfðu áður þá munu þrátt fyrir allt
margir líka hafa það betra en fyrr. Og
til verða þeir sem munu rísa úr
öskustónni, til frægðar og auðæfa, á
meðan fall annarra verður hátt og böl
verður hlutskipti þeirra um skeið.
EINNIG held ég því fram að árið í
pólitíkinni verði markað þónokkrum
deilum, eins og gerist og gengur, þó
svo vissulega verði líka sátt. Mikil
sátt. Einhver uppþot verða en þau
munu gleymast og skipta litlu máli.
Stjórnmálamenn verða þó almennt
nokkuð pirraðir, enda fara völd þeirra
þverrandi og færri sjá ástæðu til að
hlusta á þá. Þeim verður þar af leið-
andi strítt í meira mæli en áður. Upp
mun rísa ný stétt manna í þjóðfélags-
umræðunni: þeir sem gera það að
gamni sínu, sér til dægrastyttingar,
að stríða íslenskum stjórnmálamönn-
um. Ég held að það geti orðið spenn-
andi að fylgjast með því.
TÆKNIFRAMFARIR verða litlar
enda erum við ennþá að spá í af hver-
ju í ósköpunum við erum komin með
myndavélar í símana okkar. Við þurf-
um að finna svar við þeirri spurningu
áður en við getum haldið áfram í átt
til enn meiri tækniframfara.
NÚ, MENNINGIN. Ekki má
gleyma henni. Einhverjir munu skrifa
bækur, aðrir gefa út tónlist og halda
tónleika. Sumir mála. Einhverjir
verða í fígúratívu málverki, aðrir
meira abstrakt. Margir munu gera
alls kyns tilraunir og sumir verða
mjög sniðugir. Einhverjir detta úr
tísku, á meðan aðrir munu komast í
tísku.
ÞANNIG AÐ ég held að þetta verði
sæmilegt ár. Enn eitt ár á Jörð. Enn
einir 365 dagar á norðurhjara verald-
ar með gleði og sorg, skammdegi, sól,
slabbi, frosti, rigningu, logni, milk-
shake á Ingólfstorgi og fólki með
barnavagna við Tjörnina. Nema auð-
vitað loftsteinn lendi í Atlantshafi og
okkur skoli burt í risastórri flóð-
bylgju. En ég vona ekki. Gleðilegt
nýtt ár.
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma